Lífið

Fjölskyldufaðir svarar kallinu og framleiðir íslenskt barnaefni á YouTube
Fjölskyldufaðirinn Einar Björn Þórarinsson hafði rekið sig á mikinn skort á íslensku barnaefni á YouTube þegar hann ákvað að ráðast í verkið sjálfur. Hann stofnaði YouTube rásina Sólon Barnaefni þar sem ofurhetjan Sólon býður upp á fræðandi skemmtun fyrir börn á öllum aldri.

„Fæ mér fisk í hádeginu alla daga, alltaf!“
„Fiskur er svo góður fyrir þig, mér finnst hann líka bara svo góður,“ segir Helgi Björns í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni um helgina.

Störf munu þurrkast út með tilkomu gervigreindar
Tækninni fleygir fram á ógnarhraða og gervigreind er ekki lengur bara eitthvað sem við lesum um í vísindaskáldsögum heldur er gervigreind nú þegar orðin partur af lífi margra.

Sjónvarpsmaðurinn Paul O‘Grady er látinn
Breski sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Paul O‘Grady er látinn, 67 ára að aldri.

Þurfti að fela hneigð sína til kvenfatnaðar: „Svona er ég mótaður og svona er ég bara“
„Ég er með mjög óljósar minningar af því að vera sex eða sjö ára að máta nælonsokka upp í sveit og ég veit ekkert hvað þetta er,” segir Biggi Veira eða Birgir Þórarinsson tónlistarmaður og meðlimur GusGus.

Nýtt nafn dótturinnar vekur upp spurningar
Tónlistarkonan Grimes og auðkýfingurinn Elon Musk hafa breytt nafni eins árs gamallar dóttur sinnar sem heitir nú einfaldlega „?“. Þessu greinir Grimes frá á Twitter síðu sinni.

Fékk sendan notaðan klósettpappír frá aðdáanda
Það er vitað mál að stjörnurnar fá send bréf og varning af ýmsu tagi frá aðdáendum sínum. Tónlistarkonan Bebe Rexha fékk þó heldur óhefðbundna sendingu á dögunum þegar henni barst notaður klósettpappír frá aðdáanda.

Selena Gomez á stefnumóti með Zayn Malik
Leik- og söngkonan Selena Gomez og tónlistarmaðurinn Zayn Malik eru sögð vera að máta sig við hvort annað. Nýlega sást til þeirra á stefnumóti í New York sem lauk með kossi.

„Einhverfa sést ekkert“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Drómi Hauksson er með einhverfu en hann gerði á dögunum sautján mínútna stuttmynd um það hvernig einhverfir sjá heiminn ólíkt öðrum.

Skautadrottning lærir íslensku til að ná sér eftir slys
Bandarísk kona sem lenti í slysi ákvað að koma til Íslands til að ná bata. Læknir hennar sagði að það væri ekkert sem hún gæti gert en hún fullyrðir að henni líði mun betur eftir að hafa verið hér í sjö mánuði. Hún lærir íslensku til að þjálfa heilann og fer í sund til að hjálpa líkamlegu hliðinni.

Barst fjöldi skilaboða frá karlmönnum vegna brjóstanna
Saga Garðarsdóttir leikkona hefur fengið mikil viðbrögð við kjól sem hún klæddist í Vikunni hjá Gísla Marteini á dögunum. Karlmenn voru sérstaklega ánægðir með brjóstasýninguna sem var í gangi, eins og hún kemst að orði.

Máni kveður Sýn: „Þetta hefur verið áhugavert ferðalag í rúm 25 ár"
Máni Pétursson fjölmiðlamaður hefur sagt skilið við Sýn eftir 25 ára starf. Hann lauk formlega störfum um síðustu mánaðamót.

Helgi Björns, Högni Egils og Sigríður Thorlacius fögnuðu nýjasta veitingahúsi Reykjavíkur
Veitingastaðurinn Skreið er nýjasta viðbót við fjölbreytta flóru veitingahúsa í miðbæ Reykjavíkur. Þessi nýi staður sérhæfir sig í tapasréttum og góðum vínum og er undir baskneskum áhrifum.

Harry Styles og Emily Ratajkowski deildu frönskum kossi í Tókýó
Það er óhætt að segja að tónlistarmaðurinn Harry Styles sé einn eftirsóttasti hjartaknúsari Hollywood. Það ætlaði því allt um koll að keyra þegar myndir af honum í kossaflensi með fyrirsætunni Emily Ratajkowski birtust á netinu nú um helgina.

Lóa Pind fann loksins dýrari matarkörfu en á Íslandi
Lóa Pind heimsótti fiðluleikarann Ara Vilhjálmsson sem fór fyrir nokkrum árum í örlagaríkt frí til Ísrael. Á síðasta degi féll hann fyrir einum innfæddum og þá var ekki aftur snúið.

Renner birtir myndskeið af sér að ganga
Leikarinn Jeremy Renner hefur birt myndskeið af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann sést labba á göngubretti sem ætlað er einstaklingum í endurhæfingu. Renner lenti í alvarlegu slysi á nýársdag, þar sem fleiri en 30 bein brotnuðu.

Stjörnulífið: Verðlaun, skíði og lúxus
Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Í síðustu viku nýttu því margir tækifærið og skelltu sér á skíði áður en snjórinn kveður endanlega. Þá er verðlaunavertíðin ennþá í fullum gangi og voru Íslensku tónlistarverðlaunin veitt nú í vikunni.

Nauðungarvistun Bynes framlengd
Nauðungarvistun leikkonunnar Amöndu Bynes hefur verið framlengd um minnst viku og gæti verið framlengd í allt að mánuð. Barna- og táningastjarnan var vistuð á geðdeild fyrir viku, eftir að hún sást ganga nakin um götur Los Angeles.

„Gjaldþrotið var mér einum að kenna og lagðist þungt á mig”
Halldór Einarsson, eigandi Henson, segist enn elska að mæta í vinnuna alla morgna eftir áratugastörf við að hanna og sauma íþróttaföt. Halldór, sem er oftast kallaður Henson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Þar talar hann um hve ótrúlegar breytingar hafi átt sér stað síðan hann stofnaði íþróttafyrirtækið Henson með eina saumavél að vopni aðeins 22 ára gamall.

Húsfyllir þegar lína 66 og GANNI var kynnt
Það var mikil eftirvænting í loftinu þegar þriðja samstarfslína 66°Norður og danska fatamerkisins GANNI var kynnt með pompi og prakt í verslun 66°Norður á Hafnartorgi í gær.

Átta herbergja einbýli á sextíu milljónir
Átta herbergja einbýlishús í Miðtúni 13 á Tálknafirði er til sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 250 eru 59,9 milljónir króna.

Majors handtekinn fyrir heimilisofbeldi
Leikarinn Jonathan Majors var handtekinn fyrir heimilisofbeldi á Manhattan í New York í Bandaríkjunum í gær. Kona á þrítugsaldri sagði hann hafa ráðist á sig og var með nokkra áverka á höfði og búk.

Harry Potter-stjarna fjölgar muggkyninu
Enski leikarinn Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á töfrastráknum Harry Potter, og Erin Darke, bandarísk kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið hefur verið saman í tíu ár.

Einbýli með bar og arinstofu falt fyrir 265 milljónir
Rúmlega þrjú hundruð fermetra einbýlishús á Starhaga í Vesturbæ Reykjavíkur er til sölu. Ásett verð eru 265 milljónir króna. Húsið er hannað af Halldóri Jónssyni og í kjallaranum er arinstofa með innréttingum sem Sveinn Kjarval hannaði. Örstutt er á Ægisíðuna.

Ingvar E hreppti ein elstu kvikmyndaverðlaun Evrópu
Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson vann dönsku Bodil-verðlaunin fyrr í kvöld fyrir bestan leik í aukahlutverki í kvikmyndinni Volaða land. Elliott Crosset Hove var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í sömu kvikmynd.

Fluttu saman Eurovision lög hvor annars og allt varð vitlaust
Kvöldstund með Eyþóri Inga hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 í gærkvöld.

Kanye hatar ekki lengur gyðinga þökk sé Jonah Hill
Rapparinn umdeildi Kanye West kveðst ekki lengur hata gyðinga. Ástæðan er einföld: frammistaða Jonah Hill í kvikmyndinni 21 Jump Street frá árinu 2012.

Einstaklega gæf ugla heilsaði upp á leikskólabörn í Ólafsfirði
„Hún var ekkert hrædd við börnin“ segir leikskólastjóri í Fjallabyggð um uglu sem heimsótti leikskólabörn í gær. Uglan sat í dágóðan tíma nær upp við glugga skólans og virti börnin fyrir sér.

104 ára bresk stríðshetja á 63 ára gamla kærustu á Íslandi
Konunglega breska hersveitin, sem eru samtök breskra uppgjafarhermanna hafa sent ákall til bresku þjóðarinnar þar sem almenningur er hvattur til að senda fyrrum hermanninum Ernest Horswall kveðju á 105 ára afmælisdaginn þann 21. apríl næstkomandi, en Ernest á enga ættingja á lífi. Fjölmargir breskir miðlar hafa birt fréttir um málið en þar kemur meðal annars fram að hinn 104 ára gamli ofurhugi eigi kærustu á Íslandi. Ernest hefur heimsótt Ísland reglulega síðan árið 1991 og á marga vini hér á landi.

Fréttakviss vikunnar: Ertu á vaktinni?
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.