
Andlát Liam Payne

Kærasta Liam Payne tjáir síg í fyrsta sinn
Katie Cassidy fyrirsæta og kærasta Liam Payne hefur í fyrsta sinn tjáð sig um andlát hans í Argentínu og síðustu augnablik þeirra saman. Hún segir að hefði hún vitað hvernig var hefði hún aldrei yfirgefið hann í Argentínu.

Fimm ákærðir í tengslum við andlát Liam Payne
Fimm manns hafa verið ákærðir fyrir andlát tónlistarmannsins Liam Payne. Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið
Liam Payne, tónlistarmaður og fyrrverandi meðlimur One Direction, er sagður hafa pantað níu flöskur af vískíi og þrettán grömm af kókaíni skömmu áður en hann lést. Payne lést í Buenos Aires í síðasta mánuði eftir að hann féll fram af þriðju hæð á svölum á hóteli.

Myndir: Þungt yfir stjörnunum við jarðarför Payne
Það var eðli málsins samkvæmt þungt yfir viðstöddum í bænum Amersham í Englandi í dag þar sem jarðarför bresku stórstjörnunnar og söngvarans Liam Payne fór fram. Payne lést fyrir um mánuði síðan eftir fall af svölum á hóteli sínu í Buenos Aires í Argentínu.

Liam Payne lagður til hinstu hvílu
Breski tónlistarmaðurinn Liam Payne úr strákasveitinni One Direction verður borinn til grafar í Wolverhampton í Englandi seinna í dag.

Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne
Þrír hafa verið handteknir í Argentínu og standa frammi fyrir ákærum vegna dauða Liam Payne, tónlistarmanns og fyrrverandi meðlims í One Direction. Payne lést í Buenos Aires í síðasta mánuði þegar hann féll fram af svölum á þriðju hæð.

Hafi áður tekið of stóran skammt
Breski söngvarinn Liam Payne hafði áður tekið of stóran skammt eiturlyfja þannig að honum varð að bjarga. Hann er sagður hafa verið í engu ástandi til þess að taka þátt í upptökum á raunveruleikaþáttum Netflix sem fram fóru fyrr á þessu ári.

Vilja gefa út síðustu þættina með Payne
Forsvarsmenn bandarísku streymisveitunnar Netflix hafa sett framleiðslu sjónvarpsþáttaraðarinnar Building the Band á pásu en breski söngvarinn Liam Payne var þar aðalsprautan sem dómari. Þeir ætla sér að ræða málin við fjölskyldu söngvarans en vilja samt gefa þættina út að lokum.

Hafi liðið sem gísl í Argentínu
Samfélagsmiðlastjarnan Kate Cassidy kærasta Liam Payne fannst líkt og hún væri gísl kærasta síns þar sem þau dvöldu saman í Buenos Aires í Argentínu stuttu áður en hann lést í sama fríi. Hún hafi átt gríðarlega erfitt með þá ákvörðun að fara eftir tvær vikur í Argentínu með söngvaranum.

Með „bleikt kókaín“ í blóðinu þegar hann lést
Bráðabirgðarkrufning á líki breska söngvarans Liam Payne hefur leitt í ljós að hann hafði neytt nokkra tegunda fíkniefna þegar hann lést. Meðal þeirra eru MDMA, ketamín og metamfetamín og kókaín.

Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne
Zayn Malik hefur ákveðið að fresta Ameríkutúr sínum vegna fráfalls Liam Payne. Malik og Payne voru saman í strákahljómsveitinni One Direction. Payne lést á miðvikudag eftir að hafa fallið af svölum á hóteli í Buenos Aires í Argentínu.

Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum
Geoff Payne, faðir söngvarans Liam Payne sem lést í vikunni, fór að hótelinu þar sem sonur hans lést í gær og skoðaði bréf og skilaboð frá aðdáendum hans. Aðdáendur Payne mynduðu einskonar vegg utan um hann á meðan hann gekk um til að skoða minningarorð aðdáenda sonar síns.

Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne
Cheryl Ann Tweedy, söng- og sjónvarpskona og barnsmóðir Liam Payne, hefur tjáð sig í fyrsta sinn um dauða Liams í færslu á Instagram í dag. Nú muni sonur þeirra aldrei sjá föður sinn aftur.

Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi
Hótelgestur á CasaSur Palermo sem var einn sá síðasti til að eiga samskipti við breska söngvarann Liam Payne lýsir því að söngvarinn hafi verið hegðað sér einkennilega og óþægilega við aðra hótelgesti skömmu áður en hann fór upp á herbergi sitt þar sem hann féll svo af svölunum. Hann þóttist kyrkja einn gestanna, rústaði tölvunni sinni og bar fyrir sig að hann hefði eitt sinn verið í strákabandi.

Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið
Bandaríska útgáfufyrirtækið Universal Music sagði upp samningi sínum við breska söngvarann Liam Payne nokkrum dögum fyrir andlát hans. Þá var hann án umboðsmanns.

One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“
Fyrrverandi meðlimir strákasveitarinnar One Direction hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fráfalls eins þeirra, Liams Payne, sem féll af svölum hótels í Buenos Aires í Argentínu.

Fjölskylda Liam Payne biður um andrými
Fjölskyldumeðlimir breska söngvarans Liam Payne hafa gefið frá sér yfirlýsingu vegna andláts hins 31 árs gamla söngvara. Þau segjast vera harmi slegin og biðja fjölmiðla um að gefa sér rými til að syrgja. Þá hafa heilbrigðisyfirvöld í Argentínu gefið frá sér yfirlýsingu þar sem þau segja að ómögulegt hafi verið að bjarga söngvaranum.

Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina
Starfsfólk á hóteli þar sem breski söngvarinn Liam Payne lést í gærkvöldi hringdi á neyðarlínu skömmu fyrir andlátið vegna hegðunar söngvarans sem sagður var láta öllum illum látum á milli þess sem hann væri meðvitundarlaus vegna fíkniefnaneyslu. Erlendir miðlar hafa í dag birt upptöku af símtalinu.

Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne
Starfsfólk bandaríska slúðurmiðilsins TMZ hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir umfjöllun sína um andlát breska söngvarans Liam Payne. Miðillinn birti myndir af líki hans en hefur nú fjarlægt þær.

Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“
Stjörnurnar jafnt sem aðdáendur hafa minnst breska söngvarans Liam Payne á samfélagsmiðlunum eftir að fréttir bárust af andláti hans í gærkvöldi. Payne lést eftir að hafa fallið af svölum á þriðju hæðar hótels í argenísku höfuðborginni Buenos Aires.

Liam Payne úr One Direction látinn
Breski tónlistarmaðurinn Liam Payne úr strákasveitinni One Direction er látinn. Hann var 31 árs.