Innlent
Árásarmaður í Bankastrætismálinu lýsir aðdraganda árásarinnar Tveir karlmenn tengdir hnífstunguárásinni á Bankastræti Club í nóvember hafa tekist á í opinskáum færslum á Facebook undanfarna daga. Annar þeirra var á meðal þeirra handteknu en hinn er vinur fórnarlambanna. Árásarmaðurinn segir að rekja megi árásina til þess að hann hafi átt í samskiptum við fyrrverandi kærustu manns tengdum fórnarlömbunum. Vinur fórnarlambanna lýsir furðu yfir því að árásarmaðurinn gangi laus. Innlent 19.1.2023 07:00
Skemmdir á sýningum Stríðsárasafnsins vegna mikils leka Mikils leka hefur orðið vart í sýningarhúsnæði Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði eftir áramót og hafa sýningar safnsins orðið fyrir tjóni. Innlent 19.1.2023 07:00
Eldur við skóla slökktur með snjó Einn var vistaður í fangageymslu í gærkvöldi vegna hótana og eignaspjalla og annar vegna ölvunarástands. Þá var tilkynnt um eld við skóla en hann var slökktur með snjó. Innlent 19.1.2023 06:24
Nýr leiðtogi og skarpari málflutningur Samfylkingunni til góðs Samfylkingin mælist stærst allra flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir stöðuna ekki mikla forspá fyrir næstu kosningar en leiðtogabreytingar og endurskipulag málefna virðist reynast flokknum vel. Innlent 18.1.2023 23:47
Dómsmálaráðherra um rafbyssur: „Við búum því miður bara við breyttan veruleika“ Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra segir stjórnleysi ríkja hér á landi í útlendingamálum. Þá sé rafvopnavæðing stór hluti af því að auka öryggi lögregluþjóna í starfi. Hann sé ekki að undirbúa brottför úr starfi. Innlent 18.1.2023 23:24
Smitsjúkdómar færist í aukana með loftlagsbreytingum Smitsjúkdómalæknir segir það einungis tímaspursmál hvenær annar heimsfaraldur líkt og Covid kemur upp. Nýlegar rannsóknir bendi til þess að allflestir smitsjúkdómar muni færast í aukana samhliða loftslagsbreytingum. Innlent 18.1.2023 21:00
Fyrstu stúdentarnir flytja á Sögu eftir tvo mánuði Þessa dagana standa yfir milljarða framkvæmdir við að breyta hótel Sögu í háskólahús og á þeim að vera lokið eftir eitt og hálft ár. Fyrstu stúdentarnir munu hins vegar flytja inn í nýjar einstaklingsíbúðir í marsmánuði. Innlent 18.1.2023 19:20
Samfylkingin stærsti flokkur landsins Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og er með tæplega 24 prósenta fylgi. Innlent 18.1.2023 18:34
Skúli Tómas kominn aftur til starfa hjá Landspítalanum Læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er kominn aftur til starfa hjá Landspítalanum. Læknirinn starfar þó ekki með sjúklingum. Innlent 18.1.2023 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómari í hryðjuverkamálinu íhugar nú hvort vísa eigi frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum. Sindri Snær og Ísidór, sem ákærðir eru í málinu, neituðu að hafa skipulagt hryðjuverk þegar málið var þingfest í dag. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.1.2023 18:00
Sigríður Pálína er Suðurnesjamaður ársins 2022 Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur og eigandi Reykjanesapóteks, er Suðurnesjamaður ársins 2022 að mati Víkurfrétta. Sigríður er sú 33. til að hljóta nafnbótina. Innlent 18.1.2023 17:28
262 nauðganir tilkynntar árið 2022 Alls voru 634 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu árið 2022. Fleiri nauðganir voru tilkynntar miðað við síðastliðin þrjú ár og þá fjölgaði brotum gegn kynferðislegri friðhelgi (stafræn brot) um helming miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynntra kynferðisbrota gegn börnum var nánast óbreyttur. Innlent 18.1.2023 16:39
Elsti Íslendingurinn er 105 ára Í dag eru 47 einstaklingar á Íslandi 100 ára og eldri. Þrír af þessum 47 einstaklingum eiga maka á lífi. Þetta kemur fram í nýlegri samantekt Þjóðskrár yfir elstu íbúa landsins. Innlent 18.1.2023 15:20
Sundlaugunum í Reykjavík lokað á morgun vegna skerðingar á heitu vatni Veitur munu á morgun skerða framlag á heitu vatni til stórnotenda, þar á meðal sundlauga á höfuðborgarsvæðinu vegna álags á hitaveitukerfi í kuldatíðinni. Innlent 18.1.2023 15:05
Rjúfa veginn til að vernda nýju brúna Vegagerðin mun rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg í sundur við brúna yfir Stóru-Laxá á morgun til þess að vernda nýja brú sem þar er nú í smíðum. Reiknað er með vatnavöxtum á næstu dögum vegna yfirvofandi hlýinda. Innlent 18.1.2023 14:33
Dómari tekur til skoðunar hvort vísa eigi hryðjuverkalið frá Tveir karlmenn sem sæta ákæru fyrir skipulagningu hryðjuverka neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Þeir játuðu hluta ákærunnar sem sneri að vopnalagabrotum auk þess sem annar játaði fíkniefnabrot. Dómari ætlar að skoða hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum. Innlent 18.1.2023 13:44
„Við búum öll við geðheilsu rétt eins og við erum með hjarta“ Geðhjálp hefur sent frá sér yfirlýsingu í tengslum við fyrirtöku í héraðsdómi Reykjavíkur í máli hjúkrunarfræðings sem ásakaður er um að hafa valdið andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans, og fjölmiðlaumræðu vegna fyrirtökunnar. Innlent 18.1.2023 13:20
Stöðvaður við akstur og reyndist með gróft barnaníðsefni í símanum Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann, sem handtekinn var vegna umferðarlagabrots á Akureyri í júní 2019, fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í sinni vörslu í tveimur símum og spjaldtölvu. Maðurinn hafði sömuleiðis dreift efni til ótilgreindra einstaklinga. Innlent 18.1.2023 13:19
Borgin styrkir Ríkisútvarpið um rúmar 18 milljónir Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær að endurnýja sérstakan samstarfs- og styrktarsamning við Ríkisútvarpið ohf. sem snýr að dagskrárgerð fyrir ungt fólk og greiða fyrir hann rúmar 18 milljónir. Innlent 18.1.2023 12:41
Ganga lausir en grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Tæpir fjórir mánuðir eru liðnir síðan ríkislögreglustjóri handtók tvo karlmenn og lýsti því yfir að hættuástandi hefði verið aflýst. Á blaðamannafundi var greint frá því að mennirnir hefðu verið grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Mál gegn þeim verður þingfest klukkan 13 í dag en athygli vekur að dómstólar landsins telja mennina ekki hættulegri en svo að þeir ganga lausir. Innlent 18.1.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um hryðjuverkamálið svokallaða en síðar í dag fer fram þingfesting gegn tveimur mönnum sem sakaðir eru um að hafa áformað að fremja hryðjuverk hér á landi. Innlent 18.1.2023 11:37
Kastar fram hugmynd um mjúklokun sem stoppi vanbúna bíla „Við sjáum þetta þannig að lokanir eru til gagns sé þeim beitt rétt, sagði Harald Teitsson, formaður félags hópferðaleyfishafa og formaður hópbifreiðanefndar Samtaka ferðaþjónustunnar á fundi Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu stofnunarinnar. Harald varpaði fram þeirri hugmynd að beita mætti svokallaðri mjúklokun vega í meira mæli, þegar veður eru válynd. Innlent 18.1.2023 11:32
Hámarkinu náð með tilliti til flóttamanna: „Við ætlum að setja punktinn þarna“ Reykjanesbær mun ekki taka á móti fleiri flóttamönnum en samið hefur verið um. Bæjarstjóri segir hámarkinu náð og kallar eftir því að fleiri sveitarfélög axli ábyrgð. Stór hluti flóttamanna sem Reykjanesbær hafi samið um að taka á móti séu nú þegar komnir og ætti húsnæði ekki að vera vandamál. Sveitarfélagið sé tilbúið til að miðla sinni reynslu. Innlent 18.1.2023 11:32
Læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun Skráðum samskiptum heimilislækna við sjúklinga hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum og fleiri læknar segjast úrvinda og upplifa kulnun. Þetta kom fram í erindi forstjóra Heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu á læknaráðstefnu sem nú fer fram í Hörpu. Hann tengir þetta ástand við aukin rafræn samskipti. Innlent 18.1.2023 10:16
Eilíft líf líklega handan seilingar Tæplega 300 núlifandi einstaklingar eru eldri en 110 ára gamlir, svokallaðir „íturöldungar“. Sá elsti er 118 ára og sá næst elsti 115 ára. Fjórir einstaklingar á Norðurlöndum tilheyra hópnum en Íslendingur hefur aldrei náð þessu marki; sá elsti varð 109 ára. Innlent 18.1.2023 08:51
Bein útsending: Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna? Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar sem fram fer milli klukkan 9 og 10:15. Innlent 18.1.2023 08:31
Hrapaði við leikskóla í úthverfi Kænugarðs Þyrla eða dróni rakst á byggingu sem hýsir leikskóla í Brovary, úthverfi Kænugarðs, í Úkraínu í morgun. Innlent 18.1.2023 07:50
Reglugerðin var tilbúin áður en ráðherra tilkynnti ákvörðunina Reglugerð um heimild lögreglu til að nota rafbyssur hefur verið samin og undirrituð af dómsmálaráðherra. Hún tekur gildi um leið og hún birtist í Stjórnartíðindum, sem verður á næstu dögum. Innlent 18.1.2023 06:54
Réðst á starfsmann bráðamóttökunnar og olli skemmdum á munum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Landspítalanum í Fossvogi í gærkvöldi eftir að einstaklingur veittist að starfsmanni bráðamóttökunnar og olli skemmdum á innanstokksmunum. Innlent 18.1.2023 06:21
Eldur í ruslagámi við JL-húsið Eldur kviknaði í ruslagámi við JL-húsið í vesturbæ Reykjavíkur fyrr í kvöld. Einn dælubíll var sendur á svæðið og unnið er að því að slökkva eldinn. Innlent 17.1.2023 22:24