Skroll-Fréttir

Fréttamynd

Jóhanna hefur efasemdir um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur efasemdir um það að rétt sé að ákæra ráðherrana fjóra sem meirihluti Atlanefndarinnar svokölluðu leggur til að ákærðir verði fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Samkvæmt tillögunum verða ráðherrarnir ákærðir fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda að bankahruninu.

Innlent
Fréttamynd

Launahækkanir varaborgarfulltrúa kosta 5 milljónir

Heildarkostnaður af breytingu á launum borgarfulltrúa sem samþykkt var í forsætisnefnd borgarstjórnar síðastliðinn föstudag er áætlaður um 5 milljónir á árinu 2011, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri Reykjavíkur mótmælir við Alþingi

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, er í fremstu línu mótmælenda við Alþingi en þar standa yfir mótmæli gegn mannréttindabrotum í Slóvakíu. Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir mótmælunum sem hófust klukkan 9.10.

Innlent
Fréttamynd

Maður á sextugsaldri afvopnaður á slysadeild

Maður á sextugsaldri var afvopnaður á Landspítalanum um klukkan ellefu í morgun. Maðurinn kom á spítalann til þess að sækja sér læknisþjónustu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja álit EFTA dómstólsins á hæstaréttardómnum

Stjórnarfundur Hagmunasamtaka heimila samþykkti einróma sídegis að leita til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna niðurstöðu Hæstaréttar frá því í gær. Jafnframt að leita leiða til að fá álit EFTA dómstólsins. Á annað hundrað manns staðfestu í dag þátttöku sína í hópmálsóknum Samtaka lánþega gegn fjármálafyrirtækjum. Talsmaður samtakanna segir viðskiptaráðherra ekki geta sett lög sem berji niður betri rétt lánþega.

Innlent
Fréttamynd

Óhugnanleg upptaka af hótunum meints kynþáttahatara

Bróðir kúbversks pilts, sem flúði land ásamt föður þeirra, segist ekki óttast ofbeldismenn sem hótað hafa honum og fjölskyldur hans. Maðurinn sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins, hótaði honum öllu illu í símtali. Við vörum við orðbragði mannsins í þessari frétt.

Innlent
Fréttamynd

Breski gosflugstjórinn yfir Eyjafjallajökli

Breski flugstjórinn, sem frægastur er fyrir að bjarga risaþotu úr eldfjallaösku, flaug yfir Eyjafjallajökul í dag. Hann telur flugmálayfirvöld hafa gengið allt of langt í vor í að stöðva flug en líst ekki á blikuna ef Katla bærir á sér.

Innlent
Fréttamynd

Alexander vinsælasta nafnið

Alexander var vinsælasta nafngift nýfæddra sveinbarna í fyrra en Anna hjá meybörnum. Anna var einnig í efsta sæti ári áður, en Alexander tók við af Viktori sem var vinsælasta fyrsta nafn árið 2008 hjá sveinum. Árið 2009 féll Viktor hins vegar í 5. sæti. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

„Ótrúlegt örlæti“

Verkamaður hjá Reykjavíkurborg var svo sleginn þegar hann sá frétt Stöðvar 2 í gær um skemmdarverk sem unnnin voru á bíl Margrétar Marelsdóttir að hann hafði samband og bauðst til að borga skemmdirnar. „Ótrúlegt örlæti," segir Margrét.

Innlent
Fréttamynd

Segir Suðurnes í heljargreipum Vinstri grænna

Viðræður um orkusölu til álversins í Helguvík eru komnar í loft upp og kveðst forstjóri HS Orku líta svo á að orkusölusamningur við Norðurál sé runninn úr gildi. Bæjarstjórinn í Garði segir Suðurnesjum vera að blæða út í atvinnuleysi og þau séu í heljargreipum Vinstri grænna.

Innlent
Fréttamynd

„Sæll félagi Össur“ - Magma bað ráðherra um frið fyrir Vinstri grænum

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hlutaðist til um kaup Magma Energy í HS Orku nokkuð eftir að hann hætti sem iðnaðarráðherra, þótt orku- og auðlindamál heyrðu ekki undir hann. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, bað iðnaðarráðherra um frið fyrir Vinstri grænum í bréfi sem hann sendi á síðasta ári.

Innlent
Fréttamynd

Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn

Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar í Vesturbæjarskóla æfir yfir aðstöðuleysi

Mikil reiði ríkir á meðal foreldra í Vesturbæjarskóla eftir að færanlegar skólastofur voru fluttar á lóð Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Skúrarnir voru fluttir á lóðina í gærkvöld. Þeim er ætlað að hýsa sjö ára gömul börn á meðan að skólastarfið stendur yfir í vetur.

Innlent
Fréttamynd

Villtar kanínur í Elliðaárdalnum - myndband

Hoppandi kátar kanínur hafa lengi verið eitt af aðalsmerkjum Elliðaársdalsins, en óvenju mikið er af þessum krúttlegu greyjum þar í sumar. Vandamál segja sumir en aðrir líta á það sem forréttindi að hafa þær í bakgarðinum. Breki Logason fór í kanínuleit í dag.

Innlent
Fréttamynd

Hvalhræ urðað við Ásbúð

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað gert verði við hræið af Steypireyði sem rak á land við eyðibýlið Ásbúð á Skaga fyrir skömmu. Líklegt er þó að það verði urðað í fjörunni.

Innlent
Fréttamynd

Árni Friðriksson í olíuleit á Drekasvæðinu

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er komið í olíuleit á Drekasvæðinu. Skipið safnar borkjarnasýnum úr efstu botnlögum til að kanna hvort í þeim leynist olía eða gas. Fréttir af gasfundi við Grænland gætu skipt Íslendinga máli.

Innlent
Fréttamynd

Kirkjuráð biðst fyrirgefningar

Kirkjuráð biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar biskups fyrirgefningar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá kirkjuráði. Þar kemur fram að Kirkjuráð trúi frásögnum þeirra Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og fyrir hönd þjóðkirkjunnar biðji kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar.

Innlent
Fréttamynd

Kynungabók komin út

Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu

Innlent
Fréttamynd

Hundruð manna til Þjóðskrár

Hundruð manna hafa lagt leið sína á skrifstofu Þjóðskrár Íslands í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur stór fjöldi þeirra verið þar til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni en nákvæmar tölur um það liggja ekki fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Dreifðu brauði fyrir utan Stjórnarráðshúsið

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson mótmælti í félagi við annan mann fyrir utan Stjórnarráðshúsið í dag þar sem fram fór ríkisstjórnarfundur. Í samtali við fréttamann á staðnum sagði Sturla sig og félaga sinn dreifa brauði fyrir utan húsið til að laða máva að lóðinni í mótmælaskyni við sitjandi ríkisstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Ók inn í bankann

Bifreið var ekið inn í Íslandsbanka á Kirkjusandi klukkan rúmlega tvö í nótt. Að sögn lögreglu var ökumaðurinn ölvaður og fór bíllinn í gegnum glerhurð í andyri og hálfur í gegnum vegg þar fyrir innan. Ökumanninn sakaði ekki en lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvunina. Ekki mun þó hafa verið um ránstilraun að ræða heldur fremur að maðurinn hafi talið sig eiga óuppgerðar sakir við bankann. Hann gistir nú fangageymslur og bíður þess að komast í yfirheyrslu.

Innlent
Fréttamynd

Pakistanar á Íslandi kalla eftir aðstoð

Pakistanar hér á landi kalla eftir aðstoð vegna flóðanna í landinu. Þau færi samfélagið áratugi aftur í tímann og mikið fé þurfi til endurbyggingar. Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall sitt til þjóða heims um aðstoð.

Innlent