Skoðun

Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina

Magnús Hávarðarson skrifar
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi fólks á landsbyggðinni og án ríkisfjárframlaga eða styrkja, að bjóða fram löglegan framboðslista í Norðvesturkjördæmi.

Upphaflegt markmið var að bjóða fram í öllum landsbyggðarkjördæmunum þremur. Það tókst ekki í þessari atrennu því örlítið vantaði upp á í Norðausturkjördæmi en talsvert meira í Suðurkjördæmi. Aðalatriðið er að nú hefur skotið rótum almenningsafl á landsbyggðinni sem mun vinna markvisst að jafnréttis- og jafnræðisbaráttu íbúa á landsbyggðinni um ókomna framtíð vonandi. Mikilvægt er að ýtt verði duglega undir þetta nýja afl með stuðningi  í komandi kosningum og þannig flýtt fyrir að það verði marktækt í umræðunni um byggðamál.

Rödd almennings á landsbyggðinni

Mikilvægt er að rödd almennings á landsbyggðinni heyrist hátt og skýrt á Alþingi Íslendinga. Frambjóðendur Landsbyggðarflokksins bjóða sig fram til að vera öflugur málsvari þessa hóps og hafna því að fulltrúar lítilla, en öflugra sérhagsmunahópa tali í nafni fólksins á landsbyggðinni. Flokkurinn setur málefni landsbyggðarinnar efst í forgangsröðun allra málaflokka og krefst jafnræðis til handa landsbyggðarbúum hvað varðar grunnþjónustu og þar með jafnréttis til búsetu.

Landsbyggðarflokkurinn telur mikilvægt að jafnræði ríkji ekki aðeins þegar vægi atkvæða er annars vegar, heldur þurfi jafnræði þá einnig að ríkja í öllum málefnum er lúta að grunnþjónustuþáttum eins og heilbrigðis- og menntamálum, samgöngumálum ofl.

Loforðin, fínu orðin og litlar efndir

Þess má geta að frambjóðendur Landsbyggðarflokksins koma allir af landsbyggðinni, eru búsettir þar og þekkja af eigin reynslu búsetuskilyrði, atvinnu-, menningar- og mannlíf og hafa því fundið á eigin skinni hvernig landsbyggðin hefur setið á hakanum í ýmsum ákvarðanatökum stjórnvalda á undanförnum árum og áratugum. Loforðin og fínu orðin eru til staðar nú fyrir þessar kosningar sem endranær, en oft verður lítið um efndir eins og við sem byggjum landsbyggðina þekkjum svo vel.

Velmegun má ekki byggjast á niðurlægingu og hnignun

Landsbyggðarflokkurinn leggur áherslu á jafnræði þegar brugðist er við forsendubresti í þjóðfélaginu - sömu lögmál eiga að gilda hvar sem forsendubrestur á sér stað. Leiðrétting á skuldum heimilanna á ekki að leiða til ójafnvægis milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Landsbyggðarflokkurinn hafnar því að velmegun á einu eða fáum svæðum byggist á hnignun og niðurlægingu annarra svæða.

Atvinnu- og eignalausir íbúar?

Ná verður sátt um nýtingu á auðlindum þjóðarinnar hvort heldur er til sjós eða lands. Ekki má stofna í hættu með oftöku auðlindagjalda tilvist fyrirtækja, en ekki má heldur veita þeim vald til að hrifsa til sín auðlindirnar með hagnaðarsjónarmiðið eitt að leiðarljósi. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki sem auðlindirnar nýta geti selt þær burtu af viðkomandi svæði og skilið íbúana eftir atvinnu- og eignalausa en setið sjálfir uppi með pálmann í höndunum.

Landsbyggðarflokkurinn vill stuðla að nýliðun í sjávarútvegi, auka strandveiðar og tryggja þær í sessi. Með því er tryggt að líf verði í höfnum sjávarbyggða sem fyrir ekki svo löngu síðan voru lífvana af völdum eyðibyggðastefnu sem ríkt hefur of víða, alltof lengi.

Jafnræði - jafnrétti

Tími er kominn til að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar verði virt og réttur landsmanna til að sækja sérfræði- og læknisþjónustu sem aðeins er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án kostnaðar vegna ferðalaga, uppihalds og vinnutaps.

Þú kastar aðeins atkvæði á glæ með því að kjósa gegn sannfæringu þinni og hjarta

Ágæti kjósandi í Norðvesturkjördæmi. Hafður er uppi mikill hræðsluáróður nú fyrir þessar kosningar. Kjósendur eru hvattir til að kasta atkvæði sínu ekki á glæ með því að kjósa „litlu framboðin“. 5% reglan er rangtúlkuð á þann veg, að nái framboð ekki 5% atkvæða á landsvísu, sé voðinn vís og möguleiki til að ná manni á þing enginn. Þetta er rangt. Landsbyggðarflokkurinn sem og aðrir flokkar eiga möguleika á að ná kjördæmakjörnum þingmanni fái þeir 12-14% atkvæða í NV kjördæmi.

X við M er ekki exem

Látum ekki hræða okkur frá því að fylgja sannfæringu okkar. Leyfum rödd okkar landsbyggðarbúa að heyrast á Alþingi á næsta kjörtímabili. Setjum því x við M á kjördag. Með því stöndum við með sjálfum okkur. Sterk landsbyggð - Sterkara Ísland!

Magnús Hávarðarson – formaður Landsbyggðarflokksins, skipar 15. sæti á lista Landsbyggðarflokksins í Norðvesturkjördæmi




Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×