Viðskipti erlent

Deutsche Bank flæktur í sama peningaþvættishneyksli og Danske

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Deutsche segir að samstarfinu við Danske hafi verið slitið árið 2015 þegar viðskiptavinir höguðu sér með grunsamlegum hætti.
Deutsche segir að samstarfinu við Danske hafi verið slitið árið 2015 þegar viðskiptavinir höguðu sér með grunsamlegum hætti. nordicphotos/getty
Bráðabirgðarannsókn bendir til að um 150 milljarðar Bandaríkjadollara hafi farið um Deutsche Bank í tengslum við peningaþvætti sem Danske Bank er flæktur í. Þetta herma heimildir The Wall Street Journal.

Talsmaður Deutsche Bank sagði að hlutverk bankans í viðskiptunum hefði verið að annast millifærslur fyrir Danske Bank. Samstarfinu hefði verið slitið árið 2015 þegar viðskiptavinir höguðu sér með grunsamlegum hætti.

Niðurstöðurnar eru hvorki endanlegar né hafa þær verið gerðar opinberar. Bankinn hefur verið að reyna að leggja mat á með hvaða hætti hann tengdist peningaþvættinu.

Málið varðar fjármagn sem Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, tók þátt í að þvætta frá Rússlandi. Bandarísk löggæsluyfirvöld eru að rannsaka útibú Danske Bank í Eistlandi þar sem yfir 230 milljarðar runnu um reikninga þeirra sem ekki eru eistneskir.

Fjárfestar hafa áhyggjur af afleiðingum hneykslisins á rekstur Danske Bank og hafa bréfin lækkað um helming á þessu ári. Burt séð frá þeim vanda hafa þeir enn fremur áhyggjur af arðsemi bankans í víðara samhengi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×