Lífið

Siggi Þór og Sonja nefndu frumburðinn
Sigurður Þór Óskarsson leikari og unnusta hans Sonja Jónsdótir vefhönnuður gáfu syni sínum nafn á dögunum. Drengurinn fékk nafnið Steinar Ari.

Stjörnulífið: „Dvalarheimili hinsegin poppara 2059“
Gleðin var allsráðandi hjá stjörnum landsins í liðinni viku þar sem ástarjátningar, skíðaferðir og stjörnum prýdd partý voru áberandi.

Banaslys í djammferð áhafnarinnar breytti öllu
Arnór Sveinsson jógakennari gjörbreytti lífi sínu eftir skyndilegt banaslys frænda síns og náins vinar sem var með honum til sjós. Arnór, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, hafði verið á sjó síðan hann mundi eftir sér, en eftir slysið fór hann á flakk um heiminn til að læra hugleiðslu, öndun- og kuldaþjálfun.

Oppenheimer raðaði inn BAFTA verðlaunum
Breski leikstjórinn Christopher Nolan fékk sín allra fyrstu BAFTA verðlaun í gærkvöldi fyrir leikstjórn myndarinnar Oppenheimer. Myndin fékk langflest verðlaun að þessu sinni eða sjö talsins. Á óvart kom að Barbie fékk engin verðlaun.

Hjarðhegðun Íslendinga
Hjarðhegðun Íslendinga endurspeglar smæð samfélagsins og hræðsluna við það að vera utangátta. Eða hvað? Hvers vegna er landinn á einu auga bragði klæddur í samskonar skó, ferðast til sömu áfangastaðanna og kaupir eins húsgögn?

Keypti 600 Bónuspoka og gerði úr þeim listaverk um fátækt
Sæmundur Þór Helgason opnaði nýverið Af hverju er Ísland svona fátækt? í Nýlistasafninu. Hann segir að sýningunni sé „sú fegraða ímynd sem Ísland kynnir gjarnan út á við dregin í efa með því að varpa ljósi á ólíkar upplifanir mismunandi fólks í landinu.“

Heimsfrægur grínisti staddur á landinu
Bandaríski grínistinn James Murray er staddur á Íslandi. Hann virðist ekkert vera að flækja hlutina; Gullfoss, Geysir og hellaskoðun urðu fyrir valinu.

Íslenskur prjónahittingur á Tenerife í hverri viku
Þær eru kátar og hressar íslensku konurnar, sem hittast reglulega og prjóna saman á Tenerife. Aðallega er verið að prjóna á barnabörnin heima á Íslandi, þó þær séu með ýmislegt annað á prjónunum á vikulegum prjónahitting hópsins.

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði
Magnús Kjartan Eyjólfsson, aðalsöngvari Stuðlabandsins, hefur greinst með hvítblæði.

Kannast ekkert við að húsið sé til sölu
Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði kannast ekkert við að hús hans á Nönnustíg sé til sölu, þvert á það sem haldið er fram í Smartlandi Morgunblaðsins. „Lýsandi fyrir Moggann, það er hálfur sannleikurinn,“ segir Jón Ingi.

Lifði nóttina af í sparifötum á gúmmíbát
„Stundum kom sú hugsun til mín um nóttina að þetta gæti aldrei endað nema á einn veg. Ég var í raun ekki hræddur við það – þá yrði þessum þrautum lokið. En ég sætti mig ekki við það gagnvart aðstandendum mínum og vinum.“

Spreyttu þig á spurningunum: Idol, Eurovision og TikTok
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni sem hefst á Vísi í dag. Krakkatían kemur í staðinn fyrir Krakkakvissið sem hefur verið á Vísi undanfarið.

Ása Ninna datt um koll í beinni útsendingu
Bráðfyndið atvik átti sér stað í beinni útsendingu Bakarísins á Bylgjunni í dag þegar Ása Ninna Pétursdóttir, annar þáttastjórnanda, ætlaði að fá sér sæti í stúdíóinu. Það fór ekki betur en svo að hún endaði kylliflöt á gólfinu.

VÆB og Aníta komust áfram í Söngvakeppninni
Fyrra undanúrslitakvöld söngvakeppnis Ríkisútvarpsins fór fram í kvöld. Flytjendurnir VÆB og Aníta komust áfram og keppa í úrslitum keppninnar þann 2. mars næstkomandi.

Nemendur byggja og byggja á Sauðárkróki
Nemendur, sem eru að læra húsasmíði í Fjölbrautaskóla Norðurlands á Sauðárkróki slá ekki slöku við því þeir smíða fjölda gestahúsa eins og engin sé morgundagurinn. Mikil ánægja er með námið í skólanum og hafa vinsældir þess sjaldan verið eins miklar og nú.

Hrífandi hönnunarperla við Heiðmörk
Við Urriðaholtsstræti 72 í Garðabæ má finna glæsilegt 180 fermetra raðhús á tveimur hæðum með útsýni að Heiðmörk. Það sem gerir eignina afar áhugaverða er að húsið er svansvottað. Ásett verð er 147,9 milljónir.

„Hluti af mér dó með honum“
„Ég er enn að syrgja pabba í dag og ég hætti því aldrei. Sorgin fylgir manni alla tíð,“ segir Dagmar Øder Einarsdóttir. Hún var á táningsaldri þegar faðir hennar, Einar Öder Magnússon lést af völdum krabbameins. Hann var einungis 52 ára gamall.

Skrifaði bók fyrir börn sem getin eru með aðstoð tækninnar
„Öll börn eiga rétt á því að vita hvernig þau urðu til og fá tækifæri til að fá upplýsingar um uppruna sinn,“ segir Andrea Björt en hún og eiginkona hennar eignuðust son sinn með aðstoð sæðisgjafa. Andrea rak sig á það á sínum tíma að það var lítið sem ekkert efni til á íslensku sem ætlað var börnum sem getin eru með aðstoð sæðis- eða eggjagjafa.

Hversu vel fylgdist þú með í vikunni? Skólagjöld, sumarfrí og NFL
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

„Fyrsta og besta vikan“
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna, og sambýlismaður hennar Enok Jónsson eignuðust dreng 8. febrúar síðastliðinn. Birgitta segir liðna viku dásamlega.

Dýrasta fasteign Bandaríkjanna til sölu
Dýrasta fasteign sögunnar í Bandaríkjunum er nú til sölu. Hægt er að öðlast stærðarinnar hús við ströndina í Naples í Flórída fyrir einungis þrjú hundruð milljónir dala, tæpar.

Stjörnum prýdd frumsýning Saknaðarilms
Mikil gleði var á frumsýningu einleiksins Saknaðarilmur, sem byggður er á bókum Elísabetar Jökulsdóttur rithöfundar, í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Leikritið er eftir Unni Ösp Stefánsdóttur sem einnig leikur einleikinn. Leikstjórn er í höndum Björns Thors, eiginmanns Unnar.

Guðni segir kjaftasögur einn af löstunum í litlu samfélagi
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi kosti og galla smæðar íslensks samfélags á dögunum í sérstöku erindi þegar Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis voru veitt á Grand Hótel. Þar vísaði hann til kjaftagangs sem algengur væri í íslensku samfélagi vegna smæðar þess.

Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Eddunnar
Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2024 voru tilkynntar í dag. Á ferð með mömmu, Tilverur og Villibráð eru allar tilnefndar sem kvikmynd ársins.

Skilaði Bítlabassa sem er metinn á tæpa tvo milljarða króna
Paul McCartney hefur endurheimt bassa sem var stolið árið 1972. McCartney keypti bassann í Hamborg í Þýskalandi, þegar Bítlarnir voru að stíga sín fyrstu skref, á þrjátíu pund. Talið er að bassinn sé allt að tíu milljóna punda virði í dag, jafnvirði um 1,75 milljarða króna.

Heitasta tískan á heimilum landsins
Það er alltaf skemmtilegt að skoða það vinsælasta í stílnum á heimilum landsmanna. Stefnur og straumar í innanhússhönnun.

Fallegt raðhús á Seltjarnarnesi
Í síðasta þætti af Heimsókn leit Sindri Sindrason við heima hjá Eddu Sif Guðbrandsdóttur sem starfar sem innanhúsráðgjafi.

Margir upplifi kvíða áður en þeir fara á eftirlaun
Theodór Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi hvetur fólk sem er að nálgast eftirlaunaaldur til þess að hugsa um það hvað það vill gera á þessum árum. Mikilvægt sé að skipuleggja sig en eðlilegt er að upplifa kvíða í aðdraganda tímamótanna.

María Birta og Elli tóku upp nýtt eftirnafn
Listahjónin María Birta og Elli Egilsson ákvaðu að taka upp nýtt eftirnafn eftir að þau fengu bandarískan ríkisborgararétt og bera nú nafnið Fox. Ástæðan var til að tengja fjölskylduna saman, en hjónin og dóttir þeirra Ingacia báru öll sitt hvort eftirnafnið.

Guðdómlegir óáfengir kokteilar fyrir helgina
Jakob Eggertsson, sigurvegari í World Class barþjónakeppninni árið 2023 og meðeigandi baranna Jungle og Bingo, deilir uppskriftum að vinsælum óáfengum kokteilum með lesendum Vísis í tilefni Edrúar átaksins.