Innlent
Þrjú af fjórum undir lögaldri Stúlkurnar sem stöðvaðar voru í Leifsstöð í gær voru allar undir lögaldri. Karlmaður sem stýrði för þeirra og ungs drengs var í dag úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. Hann er frá Singapúr en ungmennin frá Kína. Talstöðin greindi frá þessu. Innlent 13.10.2005 19:14
Hafnar fullyrðingum um umframmjólk Forsvarsmenn Mjólku, sem ætlar að framleiða osta utan styrkjakerfis landbúnaðarins, segja að fullyrðing Bændasamtakanna um að Mjólka megi ekki kaupa mjólk sem sé framleidd umfram greiðslumark fáist ekki staðist. Í yfirlýsingu sem lögmaður fyrirtækisins, Hróbjartur Jónatansson, sendi frá sér í dag fyrir hönd Mjólku, segir að engin rök séu fyrir því að takmarka framleiðslu og sölu mjólkurafurða enda sé ekki um að ræða takmarkaða auðlind sem þurfi að vernda og stjórna af hinu opinbera. Innlent 13.10.2005 19:14
Kaupa saman útvarpsstöðvar Ár og dagur, útgáfufélag <em>Blaðsins</em>, og Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn hafa keypt 97 prósent hlutafjár í Pyrit fjölmiðlun ehf. sem rekur útvarpsstöðvarnar KissFM og X-FM. Í tilkynningu frá Skjá einum segir að nýir eigendur ætli sér að vinna með öflugum hópi núverandi starfsfólks með það markmið að auka bæði markaðshlutdeild og hlustunarsvæði stöðvanna. Kaupverð er sagt trúnaðarmál. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Viðgerð á ljósleiðara lokið um miðnætti Gert er ráð fyrir að búið verði að tryggja net og símasamband viðskiptavina Og Vodafone í Mosfellsbæ upp úr miðnætti. Um svipað leyti verður búið að koma á DSL sambandi að nýju á Akranesi. Ljósleiðari var grafinn í sundur við tengivirki nærri Iðntæknistofnun um klukkan 20 sem hafði áhrif á net- og símasamband í Mosfellsbæ og DSL samband á Akranesi. Viðgerð hefur staðið yfir í kvöld og miðar vel áfram. Innlent 13.10.2005 19:14
Ákæra gefin út vegna banaslyss Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Ekki fæst gefið upp hverjir eða hve margir hafa verið ákærðir. Maðurinn sem lést í slysinu var 25 ára. Hann var við störf ofan í Hafrahvammagljúfri um hánótt þegar gríðarstór grjóthnullungur féll á hann. Innlent 13.10.2005 19:14
Tilraun til líkamsárásar Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 10 mánaða fangelsi, en skilorðsbatt átta mánuði af refsivistinni í þrjú ár. Maðurinn var dæmdur fyrir "tilraun til líkamsárásar með hnífi" á veitingastað í Hafnarstræti í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:14
Starfsmenn rísa gegn stjórnendum Trúnaðarráð verkalýðsfélaga starfsmanna hjá Alcan mótmæla harðlega tilefnislausum uppsögnum fimm starfsmanna sem unnið höfðu lengi og farsællega fyrir fyrirtækið. Innlent 13.10.2005 19:14
Fékk ekki bætur vegna ökklabrots Ríkið var í dag sýknað af skaðabótakröfu konu sem datt og ökklabrotnaði á göngustíg við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í janúar árið 2000. Krafðist konan tæplega 2,4 milljóna króna fyrir sjúkrakostnað og þjáninga-, miska-, og örorkubætur, en læknir mat varanlegan miska konunnar 15% og varanlega fjárhagslega örorku hennar 7%. Innlent 13.10.2005 19:14
Nýr formaður hundaræktenda Aðalfundur Hundaræktunarfélags Íslands fór fram í gær. Jóna Th. Viðarsdóttir var kjörin formaður félagsins eftir að hafa fengið yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 74 prósentum. Innlent 13.10.2005 19:14
Ekki stefnt að sjónvarpsrekstri Útgefendur <em>Blaðsins</em> og Skjár einn hafa í sameiningu keypt tvær útvarpsstöðvar. Ritstjóri <em>Blaðsins</em> segir samstarfið ekki þýða að farið verði út í sjónvarpsrekstur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Hæstiréttur dæmir Maitslandbræður Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tvíburabræðrunum Rúnari Ben og Davíð Ben Maitsland. Þeir höfðu áður verið dæmdir í fimm ára og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á 27 kílóum af kannabisefnum frá Þýskalandi hingað til lands í ellefu ferðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrír mánuðir í fangelsi fyrir árás Dráttur rannsóknar lögreglu á líkamsárás og breytingar til hins betra hjá árásarmanni urðu til þess að 15 mánuðir af 18 mánaða fangelsisdómi voru skilorðsbundnir í dómi Hæstaréttar í gær. Í héraði var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. Innlent 13.10.2005 19:14
Lönduðu tólf hákörlum Átta og hálft tonn af þorragóðgæti næsta árs kom í troll togarans Sundabergs við Grænland. Skipverjar lönduðu tólf hákörlum í gær. Innlent 13.10.2005 19:14
Lögreglumaður þurfti hjálp Lögreglumaður á Eskifirði stöðvaði í fyrrakvöld mann við reglubundið eftirlit. Þegar maðurinn steig út úr bílnum stafaði frá honum megn áfengislykt og upphófust átök þegar hann streittist á móti handtöku. Innlent 13.10.2005 19:14
Ökuníðingar hvergi óhultir Reykvískir ökuníðingar verða hvergi óhultir í sumar. Lögreglan í Reykjavík ætlar að beita sér sérstaklega gegn hraðakstri í íbúðahverfum og koma hraðamyndavélum fyrir í ómerktum lögreglubílum. Innlent 13.10.2005 19:14
Karlkennarar launahærri innan KHÍ Karlkennarar við Kennaraháskóla Íslands eru að jafnaði með fjórum prósentum hærri laun en kvenkennarar í sambærilegum stöðum, á samsvarandi aldri, með sambærilegt rannsóknarálag og menntun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um samanburð á launum starfsfólks við Kennaraháskóla Íslands sem unnin var af Félagsvísindastofnun. Innlent 13.10.2005 19:14
Strandaði um stund við Faxasker Betur fór en á horfðist þegar ísfisktogarinn Smáey VE 144 strandaði við Faxasker norðan við Heimaey á fjórða tímanum í nótt. Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk tilkynningu um strandið frá Vaktstöð siglinga og Neyðarlínunni og að Smáey hefði losnað af strandstað og væri á leið til hafnar. Björgunarbáturinn var Þór kallaður út í öryggisskyni en hann þurfti þó ekki að aðstoða. Innlent 13.10.2005 19:13
Aukin hætta á launaskriði Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur lækkað úr 3,1 prósenti í 2,3 prósent á einu ári. Vegvísir Landsbankans bendir á að reynslan síðasta áratuginn sýni að ekki séu dæmi um að saman geti farið atvinnuleysi undir tveimur prósentum og verðbólga undir fjórum prósentum. Nú þegar atvinnuleysið sé komið niður að tveggja prósenta mörkunum aukist hættan á því að launaskrið aukist verulega. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Fermetraverð fari yfir 200 þúsund Greining Íslandsbanka spáir 15 prósenta hækkun á íbúðarverði til viðbótar þar til það staðni síðla á næsta ári. Meðalfermetraverð yrði þá komið yfir 200 þúsund krónur. Þó er tekið fram að lítið megi út af bregða til að ekki komi til lækkunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Selma fellur í veðbönkum Samkvæmt enskum veðbönkum fellur íslenska lagið á listanum yfir líklegustu sigurvegara í úrslitakeppninni á laugardag. Það fer úr fjórða sæti niður í það sjötta. Ísland er þó enn í þriðja sæti á lista yfir liðin í forkeppninni í kvöld á eftir Noregi og Ungverjalandi. Innlent 13.10.2005 19:14
Dómur styttur vegna ónógra sannana Hæstiréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Rúnari Ben Maitsland og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, vegna ónógra sönnunargagna. Þeim er gefið að sök að hafa smyglað til landsins um 30 kílóum af hassi, sem aldrei var lagt hald á. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður. Innlent 13.10.2005 19:14
Nefnd áminnir fjárfesta í Símanum Fjárfestar sem bjóða í Símann voru í gær áminntir bréflega um að virða trúnaðarsamning. Brot á honum geti "leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu". </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
27% þreyttu öll samræmd próf Aðeins 27 prósent tíundu bekkinga þreyttu öll sex samræmdu prófin en rúm 40 prósent þreyttu fimm próf. Aðeins tæp tvö prósent tóku ekkert samræmt próf. Yfir 90 prósent nemenda þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði en mun færri ákváðu að takast á við náttúrufræði, samfélagsgreinar og dönsku. Um þrjú hundruð nemar í níunda bekk tóku að minnsta kosti eitt samræmt próf. Erlent 13.10.2005 19:14
Eurovision draumurinn úti Íslendingar komust ekki áfram í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Undanúrslitin fóru fram í Kænugarði í Úkraínu í kvöld og komst Selma Björnsdóttir vel frá flutningi sínum. Allt kom fyrir ekki, evrópskum sjónvarpsáhorfendum þótti önnur lög betri og veittu Selmu og félögum því ekki brautargengi. Innlent 13.10.2005 19:14
Helmingsþátttaka í formannskjöri Kosningu í formannskjöri Samfylkingarinnar lauk klukkan sex í gærkvöldi en þá höfðu rúmlega 11.000 atkvæði borist kjörstjórn flokksins. Innlent 13.10.2005 19:14
Aðeins eitt álver vegna mengunar Aðeins er svigrúm fyrir eitt stórt álver í viðbót á Íslandi til ársins 2012 samkvæmt íslenska sérákvæðinu í Kyoto-bókuninni. Þetta er talið ýta undir álverskapphlaupið sem nú er hafið. Valdið til að úthluta mengunarkvótanum er í höndum iðnaðarráðherra. Innlent 13.10.2005 19:14
Mikill áhugi á bréfum Mosaic Fagfjárfestar óskuðu eftir að kaupa fjórfalt fleiri hluti í Mosaic Fashion en í boði voru en allt hlutaféð er selt fyrir 3,7 milljarða króna. Um er að ræða nýja hluti sem seldir voru á genginu 13,6, en hlutafjárútboðið er liður í undirbúningi að skráningu Mosaic Fashions í Kauphöll Íslands. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Gunnar hvattur til að segja af sér Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Gunnars Arnar Örlygssonar, hvetja hann til að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram í ályktun frambjóðenda og stuðningsmanna flokksins fyrir síðustu kosningar í kjördæminu. Þar er harmað að Gunnar hafi snúið baki við félögum sínum og gengið í Sjálfstæðisflokkinn en með þeirri gjörð hafi hann fyrirgert því trausti sem til hans hafi verið borið. Innlent 13.10.2005 19:13
Samið um víðtækt samstarf háskóla Runólfur Ágústsson, rektor háskólans að Bifröst, og Fang Ming Lun, starfandi rektor háskólans í Shanghai, undirrituðu nú fyrir hádegi samning um víðtækt samstarf háskólanna tveggja. Sjö nemendur að Bifröst eru við nám við Háskólann í Shanghai. Innlent 13.10.2005 19:14
Smáey frá veiðum í viku Smáey VE sem strandaði í nótt skammt frá Heimaey verður frá veiðum í viku vegna skemmda. Betur fór þó en á horfðist. Innlent 13.10.2005 19:14
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti