
Innlent

Ferjan St. Ola leysir Herjólf af
Eistneska ferjan St. Ola siglir nú milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar meðan ferjan Herjólfur er í slipp í venjubundinni skoðun. Herjólfur sigldi til Danmerkur í slipp á miðvikudagskvöldið og er gert ráð fyrir að hann verði þar í tvær vikur.

Prestur sækist eftir 1.-2. sæti
Karl V. Matthíasson prestur gefur kost á sér í 1.-2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hann hefur setið á Alþingi í tvö ár fyrir Samfylkinguna. Síðustu fjögur árin hefur hann starfað sem prestur á sviði áfengis- og fíkniefnamála.

Bjartsýnt fólk kaupir tónlist
Tónspil er einhver albesta plötubúð landsins, sem væri kannski ekki í frásögur færandi ef búðin væri ekki í Neskaupstað. Pjetur Hallgrímsson hefur rekið verslunina síðan árið 1987. Hann segir að fólk úr höfuðborginni reki upp stór augu þegar það uppgötvi búðina og spyrji af hverju hún sé ekki í bænum.

Áreitt með sms
Lagabreytingar sem gerðar hafa verið á barnalögum undanfarin ár hafa fyrst og fremst verið til þess fallnar að auka réttindi forsjárlausa foreldrisins. Þetta hefur verið gert á kostnað öryggis barna. Þetta segir Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður konu af erlendum uppruna sem ekki hefur fengið aðstoð barnaverndaryfirvalda á Álftanesi til að sækja barn sitt til forsjárlauss föður. Barninu hefur hann haldið í leyfisleysi frá því í ágúst og hefur það ekki hafið skólagöngu eins og lög gera ráð fyrir.

Alcoa barst sprengjuhótun
Sprengjuhótun barst símleiðis á skrifstofur Alcoa á Reyðarfirði rétt fyrir hádegi í gær.

Heildarvelta Kauphallar Íslands eykst
Heildarveltan í Kauphöll Íslands eru meiri fyrstu 9 mánuði þessa árs en allt árið í fyrra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársfjórðungsyfirliti sem birt var í dag.

Vígsluathöfn vegna stækkunar álversins á Grundartanga
Norðurál, dótturfélag Century Aluminum Company, hefur lokið gangsetningu allra kera í núverandi stækkunaráfanga álversins á Grundartanga. Vígsluathöfn var haldin af því tilefni þar í dag. Gert er ráð fyrir fullum afköstum vegna stækkunar úr 90 þúsund tonnum í 220 þúsund tonn fyrir áramót.

Fannst kaldur og skelkaður í túngarðinum heima hjá sér
Björgunarsveitir voru kallaðar út á níunda tímanum í kvöld til að leita sjö ára drengs við Laugar í Reykjadal en hann hafði ekki skilað sér heim á tilsettum tíma. Aðeins leið rúm hálf klukkustund þar til björgunarsveitarmenn fundu drenginn, aðeins kaldan og skelkaðan, svo að segja í túngarðinum við heimili hans.

Baugur stærsti hluthafinn í Ísafold
Hjálmur, félag í eigu Baugs Group, er stærsti hlutafinn í Ísafold, nýju tímariti sem Reynir Traustason mun ritstýra. Þetta upplýsti Reynir í viðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld. Hann segir ekki hafa verið rætt að setja tímaritið undir tímaritaútgáfu 365, en Baugur á fjórðungshlut í Dagsbrún, móðurfélagi 365.

Kaupþing banki útnefndur besti íslenski bankinn
Kaupþing banki hefur verið útnefndur besti íslenski bankinn af alþjóðlega fjármálatímaritinu Global Finance.

Atorka áminnt og gert að greiða sekt
Kauphöll Íslands áminnti Atorku Group opinberlega í dag og beitti félagið 2,5 milljóna króna févíti vegna brota á reglum Kauphallarinnar. Fulltrúar Atorku segja um alvarlegan misskilning að ræða. Bréf hafi verið sent Kauphöllinni í síðustu viku vegna málsins og því ekki svarað. Höfðað verði dómsmál til ógildingar ákvörðuninni og Fjármálaeftirlitinu sent erindi vegna málsins.

Stjórnarandstaðan í tilhugalífinu
Stjórnarandstaðan er í tilhugalífinu, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kynntu í dag, á sameiginlegum fundi, þrjú þingmál sem flokkarnir standa að. Ætlun þeirra er að sameinast um fleiri þingmál á þessu haustþingi auk þess að standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins.

Þörf á þjóðarsátt
Ólafur Ragnar Grímsson forseti sagðist, við setningu Alþingis í dag, eiga þá ósk að aldrei framar verði sá klofningur með þjóðinni sem hersetan hafi markað. Hann segir að afstaðan til umhverfismála kunni að verða viðlíka hitamál og herinn var fyrrum. Þörf sé á þjóðarsátt í umhverfismálum.

Fimmtán og hálfur milljarður í tekjuafgang ríkissjóðs
Stöðugleika í efnahagsmálum er spáð í fjárlagafrumvarpi næsta árs og að fimmtán og hálfur milljarður króna verði í tekjuafgang ríkissjóðs. Fjármálaráðherra kynnti frumvarpið á blaðamannafundi á Selfossi og blæs á þær gagnrýnisraddir sem segja að með því vilji hann skapa sér velvild í kjördæminu sem hann hyggst bjóða sig fram í.

Gera stærðfræði skemmtilega
Fimm þúsund grunnskólanemendum í Reykjavík verður boðið upp á námskeið í ólympíustærðfræði, sem byggir á þrautum, að skólatíma loknum. Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeiðið en alls eru fjörtíu lönd þátttakendur í verkefninu

Flytur fyrirlestur um framtíð alþjóðlegs flugs
Dr. Assad Kotaite heldur fyrirlestur um Framtíð alþjóðlegs flugs í hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun. Dr. Kotaite er fyrrverandi forseti fastaráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (International Civil Aviation Organiztion – ICAO) en hann er hér á Íslandi á vegum, samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar og Flugmálastjórnar Íslands. Ásamt því að halda fyrirlesturinn mun Dr. Kotaite einnig ávarpa þinggesti á Flugþingi sem haldið verður nk. miðvikudag 4. október á Hótel Nordica.

Kauphöllin áminnir Atorku
Kauphöll Íslands áminnti Atorku Group opinberlega í dag vegna brota á reglum Kauphallarinnar vegna birtingar á uppgjöri félagsins á fyrri hluta ársins. Beitti Kauphöllin félagið 2,5 milljóna króna févíti.

Notendum fjölgar um 66% milli vikna
Vinsældir VefTV Vísis aukast stöðugt og beinar útsendingar fréttastofu NFS frá fréttnæmum viðburðum mælast greinilega vel fyrir. Notendur VefTV Vísis mældust rúmlega 29 þúsund í liðinni viku og innlitin eða heimsóknirnar rúmlega 52 þúsund. Notendum fjölgar um tæplega 66% miðað við vikuna á undan og innlitum fjölgar um tæplega 63%.

Viðskiptahallinn dregst saman
Í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að viðskiptahallinn dragist hratt saman og verði 10,7% af landsframleiðslu á næsta ári. Viðskiptahallinn nam 16,1% af landsframleiðslu á síðasta ári en gert er ráð fyrir að hann nemi 18,7% í ár.

Spá lækkun stýrivaxta
Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að stýrivextir lækki hratt á næsta ári, þar ráði mestu hröð lækkun verðbólgunnar. Miðað við verðbólguspá bankans jafngilda 14% stýrivextir líkt og nú er 11% raunstýrivöxtum á næsta ári. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að stýrivextir verið lækkaðir í upphafi næsta árs og að þeir verði komnir í 8,5% í lok næsta árs.

Draga á úr framkvæmdum
Gert er ráð fyrir áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Draga á úr framkvæmdum á vegum ríkisins fyrir utan framkvæmdir í samgöngumálum og atvinnuleysi kemur til með að aukast.

Íbúðalánasjóður neytendum mikilvægur
Félag fasteignasala fagnar tillögum stýrihóps félagsmálaráðherra um Íbúðalánasjóð. Í ályktun félagsins segir að það fagni því að staðinn sé vörður um stefnu íslenskra stjórnvalda í húsnæðismálum en Íbúðalánasjóður gegni þar mikilvægu hlutverki.

Sjöfn forstjóri Matís
Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir hefur verið ráðin forstjóri hins nýstofnaða fyrirtækis Matís ohf. frá 1. janúar 2007, en þá hefst eiginleg starfsemi félagsins, segir í tilkynningu frá félaginu.

Alcoa barst sprengjuhótun
Alcoa á Reyðarfirði barst í morgun sprengjuhótun. Að sögn Ernu Indriðadóttur, fjölmiðlafulltrúa fyrirtækisins, hringdi karlmaður inn sem talaði ensku og talaði hann um að sprengja eitthvað upp. Símtalið var mjög óljóst en haft var samband við lögregluna á Eskifirði um leið og því lauk.

Bæta þarf starfshætti og ímynd Alþingis
Sólveig Pétursdóttir var kjörinn forseti Alþingis við þingsetningu í dag. Hún fékk fimmtíu og fimm atkvæði en sjö skiluðu auðu. Sólveig sagði í ræðu sinni að þörf væri á að bæta starfshætti og ímynd Alþingis. Hún sagði Alþingi ekki sunnudagaskóla en að þingmenn yrðu þó að gæta hófs í hita leiksins.

Vill þjóðarsátt um utanríkisstefnu Íslendinga
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gerði þau tímamót sem orðið hafa með brottför hersins að umræðuefni í ræðu sinni við setningu Alþingis. Hann ræddi um þann klofing sem vera hersins hefur skapað meðal þjóðarinnar. Nú þyrfti að ná þjóðarsátt um grundvöllinn í utanríkisstefnu Íslendinga. Hann varaði við því að slíkur klofningur gæti myndast í umhverfismálum.

Mótmælt við Alþingishúsið
Á þriðja tug mótmælenda hafa safnast saman við Alþingishúsið. Fólkið er að mótmæla virkjunarframkvæmdum á Kárahnjúkasvæðinu. Alþingi er í dag sett í hundrað þrítugasta og þriðja sinn. Þingsetningarathöfnin hófst klukkan hálf tvö með guðþjónustu í Dómkirkjunni.

Búið að útskrifa alla
Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar, vegna gruns um reykeitrun, eftir að mikill eldur kom upp í þríbýlishúsi við Hamragerði á Akureyri um miðnæturbil.

Ekki hægt að hafa lögheimili í frístundabyggð
Óheimilt verður að skrá lögheimili í frístundabyggð ef nýtt frumvarp félagsmálaráðherra nær fram að ganga.

Spá hækkun stýrivaxta
Greiningardeild Glitnis telur líklegt að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína um 25 punkta 2. nóvember næstkomandi og að vextirnir fari í 14,25 prósent. Þá telur deildin líkur á að bankinn byrji að lækka vexti eftir mars á næsta ári og verði þeir komnir niður í 10 prósent fyrir lok ársins.