Kosningar 2013

Kýs í fyrsta sinn í dag
Alma Ágústsdóttir kýs í dag í fyrsta sinn enda varð hún átján ára í gær. Hún hefur tekið sér góðan tíma til þess að velja hvað hún ætlar að kjósa og meðal annars heimsótt kosningaskrifstofur flestra flokka.

Ólöglegt að birta mynd af atkvæðaseðlinum sínum á Facebook
Þótt kjörsókn sé með dræmara móti er víst að þeir sem taka þátt í kosningunum hafa margir hverjir mikinn áhuga á atburðarrás dagsins og jafnvel að deila skoðunum sínum með öðrum. Þannig veit Vísir af minnst þremur tilvikum þar sem kjósendur hafa tekið mynd af atkvæðaseðlinum sínum inni í kjörklefa og birt á Facebook. Slík hegðun stríðir reyndar gegn 85. grein laga um kosningar til Alþingis.

Lét ekki ellina aftra sér frá því að mæta á kjörstað
Anna Margrét Franklínsdóttir á Selfossi lét ekki háan aldur stöðva sig í því að mæta á kjörstað í hádeginu á Selfossi og taka þátt í Alþingskosningunum. Hún verður 103 ára þann 15. júní í sumar.

Heldur minni kjörsókn en 2009
Enn berast fréttir af kjörsókn á landsvísu. Kjörsóknin í Reykjavík er sögð sú versta í tíu ár.

Hitað upp fyrir Kosningapartí
"Við fylgjumst að sjálfsögðu með nýjustu tölum um leið og þær berast, en fókusinn verður á stuðið,“ segir Logi Bergmann, umsjónarmaður Kosningapartís Stöðvar 2 sem hefst í opinni dagskrá klukkan 21 í kvöld.

"VG aldrei toppað á réttum tíma"
Katrín Jakobsdóttir formaður VG vonast til að breyta út af venjunni í kvöld.

Stemning á troðfullri kosningaskrifstofu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, kaus á Egilsstöðum í morgun.

Segir bara tvo möguleika á stjórnarmyndun miðað við kannanir
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur líklegt að forseti Íslands kalli formenn flokkana á sinn fund á morgun eða hinn og að ný ríkisstjórn verði mynduð fljótlega eftir kosningar.

Ekki líklegir til að kjósa sama flokk
Harmageddon-bræður, þeir Frosti og Máni, verða í kosningastuði milli 14 og 16.

Skemmtilegt að taka virkan þátt í baráttunni
Það verður stuð og stemning á kosningavöku Stöðvar 2 segir fréttakonan Lóa Pind Aldísardóttir.

Íslendingar ganga til kosninga
Alþingiskosningar fara fram í dag. Kjörstaðir eru opnir og kjósendur á kjörskrá eru 237.957.

Hundleiðinlegt kosningaveður víðast hvar á morgun
Hún er hundleiðinleg kosningaspáin á morgun - það er að segja þessi um veðrið, en spáð er rigningu, slyddu og jafnvel snjókomu þegar Íslendingar fara á kjörstaði til þess að nýta lýðræðislegan rétt sinn á morgun.

Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi fólks á landsbyggðinni og án ríkisfjárframlaga eða styrkja, að bjóða fram löglegan framboðslista í Norðvesturkjördæmi.

Tæplega 30 þúsund búnir að greiða atkvæði utankjörfundar
Um hádegisbilið í dag höfðu nær þrjátíu þúsund manns kosið utan kjörstaðar, mun fleiri en í síðustu Alþingiskosningum. Atkvæðagreiðslan gekk þó vel fyrir sig og stemmningin á kjörstað var góð.

Framsóknarmenn jákvæðari á Facebook
Fólk er duglegra að deila neikvæðum fréttum um stjórnmálaflokkana á Facebook en jákvæðum. Oftast er fréttum um Sjálfstæðisflokkinn deilt á samfélagsmiðlinum en Framsóknarmenn deila frekar jákvæðari fréttum.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur samkvæmt könnun Capacent Gallup
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt nýjustu könnun Capacent Gallup sem RÚV birti nú í kvöld.

Fleiri hundruð manns kvöddu Jóhönnu
Fleiri hundruð manns komu saman fyrir utan stjórnaráðshúsið við Lækjargötu síðdegis í dag til þess að þakka Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fyrir vel unnin störf. Síðasta dagur hennar sem þingmaður og ráðherra er í dag.

Um 25 þúsund búnir að kjósa
Fleiri kjósa utan kjörfundar en áður og kjörstjóri telur frídag í gær spila þar inn í. Einnig sé fólk meira á faraldsfæti en oft áður. Nær 25 þúsund manns höfðu kosið utan kjörfundar í gærkvöldi.

Ráðstafa milljörðum úr ráðherrastólunum
Ríkisstjórnin og einstaka ráðherrar hafa samið um útgjöld fyrir hönd ríkissjóðs sem hlaupa á milljörðum króna frá því að Alþingi var frestað 28. mars.

Jöfnunarþingmennirnir gætu reynst vera of fáir
Erfitt gæti reynst að úthluta þingsætum í samræmi við fylgi flokkanna á landsvísu í kosningunum á laugardaginn vegna skorts á uppbótarþingmönnum. Það gæti leitt til þess að flokkur eða flokkar fái fleiri þingmenn en fylgi þeirra segir til um, segir Þorkell Helgason, stærðfræðingur og fyrrverandi prófessor.

Formennirnir tókust á
Kappræður formanna þeirra sex flokka sem líklegastir eru til að koma mönnum inn á þing fóru fram á Stöð 2 í kvöld.

Fjölmiðlaumfjöllun skiptir ekki höfuðmáli
Rúmlega fimm þúsund fréttir hafa verið skrifaðar um kosningarnar frá síðustu átta vikur þar af er Samfylkingin með flestar fréttir eða tæplega tvö þúsund og sex hundruð talsins. Fæstu fréttirnar hafa verið skrifaðar um Framsókn af fjórflokknum en flokkurinn er engu að síður með mesta fylgið.

Framsókn enn stærstur þrátt fyrir minnkandi fylgi
Framsóknarflokkurinn nýtur enn mest fylgis þeirra flokka sem bjóða fram í kosningunum á laugardaginn þrátt fyrir að fylgi hans hafi dalað. Þetta sýnir ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi og eru Vinstri-græn á mikilli siglingu.

Píratar og Regnboginn með hæsta hlutfall jákvæðra frétta
Píratar og Regnboginn eru með hæsta hlutfall jákvæðra frétta sem fluttar hafa verið af kosningunum undanfarna tvo mánuði samkvæmt úttekt Fjölmiðlavaktarinnar. Framsóknarflokkur kemur þar næst á eftir.

Ef landið væri eitt kjördæmi myndu öll framboðin ná manni inn
Ef landið væri allt eitt kjördæmi og enginn þröskuldur væri fyrir því að fá þingsæti myndu öll fimmtán framboðin sem bjóða fram til þingkosninganna nái manni inn á þing. Þetta segir stjórnmálafræðingur. Hann segir mögulegt að stuðningsmenn minni flokka skipti um skoðun á kjördag þegar skoðanakannanir sýni að 11% atkvæða muni falla dauð.

Stuðningur við ríkisstjórnarflokkana eykst - mjótt á munum hjá Framsókn og Sjálfstæðisflokki
Vinstri grænir bæta nokkuð við sig fylgi frá síðustu könnun samkvæmt könnun MMR semkannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. apríl 2013. Í síðustu könnun MMR fengu Vinstri grænir 8,1% en mælast nú með 11,6%.

Tæplega 23 þúsund búnir að kjósa utankjörfundar
Tæplega 23 þúsund manns hafa kosið utankjörfundar á landinu öllu þegar aðeins tveir dagar til kosninga.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur nánast hnífjafnir
Fylgi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins er nánast hnífjafnt samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið.

20 milljarða „landsbyggðarskattur“
Heildarskuldir landsmanna námu 1.878.044 milljónum króna árið 2011. Þar af voru skuldir vegna íbúðakaupa 1.151.616 krónur. Þetta kemur fram í gögnum sem Fréttablaðið fékk í hendur hjá Íbúðalánasjóði, en þau hafa verið unnin upp úr skattframtölum ársins 2011.

Jóhönnu finnst ekki eins og hún sé að skilja við flokkinn í rúst
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafnar því að hún skilji Samfylkinguna eftir í rúst þótt fylgi flokksins í skoðanakönnunum mælist langt undir því sem flokkurinn hefur haft í gegnum tíðina. Hún hélt sína síðustu kosningaræðu í dag eftir 35 ára feril í stjórnmálum.