Innlent

Fréttamynd

Barist um bensíndropann

Mikið verðstríð geisar milli olíufélaganna. Það sýnir að svigrúm er fyrir hagræðingu og samkeppni á eldsneytismarkaðnum, að sögn Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda. „Það er greinilega sveigjanleiki til staðar, sem gerir það að verkum að hægt er að lækka bensínverð. Þrátt fyrir það er verðið enn mjög hátt,“ segir hann.

Innlent
Fréttamynd

Formaður má ekki segja frá

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur, eftir að styrkjaumræðan komst í hámæli, beðið styrkveitanda sinn frá 2006 um leyfi til að greina frá styrk upp á hálfa milljón, en ekki fengið leyfið. Bjarni segir að gengið hafi verið út frá því þegar styrkurinn var veittur að það yrði gert í nafnleysi. Þannig hafi verið um marga styrki til ýmissa frambjóðenda.

Innlent
Fréttamynd

Vilja draga umsókn til baka

Þingmenn allra flokka sem sæti eiga á Alþingi, utan Samfylkingarinnar, lögðu í gær fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka.

Innlent
Fréttamynd

Upprættu öflugan kannabishring

Karlmaður um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. júní næstkomandi að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Betur horfir í efnahagslífinu

Bankastjórn japanska seðlabankans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,1 prósenti. Almennt var reiknað með þessari ákvörðun bankastjórnarinnar í skugga hræringa á fjármálamörkuðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Borgarbúar refsa hrunflokkunum

Besti flokkurinn nýtur stuðnings tæplega 44 prósenta kjósenda og fær átta borgarfulltrúa af fimmtán, og þar með hreinan meirihluta í komandi kosningum. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var á fimmtudag.

Innlent
Fréttamynd

Yngstu þjófarnir voru átta ára

Yngstu einstaklingarnir sem lögregla hafði afskipti af vegna hnupls á síðustu þremur árum voru átta ára, en hinir elstu 88 ára. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra, sem embættið hefur tekið saman fyrir árin 2007 til 2009.

Innlent
Fréttamynd

Fá vinnu við gosstöðvarnar

Um fjörutíu störf verða til við aðstoð við búskap í sveitum við Eyjafjallajökul á næstunni. Samkomulag náðist um þetta í gær.

Innlent
Fréttamynd

Viðskipti, tækni og lög eiga heima í HR

„Ef til verkaskiptingar kemur þá held ég að fjárhagslegar og faglegar forsendur mæli frekar með því að við tækjum að okkur þessi kjarnafög sem við erum með, viðskipti, tækni og lög," segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík. „Við erum tilbúin til að ræða hugmyndir, svo lengi sem þær eru á faglegum forsendum."

Innlent
Fréttamynd

Ný hunangsfluga nemur land

Ný tegund af hunangsflugu virðist hafa fest rætur hér á landi. Flugan heitir rauðhumla og er ólík þeim hunangsflugum sem fyrir voru á landinu, því hún er rauð en ekki með gulum og svörtum röndum.

Innlent
Fréttamynd

Fundur hjá sáttasemjara

Ríkissáttasemjari hélt fund í deilu kennara og sveitarfélaganna í gær. Deiluaðilar ná ekki saman um hvaða hækkanir kennurum ber samkvæmt stöðugleikasáttmálanum frá júní í fyrra. Þar var gert ráð fyrir að engar hækkanir yrðu greiddar á launataxta yfir 210.000 krónum. Síðan hefur ríkið samið við sína starfsmenn um hækkanir til þeirra sem eru undir 310.000 krónum.

Innlent
Fréttamynd

Urriðafossvirkjun deiluefnið

Íbúi í Flóahreppi hefur kært samning sem sveitarfélagið hefur gert við Árborg og Landsvirkjun til samgönguráðherra. Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun greiða vatnsveitu úr Árborg samþykki Flóahreppur aðalskipulag með Urriðafossvirkjun.

Innlent
Fréttamynd

Margir ná ekki endum saman

Tæplega fjörutíu prósent heimila landsins, eða 39 prósent, áttu erfitt með að láta enda ná saman á síðasta ári. Þetta kemur fram í lífskjararannsókn Hagstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tæplega 80% í Þjóðkirkjunni

Hlutfall landsmanna átján ára og eldri sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna hækkar lítillega milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Um 78,8 prósent Íslendinga á kosningaaldri voru skráðir í Þjóðkirkjuna 1. janúar síðastliðinn, en hlutfallið var 78,5 prósent í janúar í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Ráðuneyti hefur ekki staðfest

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur ekki staðfest umdeilt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um að auka megi bókfært eigið fé sveitarfélaga um milljarða með því að verðmeta lönd og leigulóðir í efnahagsreikningi út frá áætluðu söluverði eða framtíðartekjum af lóðaleigu.

Innlent
Fréttamynd

Ingólfur og Hreiðar sæta áfram farbanni

Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð héraðsdóms yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi. Kvöldið áður staðfesti Hæstiréttur farbann yfir Hreiðari Má Sigurðssyni. Samkvæmt úrskurðunum er þeim óheimilt að yfirgefa landið þangað til 28. maí.

Innlent
Fréttamynd

Prófessorar leggja til að HÍ taki yfir alla kennslu í HR

Félag prófessora við ríkisháskóla leggur til við rektor Háskóla Íslands að skólinn geri stjórnvöldum tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík. Í tillögunni segir að líklega kosti það skólann um einn milljarð króna en 1,5-2 milljarðar sparist á háskólastiginu.

Innlent
Fréttamynd

Segja Beaty hafa sagt ósatt

Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, er sagður hafa sagt blaðamönnum tímaritsins Reykjavík Grapevine ósatt um fyrirætlanir fyrirtækisins hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Var í Hollandi en kemur í dag

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, kemur til landsins í dag. Hann hefur dvalið í Hollandi, þar sem hann hefur átt fundi. Hann vildi lítið tjá sig um málið, en sagði þó ekki beinlínis vera í lögregluaðgerðum, heldur snérist ferðin um fundi og skipulagningu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja mosku hjá Veðurstofunni

Félag múslima á Íslandi á í viðræðum við Reykjavíkurborg um byggingarlóð fyrir mosku. Í erindi til skipulagsfulltrúa leggur félagið til þrjár mögulegar lóðir. Helst vilja múslimar reisa moskuna á borgarlandi við Bústaðaveg vestan við hús Landsvirkjunar og Veðurstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Knúti breytt í sjóræningjaskip

Knútur RE, 30 tonna netabátur sem smíðaður var í kringum 1960, gengur á næstunni í endurnýjun lífdaga sem sjóræningjaskip í skemmtigarðinum í Grafarvogi. Þar mun báturinn vera hluti af nýrri og glæsilegri minigolfbraut sem smíðuð verður í kringum „golfvöllinn“. Þessi ævintýralegi 18 holu golfvöllur verður annar tveggja sem til stendur að opna á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Telur Magma traustari bakhjarl en GGE

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að bæjarstjórnin muni láta meta fjárhagslega getu Magma Energy og skoða hvort áhætta bæjarsjóðs aukist við það að móðurfélagið Magma Canada taki yfir greiðslu á 6,3 milljarða króna skuldabréfi sem bærinn á og Geysir Green Energy (GGE) gaf upphaflega út.

Viðskipti innlent