Kjaramál

Mýtan um töfralausnir ríkissáttasemjara
Í nýlegri skoðanagrein sinni, Kaffiboðið í Karphúsinu, fjallar Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um hlutverk ríkissáttasemjara og reynir að draga upp samanburð við önnur Norðurlönd, en á röngum forsendum.

Mikil óánægja á skrifstofu Sameykis
Óánægju hefur gætt meðal starfsmanna stéttarfélagsins Sameykis, meðal annars með framgöngu formannsins Þórarins Eyfjörð. Þetta herma heimildir fréttastofu en viðmælendum ber ekki saman um andrúmsloftið á skrifstofunni nú né í hvaða farveg mál hafa verið sett.

Eldgosið raskar ekki flugumferð
Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY.

Flugumferðarstjórar fresta verkfallsaðgerðum
Félag flugumferðarstjóra hefur ákveðið að hætta við verkfallsaðgerðir næstkomandi miðvikudag í ljósi tíðinda af eldgosinu.

Frost í viðræðum flugumferðarstjóra og SA
Ekki hefur verið fundað formlega í deilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í dag. Innviðaráðherra segir deiluaðila verða að sýn ábyrgð og leysa deiluna við samningaborðið en útilokar ekki stjórnvöld grípi inn í með lagasetningu. Sáttasemjari segir að litið sé til þess að gera skammtímasamning.

Regluleg heildarlaun voru hæst hjá ríkisstarfsmönnum
Á fyrri helmingi þessa árs dróst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman um 2,7 prósent á milli ára en laun á mann hækkuðu um 8,6 prósent á fyrri helming 2023. Regluleg heildarlaun voru almennt hæst hjá ríkisstarfsmönnum í maí eða 880 þúsund krónur. Launin voru 29 þúsund krónum hærri en þegar litið er til heildarlauna allra hópa.

Ímyndarherferð Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins (SA) fara nú mikinn í fjölmiðlum vegna kjaradeilu sinnar og Isavia við Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF).

Þolimæði stjórnvalda að þrotum komin
Þolinmæði stjórnvalda gagnvart verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er við það að bresta. Innviðaráðherra ætlast til að deiluaðilar setjist að samningaborðinu og leysi deiluna. Aðgerðir flugumferðarstjóra hafa nú þegar haft bein áhrif á ferðatilhögun hátt í þrjátíu þúsund farþega íslensku flugfélaganna.

Fjárlögin og fólkið
Síðustu misserin hefur framganga íslenskra ráðamanna vakið sívaxandi undrun hjá okkur mörgum innan verkalýðshreyfingarinnar. Sem forseti Alþýðusambandsins hitti ég marga, innan og utan hreyfingarinnar, og ég treysti mér til að fullyrða, að sú skoðun er að verða æ algengari að núverandi forustusveit ríkisstjórnarinnar sýni kjörum fólksins í landinu lítinn áhuga.

Lífskjarasamningur gerður upp
Í grein hagfræðings BHM sem kom út í ritinu Vísbendingu fyrir helgi er varpað ljósi á kaupmáttarþróun launafólks frá 2019 til 2023. Á tímabili sem kallað hefur verið „lífskjarasamningurinn“ og „brú að bættum lífskjörum“ eða framlenging lífskjarasamningsins.

Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?

Segja frumvarp gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra tilbúið
Frumvarp um lög gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er tilbúið í innviðaráðuneytinu og líkur á að það verði lagt fram í vikunni.

Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert
Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman.

FFR og hafnarverkamenn styðja verkfall flugumferðarstjóra
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins styður kjarabaráttu Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Það kemur fram í tilkynningu sem þeir sendu frá sér í dag.

Pattstaða í samningaviðræðum og enginn veitir viðtal
Vinnustöðvun flugumferðarstjóra hefst að óbreyttu í nótt. Deiluaðilar funduðu síðast á föstudaginn og hefur nýr fundur ekki verið boðaður.

Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun
Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar.

Gular viðvaranir í boði flugumferðarstjóra
Nú eru rúmlega tvö ár liðin frá því að Icelandair tók á flug á ný eftir að hafa verið í híði í 18 mánuði vegna Covid faraldursins. Sem betur fer hefur Icelandair og ferðaþjónustan á Íslandi náð sér vel á strik og á fyrstu níu mánuðum þessa árs námu útflutningstekjur Íslendinga vegna flugs og ferðaþjónustu 35% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar.

Play breytir áætlunarkerfinu vegna verkfallanna
Tímabundnar breytingar verða gerðar á tengileiðakerfi flugfélagsins Play meðan á verkfallshrinu flugumferðarstjóra stendur. Breytingarnar eiga við um flugferðir á mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

Mánuður án flugs gæti kostað 40 milljarða
Ætla má að algjör stöðvun flugsamgangna í einn dag vegna verkfalls flugumferðarstjóra myndi kosta hagkerfið 1,5 milljarð króna samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins. Þá myndi slík stöðvun í mánuð kosta það fjörutíu milljarða. Samtök atvinnulífsins segja stöðuna átakanlega.

Þreföld rangstaða flugumferðarstjóra
Stór hluti þjóðarinnar horfir nú í forundran á framgöngu lítillar hálaunastéttar, sem hefur það á valdi sínu að loka landinu, eyjunni norður í höfum - þaðan og þangað sem fólk hefur nánast enga möguleika að ferðast, öðruvísi en með flugi.

Segir sáttasemjara valdlausan
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifaði pistil sem birtist á Vísi í dag þar sem hún lýsir verkfalli flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli sem skæruaðgerðum og gagnrýnir aðgerðarleysi yfirvalda.

Kaffiboðið í Karphúsinu
Styrkur íslensks vinnumarkaðar endurspeglast í kröftugu og fjölbreyttu atvinnulífi, og lífskjörum sem eru á við það besta gerist í heiminum.

Óvíst með fund um helgina og næsta verkfall yfirvofandi
Sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara segir stöðuna í kjaradeilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins snúna. Hún verði í sambandi við samninganefndir um helgina en ekkert hafi verið ákveðið með framhaldið. Verði af næstu vinnustöðvunum flugumferðarstjóra mun það hafa áhrif á næstum hundrað flugferðir.

Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól
Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins.

Sáttasemjari frestar fundi um óákveðinn tíma
Samninganefndir flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins mættu á boðaðan fund hjá ríkissáttasemjara í morgun. Ekkert varð úr sameiginlegum fundi og á öðrum tímanum í dag ákvað sáttasemjari að fresta fundinum. Nýr fundur í kjaradeilunni hefur ekki verið boðaður.

Verkfallið boðað með lögmætum hætti
BSRB, fyrir hönd Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hefur verið sýknað af kröfum Samtaka atvinnulífsins. SA kröfðust þess að viðurkennt yrði með dómi Félagsdóms að verkfall sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað og koma á til framkvæmda 18. desember 2023, klukkan 4:00, væri ólögmætt.

Enn langt í milli
Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í kjaradeilu flugumferðastjóra er lokið. Samningsaðilar funda á ný á morgun klukkan tíu, en næsta vinnustöðvun er næstkomandi mánudag.

Skrifstofu og stjórnunarkostnaður 5,8 milljarðar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vekur athygli á miklum kostnaði við rekstur lífeyrissjóða landsins.

Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hafin
Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hófst klukkan fjögur í nótt, en aðgerðirnar hafa áhrif á ferðir þúsunda ferðalanga. Aðgerðirnar nú standa líkt og á þriðjudag til klukkan 10.

„Þetta snýst bara um skynsemi“
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins, segir verkfall flugumferðarstjóra, sem hefst á ný í nótt, búa til aðstæður sem minni á lélega bíómynd.