Írak

Fréttamynd

Ný ríkisstjórn mynduð

Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak. Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í dag. Kosið verður um ráðherralistann á írakska þinginu á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Íröksk þingkona myrt

Írakska þingkonan Lamiya Khaduri var skotin til bana við heimili sitt í dag. Hún er fyrsti þingmaðurinn sem er drepinn í landinu síðan kosningar fóru fram þann 30. janúar.

Erlent
Fréttamynd

Sprengingar við lögregluskóla

Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna.

Erlent
Fréttamynd

23 þúsund borgarar taldir af

Talið er að fleiri en þrjátíu þúsund manns, þar af 23 þúsund óbreyttir írakskir borgarar, hafi látið lífið í átökum í Írak frá því Bandaríkjamenn og Bretar gerðu innrás í landið fyrir rúmum tveimur árum.

Erlent
Fréttamynd

Ábyrgð Rumsfelds könnuð

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch í Bandaríkjunum krefjast þess að ábyrgð Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra og annarra háttsettra yfirmanna bandaríkjahers, á misþyrmingum hermanna á föngum í Írak, verði könnuð.

Erlent
Fréttamynd

Upptaka af morði á borgurum

Hryðjuverkamenn í Írak sendu í dag frá sér upptöku þar sem sjá má þyrlu með óbreyttum borgurum skotna niður. Blóðugar árásir kostuðu á annan tug lífið í Írak í dag.

Erlent
Fréttamynd

Enn beðið nýrrar stjórnar

Enn verður bið á því að ný ríkisstjórn taki til starfa í Írak. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks í viðtali í gærkvöldi. Hann segir að enn eigi eftir að nást samkomulag um það með hvaða hætti súnnítar muni koma að stjórninni, sem sé nauðsynlegt eigi að nást fram breið sátt allra landsmanna um hina nýju stjórn.

Erlent
Fréttamynd

Lýsa ábyrgð á ódæðinu

Hópur sem kallar sig „Íslamska herinn í Írak“ segist bera ábyrgð á því að búlgörsk þyrla var skotin niður í Írak í gær, með þeim afleiðingum að tíu manns létust. Þá segist hópurinn hafa náð þeim eina úr áhöfninni sem komst lífs af og að hann hafi verið drepinn í gær.

Erlent
Fréttamynd

50 lík fundust í Tígris-ánni

Fimmtíu lík fundust á floti í ánni Tígris, skammt frá Bagdad, í dag. Talið er að þau séu af gíslum úr röðum sjíta sem mannræningjar úr röðum súnníta rændu fyrir helgi.

Erlent
Fréttamynd

Fjórir féllu í Írak

Tveir bandarískir hermenn féllu í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás í suðurhluta Bagdad í nótt. Fjórir Bandaríkjamenn og sjö Írakar særðust í árásinni. Í morgun féllu svo tveir í valinn og fimm særðust þegar bílsprengja sprakk vestur af Bagdad.

Erlent
Fréttamynd

Hermennirnir saklausir?

Bandarísku hermennirnir sem skutu ítalska leyniþjónustumanninn Nicola Calipari til bana og særðu blaðakonuna Giuliönu Sgrena, bera ekki ábyrgð á því hvernig fór. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC eftir heimildarmönnum að sé niðurstaða ítalsk-bandarískrar rannsóknarnefndar sem er í þann mund að ljúka störfum.

Erlent
Fréttamynd

Grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt

Að minnsta kosti ellefu manns létust og um tuttugu særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í námunda við græna svæðið í Bagdad um klukkan sex í morgun. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í gær myndir af bandarískum ríkisborgara sem írakskir uppreisnarmenn rændu á mánudaginn. Hann grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt

Erlent
Fréttamynd

Hryðjuverkamenn herða árásir sínar

Hryðjuverkamenn í Írak virðast vera að herða árásir sínar en verulega hafði dregið úr þeim eftir þingkosningarnar í landinu. Fjölmargar skotárásir og sprengjutilræði voru gerð í Írak í dag og státa al-Qaida hryðjuverkasamtökin af því að bera ábyrgðina.

Erlent
Fréttamynd

Sambærilegt falli Berlínarmúrsins

Fall styttu Saddams Husseins í Bagdad fyrir tveimur árum er sambærilegt falli Berlínarmúrsins, að mati George Bush Bandaríkjaforseta. Á fundi með bandarískum hermönnum í Texas í gær sagði Bush að talað yrði um fallið á styttu Saddams í Bagdad í sömu andrá og fall Berlínarmúrsins þegar fram líða stundir.

Erlent
Fréttamynd

Níu létust í sprengingu

Níu manns féllu í valinn og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk nærri borginni Kirkuk í Írak í morgun. Allir þeir sem létust voru starfsmenn olíufyrirtækis í nágrenninu. Sprengjan sprakk þegar öryggisverðir fyrirtækisins reyndu að aftengja hana.

Erlent
Fréttamynd

Sendiráðsmanni rænt í Írak

Starfsmanni pakistanska sendiráðsins í Írak virðist hafa verið rænt. Stjórnvöldum hafa borist óstaðfestar fregnir þess eðlis að hann sé í haldi og eru í viðræðum um að fá hann lausan.

Erlent
Fréttamynd

Vill taka þátt í stjórnarsamstarfi

Iyad Allawi, fráfarandi forsætisráðherra Íraks, lýsti í dag yfir vilja sínum til að starfa með nýrri ríkisstjórn landsins. Hann hafði áður sagst ætla að sitja í stjórnarandstöðu í kjölfar kosninganna sem fram fóru í Írak í janúar.

Erlent
Fréttamynd

Fimmtán hermenn teknir af lífi

Fimmtán hermenn fórust í skotárás uppreisnarmanna í Bagdad í morgun. Hermennirnir, sem voru allir írakskir, voru í bíl sem uppreisnarmennirnir þvinguðu af veginum, ráku hermennina út og tóku af lífi.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á flutningabílstjóra í Írak

Hópur byssumanna gerði árás á sex tyrkneska flutningabíla rétt norður af borginni Kirkuk í Írak í nótt. Eins bílstjóra er saknað og er jafnvel talið að honum hafi verið rænt. Fjórir bílstjórar særðust og voru fluttir á sjúkrahús.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnarskráin tilbúin í ágúst

Búist er við að ný stjórnarskrá fyrir Írak verði tilbúin um miðjan ágúst. Þetta var haft eftir hinum nýkjörna forseta landsins, Jalal Talabani, í dag. Tíu vikur eru liðnar síðan kosningar fóru fram í Írak og enn á eftir að mynda ríkisstjórn. Stefnt er að nýjum þingkosningum í lok þessa árs.

Erlent
Fréttamynd

Öflug sprenging nærri flugvellinum

Tveir féllu í valinn þegar bílsprengja sprakk nærri alþjóðaflugvellinum í Bagdad í morgun. Sprengingin var mjög öflug og heyrðist langar leiðir að sögn vitna í nágrenninu. 

Erlent
Fréttamynd

Talsmaður þingsins loks valinn

Talsmaður írakska þingsins hefur loks verið valinn eftir margra daga samningaviðræður. Súnnítinn Hajim Al-Hassani varð fyrir valinu og þar með hefur verið staðið við það loforð að súnnítar fengju með einhverjum hætti að koma að myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Einstakt mál í sænskri réttarsögu

Tveir Írakar á þrítugsaldri voru í dag ákærðir í Svíþjóð fyrir að skipuleggja sjálfsmorðsárás sem kostaði á annað hundrað manns lífið í Erbil í norðurhluta Íraks. Mál af þessum toga hefur aldrei komið til kasta sænskra dómstóla áður.

Erlent
Fréttamynd

Fjöldi vannærðra barna tvöfaldast

Meira en fjórðungur barna í Írak þjáist af viðvarandi vannæringu og fjöldi vannærðra barna undir fimm ára aldri hefur tvöfaldast síðan ráðist var inn í landið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.

Erlent
Fréttamynd

Myndband með rúmensku gíslunum

Al Jazeera fréttastofan birti í gær myndband af þremur rúmenskum fjölmiðlamönnum sem var rænt í Írak á mánudaginn. Á myndbandinu sést jafnframt fjórði maðurinn sem er bandarískur ríkisborgari.

Erlent
Fréttamynd

Fimm þjóðvarðliðar féllu

Fimm írakskir þjóðvarðliðar féllu í valinn í sjálfsmorðsárás nærri borginni Kirkuk í morgun. Þó nokkrir slösuðust í árásinni sem var gerð við eftirlitsstöð írakska hersins.

Erlent
Fréttamynd

Kona og barn á meðal látinna

Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að kastaðist í kekki á milli bandarískra hermanna og hóps andspyrnumanna í borginni Mosul í Írak í dag. Að sögn talsmanns íröksku lögreglunnar er kona og barn á meðal látinna. Auk þeirra sem féllu liggja fimm sárir.

Erlent
Fréttamynd

Nokkur tonn sprengiefna haldlögð

131 meintur skæruliði var handtekinn í skyndiárás bandarískra og írakskra hermanna nærri borginni Kerbala í dag. Lagt var hald á gríðarlegt magn sprengiefnis og tækja og tóla til sprengjugerðar og að sögn yfirmanns innan bandaríkjahers er um að ræða nokkur tonn af sprengiefni.

Erlent
Fréttamynd

Blóðbaðið heldur áfram

Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tuttugu eru særðir eftir tvær sjálfmorðsárásir í Írak í dag. Ellefu hinna látnu voru sérsveitarmenn innan íröksku lögreglunnar sem létust þegar maður sprengdi sig í loft upp við eftirlitsstöð í borginni Ramadí. Þrír hinna særðu eru óbreyttir borgarar.

Erlent