Framhaldsskólar

Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna
Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna 2024 í kvöld fyrir hönd Framhaldsskóla Norðurlands vestra. Emelíana söng nýja íslenska útgáfu af laginu Never Enough úr kvikmyndinni The Greatest Showman.

Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Gettu betur
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð tryggði sér Hljóðnemann eftirsótta með sannfærandi sigri á lið Menntaskólans í Reykjavík í úrslitum Gettu betur í kvöld.

Sammæltust um starfslok í kjölfar rasískra ummæla
Samkomulag um starfslok hefur verið gert við Helga Helgason, kennara við Menntskólann að Laugarvatni, vegna ummæla hans á samfélagsmiðlum. Helgi kallaði Bashar Murad meðal annars „grenjandi illa skeindan Palestínuaraba.“ Skólameistari segir starfsfólk og nemendur afar slegna vegna málsins og að Helgi hafi viðurkennt að hafa orðið á mistök.

Funda með nemendum vegna ummæla kennara: „Við erum eiginlega slegin yfir þessu“
Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, segist slegin yfir ummælum kennara skólans, Helga Helgasonar, um framlag Bashar Murad í Söngvakeppni sjónvarpsins. Málið sé litið alvarlegum augum og dagur skólastjórnar ML hefur að sögn Jónu farið í að funda um ummælin.

Taka þurfi styttingu framhaldsskólans til skoðunar
Mennta- og barnamálaráðherra segir koma til greina að endurskoða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú. Þess í stað yrði grunnskólanám stytt um eitt ár.

Fjórtán sagt upp hjá Keili og FS tekur yfir brautir
Fjölbrautaskóli Suðurnesja mun taka yfir hluta af starfsemi Keilis eftir að samkomulag um slíkt náðist. Fjórtán starfsmönnum Keilis hefur verið sagt upp í kjölfarið.

Styttingin hafi haft verri áhrif á drengi en stúlkur
Samkvæmt rannsókn við Háskóla Íslands hefur stytting framhaldsskólans haft slæm áhrif á einkunnir ungmenna í háskóla, fjölda eininga teknum í háskóla og brotthvarf úr háskóla. Líklegra er að breytingin hafi haft slæm áhrif á drengi en stúlkur.

Námsefnisgerð stendur höllum fæti
Öll getum við verið sammála um að með góðu námsefni er stuðlað að aukinni þekkingu, skilningi, hæfni og þroska nemenda. Gæði námsefnis hefur samkvæmt öllum rannsóknum mikil áhrif á árangur og menntun.

Ungt fólk þyrst í fræðsluefni um kynheilbrigði
Nýlega gáfu Samtök um kynheilbrigði út nýja handbók, Kynheilbrigði og vellíðan ungs fólks, fyrir kennara í framhaldsskólum til að kenna um kynheilbrigðismál. Tilgangur handbókarinnar er að stuðla að kynheilbrigði ungs fólks. Ritstjórar efnisins eru Sóley og Yvonne K. Fulbright, kynfræðingur.

Tveir drengir handteknir á mótmælum barna
Tveir drengir voru handteknir á Austurvelli í morgun á mótmælum nemenda í Hagaskóla. Vitni segja engan sérstakan aðdraganda hafa verið að handtöku drengjanna. Yfirlögregluþjónn segir þá hafa ekki hlýtt fyrirmælum, hindrað störf lögreglu og framið skemmdarverk.

Guðríður Eldey nýr framkvæmdastjóri Samáls
Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi. Guðríður mun taka við starfinu af Pétri Blöndal, en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2013.

Stytting náms til stúdentsprófs
Á síðasta ári var mikið rætt um eflingu framhaldsskólans með það að markmiði að auka gæði og fjölbreytni náms og auka farsæld barna og ungmenna. Þá átti að efla framhaldsskólana með sameiningu ákveðinna skóla, þær tillögur vöktu hörð viðbrögð í samfélaginu og fór svo að mennta- og barnamálaráðherra setti fyrirætlanir sínar á ís.

Tjá sig ekki um þjóðerni hinna handteknu
Mennirnir þrír sem handteknir voru eftir aðgerð lögreglu við Fjölbrautarskólann í Breiðholti í vikunni hafa verið látnir lausir. Lögregla verst allra frétta af málinu.

„Þetta er hreinasti skáldskapur“
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti segist ekkert skilja í sögusögnum sem fóru af stað í kjölfar lögregluaðgerðar við skólann í gær. Maður sem hótaði að gera árás í skólanum kom aldrei inn fyrir veggi hans þennan dag.

Blæs á sögusagnir og segir algjöra ró hafa verið innan veggja skólans
Skólastjórnendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti segja allt hafa verið með kyrrum kjörum í skólanum í gær eftir að honum var lokað í kjölfar þess að stjórnendum bárust upplýsingar um að fyrrverandi nemandi hyggðist koma í skólann og valda miska.

Sögulegur sigur FÁ í MORFÍs
Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla sigraði Verslunarskólann rétt í þessu í sextán liða úrslitum Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, MORFÍs. Er þetta í fyrsta skipti sem FÁ sigrar Verslunarskólann í sögu keppninnar.

Hlupu upp til handa og fóta vegna manna með leikfangabyssur
Lögregla var með mikið viðbragð við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um klukkan 14. Tveir tvítugir menn voru handteknir á vettvangi og færðir á lögreglustöð. Þeir voru með leikfangabyssur og klæddir stunguvestum. Einn hafði áður verið handtekinn á heimili sínu eftir að hafa uppi alvarlegar hótanir um ofbeldi á samfélagsmiðlum.

Fyrstu boð um að kviknað væri í framhaldsskólanum
Eldur kom upp í sorpgeymslu við Framhaldsskólann á Húsavík á þriðja tímanum í nótt. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi þar sem slökkviliði barst útkall um að eldur hefði komið upp í skólanum. Líkur eru taldar á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Króli spyrill í Gettu betur í stað Kristjönu Arnars
Kristjana Arnarsdóttir er hætt sem spyrill í Gettu betur. Kristinn Óli Haraldsson, Króli, tekur við starfinu.

Snædís Hekla dúxaði og badmintonkempa flutti ræðu
Fjölbrautarskólinn við Ármúla útskrifaði 75 nemendur af 12 brautum og þar af sjö af tveimur brautum. Hátíðleikinn var allt umlykjandi og gleðin skein úr andlitum nýstúdenta og gesta en brautskráning fór fram í hátíðarsal skólans.

Var á óvenju hraðskreiðri snjóþotu þegar hann lést
Nítján ára karlmaður sem lést eftir að ekið var á hann við Framhaldsskólann á Laugum í febrúar 2022 var að renna sér á hraðskreiðari snjóþotu en almennt var notuð við skólann. Áratugalöng hefð er fyrir því að nemendur renni sér á rassasnjóþotum niður brekku við skólann.

Ölvaður nemandi átti erfitt með að stjórna tilfinningum sínum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt eftir miðnætti í nótt vegna nemanda menntaskóla sem hafði orðið ölvaður á skólaballi og átti í erfiðleikum með að stjórna tilfinningum sínum.

Fjarnám sem valkostur = farsæld fyrir alla nemendur
Fyrir stuttu var umfjöllun um menntamál í Kveik í ríkissjónvarpinu. Þar kom m.a. fram að íslenska skólakerfið hafi lítið þróast í gegnum árin. Nemendur sitja þétt saman í kennslustofunni, misjafnlega móttækir fyrir því sem kennarinn hefur fram að færa.

Biðja Unni Eddu afsökunar
„Þetta gefur manni svolítinn auka kraft til að halda áfram baráttunni við þetta ljóta mein sem einelti kann að skilja eftir í sálinni manns,“ segir Unnur Edda Björnsdóttir. Hún steig fram í viðtali á Vísi síðastliðinn miðvikudag og greindi frá hrottalegu einelti sem hún varð fyrir í grunn- og framhaldsskóla.

Kennarar byrjaðir að æfa sig í að nota hán og spyrja hvað kvár sé
Í dag er árlegur Dagur gegn einelti. Kennari sem fær hvatningarverðlaun fyrir störf sín í þágu hinsegin ungmenna segist vera ánægð með verðlaunin og að hún sé hvergi nærri hætt.

Framhaldsskólar – breytt áform
Síðasta vor kynnti ráðherra mennta -og barnamála þau áform sín að sameinina nokkra af rótgrónari menntaskólum landsins. Í þessum breiða hópi ólíkra menntastofnana er að finna ólíka menningu, ólíkan skólabrag og ólík tengsl við nærumhverfið.

Allur skólinn horfði á en enginn gerði neitt
Unnur Edda Björnsdóttir varð fyrir hrottalegu einelti og útskúfun í grunnskóla og framan af í framhaldsskóla. Viðbrögð kennara og skólastjórnenda voru þau að kenna Unni um ofbeldið. Hún flosnaði að lokum upp úr námi. Á tímabili var líðan hennar svo slæm að hún íhugaði að svipta sig lífi.

Sameining framhaldsskóla sett á ís
Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra hefur sett sameiningaráform framhaldsskóla á ís. Hann fagnar samstöðu sem hafi orðið til um að finna aðrar leiðir til eflingar framhaldsskóla en að sameina.

Ærandi þögn mennta- og barnamálaráðherra – Norðurland bíður svara
Þann 5. september sl. blés mennta- og barnamálaráðherra til fundar framhaldsskólanema á Akureyri með tæplega þriggja klukkustunda fyrirvara, þar sem kynntar voru áætlanir um að leggja niður framhaldsskóla bæjarins, MA og VMA, í núverandi mynd og sameina í einn ótilgreindan skóla.

Reynsla mín af gervigreind í menntaskólakennslu
Nýlegar framfarir í gervigreind hafa kallað fram breytingar á ýmsum sviðum samfélagsins og eru skólar þar engin undantekning. Í nýlegum þætti Kveiks á RÚV voru áhrifum gervigreindar á skólasamfélagið gerð góð skil og hefur sú umfjöllun fengið okkur til umhugsunar um hvort íslenskum skólum takist yfir höfuð að mæta nútímalegum þörfum nemenda.