

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta endaði árið 2022 á sama hátt og svo oft í leikjunum sínum á árinu eða með jafntefli.
Stefán Teitur Þórðarson var í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu sem bar sigur úr býtum á Eystrasaltsmótinu í fótbolta í dag.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, hrósaði liði sínu í hástert eftir að hafa tryggt sér Eystrasaltsbikarinn með sigri á Lettlandi í vítaspyrnukeppni ytra í dag.
Ísland tryggði sér sigur í Eystrasaltsbikarnum með sigri á Lettlandi í vítaspyrnukeppni í leik sem var að ljúka. Patrik Sigurður Gunnarsson varði spyrnu Letta í áttundu umferð vítakeppninnar og tryggði sigurinn.
Ísland og Lettland mætast á Daugava-vellinum í Riga í Lettlandi í úrslitum Eystrasaltsbikarsins á morgun, laugardag. Íslenska liðið æfði á vellinum fyrr í dag en fannst vallaraðstæður ekki boðlegar og hætti æfingunni því snemma. Þrátt fyrir það fer leikur morgundagsins fram á Daugava-vellinum.
Rúnar Alex Rúnarsson var í marki Íslands í dag þegar liðið lagði Litáen í vítaspyrnukeppni í Eystrasaltsbikarnum í dag. Hann var fyrst og fremst ánægður með að liðið hafi haldið hreinu í dag.
Sverrir Ingi Ingason var mættur aftur í vörnina hjá íslenska landsliðinu eftir ansi langa fjarveru. Hann var ánægður með sigurinn gegn Litáum í dag en sagði að vantað hefði upp á gæðin hjá Íslandi í vissum aðstæðum.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu var ekki ánægður með leik íslenska landsliðsins gegn Litáum í Eystrasaltsbikarnum í dag. Ísland vann í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er komið í úrslit Eystrasaltsbikarsins eftir sigur á Litáen. Eftir markalausan leik réðust úrslitin í vítakeppni. Þar skoruðu Íslendingar úr sex spyrnum en Litáar úr fimm.
Arnar Þór Viðarsson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Litáen í Eystrasaltsbikarnum í fótbolta.
„Það er gaman að koma aftur,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson sem er mættur aftur í slaginn með íslenska landsliðinu í fótbolta eftir langt hlé.
Engin forföll hafa orðið hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta fyrir leikinn við Litháen ytra á miðvikudag, í Eystrasaltsbikarnum. Tveir leikmenn yfirgefa hins vegar liðið eftir þann leik.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mun taka þátt í Eystrasaltsmótinu (e. Baltic Cup) í vetur. Þar mun liðið etja kappi við Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litáen.