EHF-bikarinn

Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli
Eins og alþjóð veit eru Valskonur Evrópubikarmeistarar í handbolta í ár. Karlamegin er nú loks einnig búið að útnefna sigurvegara, eftir mikið hneyksli.

Löggan óskaði Hildigunni til hamingju
Valur varð í gær Evrópubikarmeistari í handknattleik eftir að hafa lagt spænska liðið Porrino í úrslitaleik. Eftir leik fékk einn leikmaður Vals sérstaka kveðju frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn
Valur varð í dag Evrópubikarmeistari kvenna í handbolta eftir sigur á spænska liðinu Porrino. Stemmningin í N1-höllinni að Hlíðarenda var mögnuð og Anton Brink ljósmyndari Vísis var á staðnum.

„Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“
„Mér líður bara gríðarlega vel, fyrst og fremst stoltur af liðinu, leikmönnum og þjálfarateyminu,“ sagði sigurreifur Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals eftir að Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn í handknattleik í dag.

Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða
Valur vann eins marks 25-24 sigur á Porrino frá Spáni í úrslitaleik um Evrópubikartitil kvenna í handbolta. Þær eru Evrópubikarmeistarar fyrst íslenskra kvennaliða.

Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði
Elín Rósa Magnúsdóttir átti stóran þátt í sögulegum Evrópusigri Vals í handbolta en bikar fór á loft eftir sigur í úrslitaleik gegn Porrino frá Spáni á Hlíðarenda. Hún átti erfitt með að koma tilfinningarússibana dagsins í orð.

„Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“
Hildigunnur Einarsdóttir var að spila einn af síðustu handboltaleikjunum á sínum ferli er Valur skráði sig í sögubækurnar með sigri í úrslitaleik EHF-bikarsins. Tilfinningarnar voru eftir því.

„Orðið sem ég nota er forréttindapési“
„Það eru smá fiðrildi byrjuð að poppa upp,“ segir Hildigunnur Einarsdóttir sem er staðráðin í að ljúka sínum handboltaferli sem Evrópubikarmeistari, með því að vinna spænska liðið Porrino í úrslitaleik á Hlíðarenda í dag klukkan 15.

„Ég get ekki beðið“
Elín Rósa Magnúsdóttir er yfir sig spennt fyrir leik Vals við spænska liðið Porriño á morgun. Það er ekki að ástæðulausu. Fyrsti Evróputitill íslensks kvennaliðs í sögunni er undir.

Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi
„Ég er frekar rólegur og líður bara vel,“ segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals, sem spilar úrslitaleik um EHF-bikar kvenna í handbolta að Hlíðarenda á morgun er lið Porriño frá Spáni kemur í heimsókn.

Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi Vals fyrir seinni leik kvennaliðs félagsins gegn Porrino í úrslitum EHF-bikarsins á morgun.

Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum
Porrino og Valur skildu jöfn, 29-29, á Spáni í fyrri leik liðanna í úrslitum EHF-bikars kvenna í handbolta. Seinni leikurinn fer fram á Hlíðarenda eftir viku.

„Maður veit alveg hver gulrótin er“
Valskonur vonast til að stíga stórt skref í átt að því að verða fyrsta íslenska kvennaliðið í sögunni til að vinna Evróputitil í handbolta. Fram undan er fyrri úrslitaleikur liðsins á Spáni.

Valskonur fá seinni leikinn heima
Seinni leikur Vals og Conservas Orbe Zendal Bm Porrino í úrslitum EHF-bikars kvenna í handbolta fer fram á Hlíðarenda.

Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn
Óvissa ríkir um einvígi Partizan frá Belgrad og AEK frá Aþenu í 8-liða úrslitum EHF-bikarsins í handbolta. Seinni leik liðanna, sem spila átti í Serbíu í gær, var frestað eftir að stuðningsmenn Partizan köstuðu reykblysum inn á völlinn í höllinni.

„Okkar besti leikur á tímabilinu“
„Ég held að við getum sagt það að við erum sennilega að spila okkar besta leik á tímabilinu,“ sagði Ágúst Jóhannesson, þjálfari Vals eftir að lið hans tryggði sig inn í úrslitaeinvígið um Evrópubikarinn með stórsigri í kvöld á liðinu Iuventa Michalovce.

„Forréttindi að fá að vera hluti af þessu liði“
„Vá þetta var geðveikt! Ég bara bjóst aldrei við þessu að við myndum bara taka þær með tíu á heimavelli,“ sagði Þórey Anna Ásgeirsdóttir, hornamaður Vals, eftir glæsilegan tíu marka sigur á Iuventa Michalovce frá Slóvakíu í síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópubikarsins.

Uppgjörið: Valur - Iuventa Michalovce 30-20 | Valskonur í úrslit Evrópubikarsins fyrstar íslenskra liða
Valskonur eru komnar í úrslitaeinvígið um Evrópubikarinn, fyrst íslenskra liða, eftir glæsilegan tíu marka sigur á Slóvakíska liðinu Iuventa Michalovce að Hlíðarenda í kvöld.

„Getum brotið blað í sögu handboltans“
Valskonur og þjálfarinn Ágúst Jóhannsson eru staðráðin í að skrá sig í sögubækurnar í dag með því að komast í úrslit EHF-bikarsins í handbolta í dag. Ágúst segir skipta sköpum að fólk fjölmenni á Hlíðarenda til að hjálpa Val yfir endalínuna.

Haukar úr leik í Evrópubikarnum eftir stórt tap úti í Bosníu
Haukar eru úr leik í Evrópubikarnum í handbolta eftir stórt og slæmt tap úti í Bosníu gegn HC Izvidac. Haukar unnu fyrri leikinn með þremur mörkum en töpuðu með sjö mörkum í kvöld, 33-26.

„Þær eru steiktar en þær eru líka geggjaðar“
Thea Imani Sturludóttir hefur notið sín vel með kvennaliði Vals í handbolta í vetur og verið öflug í EHF-bikarnum. Komið er að undanúrslitaleik þar sem Valskonur geta skráð sig í sögubækurnar.

„Væri helvíti gaman að enda ferilinn svona“
Handboltakonan Hildigunnur Einarsdóttir leggur skóna á hilluna í vor. Hún ætlar að skrifa söguna með liði Vals áður en að því kemur en stærsti leikur tímabilsins er á dagskrá um helgina.

„Trúi ekki öðru en að við fáum fullt hús af áhorfendum“
Það var létt yfir Ágúst Þór Jóhannssyni þegar hann mætti í viðtal strax eftir stórsigur Vals gegn Gróttu nú í kvöld. Með sigrinum tryggði Valur sér deildarmeistaratitilinn annað árið í röð. Fram undan er svo öllu stærra verkefni gegn MKS Iuventa Michalovce frá Slóvakíu í undanúrslitum Evrópubikarsins.

Valskonur taka tveggja marka tap með sér heim á Hlíðarenda
Valskonur taka tveggja marka tap með sér heim í seinni leikinn gegn slóvakíska liðinu MSK Iuventa í undanúrslitum Evrópubikarsins. 25-23 urðu lokatölur en Valur var sex mörkum undir í hálfleik.

Uppgjör og viðtal: Haukar - Izvidac 30-27 | Haukar fara með naumt forskot til Bosníu
Haukar báru sigur úr býtum 30-27 þegar liðið fékk bosníska liðið Izvidac í heimsókn í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópubikars karla í handbolta á Ásvelli í dag.

Haukar fara til Bosníu
Dregið var í átta liða úrslit EHF-bikars karla í handbolta í dag. Haukar mæta liði frá Bosníu.

Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins
Valskonur eru komnar alla leið í undanúrslit EHF-bikarsins í handknattleik eftir að hafa gert jafntefli gegn Slavia Prag í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum í dag. Valur sigraði tékkneska liðið með sjö mörkum í fyrri leiknum í gær og voru í kjörstöðu fyrir leikinn í dag.

„Við vorum yfirspenntar“
Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals þegar liðið tryggði sér í undanúrslit Evrópubikarkeppni kvenna í handbolta í dag. Valur gerði jafntefli við tékkneska liðið Slavia Prag, 22-22, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum og sigraði einvígið samtals með sjö mörkum.

Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni
Andrea Jacobsen skoraði eitt mark fyrir Blomberg-Lippe sem vann öruggan sigur á ungverska liðinu Motherson Mosonmagyarovari í Evrópudeildinni í handknattleik í dag.

„Frammistaða á alþjóðamælikvarða“
Valur sigraði tékkneska liðið Slavia Prag með sjö mörkum í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handbolta.Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, segir að sjö marka sigur hafi komið á óvart og var í skýjunum með varnarleik liðsins í dag.