Innlent

Nýr lögmaður ver Aquanetworld
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl., lögmaður Aquanetworld og Mark Ashley Wells, hefur sagt sig frá skuldamáli sem Lesley Ágústsson hefur höfðað vegna fjársvika sem hún telur sig hafa orðið fyrir. Þormóður Skorri Steingrímsson hdl. hefur tekið við málinu og fer aðalmeðferð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Litlir bílar menga minna
Mikill munur er á því hversu mikið bifreiðar menga. Þannig blæs BMW fjórum tonnum af koltvísýringi út í andrúmsloftið á ári en Fiat 1,8 tonnum. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, á samgönguviku.

Atvinnulausir verði virkir
Ný lög um atvinnuleysistryggingar gera ráð fyrir tekjutengdum atvinnuleysisbótum fyrstu þrjá mánuði atvinnuleysis. Þeir sem skrá atvinnulausa skulu einnig aðstoða atvinnulausa við atvinnuleit.

Myndsímar fyrir heyrnarlausa prófaðir
Nú er verið að prófa myndsíma sem gerir heyrnarlausum kleift að tala táknmál sín á milli. Félag heyrnarlausra hefur tekið þátt í því að tveir símar þessarar gerðar hafa verið fluttir til landsins. Þetta var meðal þess sem fram kom á málþingi um samskiptatækni heyrnarlausa sem fram fór nú fyrir helgi.

Stundaði svakalega sjálfsritskoðun
Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður segist hafa þurft að stunda „svakalega sjálfsritskoðun“ og leggja sig svo mikið fram við það upp á síðkastið vegna þrýstings utan frá að hann geti ekki staðið í því lengur. Þess vegna hafi hann hætt að fjalla um umhverfismál í sjónvarpsfréttum.

Sjúkraflugvél á Ísafirði í vetur
Bæjarstjórn Ísafjarðar fagnar þeirri ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra að sjúkraflugvél verði á Ísafirði í vetur. Að undanförnu hefur verið í umræðunni að færa heimahöfn sjúkraflugs fyrir Vestfirði til Akureyrar, en flutningum hefur verið frestað vegna erfiðra aðstæðna í aðflugi til Ísafjarðar á veturna. Heilbrigðisráðherra hefur nú ákveðið að flugvélin verði á Ísafirði.

Forseta Íslands veitt verðlaun
Loftslagsstofnunin í Washington, Climate Institute, veitti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, verðlaunin Global Environmental Leadership Award á ársþingi stofnunarinnar.

Skinka handa mömmu
Hjartaknúsarinn með barnsandlitið, Cliff Richard, spilar í Höllinni í mars á næsta ári. Samkynhneigð hefur löngum verið borin upp á Cliff en hann neitar öllu slíku. Hann hefur þó aldrei verið við kvenmann kenndur og virðist fá sína útrás með að spila tennis.

Auður Lilja kjörin formaður
Auður Lilja Erlingsdóttir var kjörin formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi samtakanna fyrr í mánuðinum. Auður Lilja er 27 ára stjórnmálafræðingur og er að ljúka meistaranámi í opinberri stjórnsýslu.

Dregur úr veiði á stórum urriða
Heldur hefur dregið úr veiði á stórum urriða í Þingvallavatni. Það gæti bent til þess að ábendingar, sem Þingvallanefnd hafa borist um villimannlegar urriðaveiðar í vatninu, eigi við rök að styðjast.

Alls óvíst að samflot verið við Norðmenn
Dómsmálaráðherra Noregs segir alls óvíst að samflot verði haft með Íslendingum um þyrlukaup til norsku strandgæslunnar og íslensku Landhelgisgæslunnar, eins og fyrirhugað var í sparnaðarskyni.

Heyrði byssuskot og þyt í byssukúlum
Skotið var af riffli að manni við Óbrynnishóla við Hafnarfjörð í gærkvöldi, en eins og nærri má geta er meðferð skotvopna bönnuð á svæðinu.
Íbúafjöldi Seltjarnarness tvöfaldaður
Hugmyndir eru um að tvöfalda íbúafjölda Seltjarnarness með því að búa til heila eyju við sunnanvert Nesið. Slíkar framkvæmdir myndu kalla á mikil samgöngumannvirki í vesturbæ Reykjavíkur, svo að Seltirningar einangruðust ekki.
Vill koma skýrslum um banaslys inn í skólakerfið
Formaður rannsóknarnefndar umferðarslysa telur að koma verði kennslu um raunveruleg umferðarslys inn í skólana því áróður í fjölmiðlum fari framhjá stórum hópi ungmenna. Hann segir fulla ástæðu til þess að skoða lífstíl ungmenna því hann spái fyrir um áhættuhegðun þeirra í umferðinni.
Segir afnám toll gera út af við landbúnaðinn
Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir það blekkingu að matarverð hér á landi sé fimmtíu prósentum hærra en í nágrannalöndunum eins og Samfylkingin heldur fram. Hann segir alþjóðasamninga ekki leyfa að nýir styrkir til bænda verði teknir upp og því myndi það ganga af landbúnaðinum dauðum að afnema verndartolla á skömmum tíma.

Mun leggja landbúnað í rúst
„Svona aðgerðir á svona stuttum tíma munu leggja stóran hluta landbúnaðarins, og úrvinnslugreina hans, í rúst,“ segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, um tillögur Samfylkingar til lækkunar á matvælaverði.

Samfylking ætlar að lækka matvöruverð
Samfylkingin ætlar að lækka matarreikning heimilanna um 200.000 krónur á ári. Meðal breytinga sem lagðar eru til eru niðurfelling vörugjalda og lækkun virðisaukaskatts á matvæli. Einnig skuli fella niður alla innflutningstolla á matvælum.

Óþokkar dreifa glerbrotum í sandkassa
Dagforeldrar í Síðuhverfi á Akureyri þurfa daglega að yfirfara leikvöll í hverfinu til að ganga úr skugga um að glerbrot og tæki til fíkniefnaneyslu stofni börnum ekki í hættu. Svo langt gangi skemmdarverkin að glerbrotum sé stundum dreift á markvissan hátt um sandkassa á leikvellinum.
Útboð undirbúið
Samgönguráðuneytið mun bjóða út flug til Vestmannaeyja, finnist ekki aðrir sem eru tilbúnir til að fljúga þangað án opinberra styrkja. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær ætlar Landsflug að hætta öllu áætlunarflugi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Ekkert annað flugfélag flýgur sömu leið.
Átta fluttir á slysadeild
Átta voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Höfðabakkabrú í Reykjavík um tvöleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild slasaðist enginn alvarlega. Tildrög slyssins voru þau að lögreglubíll með blikkandi forgangsljós og hljóðmerki ók á móti rauðu ljósi með þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við lítinn fólksbíl sem ekið var yfir á grænu.
Engan sakaði í flugóhappi
Flugvél hvolfdi í lendingu á sandbreiðu við Gæsavötn um hádegi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var flugmaðurinn einn í vélinni, sem er eins hreyfils, þegar henni hlekktist á í lendingu og endaði á hvolfi um tvö hundruð metrum frá þeim stað þar sem hún lenti fyrst.
Eldur um borð
Eldur kviknaði í farþegaskipinu Lagarfljótsorminum snemma í gærmorgun. Vakthafandi lögreglumaður sagði eldinn hafa kviknað út frá rafmagnsofni en greiðlega hefði gengið að slökkva hann. Skemmdir væru þó talsverðar, þá aðallega af sóti og reyk.

Skrúfað frá níu brunahönum
Mörg útköll voru hjá lögreglu og slökkviliði í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík í fyrrinótt þar sem skrúfað var frá brunahönum í hverfinu frá klukkan þrjú um nóttina og til klukkan átta fram undir morgun. Alls var vatni hleypt af níu brunahönum.

Fer undir vatn síðar í vikunni
Brúnni yfir Jökulsá á Dal var lokað í gær. Handrið og brúardekk voru fjarlægð en burðarverkið var látið standa. Það mun fara í kaf er byrjað verður að safna vatni í uppistöðulón Kárahnjúkavirkjunar síðar í vikunni.

Sagður ómótstæðilegur og víkingalegur bláskjár
Björgólfur Thor Björgólfsson telst vera kynþokkafyllsti auðjöfurinn samkvæmt breska viðskiptablaðinu Financial Times. Þykir hann hafa mikilfenglegt atgervi og ómótstæðilegt bros.

Ekki rætt í utanríkismálanefnd
Utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði ekki um samkomulag um skiptingu landgrunns í Síldarsmugunni milli Íslands, Danmerkur, Færeyja og Noregs, sem undirritað var á miðvikudag, að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fulltrúa Vinstri grænna í nefndinni.
Umferðarátak skilar sér ekki
Umferðarslys varð þegar sportbifreið var ekið á miklum hraða aftan á lítinn jeppa í Ártúnsbrekku um klukkan fimm í gær en loka þurfti svæðinu í rúma klukkustund á eftir. Þrennt var flutt á slysadeild en samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni voru meiðslin ekki veruleg.

Afmælismót úti í Eyjum
Taflfélag Vestmannaeyja stóð í gær fyrir afmælismóti í tilefni af því að áttatíu ár eru liðin frá stofnun þess. Keppendur voru bæði Eyjamenn og gestir en alls tóku 48 skákmenn þátt á mótinu.

Segir sjávarflóðahættu í Reykjavík vera vanmetna
Skipulagsfræðingur segir sjávarflóðavarnargarða of lága og landfyllingar viðkvæmar vegna vanmats á flóðahættu í Reykjavík. Sérfræðingar telja að sjávarhæð við borgina muni rísa um allt að metra á næstu öld.

Allt að 28 prósenta hækkun
Verð á ferskum fiski hefur hækkað um allt að 28 prósent á höfuðborgarsvæðinu frá því í janúar á þessu ári. Þetta kom fram í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ lét gera í vikunni.