Innlendar

Fréttamynd

Geri ekki upp á milli íþróttanna

Marín Laufey Davíðsdóttir úr Héraðssambandinu Skarphéðni sigraði í opnum flokki á Bikarmóti Íslands í glímu á laugardaginn. Hún hafði ekki langan tíma til að fagna sigrinum því síðar um daginn var hún í eldlínunni með Hamri sem sigraði Fjölni í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta.

Sport
Fréttamynd

KA og Afturelding með örugga sigra í blakinu

KA vann sannfærandi sigur á Þrótti Reykjavík í Mikasadeild karla í blaki norðan heiða í dag. Þá vann Afturelding sömuleiðis öruggan sigur gegn Þrótti í Neskaupsstað í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Ásgeir náði frábærum árangri í Þýskalandi

Ásgeir Sigurgeirsson, skammbyssuskyta úr Skotfélagi Reykjavíkur, lenti í 13. sæti af 83 keppendum á Internationaler Wettkampf München 2012 mótinu í dag. Hann var aðeins einu stigi frá því að komast í úrslit.

Sport
Fréttamynd

ÍSÍ 100 ára í dag

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, fagnar í dag 100 ára afmæli sínu. Afmælinu verður fagnað í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Sport
Fréttamynd

Geri mér aldrei væntingar um sigur

Þrátt fyrir ungan aldur er Halldór Helgason einn þekktasti snjóbrettakappi heims. Hann framleiðir snjóbretti og ýmsar vörur, leigir íbúð í Mónakó og flakkar um heiminn. Hann keppir um helgina á X Games.

Sport
Fréttamynd

Hallldór fékk boð á HM

Halldór Helgason var einn af fáum snjóbrettaköppum sem var sérstaklega boðinn þátttökuréttur á HM í snjóbrettum sem fer fram í Ósló í næsta mánuði. Segir það sitt um stöðu hans í heimi snjóbrettaíþróttarinnar.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Nelson mætir Alexander Butenko

Bardagakappinn Gunnar Nelson mun mæta Alexander “Iron Capture" Butenko frá Rússlandi í Cage Contender keppninni í Dublin á Írlandi þann 25. febrúar næstkomandi. Butenko þessi er gríðarlega öflugur bardagamaður en hann hefur unnið tólf af sextán bardögum, þar af tíu af síðustu ellefu.

Sport
Fréttamynd

Ragna á meðal keppenda í Svíþjóð

Ragna Ingólfsdóttir úr TBR verður á meðal keppenda á alþjóðlega sænska mótinu í badminton sem hefst í Stokkhólmi á fimmtudag. Ragna fer beint í aðalkeppnina en forkeppni stendur nú yfir.

Sport
Fréttamynd

Kolbrún Alda vann Sjómannabikarinn annað árið í röð

Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Íþróttakona ársins hjá fötluðum í fyrra, byrjaði nýja árið vel því hún vann besta afrekið á Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga um helgina. Kolbrún Alda vann því Sjómannabikarinn annað árið í röð.

Sport
Fréttamynd

Heiðar Helguson er Íþróttamaður ársins 2011

Heiðar Helguson var í kvöld útnefndur íþróttamaður ársins 2011 af Samtökum íþróttafréttamanna en hófið fór fram á Grand Hótel. Heiðar hlaut 229 stig í kjörinu, 30 meira en spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir sem varð í öðru sæti. Körfuboltamaðurinn Jakob Örn Sigurðarson varð síðan í þriðja sæti með 161 stig.

Enski boltinn
Fréttamynd

Íþróttaárið 2011 í máli og myndum

Fréttablaðið hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar myndir frá spennandi og líflegu íþróttaári en þetta eru bæði myndir frá afrekum hér heima og erlendis.

Sport
Fréttamynd

Stelpurnar okkar stóðu upp úr

Kvennalandsliðið í fótbolta heldur áfram að klifra upp heimslistann. Nýr kafli var skrifaður í handboltasöguna með þátttöku kvennalandsliðsins á HM. Ungur kylfingur frá Seltjarnarnesi náði fyrstur Íslendinga að leika á sterkustu atvinnumótaröð heims. Sigurður Elvar Þórólfsson velti fyrir sér helstu vendipunktum í íslensku íþróttalífi á árinu 2011.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Settu saman 55 met á árinu 2011

Íþróttasamband fatlaðra valdi þau Jón Margeir Sverrisson úr Ösp/Fjölni og Kolbrúnu Öldu Stefánsdóttur úr Firði/SH íþróttafólk ársins 2011 og fengu þau verðlaunin afhent við viðhöfn í síðustu viku. Jón og Kolbrún synda bæði í flokki S14, flokki þroskahamlaðra. Þetta er annað árið í röð sem Jón Margeir hlýtur nafnbótina íþróttamaður ársins en fyrsta sinn hjá Kolbrúnu.

Sport
Fréttamynd

Fimmtíu sekúndna bæting á einu ári

Nýjasta nafnið í sundinu á Íslandi er Ægiringurinn Anton Sveinn McKee, sem hefur bætt sig ótrúlega mikið á einu ári. Anton vann fjögur gull á Norðurlandamóti unglinga um helgina og bætti meðal annars ellefu ára met Arnar Arnarsonar í 800 metra skriðsundi.

Sport
Fréttamynd

Þau munu bæði komast á ÓL í London

Frakkinn Jacky Pellerin þjálfar bæði Anton Svein McKee og Eygló Ósk Gústafsdóttur sem unnu samanlagt sjö gull og settu saman fjögur Íslandsmet á Norðurlandamóti unglinga um helgina. Hann er mjög bjartsýnn á frekari bætingar hjá þeim báðum sem og sæti á Ólympíuleikunum í London á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Sá strax að ég var með gull í höndunum

Anton Sveinn McKee og Eygló Ósk Gústafsdóttir voru sigursæl á Norðurlandameistaramóti unglinga sem fram fór í Laugardalshöllinni um helgina, unnu saman sjö einstaklingsgull og náðu bestu afrekum mótsins. Anton vann fjóra Norðurlandameistaratitla og setti tvö Íslandsmet en Eygló Ósk vann þrjá Norðurlandameistaratitla og setti tvö Íslandsmet. Bæði hafa þau verið að bæta sig mikið undir stjórn Frakkans Jacky Pellerin sem var að sjálfsögðu himinlifandi með árangur helgarinnar.

Sport
Fréttamynd

Þegar íþróttaferlinum lýkur á ég ekkert

Ragna Ingólfsdóttir keppir nú að því að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Lundúnum á næsta ári. Til þess þarf hún að keppa víða erlendis á sterkum mótum en þegar hún er hér heima æfir hún tvisvar á dag. Ragna er 28 ára gömul og hefur í raun verið atvinnumaður í sinni íþrótt í tæpan áratug. En hún rétt skrimtir, að eigin sögn.

Sport
Fréttamynd

Rándýrt að fá dómara út á land

Það er að ýmsu að hyggja í rekstri íþróttafélaga og einn stór liður hjá körfubolta- og handknattleiksdeildum er dómara- og ferðakostnaður. Knattspyrnudeildir landsins þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessum útgjaldalið því KSÍ greiðir allan dómara- og ferðakostnað fyrir sín félög, en KSÍ hefur úr mun meiri peningum að spila en HSÍ og KKÍ.

Sport