Reykjavík

Vill að hlutleysi sé forsenda ríkisstyrks fjölmiðla
Borgarfulltrúi Pírata beindi spjótum sínum að fjölmiðlum í ræðu sinni á fundi borgarstjórnar í dag, þá sérstaklega að þeim sem hafa gagnrýnt málefni borgarinnar. Sagði hún að sér þætti eðlileg forsenda að fjölmiðlar sýndu af sér hlutleysi til að hljóta styrk úr ríkissjóði.

Loka kaffihúsinu á Árbæjarsafni
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hætta rekstri kaffihúss á Árbæjarsafni á næsta ári. Dregið verður úr þátttöku Borgarsögusafns í kostnaði á Safnanótt og Menningarnótt auk þess sem dregið veður úr dagskrá og aðgengi í Viðey.

Sameining framhaldsskóla sett á ís
Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra hefur sett sameiningaráform framhaldsskóla á ís. Hann fagnar samstöðu sem hafi orðið til um að finna aðrar leiðir til eflingar framhaldsskóla en að sameina.

Viðsnúningur í rekstri borgarinnar
Þegar kórónuveirufaraldur skall á með fullum þunga snemma ársins 2020 var ljóst að hann myndi hafa gríðarmikil áhrif á fjármál sveitarfélaga. Tekjur drógust saman og kostnaður vegna launa, veikinda og sóttvarnaaðgerða jukust verulega.

Viðsnúningur fenginn beint úr vasa skattgreiðenda
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir fagnaðarlæti meirihlutans í borginni í morgun þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár var kynnt. Á fundi borgarstjórnar sagði hún umtalaðan viðsnúning fjármála borgarinnar ekki afleiðingu hagræðingar heldur væri hann sóttur beint í vasa skattgreiðenda.

„Það er reyndar ekki ég sem er geðveik, það ert þú og það er umtalað í hestasamfélaginu“
Kona hefur verið sakfelld fyrir að slá nágrannakonu sína í hesthúsahverfi í Reykjavík tveimur höggum í andlitið. Með vísan til mikils sem gengið hafði á í samskiptum hesthúsaeigenda í hverfinu var konunni ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina.

Gera ráð fyrir afgangi af rekstri borgarinnar á næsta ári
Gert er ráð fyrir því að sex hundruð milljóna króna afgangur verði af rekstri A-hluta Reykjavíkurborgar á næsta ári, ári á undan áætlun. Borgarstjóri segir að tekist hafi að snúa rekstri borgarinnar við þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður.

Telja að matvælum hafi verið dreift úr kjallaranum
Fulltrúa hreinsunarfyrirtækisins Vy-Þrifa var kunnugt um að rottur og mýs væru innan um matvæli sem geymd voru í kjallara í Sóltúni 20 í Reykjavík. Lögmaður Vy-þrifa segir að til hafi staðið að farga matvælunum en fyrirtæki hafi verið að passa upp á matarsóun. Heilbrigðisefirlitið telur að matvælum hafi verið dreift til neyslu en því hafnar Vy-Þrif.

Bein útsending: Dagur kynnir sína síðustu fjárhagsáætlun
Boðað hefur verið til blaðamannafundar þar sem borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2024 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2028. Fjárhagsáætlun verður lögð fram og rædd í borgarstjórn í dag.

Sektarmiðar undir rúðuþurrkum heyra sögunni til
Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun hætta að prenta út álagningarseðla vegna stöðvunarbrotagjalda og setja undir rúðuþurrku bíla frá og með deginum í dag.

Víða heitavatnslaust annað kvöld
Heitavatnslaust verður í Kópavogi, Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði og í Breiðholti á morgun, 8. nóvember, frá klukkan 22 og fram á nótt.

Telja sig vita hver krafðist vopnahlés
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vita hver spreyjaði stór skilaboð til Alþingismanna í gærmorgun.

Saga Garðars sakar ráðherra um heigulshátt
Hópur fólks mætti ráðherrum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur við Ráðherrabústaðinn í morgun með hrópum og köllum. Hópurinn krefst þess að ríkisstjórnin fordæmi þjóðarmorð Ísraela og krefjist vopnahlés strax.

Huldumenn frömdu hópárás við frisbígolfvöll
Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás við frisbígolfvöll í Reykjavík. Árásina framdi hann í félagi með „óþekktum aðilum.“

Hagaskóli og Laugalækjarskóli í úrslit Skrekks
Atriði Hagaskóla og Laugalækjarskóla komust í gærkvöldi áfram í úrslit Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, á fyrsta undanúrslitakvöldi keppninnar.

Borgarstjóri vígði nýja rennibraut
Borgarstjóri, afmælisbörn úr Dalsskóla og fleiri nemendur vígðu í dag nýjar vatnsrennibrautir við Dalslaug í Úlfarársdal.

Hvellirnir afleiðing strákapara í Fellunum
Miklir hvellir sem heyrðust víða á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi voru hvellir í flugeldum, sem átt hafði verið við, í Fellunum í Breiðholti.

Óvinnufær eftir átök á bráðamóttökunni: „Ég óttaðist um líf mitt“
Hjúkrunarfræðingur segir að stimpingar milli hennar og sjúklings á bráðamóttökunni í maí 2022 hafa haft gríðarlegar afleiðingar í för með sér. Hún hafi ekki getað mætt til vinnu í það eina og hálfa ár sem er liðið frá þessu og það hafi haft mikil áhrif á líf hennar.

Hvatning til vopnahlés spreyjuð í hástöfum fyrir framan Alþingi
„VOPNAHLÉ!!! STRAX!!!“ stendur nú skrifað stórum stöfum á götunni fyrir framan Alþingishúsið í Reykjavík. Orðin virðast hafa verið máluð með spreymálningu.

Hávær hvellur ómaði víða um Reykjavík
Borgarbúar víða um Reykjavík virðast hafa orðið varir við háværan hvell eða hvelli um ellefuleytið í kvöld. Líklega er um flugelda að ræða.

Fólkið á Airwaves: Á hátíðinni fyrir einskæra tilviljun
Tónlist ómar um miðborgina í tilefni af Iceland Airwaves sem lauk í dag. Reykjavík var því yfirfull af músíkelsku fólki frá öllum hornum heimsins um helgina og rakst blaðamaður á Bretann Sam sem mætti á hátíðina fyrir tilviljun.

Sögulegt morð í Suðurgötu markaði fjölskylduna fyrir lífstíð
Þann 26. febrúar árið 1953 tók Sigurður Magnússon afdrifaríka ákvörðun. Hann ákvað að binda endi á líf sitt og tók fjölskyldu sína með sér. Um er að ræða stærsta morðmál 20. aldar á Íslandi.

Mikill léttir að vera heima en ekki í Laugardalnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstakling sem var að banka á hurðir á fjölbýlishúsi í dag. Þegar lögreglu bar að garði sá hún einstaklinginn sofandi ölvunarsvefni í sameign fjölbýlishússins.

Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi
Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins.

Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála
Lögreglu barst tilkynning um mann sem reyndi ítrekað að stofna til slagsmála rétt fyrir klukkan hálf fimm í morgun. Hann var handtekinn á vettvangi og kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt en látinn laus að því loknu.

Tískan á Airwaves: Hatarar, óvænt fataskipti og dansvænn klæðnaður Dags B
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hófst með pompi og prakt síðastliðinn fimmtudag þar sem fjöldinn allur af fjölbreyttum hópi tónlistarunnenda kom saman.

Lofar foreldrum afturvirkum greiðslum
Niðurgreiðslur til foreldra barna, átján mánaða og eldri, sem eru hjá dagforeldrum verða afturvirkar til dagsins sem tillögur þess efnis voru samþykktar, að sögn formanns borgarráðs Reykjavíkur. Hann segir foreldra ekki þurfa að líða fyrir seinagang borgarinnar

Svifryk líklega fram á mánudag
Loftgæði hafa mælst óholl víða á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan tvö í dag. Veðurfræðingur segir líklegt að hár styrkur svifryks muni mælast fram á mánudag.

Slagsmál reyndust rán
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur um hálf tíuleytið í gærkvöldi og fór strax á vettvang. Þar komst hún að því að nokkrir einstaklingar virtust vera að ræna einn.

„Ég get ekki mánuð eftir mánuð greitt 85 þúsund krónur“
Niðurgreiðslur Reykjavíkurborgar til foreldra barna sem vistuð eru hjá dagforeldrum hafa ekki komið til framkvæmda þrátt fyrir að hafa verið samþykktar í sumar. Faðir nítján mánaða drengs segir svör borgarinnar óljós og greiðslurnar verulega íþyngjandi.