Erlent
Ekki fjölgað í breska herliðinu í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar sér ekki að auka við fjölda breskra hermanna í Írak en búist er við því að George W. Bush, Bandaríkjaforseti, muni tilkynna mikla fjölgun í bandaríska herliðinu í Írak í nótt. Talið er að Bush ætli að auka um allt að 20 þúsund hermenn. Erlent 8.1.2007 22:59
30 ára fangelsi fyrir sprengjutilræði Yfirvöld í New York dæmdu í dag pakistanskan innflytjanda í 30 ára fangelsi fyrir að ætla sér að sprengja upp neðanjarðarlestarstöð í Manhattan í New York. Erlent 8.1.2007 22:35
Hryðjuverkamenn vara fólk í Alsír við Leiðtogi hryðjuverkahóps í Alsír gaf í dag út viðvörun og sagði að Frakkar í Alsír væru í hættu vegna yfirvofandi sprengjuárása. Sagði hann ennfremur að þeir væru komnir með vopn og sprengiefni og biðu aðeins fyrirmæla frá Osama Bin Laden, leiðtoga al-Kaída samtakanna. Erlent 8.1.2007 22:19
Nektarpartý í bandarískum háskólum Bandarískir nemendur í bestu háskólum landsins hafa tekið sig til, gert uppreisn gegn kreddum og hefðum í skólunum og ákveðið að kasta af sér byrðum þjóðfélagsins, sem og fötum sínum, og halda nektarpartý. Erlent 8.1.2007 21:54
Orðið „fáviti“ fjarlægt úr stjórnarskrá Í New Jersey gæti orðið „fáviti“ bráðlega verið fjarlægt úr stjórnarskrá ríkisins til þess að fólk sem er andlega fatlað geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn og kosið. Lögin sem banna að „fávitar“ kjósi voru sett fyrir meira en 150 árum síðan til þess að koma í veg fyrir að þeir sem væru andlega fatlaðir gætu kosið. Erlent 8.1.2007 21:15
Áhersla á samkomulag í Doha Að ná góðum árangri í Doha-viðræðum Alþjóðaviðskiptasambandsins er forgangsatriði bæði Evrópusambandsins og Bandaríkjanna en frá þessu skýrði Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Erlent 8.1.2007 21:00
Þjóðvæðing fyrirtækja hafin í Venesúela Forseti Venesúela, Hugo Chavez, biðlaði í kvöld til þingsins í landinu og bað það um að veita honum sérstök völd til þess að geta þjóðvætt ýmis fyrirtæki. Meðal þeirra sem þjóðvæða á er fjölmiðlafyrirtækið CANTV sem og einhverjir hlutar olíuverkefna á Orinoco svæðinu. Erlent 8.1.2007 20:45
Sjö á bráðamóttöku vegna gaseitrunnar Gasið sem angraði íbúa New York borgar í dag varð til þess að sjö manns voru flutt á bráðadeild með einkenni sem hlutust af gasinu. Ekki er vitað um uppruna gassins en það hefur verið talið harmlaust hingað til. Erlent 8.1.2007 20:30
Gullæði í Brasilíu Þúsundir fátækra Brasilíumanna streyma nú, vopnaðir skóflum og vélsögum, á nýfundið gullsvæði djúpt í Amazon frumskóginum og óttast yfirvöld umhverfisslys. Einnig eru áhyggjur af því að heilsu fólks verði stefnt í hættu þar sem aðbúnaður á svæðinu er nær enginn. Fyrir aðeins nokkrum vikum fundust gullæðar á yfirborðinu á svæðinu og þegar fréttir fóru að berast af gullfundinum streymdu vongóðir á staðinn. Erlent 8.1.2007 20:15
Sprengjusveit í Miami kölluð út Sprengjusveit lögreglunnar í Miami í Bandaríkjunum var kölluð út í dag til þess að rannsaka grunsamlegan hlut sem fannst á hafnarsvæði borgarinnar. Verið var að afferma hlutinn úr vörubíl á svæðinu þegar leitartæki hafnarvarða fundu eitthvað óeðlilegt. Erlent 8.1.2007 20:11
SÞ ætla að auka þátt friðargæslu Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) verða að styrkja sig til þess að geta tekist á við þær fjölmörgu ógnir sem steðja að friði á komandi ári en þetta sagði Ban Ki-moon á fundi öryggisráðsins í dag. Erlent 8.1.2007 19:45
David Bowie sextugur í dag Hann kom til jarðar sem Ziggy Stardust, fór í ýmis gervi eftir það og söng meðal annars um Starman og Major Tom. Söngferillinn spannar rúma fjóra áratugi. Hann heitir David Bowie og er sextugur í dag. Erlent 8.1.2007 19:30
Dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir aðild að árásunum á New York Þýskir dómstólar hafa dæmt vin flugræningjanna, sem tóku þátt í árásunum á New York þann 11. september árið 2001, í 15 ára fangelsi fyrir aðild að fjöldamorði. Erlent 8.1.2007 18:49
Telja ekkert styðja sögu landgönguliða Bandarískir rannsóknarmenn telja ekkert styðja frásögn bandarískra landgönguliða af aðdraganda fjöldamorða í bænum Haditha í Írak fyrir rúmu ári. Ákærur í málinu voru birtar skömmu fyrir jól og er óttast að málið muni auka enn á ófriðinn í Írak eftir því sem meira kemur fram í dagsljósið. Erlent 8.1.2007 18:45
Kínverska lögreglan í átökum við hryðjuverkamenn Kínverska lögreglan varð 18 manns að bana í dag þegar hún gerði árásir á búðir hryðjuverkamanna í Xinjiang, sem er sjálfstjórnarhérað í vesturhluta Kína. Árásin átti sér stað á föstudaginn og var fyrst sagt frá henni í dag. Hryðjuverkamennirnir eru af tyrkneskum uppruna og kínversk yfirvöld segja vera aðskilnaðarsinna. Erlent 8.1.2007 17:47
Einstakt afrek Bandarísk kona synti tæpa tvo kílómetra í jökulköldu hafinu við Suðurheimskautið. Þetta þykir einstakt afrek og er aðeins vitað um einn annan mann þolir slíkan kulda. Það er Guðlaugur Friðþórsson sem synti um fimm kílómetra að landi eftir skipskaða austur af Heimaey fyrir meira en tuttugu og tveimur árum. Og enn standa vísindamenn á gati yfir þessu afreki. Erlent 8.1.2007 17:01
Bush kynnir Íraksáætlun sína á miðvikudag George Bush Bandaríkjaforseti ávarpar bandarísku þjóðina klukkan níu að austurstrandartíma á miðvikudag, eða klukkan tvö að nóttu að íslenskum tíma, þar sem hann kynnir nýja áætlun sína í Írak og í baráttunni gegn hryðjuverkum. Erlent 8.1.2007 16:54
Miðborg Austin í Texas lokað vegna mikils fugladauða Miðborg Austin í Texas var lokað í morgun vegna þess að þar hafa fundist tugir dauðra fugla. Þúsundir manna komust ekki til vinnu sinnar af þessum sökum. Embættismenn segja að þetta sé gert í varúðarskyni, en enginn hefur hugmynd um hversvegna fuglarnir drápust. Erlent 8.1.2007 16:49
Innfluttir þriðjungur Hollendinga 2050 Um það bil þriðjungur hollensku þjóðarinnar verður af erlendu bergi brotinn árið 2050, en í dag er einn af hverjum fimm íbúum innflytjandi eða af innflytjendum kominn. Hollenska hagstofan býst við því að á þessu tímabili fjölgi landsmönnum um 400 þúsund, upp í 16,8 milljónir, mest vegna innflytjenda frá löndum eins og Tyrklandi, Marokkó og Surinam. Erlent 8.1.2007 16:25
Enn er allt á huldu með gaslekann á Manhattan Engar skýringar hafa enn fengist á dularfullri og megnri gaslykt sem hefur funist víða á Manhattan í New York.. Fram kom á FOXNews-sjónvarpsstöðinni að ekki væri grunur um hryðjuverkaárás í borginni og New York lögreglan segir enga hættu á ferðum. Erlent 8.1.2007 15:07
Ég mun drepa þá alla með efnavopnum Saddam Hussein og frændi hans "Efnavopna Ali" heyrðust tala um að drepa þúsundir kúrda með efnavopnum, þegar upptaka frá fundi þeirra var spiluð við réttarhöldin í Bagdad, í dag. Þetta var nokkru áður en efnavopnum var beitt gegn bænum Halabja, þar sem um fimm þúsund manns létu lífið. Erlent 8.1.2007 14:24
Samkomulag um samsteypustjórn í Austurríki Tveir stærstu flokkarnir í Austurríki, Sósíaldemókratar og Þjóðarflokkurinn, náðu í dag samkomulagi um myndun samsteypustjórnar í landinu. Alfred Gusenbauer, leiðtogi sósíaldemókrata, verður samkvæmt því kanslari Austurríkis í stað Wolfgangs Schüssels. Erlent 8.1.2007 14:10
Blair ver einkaskólagöngu Tony Blair, hefur varið þá ákvörðun fyrrverandi menntamálaráðherra síns að senda eitt af börnum sínum í einkaskóla. Ruth Kelly er nú ráðherra sveitarstjórnamála. Blair, sem sjálfur sendi sín börn í einkaskóla, sagðist styðja rétt foreldra til þess að ákveða í hvaða skóla þau fari. Erlent 8.1.2007 14:02
Lokað fyrir rússneska olíu til Evrópu Evrópusambandið hefur krafið Rússa og Hvít-Rússa um tafarlausar skýringar á því að í nótt var hætt að dæla olíu frá Rússlandi til Póllands og Þýskalands. Leiðslan liggur um Hvíta-Rússland. Erlent 8.1.2007 13:13
Jólagjafir fyrir fimm milljarða handa starfsfólki í Danmörku Dönsk fyrirtæki eyða yfir fimm milljörðum í jólagjafir handa starfsmönnum sínum og hver gjöf kostar að meðatali 4.300 krónur. Þetta sýna niðurstöður danskrar rannsóknar sem vitnað er til í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu. Erlent 8.1.2007 10:57
Yfir 17 þúsund létust í ofbeldisverkum í Írak á seinni helmingi árs 2006 Yfir 17 þúsund manns létust af völdum ofbeldisverka í Írak á seinni helmingi síðasta árs. Frá þessu er greint í bandaríska dagblaðinu Washington Times og þar vitnað í heimildarmann innan heilbrigðisráðuneytis Íraks. Erlent 8.1.2007 10:11
Frekari ákærur á hendur Saddam felldar niður Réttarhöldum yfir samverkamönnum Saddams Hussein vegna morða á 180 þúsund Kúrdum á níunda áratug síðustu aldar héldu áfram í dag, níu dögum eftir að forsetinn fyrrverandi var tekinn af lífi. Fyrsta verk dómstólsins var að fella niður allar ákærur á hendur Saddam í málinu. Erlent 8.1.2007 09:47
Fundust eftir níu daga í björgunarbát Fjórtán manns sem fóru í sjóinn þegar ferja sökk úti fyrir eyjunni Borneó í Indónesíu fundust í gær eftir að hafa verið í björgunarbát í níu daga. Frá þessu greindu yfirvöld í Indónesíu í dag. Erlent 8.1.2007 09:30
Rannsakað hvort Bildt hafi þegið mútur Yfirvöld í Svíþjóð hafa hafið rannsókn á viðskiptum Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í tengslum við eignarhlut hans í rússneska olíu og gasfyrirtækinu Vostok Nafta. Erlent 8.1.2007 09:01
Hátíð djöfulsins í Kólumbíu Þúsundir manna komu saman í Caldas í Kómubíu um helgina til að taka þátt í hátíð Djöfulsins. Erlent 8.1.2007 08:45