Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026

Fréttamynd

Út­litið ekki allt of gott í kjara­deilu flug­virkja

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enn hnútur hjá flug­mönnum Icelandair

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu ekki skrifa undir samninga í dag líkt og stefnt var á með verkstýrðri verkáætlun ríkissáttasemjara. Nefndirnar eru þó enn í virku samtali. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Telur yfir milljarð á dag í húfi

Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengið aldrei verið lægra

Við lokun markaða í dag stendur hlutabréfaverð Icelandair í 0,64 krónum. Virðið hefur aldrei verið lægra og lækkaði um 5,87 prósent í dag eftir að flugvirkjar tilkynntu að þeir ætluðu að hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafa sam­band við far­þega

Icelandair segir að komi til verkfallsaðgerða flugvirkja muni það hafa veruleg áhrif á flugáætlun félagsins þó að ekki sé hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið. Komi til breytinga á flugáætlun muni starfsmenn félagsins hafa samband við farþega. Ítrekað hafi það verið lagt til að leggja málið fyrir gerðardóm.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar fara í verk­fall

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar hafi þegar fengið hækkanir

Forstjóri Icelandair segir að ef flugvirkjar samþykki að fara í verkfall hafi það verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem nú þegar glími við krefjandi aðstæður. Hann segir að þó samningur flugvirkja sé sex ára gamall hafi komið til hækkanir á samningstímabilinu í takt við þróun á almennum vinnumarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Vara við af­leiðingunum

Stjórnendur Icelandair harma að Flugvirkjafélag Íslands hafi sett af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall og vara við afleiðingunum ef slíkar aðgerðir verða að veruleika. Fulltrúi flugvirkja segir þá hafa dregist aftur úr almennri launaþróun á meðan Icelandair segir kröfurnar óraunhæfar. Flugfélagið geti ekki teygt sig lengra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Eftir að koma í ljós“ hvort ís­lenskar á­hafnir manni leigu­flug Icelandair

„Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.

Viðskipti innlent