Lífið

Ánægð saman á ný

Miley Cyrus og leikarinn Liam Hemsworth hafa tekið saman aftur og virðist afskaplega hamingjusamt. Cyrus og Hemsworth kynntust við tökur á kvikmyndinni The Last Song árið 2009 og áttu í árs löngu sambandi þá. Leiðir þeirra skildu um hríð en parið tók aftur saman nú í vor.

Lífið

Stórstjörnur semja í bakherbergjum

Meðfylgjandi myndir voru teknar í vikunni af tveimur stjórstjörnum, Angelinu Jolie, 36 ára, og Katie Holmes, 32 ára. Báður stukku þær út úr bíl og skunduðu inn á hótel þar sem beðið var eftir þeim í bakherbergjum. Angelina var klædd í svarta dragt með slegið hárið á leið sinni á fund á Dorchester hótelinu í London og Katie mætti á ónefnt hótel í Beverly Hills klædd í H&M buxur.

Lífið

Enginn skortur á stuðningi hjá fyrirliða Stjörnunnar

„Það geta oft verið mikil læti en maður tekur ekki eftir því. Það er kannski einna helst þegar fólk kemur í heimsókn að einhver hefur orð á þessu,“ segir Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, hinn 23 ára gamli fyrirliði Íslandsmeistaraliðs Stjörnunnar í knattspyrnu.

Lífið

Ásgeir bíður spenntur eftir Jim Carrey

„Vissulega kostaði þetta heilmikið en þetta er góð fjárfesting þar sem við erum með góðan stað í höndunum,“ segir Ásgeir Kolbeinsson, eigandi skemmti- og veitingastaðarins Austur.

Lífið

James Bond til Indlands

Nýjasta James Bond-myndin verður líklega tekin upp að hluta til á Indlandi. Þetta verður önnur Bond-myndin sem verður tekin upp þar í landi. Octopussy sem kom út 1983 var sú fyrsta. Einnig er talið að einhverjar tökur verði í Suður-Afríku.

Lífið

Djassarar skáluðu á KEX

Önnur plata djasskvartettsins ADHD er nýkomin út. Liðsmenn sveitarinnar fögnuðu útgáfunni á gistiheimilinu KEX við Skúlagötu á miðvikudagskvöld.

Lífið

Lone Scherfig heiðursgestur

Heiðursgestur á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 verður danska kvikmyndagerðarkonan Lone Scherfig. Hún hlýtur heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn. Verðlaunin verða veitt í nafni frú Vigdísar Finnbogadóttur og verður afhending þeirra árlegur viðburður á hátíðinni héðan í frá.

Lífið

Frjálsar ástir hafa jákvæð áhrif

„Það hefur greinilega jákvæð áhrif á okkur að vera innan um þessar frjálsu ástir í leikritinu,“ segir Erna Hrönn Ólafsdóttir, söng- og leikkona, en það vill svo skemmtilega til að Erna er þriðji meðlimur leikhópsins í Hárinu sem á von á barni.

Lífið

11 ára aldursmunur

Leikkonan Minnie Driver, 41 ára, naut samverunnar með fyrirsætunni Matthew Felker, 30 ára, á Malibu strönd á sunnudaginn. Fyrirsætan er þekkt fyrir að kyssa Britney Spears eftirminnilega á flugsalerni í tónlistarmyndbandinu við lagið Toxic sem var vinsælt árið 2004. Parið lét nærstadda ljósmyndara ekki trufla sig eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Mynduðu sterka þrenningu

Kvikmyndin Á annan veg í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar er komin í bíó. Myndin var tekin upp á aðeins sextán dögum og fóru upptökur fram á sunnanverðum Vestfjörðum.

Lífið

Of erfitt fyrir Janet Jackson að taka þátt

Janet Jackson, systir poppkóngsins sáluga Michaels Jackson, ætlar ekki að koma fram á minningartónleikum um hann á Þúsaldar-leikvanginum í Cardiff í Wales 8. október. Ástæðan er sú að skömmu áður, eða 27. september, hefjast réttarhöld yfir lækni Jacksons, Dr. Conrad Murray.

Lífið

Pippa sektuð

Systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 27 ára, var mynduð yfirgefa vinnuna í London í gærdag. Hún fékk fjölda atvinnutilboða eftir að systir hennar nældi í prinsinn en tók á endanum tilboði góðs vinar og fyrrverandi elskhuga, George Percy, um að starfa hjá fjölskyldu hans sem rekur orkufyrirtæki. Eins og sjá má í myndasafni fékk Pippa stöðumælasekt þennan dag en kippti sér ekki upp við það og hélt ferð sinni áfram.

Lífið

Jónsi dáleiddi Crowe

Bandaríski leikstjórinn Cameron Crowe er almennt talinn vera snillingur í notkun tónlistar í kvikmyndum sínum. En hann hyggst venda kvæði sín í kross í sinni nýjustu mynd með aðstoð Jónsa úr Sigur Rós.

Lífið

Sló met á Twitter

Tilkynning söngkonunnar Beyoncé um að hún væri ófrísk á MTV-verðlaunahátíðinni á sunnudag varð til þess að met á síðunni Twitt-er var slegið.

Lífið

Marín Manda komin heim og selur skó á netinu

"Þetta var í raun grín sem varð að veruleika," segir Marín Manda Magnúsdóttir, sem er komin með annan fótinn til Íslands eftir tíu ára búsetu í Danmörku. Ástæðan er vinnutilboð sem hún gat ekki hafnað.

Lífið

Fikrar sig upp á yfirborðið

Þrátt fyrir ungan aldur spannar ferill Ryans Gosling næstum tuttugu ár, en hann verður að teljast einn eftirsóttasti leikari Hollywood um þessar mundir. Hann hefur að mestu leyti eytt tíma sínum í óháða kvikmyndageiranum en er smám saman að fikra sig upp á yfirborðið.

Lífið

Þökkuðu fyrir stuðninginn á Patró

Á annan veg var forsýnd á Patró um helgina í hinu rómaða Skjaldborgarbíói. Stór hluti tökuliðs og leikara lagði leið sína vestur og skemmtu sér konunglega ásamt heimafólki, en aðstandendur myndarinnar nutu ómælds stuðnings frá heimafólki við tökurnar í fyrra.

Lífið

Hreindís Ylva heldur tónleika

Leikkonan Hreindís Ylva Garðarsdóttir, sem lék eftirminnilega Stellu í kvikmyndinni Órói, heldur tónleika ásamt hljómsveit í Salnum í Kópavogi næsta sunnudag, 4. september. Markmiðið er að heiðra söngkonuna Erlu Þorsteinsdóttur með því að syngja þekkt dægurlög sem Erla söng. Þá má nefna lögin Þrek og tár, Draumur fangans, Litli tónlistarmaðurinn og Bergmálsharpan. Sjá Hreindísi, sem vinnur í Griffli, segja frá tónleikunum í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Úff þetta er greinilega sársaukafullt

Söngkonan Mel B, 36 ára, kvaldist greinilega í miðjum hríðum þegar hún var leidd á spítala í Los Angeles í morgun. Eiginmaður hennar, Stephen Belafonte, og lífverður aðstoðuðu Mel, eins og sjá má. Um er að ræða þriðja barn söngkonunnar.

Lífið

Golíat á hvíta tjaldið

Hollywood heldur áfram að koma á óvart ef marka má nýjustu fréttir frá kvikmyndaborginni. Til stendur að gera kvikmynd um sögufrægan bardaga Davíðs og Golíats sem getið er um í Gamla testamentinu. Og þá kynnu sumir að halda að hringt yrði í „vandaða“ leikara. Alls ekki. Því þeir sem hafa verið orðaðir við hlutverkin teljast seint til þess hóps. Orðrómur er á kreiki um að Dwayne Johnson, eða The Rock, hafi tekið að sér hlutverk Golíats en Taylor Lautner verði sjálfur Davíð Ísraelskonungur. Það er Scott Derrickson sem mun leikstýra myndinni.

Lífið

Hathaway í Vesalinga Hoopers

Tom Hooper, sem síðast gerði The King‘s Speech, er nú að safna liði fyrir sína mynd. Hooper ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því hann hyggst gera mynd eftir söngleiknum Vesalingunum sem er byggður á skáldsögu Victors Hugo. Hooper hefur auðvitað ótakmarkaðan aðgang að fjármagni eftir velgengni The King‘s Speech og hefur fengið Anne Hathaway til að leika aðalkvenhlutverkið. Hathaway hefur haft í nægu að snúast eftir að hafa staðið sig með stakri prýði sem kynnir Óskarsverðlaunanna, en hún mun meðal annars leika kattarkonuna í The Dark Knight Rises, síðustu Batman-mynd Christopher Nolan.

Lífið

Framleiðir mynd með Hollywood-stjörnum

„Við virðumst hafa hitt naglann með þessu hlutverkavali og höfum verið með puttann á púlsinum. Svartur á leik er alvöru,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson kvikmyndaframleiðandi.

Lífið

Íbúar fastir í lofthjúpi

Fyrirtæki Stevens Spielberg, DreamWorks Television, ætlar að framleiða nýja sjónvarpsþáttaröð byggða á vísindaskáldsögu Stephens King, Under the Dome. King sjálfur tekur þátt í framleiðslunni. Þættirnir fjalla um íbúa smábæjarins Chester’s Mill í Maine sem festast inni í einhvers konar lofthjúpi sem ekkert kemst í gegnum, þar á meðal flugvélar. Enginn skilur hvernig þessi hjúpur varð til eða hvaðan hann kom. Dale Barbara, fyrrverandi hermaður í Írak, og aðrir hugrakkir bæjarbúa gera hvað þeir geta til að losa sig við hjúpinn áður en það verður of seint.

Lífið

Reyktu ösku Tupac Shakur

Meðlimir rappsveitarinnar Outlawz sem Tupac Shakur stofnaði segjast hafa reykt ösku rapparans sáluga. Þetta gerðist á minningarathöfn um Tupac, sem var skotinn til bana í Las Vegas 1996. „Við héldum litla minningar-athöfn fyrir hann með mömmu hans og fjölskyldu hans. Við fórum á ströndina með alls konar dót sem hann fílaði, eins og gras, kjúklingavængi og appelsín,“ sagði rapparinn Young Noble. Það var svo rapparinn EDI Mean sem ákvað að aska Tupac yrði reykt. Hugmyndina fékk hann úr laginu Black Jesus, þar sem Tupac biður félaga sína um að reykja ösku sína þegar hann deyr.

Lífið

Þetta kunna konur að meta

Kris Humphries sá til þess að ekkert færi fram hjá eiginkonu sinni, Kim Kardashian, 30 ára, í gær þegar 500 manns fögnuðu formlega komu þeirra til New York. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hélt Kris á Kim, sem var klædd í síðan glæsilegan Victoriu Beckham kjól. Þá má einnig sjá systir Kim, Kourtney, í myndasafni.

Lífið

Skandínavar sjúkir í ljósblátt sjónvarpsefni

Skandínavískir sjónvarpsþættir hafa alltaf notið mikilla vinsælda hér á landi og margir eru eflaust þeirrar skoðunar að Norðmenn, Svíar og Danir ættu að vera fyrirmyndir íslenskra sjónvarpsstöðva. Þeir eiga sér hins vegar sínar dökku hliðar.

Lífið

Slapp með skrekkinn

Popparinn Justin Bieber slapp með skrekkinn þegar hann lenti í árekstri í Los Angeles. Atvikið átti sér stað í bílastæðahúsi neðanjarðar þegar ökumaður Hondu-bifreiðar ók lítillega utan í svarta Ferrari-glæsikerru Biebers. Enginn slasaðist og hvorugur bíllinn skemmdist. Atvikið átti sér stað innan við tveimur sólarhringum eftir að Bieber hlaut MTV-verðlaun fyrir myndband sitt við lagið U Smile. Popparinn, sem var uppgötvaður af söngvaranum Usher, er um þessari mundir að fylgja eftir sinni fyrstu plötu, My World, sem kom út í fyrra.

Lífið