Peningaþvætti norrænna banka

Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi
Dómstóll í Svíþjóð hefur snúið við sýknudómi yfir Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, og dæmt hana í eins árs og þriggja mánaða fangelsi fyrir gróf fjársvik.

Fyrrverandi forstjóri Swedbank sýknaður
Dómstóll í Svíþjóð hefur sýknað Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, af ákæru um gróf fjársvik, innherjasvik og markaðsmisnotkun í tengslum við afhjúpun um stórfellt peningaþvætti í bankanum.

Greiðir tveggja milljarða dala sekt í peningaþvættismáli
Danske Bank hefur samþykkt að greiða tveggja milljarða Bandaríkjadala sekt í tengslum við rannsókn á peningaþvætti í einu af útibúum bankans. Sektin er liður í sátt bankans við bandarísk, eistnesk og dönsk yfirvöld.

Réttarhöld hefjast í máli Bonnesen
Réttarhöld hefjast í dag í máli Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra sænska stórbankans Swedbank, í Svíþjóð. Bonnesen er meðal annars ákærð fyrir gróf fjársvik og markaðsmisnotkun í tengslum við afhjúpun um stórfellt peningaþvætti í bankanum.

Samfélaginu stafi raunveruleg ógn af peningaþvætti
Þó nokkur mál hafa komið upp undanfarið hjá lögreglunni þar sem grunur er um stórfellt peningaþvætti og sífellt fleiri tilkynningar berast. Varaseðlabankastjóri segir hagkerfinu stafa raunveruleg ógn af slíkum glæpum

Dæmd í rúmlega fjögurra ára fangelsi vegna peningaþvættis Danske bank
Dómstóll í Kaupmannahöfn dæmdi litháska konu í fjögurra ára og eins mánaðar fangelsi vegna margmilljarða peningaþvættis í gegnum útibú Danske bank í Eistlandi. Konan afplánar fyrir hátt í fjögurra ára fangelsisdóm vegna annars peningsþvættismáls.

Bonnesen ákærð fyrir gróf fjársvik og markaðsmisnotkun
Efnahagsbrotadeild sænsku lögreglunnar hefur ákært hina dönsku Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, fyrir gróf fjársvik og markaðsmisnotkun í tengslum við rannsókn á peningasvættisrannsókn sem tengir anga sína til Eistlands.

Forstjóri Danske Bank hættur vegna gruns um lagabrot
Chris Vogelzang hefur látið af störfum sem forstjóri Danske Bank eftir að fréttir bárust um að hann sé grunaður um lagabrot í Hollandi.

Fá AGS til að greina hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka yfir landamæri
Norður- og Eystrasaltslöndin átta hafa leitað til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að fá sjóðinn til að greina hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka yfir landamæri á svæðinu.

Fjöldi yfirmanna hjá Danske Bank sleppur við ákæru
Fjöldi yfirmanna hjá Danske Banka getur nú andað léttar eftir að tilkynnt var að þeir hafi sloppið undan ákæru í tengslum við rannsókn á peningaþvættishneykslinu í Eistlandi. DR segir frá því að mál sex fyrrverandi stjórnarmanna bankans hafi verið felld niður.

Danske bank yfirgefur Eistland
Danske Bank hefur náð samkomulagi um sölu á eftirstandandi eignum sínum í Eistlandi í kjölfar peningaþvættishneykslisins.

Færa út kvíarnar í rannsókn á peningaþvætti Danske bank
Rannsókn á stórfelldu peningaþvætti í útibúi danska bankans í Eistlandi beinist nú að mun hærri fjárhæðum en áður.

Hluthafar krefja Danske bank um milljarða vegna peningaþvættisins
Danske bank er sakaður um að hafa blekkt hluthafa sem krefja bankann um milljarða króna.

Deutsche bank tók fimm ár í að tilkynna grunsamlegar færslur Danske bank
Færslurnar eru allt að fimm ára gamlar en þýski bankinn tilkynnti þær ekki til yfirvalda fyrr en í febrúar á þessu ári.

Fljótum sofandi á gráan lista yfir lönd hvar peningaþvætti er stundað í stórum stíl
Haldlítil fróm fyrirheit um baráttu gegn skattaskjólum í stjórnarsáttmála.

Fyrrverandi yfirmaður Danske Bank í Eistlandi fannst látinn
Aivar Rehe fór fyrir starfsemi Danske Bank í Eistlandi á árunum 2006 til 2015, en talið er að hundruð milljarða Bandaríkjadala hafi verið þvættaðir í gegnum útibú bankans í Eistlandi.

Linkind gagnvart fjárböðun
Ítalar hafa marga fjöruna sopið á langri leið.

Ráku fyrrverandi bankastjórann fyrir að ofrukka viðskiptavini
Danske bank rak Jesper Nielsen sem var starfandi forstjóri bankans þar til í lok síðasta mánaðar.

Fyrrverandi forstjóri Danske bank ákærður
Húsleit er einnig sögð hafa verið gerð á heimili Thomas Borgen í mars vegna rannsóknar á stórfelldu peningaþvætti í eistnesku útibúi Danske bank á árunum 2007 til 2015.

Eftirlitsstofnanir hunsuðu viðvaranir um peningaþvættið
Fjármálaeftirlit Danmerkur og Eistlands aðhöfðust nær ekkert þrátt fyrir viðvaranir rússneska seðlabankans um hættuna á peningaþvætti í útibúi Danske bank í Eistlandi.

Ekki óhult fyrir peningaþvætti að utan
Meiri samhæfing á milli íslensku bankanna og notkun gervigreindar getur stóreflt varnir gegn peningaþvætti að sögn sérfræðings.

Stjórnarformaður Swedbank segir af sér vegna peningaþvættishneykslis
Talið er að tugi þúsunda milljarða króna hafi verið þvættaðar í gegnum sænska bankann Swedbank frá 2010 til 2016.

Leitað á skrifstofum Swedbank í Eistlandi
Rannsókn á peningaþvættishneyksli heldur áfram.

Forstjóri Swedbank rekinn í kjölfar húsleitar tengdri peningaþvætti
Ásakanir um peningaþvætti skekja sænska bankann. Yfirvöld létu gera húsleit í höfuðstöðvum hans í gærmorgun.

Swedbank kærður vegna peningaþvættis
Sænski bankinn flækist inn í meiriháttar peningaþvættismál sem hefur skekið norræna banka undanfarin ár.

Tíu fyrrverandi starfsmenn Danske bank handteknir
Viðskiptastjórar í útibúi bankans í Tallin eru grunaðir um að hafa vísvitandi hjálpað viðskiptavinum að fela uppruna fjármuna.

Tekur við stjórnarformennsku í Danske Bank
Karsten Dybvad, sem hefur stýrt samtökum danskra atvinnurekenda undanfarin átta ár, var kosinn stjórnarformaður Danske Bank á hluthafafundi bankans í síðustu viku.

Deutsche Bank flæktur í sama peningaþvættishneyksli og Danske
Bráðabirgðarannsókn bendir til að um 150 milljarðar Bandaríkjadollara hafi farið um Deutsche Bank í tengslum við peningaþvætti sem Danske Bank er flæktur í.

Deutsche bank bendlaður við peningaþvættishneyksli Danske bank
Uppljóstrari bar vitni fyrir danskri þingnefnd í dag og segir að á annað hundrað milljarða evra af mögulega illa fengnu fé hafi farið í gegnum Deutsche bank.

Nordea dregst inn í peningaþvottarhneykslið
Í kæru til sænskra og norskra yfirvalda er því haldið fram að ágóði af stórfelldu fjársvikamáli í Rússlandi hafi verið þveginn í stærsta banka Norðurlandanna.