
Box

Mikil sorg í hnefaleikasamfélaginu eftir óvænt andlát
Írski hnefaleikamaðurinn John Cooney lést á laugardag eftir áverka sem hann hlaut í bardaga gegn Nathan Howell í Belfast um þarsíðustu helgi. Mikil sorg er umlykjandi í hnefaleikasamfélaginu og samúðarkveðjur berast úr öllum áttum.

Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga
Wayne Bridge, sem lék 36 landsleiki fyrir England á sínum tíma, mætir YouTube-stjörnunni KSI í boxbardaga í lok mars.

Fury segist vera hættur ... aftur
Fyrrverandi heimsmeistarinn í þungavigt, Tyson Fury, segist vera búinn að leggja hanskana á hilluna.

Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð
Hnefaleikabardagakonan Erika Nótt Einarsdóttir er að leggja í stað í mikið ævintýri eins og þjálfari hennar sagði frá á samfélagsmiðlum.

Conor McGregor og Logan Paul fá jafnmikið borgað fyrir bardagann
Conor McGregor og Logan Paul hafa samþykkt að mætast í hnefaleikahringnum á þessu ári en aðeins UFC getur komið í veg fyrir það að af bardaganum verði.

Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari
Hnefaleikakappinn Paul Bamba frá Púertó Ríkó er látinn, sex dögum eftir að hafa orðið meistari í sínum þyngdarflokki.

Telur daga McGregor í UFC talda
Óvíst er hvort eða hvenær írski bardagakappinn Conor McGregor muni snúa aftur í UFC bardagabúrið. Fyrrverandi UFC bardagakappi telur engar líkur á því að McGregor, sem nýlega var dæmdur sekur í kynferðisbrotamáli, muni snúa aftur í baradagabúrið.

Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“
Tyson Fury tapaði öðru sinni á árinu fyrir Úkraínumanninum Oleksandr Usyk þegar þeir mættust í hnefaleikabardaga í Riyadh í Sádi-Arabíu í gærkvöldi.

Usyk vill að Fury snyrti skeggið sitt
Úkraínumaðurinn Oleksandr Usyk og Bretinn Tyson Fury mætast í kvöld í hnefaleikahringum í annað skiptið á árinu 2024. Usyk vann í vor en Fury er kominn til baka í hefndarhug.

Fékk ráð frá Zelenskyj fyrir bardagann á móti Fury
Hnefaleikakapparnir Oleksandr Usyk og Tyson Fury mætast öðru sinni í hringnum í kvöld en bardaginn fer fram í Riyadh í Sádi-Arabíu. Þetta er einn af stærstu bardögum ársins.

Störðu á hvor annan í ellefu mínútur
Síðasti blaðamannafundurinn fyrir bardaga Tysons Fury og Oleksandrs Usyk var sérstakur í meira lagi. Þeir störðu á hvor annan í rúmar ellefu mínútur.

Conor McGregor ætlar að berjast við YouTube stjörnu
Conor McGregor ætlar sér að snúa aftur í MMA búrið í næstu framtíð en næst á dagskrá hjá honum er hins vegar hnefaleikabardagi við YouTube stjörnuna Logan Paul.

Fury hefur ekki talað við konuna sína í þrjá mánuði
Tyson Fury er svo upptekinn við undirbúning fyrir bardagann gegn Oleksandr Usyk að hann hefur ekki talað við konuna sína, Paris, í þrjá mánuði.

Kolbeinn enn ósigraður: „Hann þurfti bara eitt högg til að finna að hann vildi ekki vera þarna“
Kolbeinn Kristinsson er enn ósigraður sem atvinnumaður í hnefaleikum. Hann fagnaði sautjánda sigrinum í gær með tæknilegu rothöggi í fyrstu lotu gegn Piotr Cwik.

Kolbeinn mætir Bubu í kvöld: „Stefni á að klára bardagann snemma“
Kolbeinn Kristinsson stígur inn í hnefaleikahringinn í kvöld og mætir hinum pólska Piotr "Bubu" Cwik. Kolbeinn er ósigraður á atvinnumannaferli sínum til þessa og getur með sigri í kvöld, hvað þá öruggum sigri komist ansi nálægt topp 50 sætum heimslistans í þungavigtarflokki.

Sjöunda og stærsta Icebox-kvöldið: „Klikkað að sjá að Ísland geti þetta“
Hnefaleikaviðburðurinn Icebox verður haldinn í sjöunda sinn í kvöld. Herlegheitin fara fram í Kaplakrika og verða sýnd beint á Stöð 2 Sport. Skipuleggjandi Icebox lofar góðri skemmtun og mikilli sýningu.

Seldu miða á Paul-Tyson bardagann fyrir 2,5 milljarða
Sama hvaða skoðun hnefaleikaáhugafólk hefur á hnefaleikakappanum Jake Paul þá getað þeir ekki neitað þeirri staðreynd að Youtube stjarnan trekkir að. Var reyndar að berjast við eina stærstu hnefaleikagoðsögn sögunnar en það breytir ekki því að peningarnir flæddu inn.

Paul hló að tilboði heimsmeistarans en skoðar málið
Hnefaleikakappinn Daniel Dubois, heimsmeistari í þungavigt, hefur boðið Jake Paul í hringinn eftir að Paul hafði betur gegn hinum 58 ára gamla Mike Tyson á föstudaginn.

Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“
Mike Tyson mátti sætta sig við tap í bardaga gegn YouTube-stjörnunni Jake Paul á aðfaranótt laugardags. Tyson segir í færslu á X að hann hafi verið nálægt því að deyja í júní.

Vildi ekki rota og meiða Tyson
Jake Paul segist ekki hafa viljað rota Mike Tyson í bardaga þeirra í nótt. Paul vann hinn 58 ára Tyson á stigum.

Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson
YouTube-stjarnan Jake Paul fagnaði sigri í umdeildum hnefaleikabardaga við 58 ára gamlan Mike Tyson í Arlington í Texas í nótt. Þar gekk á ýmsu.

Steig á tána á Mike Tyson
Mike Tyson hefur nú útskýrt það af hverju hann snöggreiddist í gær og gaf Jake Paul vænan kinnhest á vigtuninni fyrir bardaga þeirra í nótt.

Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons
Þótt veðbankar telji Jake Paul líklegri sigurvegara en Mike Tyson í bardaga þeirra eru ýmsir sem hafa trú á gamla heimsmeistaranum. Fáir meiri en hnefaleikakonan Katie Taylor.

Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni
Hnefaleikagoðsögnin Mike Tyson missti aðeins stjórn á sér kvöldið fyrir bardaga hans á móti samfélagsstjörnunni Jake Paul.

Gagnrýnir Paul fyrir að berjast við afann Tyson
Tony Bellew, fyrrverandi heimsmeistari í hnefaleikum, hefur gagnrýnt Jake Paul fyrir að berjast við hinn 58 ára Mike Tyson.

Tyson vill berjast við Tyson Fury
Mike Tyson er fullur sjálfstrausts þessa dagana. Eftir bardaga sinn við Jake Paul á morgun er hann tilbúinn að mæta einum besta boxara heims, Tyson Fury.

Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing
Íslenski atvinnumaðurinn í hnefaleikum, Kolbeinn Kristinsson, er kominn með andstæðing fyrir næsta bardaga á sínum ferli sem fer fram þann 7.desember næstkomandi.

„Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“
Mike Tyson hunsaði ráðleggingar lækna eftir að hann greindist með magasár sem varð til þess að fresta þurfti bardaga hans og Jakes Paul.

Tyson æfir á sveppum og ætlar að taka ofskynjunarlyf fyrir bardagann
Mike Tyson undirbýr sig nú að kappi fyrir endurkomuna í hringinn en hann mætir Jake Paul síðar í þessum mánuði. Undirbúningur gamla heimsmeistarans er þó nokkuð óhefðbundinn.

Tyson hafnar því að hann borði hrátt kjöt
Hnefaleikakappinn Mike Tyson, fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt, hafnar því alfarið að hann leggi sér hrátt kjöt til munns.