Erlent Sjúkdómar gætu breiðst út Miklar deilur eru um áætlun Bush-stjórnarinnar um að staðsetja rannsóknarstöð banvænna veira á þéttbýlu svæði við San Fransiskó-flóa. Erlent 15.6.2006 05:00 Upplýst um yfirheyrsluaðferðir Bandaríska varnarmálaráðuneytið ætlar að láta undan miklum þrýstingi frá bandarískum þingmönnum og mannréttindasamtökum og svipta alveg hulunni af tilsögn um hvernig skuli staðið að yfirheyrslum. Erlent 15.6.2006 05:00 Guevara malar gull í Bólivíu Minningu byltingarforingjans Che Guevara á að nýta í anda einkaframtaks og markaðshyggju. Á heimasíðu Reuters-fréttastofunnar er greint frá því að í Bólivíu ætli frumkvöðlar í ferðamannaþjónustu að sækja inn á markað "vinstri-túrisma" með því að leggja vegarslóða sem kenndur verður við dvöl Guevaras í Bólivíu. Erlent 15.6.2006 05:00 Dæmdir fyrir hryðjuverk Þrír menn voru dæmdir í gær fyrir að undirbúa hryðjuverk og ráðast á kjörstað í Svíþjóð. Þetta er önnur sakfellingin síðan ný hryðjuverkalög voru sett á þar í landi árið 2003. Erlent 15.6.2006 04:45 Pakistan Pakistanskir vígamenn eru sagðir hafa hálshöggvið afganskan mann, sem þeir grunuðu um að njósna fyrir Bandaríkjastjórn, og hóta að aðrir sem slíkt geri hljóti sömu örlög. Erlent 15.6.2006 04:30 Neitar að loka Guantanamo Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, neitaði í gær að loka Guantanamo-fangelsinu á Kúbu, en þar segja mannréttindasamtök að fari fram pyntingar og mönnum sé haldið án dóms og laga. Erlent 15.6.2006 04:15 ESB stuðli ekki að pyntingum Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa hvatt leiðtoga þjóða Evrópusambandsins til að taka höndum saman gegn ólöglegum fangaflutningum og pyntingum CIA á grunuðum hryðjuverkamönnum. Erlent 15.6.2006 04:00 Líkið flutt Jarðneskar leifar Maríu, konu Alexanders III Rússakeisara, verða fluttar til greftrunar í St. Pétursborg í september. Þær hafa hvílt í Danmörku síðan keisarafrúin lést árið 1928. María flúði Rússland í byltingunni 1917, en 17. júlí 1918 var sonur hennar ásamt fjölskyldu sinni drepinn af bolsévikum. Erlent 15.6.2006 03:45 Loka ber fangabúðunum strax Fimm mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna kölluðu í gær eftir tafarlausri lokun fangabúða Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu. Yfirlýsing þeirra var birt á vef Sameinuðu þjóðanna. Erlent 15.6.2006 03:45 Leiðtogar Mið- og Austur-Asíu funda í Shanghai Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í dag á aðalfundi hennar. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi þar tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. Erlent 14.6.2006 22:19 Útgöngubann á miðnætti Útgöngubann tekur gildi í Írak á miðnætti. Írakska stjórnin hefur boðað hertar aðgerðir gegn ofbeldisverkum í helstu borgum landsins og taka yfir fjörutíu þúsund hermenn þátt í aðgerðinni. Erlent 14.6.2006 15:09 Síamstvíburar aðskildir Læknar á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum hófu í morgun aðgerð til að aðskilja símastvíbura. Stúlkurnar heita Regina og Renatta og hófst aðgerðin á þeim nú fyrir hádegið. Erlent 14.6.2006 11:15 Reynt að koma í veg fyrir frekari hryðjuverk í Bagdad Tug þúsund íraskir öryggissveitarmenn tóku í morgun þátt í aðgerðum í höfuðborginni, Bagdad, sem miða að því að koma í veg fyrir frekari árásir og hryðjuverk þar. Erlent 14.6.2006 09:45 Íslamski klerkurinn Bashir laus úr fangelsi Yfirvöld á Indónesíu létu í morgun lausan hinn herskáa íslamska klerk Abu Bakar Bashir. Hann var hnepptur í fangelsi fyrir rúmum tveimur árum fyrir að hafa tekið þátt í skipulagninu sprenginga á Balí árið 2002. Erlent 14.6.2006 09:30 Tíu ára öku-maður tekinn Erlent 14.6.2006 07:00 Færir liðinu gæfu Lukkudýr japanska knattspyrnulandsliðsins er kannski krúttlegt, en nafnið á því vekur sannarlega upp spurningar. Þessi tíu ára hundur ber nafnið Rommel, en hann er ekki fyrstur í sögunni til að bera þetta nafn, því nafni hans er þýski nasistaforinginn Erwin Rommel. Erlent 14.6.2006 06:45 Hert áætlun til að koma á friði Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, mun í dag setja af stað nýjar aðgerðir til að stilla til friðar í Bagdad og nærhéruðum. Aðgerðirnar fela í sér að 75 þúsund hermenn verða settir í öryggisgæslu í borginni og hefur ráðherrann ekki gefið upp nein tímamörk á hvenær aðgerðunum muni ljúka. Erlent 14.6.2006 06:30 Karl Rove ekki ákærður Einn helsti ráðunautur Hvíta hússins, Karl Rove, fékk í fyrradag að vita að ekki verða lagðar fram ákærur gegn honum vegna aðildar hans að leka á nafni leyniþjónustumanns. Fyrrverandi starfsmannastjóri Dick Cheney varaforseta, Lewis Libby, hefur verið ákærður vegna málsins. Erlent 14.6.2006 06:30 Bush kom óvænt til Írak George Bush Bandaríkjaforseti flaug óvænt til Íraks í gær, en hann hvetur aðrar þjóðir til að standa við gefin loforð um fjárframlög til hernaðarins. Erlent 14.6.2006 05:45 Á móti brottför hersins frá Írak Öldungadeildarþingkonan Hillary Clinton var gagnrýnd harkalega í gær af friðarsinnum eftir að hún lagðist gegn því að ákveðin yrði dagsetning fyrir brottför bandaríska hersins frá Írak. Í ræðu sinni hvatti hún demókrata til að vinna sigur í þingkosningunum í nóvember. Erlent 14.6.2006 04:30 Leyniskytta skýtur dómara Dómari í borginni Reno í Nevada Bandaríkjanna var skotinn úr launsátri síðastliðinn mánudag. Dómarinn stóð við glugga á skrifstofu sinni, sem er á þriðju hæð í skrifstofubyggingu, þegar hann var skotinn í brjóstið. Hann var fluttur á spítala og ástand hans talið alvarlegt en var hann þó með meðvitund. Erlent 14.6.2006 04:00 Engin þörf er fyrir varnarlið á Íslandi Yfirmaður NATO í Bandaríkjunum segir ástæðulaust að hafa herflugvélar á Íslandi þar sem þær komi að ekki að notum. Geir Haarde segir íslensk stjórnvöld taka undir að allar forsendur séu breyttar. Erlent 14.6.2006 03:30 Nýr leiðtogi Al Kaída í Írak hótar árásum á næstu dögum Nýr leiðtogi Al Kaída samtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, heitir því að hefna fyrirrennara síns, al-Zarqawis, og hótar hræðilegum árásum á næstu dögum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá al-Muhajer sem birt var á internetinu í dag. Erlent 13.6.2006 22:22 Mótmælum flaggað á Sigurboganum Sigurboginn í París varð óvænt vettvangur mótmæla gegn Íransstjórn í dag þegar andstæðingar kjarnorkuáætlana Íransstjórnar flögguðu skilaboðum sínum uppi á boganum. Erlent 13.6.2006 22:19 Albert varð ekki að fellibyl Íbúar Flórídaríkis búa sig undir að hitabeltisstormurinn Albert gangi á land. Búist er við mikilli úrkomu tengdri óveðrinu en líkurnar á að það verði að fyrsta fellibyl ársins eru sagðar dvínandi. Erlent 13.6.2006 20:00 Engin vettlingatök Tveir bræður sem handteknir voru í áhlaupi Lundúnalögreglunnar á dögunum vegna gruns um að þeir hygðu á hermdarverk lýstu í dag reynslu sinni. Þeir segjast hafa sætt fádæma fautaskap og haldið að þeirra síðasta stund væri runnin upp. Erlent 13.6.2006 19:00 Segja lögreglu hafa beitt óþarfa ofbeldi Tveir bræður sem breska lögreglan handtók í áhlaupi gegn meintum hryðjuverkamönnum í síðustu viku tjáðu sig opinberlega í fyrsta skipti í dag. Þeir voru yfirheyrðir í viku eftir áhlaupið áður en þeim var sleppt án nokkurrar ákæru. Erlent 13.6.2006 17:40 Vitnaleiðslum að ljúka í máli Saddams Aðaldómarinn í máli Saddams Husseins sagði í morgun að nú væri síðasta tækifæri fyrir verjendur Saddams að leiða vitni fyrir réttinn. Gefur það til kynna að nú fari að draga til tíðinda eftir átta mánaða réttarhöld. Þá eru einungis eftir lokarök verjenda og sækjenda, áður en dómararnir fimm bera saman bækur sínar og kveða upp dóm. Erlent 13.6.2006 17:35 Kanna áfram möguleika á framleiðslu bóluefnis Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna ætla áfram að kanna möguleika á samstarfi norrænu ríkjanna um að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu ef heimsfaraldur heimur upp. Þetta kemur fram í frétt á vef Norðurlandaráðs. Erlent 13.6.2006 17:30 Bush birtist óvænt í Bagdad Bush Bandaríkjaforseti kom í óvænta heimsókn til Bagdad í dag til að funda með Nuri al-Maliki forsætisráðherra Íraks. Til stóð að þeir ræddust við í fjarfundakerfi í dag, en al-Maliki fékk svo að vita með fimm mínútna fyrirvara, að Bush væri væntanlegur á staðinn. Erlent 13.6.2006 15:21 « ‹ ›
Sjúkdómar gætu breiðst út Miklar deilur eru um áætlun Bush-stjórnarinnar um að staðsetja rannsóknarstöð banvænna veira á þéttbýlu svæði við San Fransiskó-flóa. Erlent 15.6.2006 05:00
Upplýst um yfirheyrsluaðferðir Bandaríska varnarmálaráðuneytið ætlar að láta undan miklum þrýstingi frá bandarískum þingmönnum og mannréttindasamtökum og svipta alveg hulunni af tilsögn um hvernig skuli staðið að yfirheyrslum. Erlent 15.6.2006 05:00
Guevara malar gull í Bólivíu Minningu byltingarforingjans Che Guevara á að nýta í anda einkaframtaks og markaðshyggju. Á heimasíðu Reuters-fréttastofunnar er greint frá því að í Bólivíu ætli frumkvöðlar í ferðamannaþjónustu að sækja inn á markað "vinstri-túrisma" með því að leggja vegarslóða sem kenndur verður við dvöl Guevaras í Bólivíu. Erlent 15.6.2006 05:00
Dæmdir fyrir hryðjuverk Þrír menn voru dæmdir í gær fyrir að undirbúa hryðjuverk og ráðast á kjörstað í Svíþjóð. Þetta er önnur sakfellingin síðan ný hryðjuverkalög voru sett á þar í landi árið 2003. Erlent 15.6.2006 04:45
Pakistan Pakistanskir vígamenn eru sagðir hafa hálshöggvið afganskan mann, sem þeir grunuðu um að njósna fyrir Bandaríkjastjórn, og hóta að aðrir sem slíkt geri hljóti sömu örlög. Erlent 15.6.2006 04:30
Neitar að loka Guantanamo Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, neitaði í gær að loka Guantanamo-fangelsinu á Kúbu, en þar segja mannréttindasamtök að fari fram pyntingar og mönnum sé haldið án dóms og laga. Erlent 15.6.2006 04:15
ESB stuðli ekki að pyntingum Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa hvatt leiðtoga þjóða Evrópusambandsins til að taka höndum saman gegn ólöglegum fangaflutningum og pyntingum CIA á grunuðum hryðjuverkamönnum. Erlent 15.6.2006 04:00
Líkið flutt Jarðneskar leifar Maríu, konu Alexanders III Rússakeisara, verða fluttar til greftrunar í St. Pétursborg í september. Þær hafa hvílt í Danmörku síðan keisarafrúin lést árið 1928. María flúði Rússland í byltingunni 1917, en 17. júlí 1918 var sonur hennar ásamt fjölskyldu sinni drepinn af bolsévikum. Erlent 15.6.2006 03:45
Loka ber fangabúðunum strax Fimm mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna kölluðu í gær eftir tafarlausri lokun fangabúða Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu. Yfirlýsing þeirra var birt á vef Sameinuðu þjóðanna. Erlent 15.6.2006 03:45
Leiðtogar Mið- og Austur-Asíu funda í Shanghai Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í dag á aðalfundi hennar. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi þar tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. Erlent 14.6.2006 22:19
Útgöngubann á miðnætti Útgöngubann tekur gildi í Írak á miðnætti. Írakska stjórnin hefur boðað hertar aðgerðir gegn ofbeldisverkum í helstu borgum landsins og taka yfir fjörutíu þúsund hermenn þátt í aðgerðinni. Erlent 14.6.2006 15:09
Síamstvíburar aðskildir Læknar á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum hófu í morgun aðgerð til að aðskilja símastvíbura. Stúlkurnar heita Regina og Renatta og hófst aðgerðin á þeim nú fyrir hádegið. Erlent 14.6.2006 11:15
Reynt að koma í veg fyrir frekari hryðjuverk í Bagdad Tug þúsund íraskir öryggissveitarmenn tóku í morgun þátt í aðgerðum í höfuðborginni, Bagdad, sem miða að því að koma í veg fyrir frekari árásir og hryðjuverk þar. Erlent 14.6.2006 09:45
Íslamski klerkurinn Bashir laus úr fangelsi Yfirvöld á Indónesíu létu í morgun lausan hinn herskáa íslamska klerk Abu Bakar Bashir. Hann var hnepptur í fangelsi fyrir rúmum tveimur árum fyrir að hafa tekið þátt í skipulagninu sprenginga á Balí árið 2002. Erlent 14.6.2006 09:30
Færir liðinu gæfu Lukkudýr japanska knattspyrnulandsliðsins er kannski krúttlegt, en nafnið á því vekur sannarlega upp spurningar. Þessi tíu ára hundur ber nafnið Rommel, en hann er ekki fyrstur í sögunni til að bera þetta nafn, því nafni hans er þýski nasistaforinginn Erwin Rommel. Erlent 14.6.2006 06:45
Hert áætlun til að koma á friði Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, mun í dag setja af stað nýjar aðgerðir til að stilla til friðar í Bagdad og nærhéruðum. Aðgerðirnar fela í sér að 75 þúsund hermenn verða settir í öryggisgæslu í borginni og hefur ráðherrann ekki gefið upp nein tímamörk á hvenær aðgerðunum muni ljúka. Erlent 14.6.2006 06:30
Karl Rove ekki ákærður Einn helsti ráðunautur Hvíta hússins, Karl Rove, fékk í fyrradag að vita að ekki verða lagðar fram ákærur gegn honum vegna aðildar hans að leka á nafni leyniþjónustumanns. Fyrrverandi starfsmannastjóri Dick Cheney varaforseta, Lewis Libby, hefur verið ákærður vegna málsins. Erlent 14.6.2006 06:30
Bush kom óvænt til Írak George Bush Bandaríkjaforseti flaug óvænt til Íraks í gær, en hann hvetur aðrar þjóðir til að standa við gefin loforð um fjárframlög til hernaðarins. Erlent 14.6.2006 05:45
Á móti brottför hersins frá Írak Öldungadeildarþingkonan Hillary Clinton var gagnrýnd harkalega í gær af friðarsinnum eftir að hún lagðist gegn því að ákveðin yrði dagsetning fyrir brottför bandaríska hersins frá Írak. Í ræðu sinni hvatti hún demókrata til að vinna sigur í þingkosningunum í nóvember. Erlent 14.6.2006 04:30
Leyniskytta skýtur dómara Dómari í borginni Reno í Nevada Bandaríkjanna var skotinn úr launsátri síðastliðinn mánudag. Dómarinn stóð við glugga á skrifstofu sinni, sem er á þriðju hæð í skrifstofubyggingu, þegar hann var skotinn í brjóstið. Hann var fluttur á spítala og ástand hans talið alvarlegt en var hann þó með meðvitund. Erlent 14.6.2006 04:00
Engin þörf er fyrir varnarlið á Íslandi Yfirmaður NATO í Bandaríkjunum segir ástæðulaust að hafa herflugvélar á Íslandi þar sem þær komi að ekki að notum. Geir Haarde segir íslensk stjórnvöld taka undir að allar forsendur séu breyttar. Erlent 14.6.2006 03:30
Nýr leiðtogi Al Kaída í Írak hótar árásum á næstu dögum Nýr leiðtogi Al Kaída samtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, heitir því að hefna fyrirrennara síns, al-Zarqawis, og hótar hræðilegum árásum á næstu dögum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá al-Muhajer sem birt var á internetinu í dag. Erlent 13.6.2006 22:22
Mótmælum flaggað á Sigurboganum Sigurboginn í París varð óvænt vettvangur mótmæla gegn Íransstjórn í dag þegar andstæðingar kjarnorkuáætlana Íransstjórnar flögguðu skilaboðum sínum uppi á boganum. Erlent 13.6.2006 22:19
Albert varð ekki að fellibyl Íbúar Flórídaríkis búa sig undir að hitabeltisstormurinn Albert gangi á land. Búist er við mikilli úrkomu tengdri óveðrinu en líkurnar á að það verði að fyrsta fellibyl ársins eru sagðar dvínandi. Erlent 13.6.2006 20:00
Engin vettlingatök Tveir bræður sem handteknir voru í áhlaupi Lundúnalögreglunnar á dögunum vegna gruns um að þeir hygðu á hermdarverk lýstu í dag reynslu sinni. Þeir segjast hafa sætt fádæma fautaskap og haldið að þeirra síðasta stund væri runnin upp. Erlent 13.6.2006 19:00
Segja lögreglu hafa beitt óþarfa ofbeldi Tveir bræður sem breska lögreglan handtók í áhlaupi gegn meintum hryðjuverkamönnum í síðustu viku tjáðu sig opinberlega í fyrsta skipti í dag. Þeir voru yfirheyrðir í viku eftir áhlaupið áður en þeim var sleppt án nokkurrar ákæru. Erlent 13.6.2006 17:40
Vitnaleiðslum að ljúka í máli Saddams Aðaldómarinn í máli Saddams Husseins sagði í morgun að nú væri síðasta tækifæri fyrir verjendur Saddams að leiða vitni fyrir réttinn. Gefur það til kynna að nú fari að draga til tíðinda eftir átta mánaða réttarhöld. Þá eru einungis eftir lokarök verjenda og sækjenda, áður en dómararnir fimm bera saman bækur sínar og kveða upp dóm. Erlent 13.6.2006 17:35
Kanna áfram möguleika á framleiðslu bóluefnis Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna ætla áfram að kanna möguleika á samstarfi norrænu ríkjanna um að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu ef heimsfaraldur heimur upp. Þetta kemur fram í frétt á vef Norðurlandaráðs. Erlent 13.6.2006 17:30
Bush birtist óvænt í Bagdad Bush Bandaríkjaforseti kom í óvænta heimsókn til Bagdad í dag til að funda með Nuri al-Maliki forsætisráðherra Íraks. Til stóð að þeir ræddust við í fjarfundakerfi í dag, en al-Maliki fékk svo að vita með fimm mínútna fyrirvara, að Bush væri væntanlegur á staðinn. Erlent 13.6.2006 15:21