Slökkvilið
33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 58 ›
Sinueldur í hrauni í Garðabæ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna sinuelds í hrauni í Garðabæ. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst tilkynning um klukkan hálf þrjú, en það ku loga í og við gjótu í hrauninu, nærri svokölluðum Hádegishól. Innlent 9.5.2021 14:54
Eldur í bílskúr við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði Eldur kom upp í bílskúr við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fyrr í kvöld. Töluverðan reyk lagði frá bílskúrnum og var slökkvilið í Hveragerði og Selfossi kallað út. Innlent 7.5.2021 23:29
Búast megi við miklum eldum í þessu ástandi Slökkviliðsstjórinn á Akranesi segir að búast megi við stórum gróðureldum ef þeir kvikni í því ástandi sem sé í dag. Búið er að lýsa yfir óvissustigi á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi vegna hættu á gróðureldum. Innlent 6.5.2021 19:19
„Örugglega stærsti svona bruninn í svona kjarrlendi“ Verðmætasta svæði Heiðmerkur virðist hafa sloppið í gróðureldinum í gær en það mun þó taka nokkurn tíma að sjá hversu mikið tjón varð. Innlent 5.5.2021 20:02
Telja ekki að eldur af þessari stærð ógni vatnsbóli borgarinnar Gripið var til aðgerða til þess að fyrirbyggja að gróðureldur sem kviknaði í Heiðmörk í gærkvöldi kæmist í mannvirki og búnað vatnsbóla höfuðborgarinnar þar og fyrirbyggja mengunarslys. Ekki er talið að gróðureldar á yfirborði af þessari stærðargráðu og á þessum stað hafi mælanleg áhrif á vatnsgæði. Innlent 5.5.2021 11:57
Vita hvorki hvar eldurinn kviknaði né hvers vegna Upptök sinubrunans í Heiðmörk í gær liggja enn á huldu, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Erfitt var fyrir slökkvilið að komast að eldinum þar sem hann barst og varð töluvert svæði eldinum að bráð. Innlent 5.5.2021 11:21
Slökkvistarf enn í fullum gangi þótt ástandið sé „aðeins betra“ Enn geisa sinueldar á skógræktarsvæðinu í Heiðmörk, sem kviknuðu á fimmta tímanum síðdegis í dag. Innlent 4.5.2021 21:53
Eldurinn geisar á „óþægilega stóru svæði“ Sinubruninn í Heiðmörk ríður yfir á versta árstímanum fyrir slíkar hamfarir, að sögn Vernharðs Guðnasonar, deildarstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Fuglarnir eru í varpi og skordýrin eru viðkvæm. Innlent 4.5.2021 19:01
Um fimmtíu manns berjast við meiriháttar sinubruna í Heiðmörk sem teygir sig í austurátt Allt tiltækt lið slökkviliðs, þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitarfólk hefur sinnt illviðráðanlegum sinubruna í Heiðmörk síðan rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt slökkviliðinu er bruninn að færast í aukana og teygir sig í austurátt. Innlent 4.5.2021 16:06
Sinubruni í Mosfellsbæ Slökkviliðsmenn úr Mosfellsbæ voru um klukkustund að ráða niðurlögum sinubruna sem kviknaði í bænum á sjötta tímanum í dag. Innlent 3.5.2021 19:42
Þyrla Gæslunnar aðstoðar við slökkvistarf Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði í gærkvöldi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við að hafa hemil á gróðureldi við Búrfellsgjá við Helgafell. Þar hljóp eldur í mosa og erfitt var að koma slökkvibifreið á staðinn og því takmarkaður slökkvibúnaður meðferðis. Innlent 3.5.2021 07:38
„Það gæti orðið bras að eiga við þetta“ Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um reyk við Búrfellsgjá nærri Heiðmörk á sjöunda tímanum í kvöld. Innlent 2.5.2021 19:38
Eldur kom upp í dýnu Slökkviliðið var kallað út á ellefta tímanum í morgun eftir að eldur kom upp í dýnu í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 1.5.2021 11:09
Björguðu unglingsstúlku úr tré í Hellisgerði Starfsmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru í gær kallaðir út til að bjarga unglingsstúlku niður úr tré í Hellisgerði í Hafnarfirði. Innlent 29.4.2021 07:29
Eldur kom upp í þaki hjá N1 í Borgarnesi Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út um klukkan 11 í morgun eftir að eldur kom upp í þaki húsnæðis N1 í Borgarnesi. Innlent 27.4.2021 11:46
Slökkvilið á leið að hjálpa kajakræðurum í basli Slökkvilið frá tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var sent að Kollafirði síðdegis í dag til þess að koma tveimur kajakræðurum til hjálpar, sem höfðu lent í ógöngum í versnandi veðri. Innlent 25.4.2021 17:19
Tvö útköll vegna elds í bifreið Töluvert annríki var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn. Alls sinnti slökkviliðið sex útköllum á dælubíl, meðal annars vegna vatnstjóns og í tvígang var slökkvilið kallað til vegna brennandi bifreiða. Innlent 25.4.2021 09:42
Eldur í bíl í Grjóthálsi Eldur kviknaði í vélarrúmi fólksbíls á þvottaplani í Grjóthálsi í Reykjavík á tíunda tímanum í kvöld. Bíllinn var kyrrstæður og að sögn slökkvilðsins mun þetta hafa orsakast af tæknilegri bilun. Innlent 24.4.2021 23:35
Fimm fluttir á sjúkrahús eftir harða aftanákeyrslu Fimm voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harða aftanákeyrslu á Vesturlandsvegi við Esjuberg um klukkan tvö í dag. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Innlent 18.4.2021 15:40
Tilkynning um eld sem reyndist vera rómantísk kvöldstund Slökkvilið á vakt á öllum fjórum stöðvum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang þegar tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í nótt. Nágranni hafði orðið var við eldbjarma í íbúð og ekki þótti duga minna til en að senda allt tiltækt slökkvilið á staðinn. Innlent 18.4.2021 09:42
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur Tveggja bíla árekstur varð í kvöld á Bústaðavegi í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturinn. Innlent 16.4.2021 19:07
Stöðvaði umferð við Kringlumýrarbraut Lögregla og slökkvilið voru kölluð að gatnamótum Listabrautar og Kringlumýrarbrautar eftir að ekið var utan í vegrið. Bifreiðin sem ekið var er töluvert skemmd. Innlent 13.4.2021 18:32
Fluttur af sóttkvíarhótelinu á sjúkrahús Flytja þurfti gest á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahúsi nú í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort veikindin voru af völdum Covid-19 eða ekki. Innlent 12.4.2021 19:22
Hafa samband við eigendur brunnhúss þar sem kona féll Fulltrúar Mosfellsbæjar ætla að hafa samband við eigendur brunnhúss eftir að kona féll þar niður og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að brunnhúsið hafi verið lokað en einhver hafi opnað það. Innlent 11.4.2021 12:32
Hífðu konu upp úr brunni við Lágafellskirkju Kona sem féll um tvo metra niður í brunn nærri Lágafellskirkju í Mosfellsbæ var orðin köld og þrekuð þegar slökkviliðsmenn náðu að bjarga henni upp. Samferðarfólk konunnar náði að halda henni upp úr vatni þar til slökkvilið kom á staðinn. Innlent 11.4.2021 09:18
Eldur í bílum barst næstum því í nærliggjandi hús Tveir slökkvibílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fóru í útkall í nótt þar sem logaði í fjórum bifreiðum utandyra í iðnaðarhverfi á Esjumelum. Innlent 10.4.2021 09:25
Bjargaði ketti úr vörulyftu Erilsamt hefur verið hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring. Slökkviliðið sinnti fimm dælubílaverkefnum en seinni partinn í gær var til að mynda óskað eftir aðstoð slökkviliðsins vegna kattar sem sat fastur uppi í vinnulyftu. Kisi ku hafa verið sáttur við að komast niður að því er segir í Facebook-færslu slökkviliðsins. Innlent 3.4.2021 09:29
Eldur kom upp í kjallaraíbúð Tilkynnt var um eld í kjallaraíbúð í miðborg Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglu. Engin slys urðu á fólki og var slökkvistarfi lokið upp úr klukkan tíu. Innlent 2.4.2021 08:38
Leita að þeim sem kveiktu eld nærri Reykholti Töluverður viðbúnaður var hjá viðbragðsaðilum á Suðurlandi í kvöld þegar tilkynning um mögulegan eld í sumarhúsi skammt frá Reykholti í Árnessýslu í kvöld. Svo virðist sem að um brennu hafi verið að ræða og er þeirra sem kveiktu hana nú leitað. Þeir gætu þurft að greiða fyrir útkall slökkviliðs og lögreglu. Innlent 31.3.2021 20:37
Glímdu við alelda skemmu á Mýrum Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út í gærkvöldi eftir að eldur kom upp í skemmu við bæinn Lækjarbug á Mýrum. Innlent 30.3.2021 12:01