

Íslendingar eru ginnkeyptari fyrir pólitískum samsæriskenningum heldur íbúar í öðrum ríkjum Norðurlanda. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta þætti Skuggavaldsins en í þessu nýja hlaðvarpi ræða stjórnmálafræðiprófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum.
Sænski rannsóknarhópurinn sem rannsakaði morðið á Olof Palme fékk neikvæða niðurstöðu um að hægt væri að tengja ákveðið skotvopn við morðið, níu dögum fyrir fréttamannafundinn þar sem Stig Engström var sagður hafa verið morðingi Palme.
Sænskir saksóknarar telja að Stig Engström, hinn svokallaði Skandia-maður, hafi orðið Olof Palme forsætisráðherra að bana þann 28. febrúar 1986.
Saksóknarar í Svíþjóð hafa nafngreint þann mann sem þeir segja hafa myrt forsætisráðherrann Olof Palme 28. febrúar 1986.
Sænski rannsóknarhópurinn sem hefur haft morðið á forsætisráðherranum Olof Palme til rannsóknar mun kynna niðurstöður sínar á fréttamannafundi klukkan 7:30 að íslenskum tíma.
Talið er að skotvopnið sem notað var til þess að myrða Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi 28. febrúar 1986 sé fundið og greinir SVT frá því að ríkissaksóknari Svíþjóðar muni tilkynna það á blaðamannafundi höldnum næsta miðvikudag.
Skandia-maðurinn svokallaði var einn af fyrstu mönnunum á vettvang þegar Olof Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var skotinn til bana árið 1986. Nú, 34 árum síðar, beinast grunsemdir manna að því að þetta lykilvitni hafi mögulega verið sá sem banaði Palme.
Rannsókn á morðinu á þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar eru sögð á lokastigum og að morðið verði mögulega loksins upplýst.
Vísir birtir fyrstu hluta bókarinnar Arfur Stiegs Larsson – Lykillinn að morðinu á Olof Palme.
Maður, sem þekktur var fyrir andúð sína á Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, og aðstoðarmaður hans eru bendlaðir við morðið á Palme í nýrri bók.
Lisbet Palme, ekkja Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, er látin, 87 ára að aldri.
Maður sem var lykilvitni við rannsókn lögreglu á morðinu á Olof Palme hefur nú sjálfur verið tengdur við morðið.
Nafnið kann að hljóma kunnuglega en smákrimminn og "alnafni“ Petersson, Christer Pettersson, er eini maðurinn sem hefur verið dæmdur fyrir morðið á Palme.
Morðið á sænska forsætisráðherranum er enn óupplýst.
"Ekki gleyma að rannsaka þetta ef ég dey skyndilega,“ skrifaði Eva Rausing í tölvupósti til sænska blaðamannsins Gunnars Wall. Svo bætti hún við: "Bara grín, vona ég!“
Hin sterkefnaða Eva Rausing sem lést af ofstórum skammti eiturlyfja í júlí s.l. mun hafa bent á að sá sem stóð að baki morðinu á Olof Palme forsætisráðherra Svía árið 1986 hafi verið hingað til óþekktur sænskur athafnamaður.
Fyrrverandi júgóslavneskur njósari heldur því fram að leyniþjónusta Júgóslavíu hafi fyrirskipað morðið Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar fyrir 25 árum.
Christer Pettersson, sem grunaður var um að hafa myrt Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, viðurkenndi fyrir leynilegri kærustu sinni að hann hefði drepið forsætisráðherrann. Frá þessu greinir sænska blaðið Aftonbladet og vitnar í bréf sem Petterson skrifaði til kærustunnar.
Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni.
Christer Petterson, maðurinn sem grunaður var um langt árabil um að hafa myrt Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, lést í dag á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Petterson, sem var 57 ára, var árið 1989 fundinn sekur um að hafa myrt Palme þremur árum áður.