Fréttir
Átta ára brann inni Eldur kom upp í raðhúsi í Skævinge, nærri Hillerød á Sjálandi, og beið átta ára gamall drengur bana í eldsvoðanum. Erlent 23.10.2005 15:02
Bað Bandaríkjamenn um þolinmæði George Bush Bandaríkjaforseti bað Bandaríkjamenn að sýna þolinmæði varðandi stríðið í Írak og sagði stríð ekki vinnast án fórna. Forsetinn hefur sætt vaxandi gangrýni heima fyrir vegna ólgunnar í Írak og mannfalls í röðum Bandaríkjahers og mælist stuðningur við aðgerðir Bandaríkjanna í Írak nú aðeins 32 prósent samkvæmt könnun Gallup fyrir fjölmiðlana <em>CNN</em> og <em>USA Today</em>. Erlent 23.10.2005 15:02
Dýpsta höfn landsins Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vígir dýpstu höfn landsmanna á morgun. Höfnin, sem er 14,5 metra djúp og 380 metra breið, er ný álvershöfn Reyðfirðinga. Innlent 23.10.2005 15:02
Howard brýnir flokkinn gegn Brown Michael Howard, fráfarandi leiðtogi breska Íhaldsflokksins, hvatti í lokaræðu sinni á flokksþinginu í Blackpool í gær til einingar flokksmanna nú er þeir leita nýs leiðtoga. Erlent 23.10.2005 15:02
Giftast eldri og verr menntuðum Einstæðar mæður giftast eldri og verr menntuðum mönnum en barnlausar konur. Þetta eru niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem náði til meira en hundrað þúsund kvenna í Bandaríkjunum og stóð yfir í fimmtán ár. Erlent 23.10.2005 15:02
65% munur á vörukörfunni Munur á hæsta og lægsta verði vörukörfu var 65% í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Könnunin var gerð í matvöruverðslunum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn þriðjudag. Karfan var ódýrust í Bónus en þar kostaði hún 5.431 kr. og hún var síðan dýrust í Tíu-ellefu þar sem karfan kostaði 8.951 kr. Innlent 23.10.2005 15:02
Slasaðist alvarlega í árekstri Kona slasaðist alvarlega þegar jeppi og fólksbíll lentu í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi skammt norðan við Borgarnes á áttunda tímanum í gærkvöldi. Karlmaður, sem var farþegi í bíl konunnar, slasaðist líka og var lagt af stað með þau áleiðis til Reykjavíkur í sjúkrabíl. Innlent 23.10.2005 15:02
Settu aftökur á Netið Írösk uppreisnarsveit setti í dag upptöku á Netið sem sýnir aftöku tveggja Íraka sem sagðir eru hafa verið njósnarar fyrir bandaríska herinn. Myndbandsupptakak sýnir þegar Írakarnir tveir viðurkenna að hafa verið að safna saman upplýsingum fyrir Bandaríkjaher. Mennirnir voru síðan hálshöggnir. Myndbandsupptakan var sett á Netið af uppreisnarsveitinni Ansar al-Sunna sem er stór uppreisnarsveit í Írak. Erlent 23.10.2005 15:02
Ný stjórn hjá VGR Ný stjórn var kjörin í Reykjavíkurfélagi Vinstri - grænna á aðalfundi félagsins í gærkvöld. Þorleifur Gunnlaugsson er formaður félagsins og með honum í stjórn eru þau Auður Lilja Erlingsdóttir, Gérard Lemarquis, Guðlaug Teitsdóttir, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Hrafnkell Tumi Kolbeinsson og Sigríður Kristinsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:02
Öryggisráðið eins og handboltamót? Ungir Vinstri grænir hvetja til þess að framboð Íslands til Öryggsiráðs Sameinuðu þjóðanna verði dregið til baka. Þetta kemur fram í ályktun sem ungliðahreyfingin sendi frá sér í gærkvöld. Í ályktuninni segir að svo virðist sem Halldór Ásgrímsson leggi framboðið að jöfnu við þátttöku í alþjóðlegu handboltamóti. Innlent 23.10.2005 15:02
Spánska veikin barst úr fuglum Spánska veikin, sem varð 50 milljónum manna að bana á árunum 1918-1919, barst að öllum líkindum í menn úr fuglum og veiran sem olli sjúkdómnum deilir genastökkbreytingum með fuglaflensunni sem dregið hefur tugi manna til bana í Asíu. Erlent 23.10.2005 15:02
Getur ekki samþykkt kröfuna Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ekki trúa því að sýslumaðurinn í Reykjavík geti samþykkt fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar á hendur sér. Jón hyggst fá aðstoð sýslumanns við að ná tólf milljónum króna af Hannesi sem hann var dæmdur til að greiða í Englandi vegna meiðandi ummæla um Jón. Innlent 23.10.2005 15:02
Alnæmismitum fjölgar í Þýskalandi Fjöldi þeirra sem smitast hafa af alnæmi jókst mikið á fyrri helming þessa árs í Þýskalandi. Líkur benda til að sjúkdómurinn sé ekki tekinn eins alvarlega þar í land og áður. Erlent 23.10.2005 15:02
Endurlífgaður eftir hjartastopp Tuttugu og þriggja ára gamall maður, Sveinn Rafn Eiðsson, var endurlífgaður eftir að hjartað í honum stöðvaðist þegar hann féll niður fjóra metra við Fylkisheimilið í Árbæ. Innlent 23.10.2005 15:02
Grunaðir um aðild að peningaþvætti Húsleit var í dag gerð hjá fyrirtæki og á einkaheimili í Reykjavík að beiðni breskra yfirvalda. Íslendingar eru grunaðir um aðild að skipulögðum fjársvikum og peningaþvætti. Aðgerðirnar í Reykjavík tengjast víðtækum aðgerðum bresku efnahagsbrotalögreglunnar sem hófust í morgun. Innlent 23.10.2005 15:02
Ramsey fékk 18 mánaða fangelsi Scott Mckenna Ramsey var dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundið, í héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til mannsbana. Hann var einnig dæmdur til að greiða rúmlega tvær milljónir króna í skaða- og miskabætur. Innlent 23.10.2005 15:02
Fá Nóbelsverðlaunin í efnafræði Frakkinn Yves Chauvin og Bandaríkjamennirnir Robert Grubbs og Richard Schrock fá Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Frá þessu var greint fyrir skemmstu í Stokkhólmi. Erlent 23.10.2005 15:02
Játaði fíkniefnabrot Tuttugu og fjögurra ára gamall maður játaði fíkniefnabrot í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Hann var ákærður fyrir að hafa haft undir höndum kókaín, amfetamín og marijúana þegar lögreglan á Akureyri hafði afskipti af honum í sumar og einnig fyrir ári síðan. Innlent 23.10.2005 15:02
Hundruð missa vinnuna í Noregi Heit umræða eru nú uppi í Noregi i kjölfar þess að stjórn fyrirtækisins Norskra skóga ákvað í gær að leggja niður pappírsframleiðsluver fyrirtækisins á Þelamörk, þar sem hundruð manna vinna, og flytja vinnsluna til Kína. Erlent 23.10.2005 15:02
Í lífshættu vegna lyfjaskorts Sjúklingur með skerta virkni í skjaldkirtli fékk ekki það lyf sem hann var vanur að taka. Lyfið hafði verið tekið af skrá. Skortur á skráðum lyfjum er brot á lyfjalögum, segir landlæknir. Þetta er vandamál að mati lækna. Innlent 23.10.2005 15:02
Óþekktur sjúkdómur í Kanada Tíu manns hafa látist af völdum óþekkts sjúkdóms í Kanada undanfarna daga. Alls hafa áttatíu og fjórir lagst inn á sjúkrahús vegna hins dularfulla sjúkdóms sem enginn kann skýringu á. Erlent 23.10.2005 15:02
Segir hervæðingu óskiljanlega Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hervæðingu Íslands með öllu óskiljanlega. Meðan skortur sé á almennri löggæslu og sakamál séu látin klúðrast vegna manneklu sé verið að eyða á annað hundrað milljónum króna í að efla sérsveitina og kaupa vopn. Innlent 23.10.2005 15:02
Fjárnámskrafa á hendur Hannesi Jón Ólafsson, fyrrum eigandi Norðurljósa og Skífunnar, muni á næstu dögum leggja fram fjárnámskröfu á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í <em>Blaðinu</em> í dag. Innlent 23.10.2005 15:02
Kosið um 23 þúsund manna byggð Í sameiningarkosningunum á laugardag taka íbúar við Eyjafjörð afstöðu til þess hvort tímabært sé að sameina öll sveitarfélögin á svæðinu, að undanskildum Grímseyjarhreppi. Þar með yrði til ríflega 23 þúsund manna samfélag við Eyjarfjörð þar sem um 70 prósent íbúanna búa á Akureyri. Innlent 23.10.2005 15:02
Sprengja felldi einn í Istanbúl Sprengja sprakk í húsnæði skóverslunar í Istanbúl í Tyrklandi í nótt. Einn maður, sem var að búa til sprengjuna að því er virðist, lést auk þess sem sjö særðust, að sögn tyrkneskra fjölmiðla. Erlent 23.10.2005 15:02
Hið opinbera greiði fyrir vændi Fatlaður Dani krefst þess að hið opinbera greiði fyrir heimsóknir vændiskvenna til hans. Yfirvöld eru að skoða málið. Erlent 23.10.2005 15:02
Bæjarstjórn Bolungarvíkur klofin Bæjarstjórn Bolungarvíkur er klofin í afstöðu sinni til vegbóta á veginum um Óshlíð. Meirihluti stjórnarinnar lagði fram bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni þar sem ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því nýverið, um að hefja rannsóknarvinnu vegna jarðganga um Óshlíðarveg, er fagnað. Minnihluti bæjarstjórnar tók ekki undir þessa bókun. Innlent 23.10.2005 15:02
18 mánuðir og 3,3 milljónir Knattspyrnumaðurinn Scott Ramsay var dæmdur í gær fyrir fyrir að bana danska hermanninum Flemming Tolstrup með einu hnefahöggi á veitingastað í Keflavík aðfaranótt 13. nóvember í fyrra. Innlent 23.10.2005 15:02
Vonbrigði yfir fjárlagafrumvarpi Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í ályktun sem hún sendi frá sér í dag. Innlent 23.10.2005 15:02
Bauðst tvisvar til að aðstoða Lögregla hafnaði boði vaktmanns á vegum skemmtibátafélagsins Snarfara um aðstoð nóttina sem sjóslysið varð á Viðeyjarsundi, aðfaranótt 10. september. Hafþór Lyngberg Jónsson, formaður Snarfara, segist hafa rætt atvikið við yfirlögregluþjón rannsóknardeildar lögreglu í Reykjavík og fengið þau svör að atvikið yrði skoðað. Innlent 23.10.2005 15:02
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti