Heilbrigðismál

Búast við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild
Búist er við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni sem opnuð var á Landspítalanum í vikunni. Forstöðumaður geðþjónustu spítalans segir mikla þörf á að efla þjónustu við ungmenni með alvarlegan fíknivanda.

Ísland veitir hálfum milljarði í þróun á bóluefni
Þetta tilkynnti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag.

Efast um forsendur rannsóknar á malaríulyfi gegn Covid-19
Breska læknaritið Lancet lýsti í gær áhyggjum af því að gögn sem notuð voru í rannsókn sem komst að þeirri niðurstöðu að malaríulyf tengdist auknum dánarlíkum hjá sjúklingum með Covid-19 væru ekki áreiðanleg. Lyfið og notkun þess hefur orðið hápólitísk eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti mærði það sem töfralausn við kórónuveiruheimsfaraldrinum.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar atkvæðagreiðslu um verkfall
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, hefur ákveðið að boða til rafrænnar atkvæðagreiðslu meðal hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu um verkfallsaðgerðir.

Skimun á landamærunum lágmarkar áhættu en eyðir henni ekki
Sóttvarnalæknir mælir með því að stefnt verði að því að hefja skimun ferðamanna fyrir kórónuveiru á Keflavíkurflugvelli sem fyrst til að reynsla fáist af henni á meðan ferðamannastraumur er enn ekki mikill. Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra segir sóttvarnalæknir skimunina draga úr áhættu á að smitaðir ferðamenn komi til landsins en komi ekki algerlega í veg fyrir það.

Endurmeta heimsóknarbann á hjúkrunarheimilum
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að ákvarðanir er varða heimsóknarbann á hjúkrunarheimilum þurfi að endurmeta ef komi til annarrar bylgju Covid-19.

Sóttvarnalæknir enn þeirrar skoðunar að skimun á Keflavíkurflugvelli sé rétta leiðin
Sóttvarnalæknir er enn þeirrar skoðunar að skimun farþega fyrir kórónuveirunni á Keflavíkurflugvelli frá og með 15. júní sé enn rétta leiðin þegar kemur að opnun landamæranna. Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.

Heilbrigðisþjónusta ríkisrekin og ekki ríkisrekin
Á yfirstandandi kjörtímabili hafa stjórnendur fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem ekki eru ríkisrekin kvartað yfir sinni stöðu gagnvart hinu opinbera og þá helst heilbrigðisráðuneytinu. Það er eins og ráðherra heilbrigðismála sjái „rautt“ ef viðkomandi heilbrigðisþjónusta er ekki ríkisrekin.

Merkilegur árangur náðst án tilvistar sértæks Covid-lyfs
Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar LSH þakkar forvarnarátaki heilbrigðisyfirvalda fyrir þann merkilega árangur sem náðst hefur þrátt fyrir að nokkurt lyf eða bóluefni sé til gegn Covid-19 sýkingu.

Útbreiddur faraldur ólíklegur en líkur á einstaka smitum
Sóttvarnalæknir segir ólíklegt að útbreiddur faraldur fari um landið en líkur séu á einstaka smitum í framtíðinni. Hann sagði þá vert að svara nokkrum spurningum þegar framtíðarhorfum Íslands vegna kórónuveirufaraldursins er velt fyrir sér.

Segir kröfu um afsökunarbeiðni ófaglega og ummælin eðlilega athugun á störfum Neyðarlínunnar
Neyðarlínan hefur ekki verið sett á sakabekk af mér né borginni. Aðeins hefur verið óskað eftir svörum og skýrum merkjum um að atvikið sé tekið alvarlega og staðfestingu á að ekki sé um kerfisbundið vandamál að ræða heldur einstaka atvik,“ segir borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir um kröfu Neyðarlínunnar um afsökunarbeiðni

Um 0,9% Íslendinga myndað mótefni gegn veirunni
Þegar þeir aðilar sem hafa fengið staðfest smit kórónuveirunnar og þeir sem hafa verið í sóttkví eru teknir út fyrir sviga hafa 0,9% íslensku þjóðarinnar myndað mótefni gegn kórónuveirunni.

„Verðum að vera nægilega stórar manneskjur til þess að láta þetta ekki snúast um okkur“
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, kveðst ekki hafa staldrað við ummæli Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um hana sem hann lét falla í Kastljósi í gær.

„Alveg ljóst“ að ef skima eigi fleiri en 500 á dag þurfi aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar
Dómsmálaráðherra segir alveg ljóst, að ef það eiga að fara fram fleiri en 500 skimanir á dag fyrir covid-19 á landamærum, þurfi aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar.

Vill að sóttvarnalæknir stýri skimunarverkefninu á Keflavíkurflugvelli
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að bæta þurfi samskipti við heilbrigðisráðuneytið. Hann telur eðlilegt að sóttvarnalæknir hafi yfirumsjón með verkefninu skimunum á Keflavíkurflugvelli. Hann eigi í engri baráttu við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.

Enginn greindist með smit síðasta sólarhringinn
Staðfest smit í landinu eru því, líkt og í gær, 1.805.

Kári Stefánsson mættur í Stjórnarráðið
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er mættur til fundar í stjórnarráðið þar sem forsætisráðuneytið er meðal annars með skrifstofur sínar. Kári mætti í leigubíl rétt upp úr klukkan ellefu.

Segir heilbrigðisráðherra eiga til að vera „hrokafull eins og lítil tíu ára stelpa“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið muni ekki koma að skimun fyrir kórónuveirunni sem valdið getur Covid-19, verði sú skimun unnin undir stjórn heilbrigðisráðuneytisins.

„Ekki fullkomin lausn“ að skima fólk á Keflavíkurflugvelli
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að það sé ljóst að það þurfi töluvert mikið til og mikinn undirbúning ef það á að skima alla farþega á Keflavíkurflugvelli.

Aðilar í ferðaþjónustu gætu þurft að sinna ferðamönnum í einangrun
Aðilar í ferðaþjónustunni þurfa að vera undir það búnir að senda ferðamenn sem koma hingað til lands í sýnatöku vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19 og jafnvel sinna þeim ef þeir þurfa að sæta sóttkví og/eða einangrun.

Geta í mesta lagi prófað 500 ferðamenn á dag
Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans er ekki í stakk búin til að taka sýni úr nema 500 farþegum sem koma til landsins á degi hverjum.

Innan við 200 manns fengu hýdroxíklórókín hér á landi
Landspítalinn hætti fyrir nokkru að gefa Covid-sjúklingum sýklalyfið hýdroxíklórókín. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur stöðvað tilraunir á notagildi lyfsins tímabundið því niðurstöður virðast benda til að það auki líkur á andláti sjúklinga. Innan við 200 manns fengu lyfið hér á landi undir eftirliti.

WHO stöðvar rannsókn á notagildi malaríulyfs sem Trump segist taka gegn Covid
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur stöðvað rannsókn á notagildi malaríulyfsins Hydroxychloroquine gegn Covid-19 sýkingu vegna velferðarsjónarmiða.

Heilbrigði í forgangi varðandi opnun landsins
Heilsa þjóðarinnar er í forgangi hjá heilbrigðisráðherra og sóttvarnalækni vegna opnunar landsins fyrir ferðamenn.

Þórólfur átti kollgátuna varðandi börnin
Staðfest hefur verið að börn smitast síður og veikjast einnig síður af nýju kórónuveirunni.

Þríeykið klökknaði undir ræðu Svandísar
Heilbrigðisráðherra þakkaði þríeykinu sérstaklega fyrir vel unnin störf.

Svona var 72. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar: Ráðherrar mæta á síðasta kórónuveirufundinn í bili
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14 í dag.

Annar smitlaus sólarhringur
Enginn greindist með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 síðasta sólarhringinn hér á landi. Staðfest smit eru því enn 1804.

Gerir ráð fyrir að ríkið og Reykjavíkurborg deili kostnaði neyslurýma
Heilbrigðisráðherra gerir ráð fyrir að ríkið muni standa undir helmingi kostnaðar við rekstur neyslurýmis á móti Reykjavíkurborg.

Ekkert smit greinst milli daga
Enginn greindist með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 síðasta sólarhringinn hér á landi. Staðfest smit eru því enn 1804.