Besta deild karla

Umdeild staðsetning dómara í marki KA: „Hrikalega klaufalegt af dómaranum“
Pepsi Max Stúkan skoðaði það betur þegar dómarinn „hjálpaði“ KA-mönnum að skora fyrsta markið í Pepsi Max deild karla í gær.

Sjáðu keimlík mörk Sigurðar Egils, sigurskalla Qvist og markaveislu FH-inga
Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær og voru skoruð í þeim ellefu mörk. Nú er hægt að sjá öll þessi mörk á Vísi.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Keflavík 2-1 | Valsmenn gerðu nóg til að ná í stigin þrjú
Valsmenn unnu Keflvíkinga 2-1 fyrr í kvöld í bráðfjörugum leik þar sem tvö mörk dugðu þeim en hefðu getað verið mikið fleiri. Gestirnir náðu að stríða Valsmönnum en ekki nóg til að fá eitthvað út úr þessum leik.

Rasmus: Hefðum átt að ljúka þessum leik fyrr
Valur lagði Keflavík að velli á Hlíðarenda fyrr í kvöld 2-1. Leikurinn var hluti af 17. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu en Sigurður Egill Lárusson skoraði bæði mörk Keflvíkinga. Rasmus Christiansen stóð í ströngu í vörn heimamanna á löngum köflum en Keflvíkingar reyndu eins og þeir gátu í lok leiksins að jafna metin. Rasmus var gríðarlega ánægður með að hafa landað öllum stigunum.

Jónatan Ingi: Við stefnum klárlega ekki á að enda í 6. sæti
Jónatan Ingi Jónsson, sóknarmaður FH, átti þrjár stoðsendingar í 5-0 sigri FH á Leikni R. í Pepsi-Max deild karla í kvöld. Hann var að vonum ánægður í leikslok.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Leiknir R. 5-0 | FH-ingar rúlluðu yfir nýliðana
FH-ingar voru í hefndarhug gegn nýliðum Leiknis í Pepsi Max deild karla í dag og unnu öruggan fimm marka sigur.

Hallgrímur: Ætlum að fara í Kópavog og vinna Breiðablik
Hallgrímur Jónasson, aðstoðarþjálfari KA, var sáttur við stigin þrjú sem lið hans vann sér inn í dag með sigri gegn Stjörnunni á Greifavelli.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Stjarnan 2-1 | Tvö rauð spjöld á loft þegar KA lagði Stjörnuna
KA lagði Stjörnuna að velli í fjörugum leik í Pepsi Max deildinni nú fyrr í dag.

Gætu leikir gegn Keflavík verið það sem skilur að á toppi töflunnar þegar tímabilinu lýkur?
Nýliðar Keflavíkur mæta Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda í kvöld. Gestirnir lögðu Breiðablik nýverið en geta í kvöld gert Blikum greiða með því að stela stigum af meisturunum.

Leikur Breiðabliks og ÍA færður til mánudags
Breiðablik fær örlítið lengri hvíld eftir Skotlandsferðina þar sem liðið beið lægri hlut gegn Aberdeen. Liðið átti að leika strax á sunnudag en nú hefur leikurinn verið færður fram á mánudag.

Missti af mikilvægum botnslag því hann var í brúðkaupi
Guðmundur Steinn Hafsteinsson var hvergi sjáanlegur er Fylkir heimsótti Keflavík í botnbaráttuslag í Pepsi Max deild karla. Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari Fylkis, var spurður út í fjarveru sóknarmannsins og sagði það vera „vegna persónulegra ástæðna.“

Bjarni Guðjóns nýr framkvæmdastjóri KR
Bjarni Guðjónsson er kominn aftur í KR þar sem hann hefur verið sem leikmaður, þjálfari og aðstoðarþjálfari á síðustu árum. Aðalstjórn Knattspyrnufélags Reykjavíkur hefur ráðið Bjarna Guðjónsson sem næsta framkvæmdastjóra félagsins.

Lof og last 16. umferðar: Sigurður Heiðar, Skagamenn skoruðu mörkin, óvæntur Rodri og frammistaða HK
16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Blikar búnir að vinna sjö leiki í röð á gervigrasi
Það er erfitt að ráða við léttleikandi lið Blika á gervigrasi og það sýnir líka tölfræðin.

Pepsi Max stúkan sá þroskamerki hjá Blikunum í gær
Breiðabliksliðið stendur í stórræðum þessa dagana og spiluðu í gær mikilvægan leik í Pepsi Max deildinni aðeins þremur dögum fyrir Evrópuleik í Skotlandi.

Markasyrpa 16. umferðar: Öll mörkin úr Garðabænum, frá Akranesi, sigurmark Leiknis R. og öll hin
16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk með einum leik í gær. Breiðablik vann þá 3-1 sigur á Stjörnunni er liðin mættust í Garðabæ. Hér að neðan má sjá öll mörkin úr leiknum sem og öll mörk umferðarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 1-3 | Blikasigur í kveðjuleik Mikkelsens
Breiðablik vann 3-1 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í lokaleik 16. umferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik er fjórum stigum frá toppliði Vals og á leik inni á Íslandsmeistarana.

Mikkelsen: Erfitt andlega að fara frá Breiðabliki
Daninn Thomas Mikkelsen var í kvöld að spila sinn síðasta leik í treyju Breiðabliks er liðið vann 3-1 sigur á Stjörnunni í Garðabæ. Mikkelsen hefur leikið með félaginu frá 2018.

Þeir voru í bölvuðum vandræðum í fyrri hálfleik
Kjartan Atli Kjartansson og félagar í Stúkunni fóru yfir uppspil KA er liðið gerði 2-2 jafntefli við Víking í Pepsi Max deild karla um helgina. Þó Akureyringar hafi jafnað metin undir lokin voru þeir í stökustu vandræðum framan af leik.

Fyrstur til að halda hreinu á móti Íslandsmeisturunum í meira en ár
Guy Smit, markverði Leiknis, tókst það í gær sem engum öðrum markverði Pepsi Max deildarinnar hafði tekist síðan um miðjan júlímánuð 2020.

Stjarnan og Breiðablik spila í kvöld leikinn sem fór aldrei fram í fyrra
Í kvöld fáum við að sjá einn af leikjunum í Pepsi Max deild karla sem hafa ekki farið fram í tvö ár.

Pepsi Max Stúkan sýndi og sannaði að boltinn fór inn fyrir línuna hjá Gísla í gær
Gísli Laxdal Unnarsson hélt að hann hefði skoraði eitt flottasta markið sitt á ferlinum en aðstoðardómarinn í leik ÍA og HK í Pepsi Max deild karla í gær var ekki á sama máli. Pepsi Max Stúkan skoðaði atvikið betur eftir leik.

Markasúpa gærdagsins: Sigurmark Leiknis, mörk Skagamanna, fyrsta mark Stefáns Árna og óvænt tvenna
Alls fóru fimm leikir fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Í þeim voru 14 mörk skoruð og má sjá þau öll hér að neðan.

Ræddu rauða spjaldið hjá Jóa Kalla í gær: „Ég held að hann sé alveg að segja satt“
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, fékk rautt spjald í fyrri hálfleik þegar hans með í Skagaliðinu unnu gríðarlega mikilvægan sigur í Pepsi Max deildinni í gærkvöldi. Pepsi Max Stúkan ræddi þetta rauða spjald.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA - HK 4-1 | Skagamenn galopnuðu fallbaráttuna með stórsigri
Skagamenn rúlluðu yfir HK-inga í uppgjöri botnliðanna í Pepsi Max deild karla í fótbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Fylkir 1-1 | Sæst á jafnan hlut í Keflavík
Fylkir og Keflavík skildu jöfn í 16.umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta í kvöld.

Jóhannes Karl: Við ætlum okkur ekki að falla
Skagamenn fengu lið HK í heimsókn á Akranes í kvöld. Leikurinn var sannkallaður sex stiga leikur í baráttunni um áframhaldandi sæti í Pepsi-Max deild karla að ári.

Umfjöllun og viðtöl: KR - FH 1-1 | KR og FH skildu jöfn að Meistaravöllum
KR og FH skildu jöfn í 16.umferð Pepsi Max deildar karla í kvöld.

„Ég sprakk í fyrri hálfleik“
Ragnar Sigurðsson spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í efstu deild á Íslandi í 15 ár.

Umfjöllun: Leiknir - Valur 1-0 | Nýliðarnir skelltu meisturunum
Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í Efra Breiðholti í dag þegar Leiknismenn lögðu Val að velli.