Helstu fréttir

Fréttamynd

Gosmökkurinn í 10 kílómetra hæð

Gosmökkurinn frá gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um tíu kílómetra hæð, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu Íslands. Mest var hæðin um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni. Gosmökkurinn mældist í 13-15 kílómetra hæð í hádeginu.

Innlent
Fréttamynd

Ögmundur og Jóhanna heimsóttu samhæfingarmiðstöðina

"Það var mjög traustvekjandi að sjá hve vel smurð þessi vél er og samhæfir kraftarnir,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann fór, ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að skoða aðstæður í samhæfingamiðstöðinni í Skógarhlíð vegna eldgossins.

Innlent
Fréttamynd

Bjarga búfénaði frá öskufallinu

Heimamenn hafa í dag verið að bjarga búfénaði í nágrenni við gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Þessi bóndi á Hörgslandi var að bjarga hestinum sínum þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara bar að garði fyrir stundu. Gríðarleg svifryksmengun er vegna öskufallsins.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair fellir niður flug á morgun

Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga í fyrramálið verður fellt niður vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum, sem hefur lokað fyrir flugumferð um Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða flug til Frankfurt, Parísar, Amsterdam, London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Osló, Bergen/Þrándheims, Stokkhólms og Helsinki. Áður hafði Icelandair aflýst öllu flugi síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmiðlamenn á Vatnajökli

Hópur fjölmiðlamanna fór með þyrlu á Vatnajökul í grennd við gosstöðvarnar í Grímsvötnum í dag. Þar á meðal var Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, sem myndaði það sem fyrir augun bar. Í myndasafninu sem fylgir þessari frétt má sjá gosstrókinn frá Grímsvötnum í bland við jökulinn.

Innlent
Fréttamynd

Leita fjögurra ferðamanna á gossvæðinu

Björgunarsveitamenn eru byrjaðir að grennslast eftir fjórum ferðamönnum sem fóru í morgun á tveimur bílum frá Höfn áleiðis að sveitabæ vestan Kirkjubæjarklausturs þar sem þeir hugðust gista en þeir hafa ekki skilað sér þangað. Björgunarsveitir aka nú veginn á milli til að kanna hvar fólkið er niðurkomið en talið er að það sé á eða við þjóðveginn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Innlent
Fréttamynd

Gestir að yfirgefa Islandia Hótel

Gestir á Islandia Hótelinu að Núpum, í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur, eru að yfirgefa hótelið vegna öskufalls frá gosinu. Þau munu njóta aðstoðar björgunarsveitamanna. Viðbragðsaðilar vegna gossins voru að dreifa rykgrímum og gleraugum nú rétt í þessu þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var staddur við hótelið. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur þá sem eru í nágrenni við gosstöðvarnar til að halda sig innandyra. Þurfi þeir nauðsynlega að vera úti eru þeir hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki búist við hlaupi

Staðfest hefur verið að gosið í Grímsvötnum er í sjálfri öskjunni nærri þeim stað þar sem gaus árið 2004. Þetta kemur fram á heimasíðu veðurstofunnar. Síðast hljóp úr Grímsvötnum árið 2010 og hefur lítið vatn safnast þar saman og þunnur ís er á öskjunni. Þegar gaus á sama stað árin 1998 og 2004 urður jökulhlaup nokkru eftir að gosið hófst en ekki er talið að samsvarandi aðstæður séu uppi nú. Því er ekki búist við jökulhlaupi að því er fram kemur á heimasíðu veðurstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Föst vegna ösku - aftur

Norska blaðið Aftenposten greinir frá tveimur vinkonum sem báðar sátu fastar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fyrir rúmu ári. Önnur í New York og hin í Stokkhólmi. Nú eru ferðaplön þeirra aftur í uppnámi. Ástæðan. Þær ákváðu að skella sér í sumarfrí á Íslandi. Vinkonurnar heita Randi Roaldsnes og Karen Sofie Haraldsen. Þær eru hér ásamt þrettán vinum í skemmtiferð og hafa það bara gott - eða kjempefint, eins og segir í greininni.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert amar að búfénaði austan við gosstöðvarnar

Búfjárráðunautur heimsótti í dag bændur frá Höfn í Hornafirði og austur að Skaftafelli. Ekkert amar að búfénaði á því svæði en ekki er búið að kanna ástandið vestur af gosstöðvunum. Samkvæmt upplýsingum úr samhæfingarmiðstöð Almannavarna er svartamyrkur frá Kirkjubæjarklaustri og að Freysnesi. Verið er að vinna við að koma fólki til aðstoðar eins og hægt er og hafa allar aðgerðir gengið vel.

Innlent
Fréttamynd

Síminn stoppar ekki hjá upplýsingafulltrúum

„Ég held að það sé vægt til orða tekið að segja að hann hringi stanslaust," segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, en upplýsingafulltrúar ýmissa fyrirtækja og stofnana hafa staðið í ströngu við að upplýsa umheiminn um stöðu mála vegna eldgossins í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Um 200 lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum

Almannavarnir leggja mikla áherslu á að fólk sé ekki á ferli á svæðinu þar sem öskufall er. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. Um tvö hundruð lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru nú að störfum á gossvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Brynvarðir trukkar á leið á svæðið

Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu koma mikið við sögu í aðstæðum á borð við þær sem nú eru á gosstöðvunum og þeim svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitarmenn séu aðallega að aðstoða bændur á svæðinu með búfénað sinn auk þess sem þeir dreifi rykgrímum og manni lokunarpósta þar sem vegum hefur verið lokað.

Innlent
Fréttamynd

Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar

Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst.

Innlent
Fréttamynd

Viðvarandi lokun getur haft alvarleg áhrif

Talsmaður ferðaþjónustunnar segir að viðvarandi lokun flugvalla geti haft alvarleg áhrif á greinina. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ferðaþjónustunni hafi brugðið í brún þegar gosið hófst í gær, enda stutt síðan greinin stóð í stórræðum þegar gaus í Eyjafjallajökli í fyrra. Hún segir hins vegar að bæði stjórnvöld og Íslandsstofa hafi brugðist hratt við að koma upplýsingum til alþjóðlegra fjölmiðla.

Innlent
Fréttamynd

Iðnaðarráðherra innlyksa á Höfn

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra boðaði til viðbragðsfundar í ráðuneytinu klukkan hálf ellefu í morgun, en þar voru samankomnir þeir sömu og sáu um viðbrögð við síðasta gosi á opinberum vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár

Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður.

Innlent
Fréttamynd

Caribou tónleikum aflýst vegna gossins

Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri.

Lífið
Fréttamynd

Hótelgestir komast hvorki lönd né strönd

"Hér er bara mjög leiðinlegt ástand,“ segir Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir, hótelstjóri, á Islandia Hótel að Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. "Það hefur verið mikið mistur frá því á miðnætti og núna sjáum við ekki bílana sem standa fyrir utan.“

Innlent
Fréttamynd

Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús.

Innlent
Fréttamynd

Fjöldahjálparstöðvar opnaðar

Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1777.

Innlent
Fréttamynd

Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum

Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi.

Innlent
Fréttamynd

Öllu flugi innanlands aflýst

Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu.

Innlent
Fréttamynd

Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu

"Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi.

Innlent
Fréttamynd

Kraftur gossins svipaður

"Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki bjartsýn á framhaldið

Loftrýminu yfir Keflavíkurflugvelli hefur verið lokað, en fram að þeim tíma var reynt að koma sem flestum vélum í burtu. Miðað við spá Bresku veðurstofunnar um gjóskudreifingu er Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, ekki bjartsýn á framhaldið og segir að dagurinn líti ekki sérstaklega vel út.

Innlent