Innlent
Jónsi í Sigur Rós lagði ríkisskattstjóra Landsréttur hefur vísað kröfu á hendur Jónsa í Sigur Rós vegna skattamáls hljómsveitarinnar frá héraðsdómi. Ríkisskattstjóri ákvað að falla frá áfrýjun dómsmála á hendur þriggja af fjögurra hljómsveitarmeðlima, sem allir höfðu verið sýknaðir í héraðsdómi. Eftir stóð Jónsi – og endurskoðandi hans. Innlent 24.3.2023 18:45
Eiganda stórskemmds bíls létt að enginn hafi slasast í sprengingunni Telja má kraftaverk að enginn hafi slasast þegar öflug sprenging varð á byggingasvæði í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Halldór Snær Kristjánsson, eigandi bíls sem skemmdist mikið í sprengingunni, segir fyrir mestu að enginn hafi slasast. Innlent 24.3.2023 18:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út síðdegis vegna elds sem kviknaði í þaki nýbyggingar í Garðabæ. Talið er að um hafi verið að ræða sprengingar í gaskútum en engin slys urðu á fólki. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við varðstjóra í beinni útsendingu. Innlent 24.3.2023 18:09
Kerfi sem bjóði þingmönnum upp á spillingu Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir fyrirkomulag við bókanir ríkisstarfsmanna á flugferðum bjóða upp á spillingu. Þarna sé verið að viðhalda kerfi sem hvetji starfsmenn ríkisins til þess að beina viðskiptum sínum til ákveðins flugfélags. Innlent 24.3.2023 16:56
„Þvílík heppni að ekki hafi farið verr“ Engan sakaði þegar tvær sprengingar urðu í gaskútum í nýbyggingu í Garðabæ í dag. Töluverður eldur braust út í kjölfarið. Gaskútur stórskemmdi bíl í nágrenninu og annar þeyttist í um hundrað metra frá nýbyggingunni. Búið er að slökkva eldinn og slökkvilið leitar nú af sér allan grun með hitamyndavélum. Innlent 24.3.2023 16:52
Kynningu á fjármálaáætlun frestað um óákveðinn tíma Fjármálaáætlun verður ekki kynnt á fundi fjárlaganefndar á mánudag líkt og áður stóð til. Þetta staðfestir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar. Hún bendir á að ríkisstjórnin hefur afgreitt málið frá sér og því sé líklega um frágangsatriði að ræða. Innlent 24.3.2023 15:34
Rannsaka kynferðisbrot gegn barni í Reykjadal Lögregla hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot í sumarbúðunum í Reykjadal í ágúst 2022. Foreldrar barnsins lýsa brotunum í samtali við Heimildina og þeim áhrifum sem þau hafa haft á fjölskylduna. Málið allt hafi verið helvíti frá upphafi til enda. Innlent 24.3.2023 15:15
Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. Innlent 24.3.2023 14:05
Kallar eftir varkárni ökumanna eftir að hafa orðið fyrir bíl Ekið var á arkitektinn Hildi Gunnlaugsdóttur er hún hjólaði á gangstétt upp Njálsgötu í gær. Hún slapp vel með skrekkinn en biður ökumenn um að gæta sín betur þegar gangstéttir eru þveraðar. Hver viti nema kona með barnavagn eða barn á hjóli sé sá sem er á leið á gangstéttinni. Innlent 24.3.2023 13:56
Hrannar dæmdur í átta ára fangelsi Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Hann þarf að greiða fólkinu sem hann skaut 3,3 milljónir króna annars vegar og 1,2 milljónir króna hins vegar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjandi Hrannars segir að dómnum verði áfrýjað. Innlent 24.3.2023 13:10
Lætur kanna fýsileika jarðgangna til Vestmannaeyja Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem ætlað er að leggja mat á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja, byggt á fyrirliggjandi vísindagögnum og nýjustu upplýsingum. Innlent 24.3.2023 12:45
Koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann Ferðamálastjóri segir að koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann. Hann mun eiga samtal við landeigendur, fulltrúa sveitarfélagsins, lögreglu og aðra hlutaðeigandi aðila til þess að ræða aðgerðir til að auka öryggi á svæðinu. Innlent 24.3.2023 12:33
Tatjana áfram formaður Tatjana Latinovic var endurkjörin formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Þá voru tvær nýjar stjórnarkonur kjörnar í stjórn félagsins. Á fundinum voru einnig gerðar tvær ályktanir með hvatningu til stjórnvalda. Innlent 24.3.2023 12:17
Hefði verið betra að fá þyrluna Slökkvilið fylgist enn vel með vettvangi mikils sinubruna í Straumsvík sem kviknaði í gær. Erfitt hefur verið að eiga við brunann að sögn varðstjóra, enda svæðið þungt yfirferðar. Eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem nothæf er til slökkvistarfa var ekki tiltæk til aðstoðar í gær. Innlent 24.3.2023 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um sinubrunann sem kviknaði í gær í grennd við Straumsvík en slökkviliðið fylgist enn vel með svæðinu þar sem enn brennur. Innlent 24.3.2023 11:36
Meint brot afans fyrndust vegna mistaka lögreglu Íslenska ríkið þarf að greiða konu sem kærði afa sinn fyrir kynferðisbrot 1,4 milljónir í miskabætur. Mistök lögreglu urðu til þess að málið fyrndist á meðan það var til rannsóknar þar. Innlent 24.3.2023 11:09
Handteknu sleppt: „Einhver tenging“ við árásina á Bankastræti Club Einstaklingarnir fjórir sem voru handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni á miðvikudagskvöld hafa verið látnir lausir. Innlent 24.3.2023 11:04
Þingmenn fá punkta á sitt kort fyrir flugferðir greiddar af ríkinu Þingmenn sem ferðast til útlanda vegna starfs síns fá flugpunkta á kort sín fljúgi þeir með ákveðnum flugfélögum, þrátt fyrir að ferðin sé greidd af ríkinu. Punktana geta þeir svo notað sjálfir þegar flogið er í persónulegum erindagjörðum. Forstjóri Play segir að þarna sé svakalegur hvati sem stýri viðskiptum þingmannanna. Innlent 24.3.2023 09:50
Tölvupúki lét líkkistufélag ráðherra hverfa úr hagsmunaskrá Galli í tölvukerfi sem ráðherrar nota til þess að skrá hagsmuni sína olli því félag í eigu Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra, féll út úr hagsmunaskráningu hans. Annar óþekktur galli veldur því að ráðherrann hefur ekki getað leiðrétt skráninguna. Innlent 24.3.2023 09:27
Gengst við að hafa ekki lýst starfsferli sínum rétt Edda Falak, blaðamaður hjá Heimildinni, hefur gengist við því að hafa ekki lýst stöðu sinni hjá ákveðnum fyrirtækjum á sviði fjármála í Danmörku rétt. Biðst hún velvirðingar á þessu en Heimildin segir að starfsferill hennar hafi ekki haft nokkur áhrif á hlutverk hennar innan fjölmiðilsins. Innlent 24.3.2023 09:15
Flestar greiningar inflúensu frá áramótum Vikuna 13. til 19. mars greindust fleiri inflúensutilfelli en nokkra aðra viku frá áramótum. Alls greindust 56 með inflúensu, þar af 47 með inflúensustofn B, fimm með inflúensustofn A(H3) og fjórir með stofn A(H1). Innlent 24.3.2023 09:14
Bein útsending: Fjúka orkuskiptin á haf út? Mikilvægi flutningskerfisins í orkuskiptum verður til umfjöllunar á vorfundi Landsnets sem haldinn verður milli 8:30 og 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Innlent 24.3.2023 08:01
Logar enn í sinu við Óttarsstaði og staðan tekin í morgunsárið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er enn á vettvangi við Óttarsstaði, nærri Straumsvík í Hafnarfirði, þar sem kviknaði í sinu í gær. Mikill mannskapur var að störfum í gær og vakt á svæðinu í alla nótt. Innlent 24.3.2023 07:09
Sérsveitin kölluð út og fimm handteknir eftir átök í heimahúsi Um klukkan 3 í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um átök í heimahúsi. Rætt var að hnífi hefði verið beitt í árásinni. Lögregla fór á staðinn ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra, en ekki er tekið fram hvar á höfuðborgarsvæðinu átökin áttu sér stað. Innlent 24.3.2023 06:14
Röskva fékk tólf menn en Vaka fimm Röskva vann kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Kosningarnar fóru fram í dag og í gær en Vaka fékk fimm fulltrúa af sautján og Röskva tólf. Vaka fékk síðast tvo menn kjörna í ráðið. Innlent 23.3.2023 23:28
Fékk unga stelpu til að senda sér nektarmyndir Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að senda ungri stúlku nektarmyndir, fá hana til að senda sér kynferðislegar myndir áður en hún náði fimmtán ára aldri, fyrir að hafa viðhaft klúrt, lostugt og óviðeigandi orðbragð við hana og fyrir að biðja hana um að kyssa sig í bifreið sinni á fáförnum vegi. Innlent 23.3.2023 22:31
Varnarlínur settar upp Slökkviliðið hefur sett upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu sinubrunans við Straumsvík í Hafnarfirði. Gróðurinn mun brenna að varnarlínunum og svæðið verður vaktað. Reyk mun leggja frá svæðinu í nótt og frekari aðgerðir verða ákveðnar í fyrramálið. Innlent 23.3.2023 22:28
„Þetta er óskiljanleg ráðstöfun“ Formaður Félags náms- og starfsráðgjafa segir veigamikið verkfæri tekið úr sambandi með lokun upplýsinga og ráðgjafavefsins Næsta skref. Ráðgjafar séu bæði ósáttir og undrandi þar sem vefurinn hafi verið mikið notaður og fallið vel í kramið. Stjórnvöld þurfi að koma að málinu, finna stað fyrir vefinn og tryggja fjármagn en arðsemi vefsins sé ekki mældur í peningum. Innlent 23.3.2023 22:27
Hollenskt herskip heimsækir Reykjavík Stórt hollenskt herskip, með 280 hermenn um borð, er komið í kurteisisheimsókn til Reykjavíkur eftir æfingar í Norður-Atlantshafi. Skipið, sem kennt er við borgina Rotterdam, hélt frá Tromsø í Norður-Noregi fyrir fjórum dögum og lagðist að Skarfabakka í Sundahöfn í morgun. Innlent 23.3.2023 21:30
Brotaþoli hafi ítrekað beðið ákærða að hætta Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun, fyrir að hafa haft samræði við konu án hennar samþykkis. Í ákæru segir að brotaþoli hafi árangurslaust ítrekað beðið ákærða að hætta. Innlent 23.3.2023 21:13
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent