Justin Bieber á Íslandi

Fréttamynd

Vill hún Bieber aftur?

Myndir náðust af ungstirninu Selenu Gomez fyrir utan heimili popparans Justins Bieber í Los Angeles um helgina. Stutt er síðan parið hætti saman – ætli loginn lifi enn?

Lífið
Fréttamynd

Enn hneykslar Bieber

Justin Bieber virðist vera mikið í mun um að losna við ímyndina sem hann hafði í byrjun ferilsins – þegar hann var ungur, prúður og góður strákur. Nú gerir hann nánast allt til að hneyksla.

Lífið
Fréttamynd

Bieber syngur lag um fyrrverandi

Poppgoðið Justin Bieber er búinn að semja lag um sambandsslit sín og ungstirnisins Selenu Gomez. Lagið heitir Nothing Like Us og er á plötu hans Believe Acoustic sem kemur út í dag.

Tónlist
Fréttamynd

Léttklædd Selena Gomez

Selena Gomez hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu mánuði vegna sambandsslitanna við Justin Bieber. Þessa dagana beinist athyglin þó mest að ..

Lífið
Fréttamynd

Bieber vinsælastur á Twitter

Hinn ungi poppsöngvari Justin Bieber er orðinn vinsælasti maður í heimi á Twitter. Hann skaust fram fyrir söngstjörnuna og Íslandsvinkonuna Lady Gaga í gær, en bæði eru þau með yfir 33 milljónir fylgjenda. Í þriðja sæti kemur síðan söng- og leikkonan Katy Perry sem er með yfir 31 milljón fylgjenda. Bieber fær um 40 þúsund nýja fylgjendur á dag en Gaga um 30 þúsund. Fjöldi fylgjenda á Twitter er sagður ágætis vísbending um vinsældir listamanna almennt.

Lífið
Fréttamynd

Bieber hneykslar

Ungstirnið Justin Bieber kemur sífellt á óvart þessa dagana. Heimsbyggðin nötraði þegar myndir náðust af Justin reykja jónu fyrir stuttu og ekki skánaði ástandið þegar fyrrverandi lífvörður hans kærði hann fyrir líkamsárás.

Lífið
Fréttamynd

Sérðu þetta Bieber?

Selena Gomez byrjaði ferilinn sem Disney-stjarna en hefur mikið verið á milli tannanna á fólki síðan hún hætti með ungstirninu Justin Bieber.

Lífið
Fréttamynd

Búin að gleyma Bieber

Söng- og leikkonan Selena Gomez, 20 ára, var glæsileg á rauða dreglinum um helgina þegar hún var mynduð á rauða dreglinum í teiti sem haldið var eftir Golden Globe verðlaunahátíðina. Selena leit ekki út fyrir að sakna Justin Bieber fyrrum unnusta síns. Nú er stúlkan að hitta ástralskan leikara, Luke Bracey sem er 23 ára gamall. "Þau leiddust og létu vel að hvort öðru," er haft eftir vitni sem sá þau stinga nefjum saman á dögunum - sem segir að henni líkar við kauða.

Lífið
Fréttamynd

Bieber riðar til falls

Ungstirnið Justin Bieber er duglegt við að koma sér í vandræði þessa dagana. Moshe Benabou, fyrrverandi lífvörður Bieber er búinn að kæra söngvarann fyrir líkamsárás.

Lífið
Fréttamynd

Bieber sýnir magavöðvana

Justin Bieber, 18 ára, sýndi magavöðvana á síðasta kvöldi ársins 2012 í sjónvarpsætti Ryan Seacrest. Meðfylgjandi má sjá "six-pakkinn" í öllu sínu veldi. Poppstjarnan flutti í þættinum meðal annars lagið “As Long As You Love Me” með Big Sean en flutninginn má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að neðan.

Lífið
Fréttamynd

Mest lesið á Lífinu 2012

Jón Jónsson, Manúel Ósk Harðardóttir, Ásdís Rán og Kristrún Ösp tróna á toppnum yfir mest lesnu fréttir Lífsins á árinu sem er að líða undir lok. Þá var Angelina Jolie ómótstæðileg, Gordon Ramsey skemmti sér í Reykjavík og Arnar Gunnlaugs skemmti sér með bandarískri Hollywoodstjörnu.

Lífið
Fréttamynd

Annasamt ár 2012 hjá Bieber

Poppstjarnan fékk sér nýtt húðflúr á árinu og var sektaður fyrir of hraðan akstur. Drengurinn átti góðar stundir með Selenu Gomez unnustu sinni og var síðari hluta ársins áberandi baksviðs á árlegri undirfatasýningu Victoria´s Secret.

Lífið