Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Fréttamynd

Þúsundir sjálfboðaliða við smölun

Forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum og kosningastjórnar þeirra reyna nú allt hvað þeir geta til að sannfæra kjósendur um að mæta á kjörstað á morgun. Þúsundir sjálfboðaliða og starfsmanna kosningamiðstöðva fara nú mikinn í þeim ríkjum þar sem óvissan er ennþá mikil.

Erlent
Fréttamynd

Frambjóðendur á ferð og flugi

Ferðalög bandarísku forsetaframbjóðendanna náðu hámarki í gær þegar þeir voru á ferð og flugi frá morgni til kvölds á síðasta degi sínum í formlegri kosningabaráttu fyrir kosningarnar í dag.

Erlent
Fréttamynd

Fylgið aldrei jafnara

Fylgi Johns Kerrys og George Bush er jafnt í þeim ríkjum sem harðast er barist um samkvæmt nýrri skoðanakönnun sjónvarpsstöðvarinnar CNN, dagblaðsins<em> USA Today</em> og Gallup. Í þeim sex ríkjum sem talin eru skipta sköpum er afgerandi munur í tveim fylkjum: Wisconsin, þar sem Bush leiðir með átta prósentustigum, og Minnesota, þar sem Kerry leiðir með sama mun.

Erlent
Fréttamynd

Heimsendakosningar blasa við

Heimsendakosningar blasa við í Bandaríkjunum að mati Johns Zogbys sérfræðings í skoðanakönnunum. Hann segir að Bandaríkjamenn hafi aldrei verið eins klofnir í afstöðu sinni og nú.

Erlent
Fréttamynd

Veltur á mætingu á kjörstað

Hörð barátta og lítill fylgismunur einkennir síðustu daga kosningabaráttu þeirra Bush og Kerrys um hvor verði næsti forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur segja að kosningarnar muni að öllum líkindum ráðast af því hvorum flokknum, demókrötum eða rebúblikönum, mun ganga betur að ná sínum kjósendum á kjörstað.

Erlent
Fréttamynd

Ungir kjósa Kerry

Búist er við mun meiri þátttöku ungs fólks en áður í forsetakosningunum vestanhafs á morgun. Bandarískur sérfræðingur í kosningahegðun segir unga kjósendur líklegri til þess að kjósa Kerry en Bush.

Erlent
Fréttamynd

Skortur á starfsmönnum

Þjálfaðir kosningastarfsmenn eru fjórðungi færri en þeir þurfi að vera til þess að bandarísku forsetakosningarnar gangi hratt og örugglega fyrir sig að sögn bandarískrar eftirlitsnefndar með framkvæmd kosninga. Um það bil 1,4 milljónir manna hafa verið þjálfaðar til starfsins en hálfa milljón vantar til viðbótar.

Erlent
Fréttamynd

Dýrasta kosningabarátta sögunnar

Stóru flokkarnir hafa slegið öll fyrri met í fjárútlátum í aðdraganda kosninganna sem fara fram á morgun. Þeir hafa þegar varið meira en fjörutíu milljörðum króna í auglýsingar einar sér og er það þrefalt hærri fjárhæð en flokkarnir notuðu til að kaupa auglýsingar í forsetakosningunum fyrir fjórum árum.

Erlent
Fréttamynd

Gæti vart verið jafnara

Fjórar kannanir á fylgi forsetaefnanna George W. Bush og John Kerry sem birtar voru í gær sýna þá hnífjafna, þar af þrjár sem allar mæla þá báða með 48 prósenta fylgi. Það er því ljóst að það stefnir í einhverjar mest spennandi forsetakosningar í sögu Bandaríkjanna enda gæti staðan vart verið jafnari.

Erlent
Fréttamynd

Myndband bin Ladens tvíeggjað sverð

Hér er aðalmálið nýja myndbandið frá Usama bin Laden. Á Fox news, sem heldur málstað Bush á lofti, er því nánast haldið fram blákalt að bin Laden hafi verið að hvetja Bandaríkjamenn til að kjósa Kerry.........

Erlent
Fréttamynd

Mikilvægustu kosningar ævinnar

Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC.

Erlent
Fréttamynd

Cherie Blair á móti Bush?

Cherie Blair, eiginkona Tony Blair, hefur verið ásökuð fyrir að halda úti áróðri gegn George Bush í fyrirlestrum sem hún hefur haldið í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Í fyrirlestrum sínum hefur Cherie meðal annars fagnað úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna um að hafna beiðni Hvíta Hússins um að ekki mætti hleypa mannréttindasamtökum í fangelsið á Guantanamo flóa.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn kjósa snemma

Tvæpar tvær milljónir Flórídabúa hafa þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar vegna forsetakosninganna sem haldnar verða á þriðjudag.

Erlent
Fréttamynd

Á suðupunkti í Flórída

Í Flórída er heitt í kolunum vegna klúðurs sem hefur orðið í framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu og ásakana fulltrúa beggja stóru flokkanna í hvors annars garðs.

Erlent
Fréttamynd

Baráttan nær til Hawaii

Íbúar Hawaii upplifa nú nokkuð sem þeir eru ekki vanir þegar forsetakosningar eru annars vegar, nefnilega það að kosningastjórnir forsetaefnanna senda menn til að vinna þá á sitt band.

Erlent
Fréttamynd

Í hlutverki spellvirkjans

Michael Badnarik, forsetaefni Frjálshyggjuflokksins, gerir sér ekki vonir um að hafa sigur í einu einasta ríki Bandaríkjanna á kjördag. Hann og stuðningsmenn hans vona hins vegar að þeir geti haft áhrif á úrslitin í tveimur ríkjum þar sem svo litlu munar á George W. Bush og John Kerry að fá atkvæði geta ráðið úrslitum.

Erlent
Fréttamynd

Halliburton aftur í kastljósið

Bandaríska stórfyrirtækið Halliburton og tengsl þess við Bandaríkjastjórn eru í brennidepli eftir að bandaríska alríkislögreglan, FBI, hóf rannsókn á úthlutun verkefna í Írak til félagsins án útboðs til að athuga hvort glæpsamlegt athæfi hefði átt sér stað. Rannsóknin snýst að sögn lögreglu ekki að neinum sem starfar í Hvíta húsinu.

Erlent
Fréttamynd

Innbyggt vantraust

Ein helsta ástæðan fyrir því hversu illa Bandaríkjamönnum hefur gengið að koma upp kosningakerfi sem virkar er sterk viðleitni ríkis- og sveitarstjórna á hverjum stað til að ráða sjálf sínum málum, segir Michael T. Corgan, prófessor í flotafræðum og stjórnmálafræði við háskólann í Boston í Massachusetts.

Erlent
Fréttamynd

Vísitalan mælir gegn Bush

George W. Bush Bandaríkjaforseti nær ekki endurkjöri ef marka má kenningu Jeffrey Hirsch, útgefanda Stock Traders Almanac. Hann segir að þegar Dow Jones vísitalan lækkar um hálft prósent eða meira frá lokum september til kjördags nái forsetinn ekki endurkjöri, nú hefur hún lækkað um 0,75 prósent.

Erlent
Fréttamynd

Dýrustu kosningar sögunnar

Kosningarnar í ár verða þær dýrustu í bandarískri stjórnmálasögu og peningar skipta höfuðmáli í kosningabaráttunni. Ingólfur Bjarni Sigfússon komst að því að frambjóðendurnir þurfa að vera ríkir og safna gríðarlegum fjárhæðum til að eiga nokkra von um sigur. 

Erlent
Fréttamynd

Enn eitt klúðrið skekur Flórída

Spennan í kringum bandarísku forsetakosningarnar jókst enn í Flórída þegar í ljós kom að þúsundir kjörseðla sem senda átti til fólks sem vildi greiða atkvæði utankjörfundar höfðu týnst.

Erlent
Fréttamynd

Kerry stendur betur í lykilríkjum

John Kerry hefur meira fylgi en George Bush í fimm af lykilríkjunum svokölluðu þar sem úrslit forsetakosninganna munu að líkindum ráðast. Frambjóðendurnir endasendast nú á milli þessara ríkja og kyssa börn sem mest þeir mega.

Erlent
Fréttamynd

Berjast um atkvæðin

John Kerry er "vitlaus maður fyrir vitlaust starf á vitlausum tíma," sagði George W. Bush þegar hann gagnrýndi mótframbjóðanda sinn harkalega á kosningafundi í gær. Orðin eru svipuð þeim sem Kerry lét falla um innrásina í Írak sem hann kallaði "vitlaust stríð á vitlausum stað á vitlausum tíma".

Erlent
Fréttamynd

58 þúsund atkvæði týnd?

Fimmtíu og átta þúsund utankjörfundartkvæða í Flórída er saknað. Af 60 þúsund greiddum atkvæðum hafa aðeins tvö þúsund skilað sér og segja yfirmenn póstsins í Flórída að það sé hreinlega útilokað að heil 58 þúsund atkvæði hafi týnst og því virðist sem eitthvað gruggugt sé á seyði.

Erlent
Fréttamynd

Betra ef Bush ynni

Utanríkismál hafa skipað stóran sess í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum en þegar grannt er skoðað kemur í ljós að stefna frambjóðendanna tveggja í málaflokknum er ekki svo ýkja ólík. Almennt er talið að það kæmi sér betur fyrir íslensk stjórnvöld ef George Bush yrði endurkjörinn.

Erlent
Fréttamynd

Engin leið að spá um úrslitin

Úrslitin í forsetakosningunum í Bandaríkjunum ráðast að líkindum í nokkrum lykilríkjum og þar er tvísýnan ennþá meiri en annars staðar. Í tveimur þeirra ríkja sem að líkindum munu ráða miklu um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna er engin leið að sjá hvorum vegnar betur.

Erlent
Fréttamynd

Draga misjafnan lærdóm af sögunni

George W. Bush Bandaríkjaforseti og demókratinn John Kerry vitnuðu til starfa fyrrverandi forseta úr röðum demókrata og komust að sömu niðurstöðu, að andstæðingur sinn stæðist engan veginn samanburð við þá.

Erlent
Fréttamynd

Heimasíðan bara fyrir Bandaríkin

Það þýðir lítið fyrir áhugamenn um bandarísk stjórnmál utan Bandaríkjanna að reyna að sækja sér upplýsingar um George W. Bush Bandaríkjaforseta á heimasíðu hans. Heimasíðunni var á dögunum lokað fyrir allri umferð frá löndum utan Bandaríkjanna að því er virðist til að minnka álag á hana.

Erlent
Fréttamynd

Kjörmennirnir í kjöraðstöðu

Bandaríkjamenn kjósa á þriðjudaginn 538 kjörmenn sem síðan ákveða hvor sest að í Hvíta húsinu, Bush eða Kerry. Kjörmannakerfið hefur í för með sér að ekki er sjálfgefið að sá frambjóðandi sem flest atkvæði fær verður forseti.

Erlent