Lífið

Sonur Snorra og Nadine kominn með nafn

Íris Hauksdóttir skrifar
Falleg fjölskylda, sonur Nadine og Snorra kom í heiminn 3. júní.
Falleg fjölskylda, sonur Nadine og Snorra kom í heiminn 3. júní. Nadine Yaghi

Sonur Nadine Guðrúnar Yaghi, samskiptastjóra Play og Snorra Mássonar fjölmiðlamanns er kominn með nafn. Saman birta þau fallegar myndir frá nafnaveislunni á Instagram.

Veislan var haldin heima og óhætt að segja nýbakaða foreldra geisla á myndunum ásamt sonum sínum tveimur. Drengurinn sem kom í heiminn þann 3. júní fékk nafnið Már eftir föðurafa sínum en hann er fyrsta barn Snorra. Nadine á son úr fyrra sambandi. 

Skúli S. Ólafsson prestur í Neskirkju skírði drenginn og fengu bestu vinir foreldranna, þau Hildur María Harrde og Jakob Birgisson, betur þekktur sem Meistari Jakob, uppistandari, þau hlutverk að verða guðforeldrar barnsins. 

Hamingjuóskum hefur rignt yfir parið á Instagram og Facebook


Tengdar fréttir

Nadine og Snorri eignuðust son

Sonur Nadine Guðrúnar Yaghi, samskiptastjóra Play og Snorra Mássonar fjölmiðlamanns er kominn í heiminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×