Fréttir
Guðleg opinberun í Hvíta húsinu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa rökstutt innrásina í Írak og Afganistan með því að hafa fengið guðlega opinberun. Hvíta húsið vísar þessu hins vegar á bug. Erlent 23.10.2005 15:03
Hljótt um valnefnd í bókmenntum Enn hefur ekki verið tilkynnt hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Valnefndin í bókmenntum, sem velur vinningshafann úr stórum hópi tilfnefndra skálda, er yfirleitt sú nefnd sem erfiðast á með að finna vinningshafa. Venju samkvæmt á að tilkynna úrslitin í bókmenntum á fimmtudeginum í Nóbelsvikunni, sem nú er komin að lokum, en svo var ekki gert þetta árið frekar en mörg önnur. Erlent 23.10.2005 15:03
Ófremdarástand í Ártúnsbrekku Ragnar Sær Ragnarsson, frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, fer heldur óvenjulega leið til að vekja athygli á hinni miklu umferð sem fer um Ártúnsbrekkuna. Hann hyggst dreifa upplýsingum um umferðina til ökumanna við umferðarljósin til móts við Suðurlandsveg upp úr klukkan fjögur í dag. Innlent 23.10.2005 15:03
Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir manni sem sakaður er um alvarlega líkamsárás í Garðabæ aðfaranótt sunnudags, hefur verið framlengt til 2. desember næst komandi. Gæsluvarðhaldsúrkurður yfir honum og tveimur félögum hans rann út í dag og var félögunum tveimur sleppt en krafist lengra gæsluvarðhalds yfir manninum fyrir Héraðsdómi Reykjaness, sem féllst á beiðni lögreglu. Innlent 23.10.2005 15:03
Lækkanir að mestu gengnar til baka Verðlækkanir á matvöru á fyrri hluta ársins hafa að stóru hluta gengið til baka, að því er fram kemur á heimasíðu Alþýðusambands Íslands. Innlent 23.10.2005 15:03
Verðlaunaður fyrir hermennsku Ísfirðingurinn Hjalti Ragnarsson fékk nýverið, ásamt félögum sínum í „Bataljong kompani" danska hersins, sérstaka heiðursorðu fyrir að vera í bestu og harðsnúnustu herdeild sem komið hefur til Kosovo. Hjalti hefur búið í Kaupmannahöfn frá sex ára aldri og meðal annars verið konunglegur lífvörður Margrétar Danadrottningar. Innlent 23.10.2005 15:02
Uppgreiðslugjald áfram heimilt Lánastofnunum verður áfram heimilt að innheimta uppgreiðslugjald þegar lán eru greidd upp, samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofnunar. Í september í fyrra sendu Neytendasamtökinn erindi til Samkeppnisstofnunar og kröfðust úrskurðar því Neytendasamtökin og einnig ASÍ héldu því fram að uppgreiðslugjald stæðist ekki lög um neytendalán. Samkeppnisráð komst þá að því að ekkert í ákvæðum laga um neytendalán gerði bönkum óheimilt að krefjast gjaldsins. Innlent 23.10.2005 15:02
S-hópurinn með vænlegasta tilboðið Í skýrslu HSBC um sölu Búnaðarbankans kemur fram að einn helsti kosturinn við tilboð S-hópsins væri aðkoma Societe Generale eða álíka alþjóðlegs fjárfestis. Án hans hefði S-hópurinn samt sem áður þótt álitlegri kostur en Kaldbakur. Innlent 23.10.2005 15:02
Bilun í varnarbúnaði spennukerfis Bilun í varnarbúnaði háspennukerfis olli rafmagnsleysinu sem varð um tíma víða á austanverðu höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Varnarbúnaði af þessu tagi er ætlað að bregðast við og rjúfa álag þegar bilun verður í háspennustrengjum eða búnaði. Innlent 23.10.2005 15:02
Krafa um fjárnám samþykkt Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti fyrir stundu kröfu Jóns Ólafssonar um fjárnám upp á tæpar tólf milljónir króna hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Fjárnám var gert í skuldabréfi sem Hannes hafði gefið út á Kjartan Gunnarsson, vegna húseignar Hannesar á Hringbraut. Innlent 23.10.2005 15:02
Höfuðslæðum vex ásmegin Stöðugt fleiri norskar stúlkur sem aðhyllast íslam kjósa að ganga með höfuðslæður í skólanum, að því er dagblaðið Dagsavisen hermir. Erlent 23.10.2005 15:02
Einn af íslensku bergi brotinn Einn mannanna sjö sem handteknir voru í gær í húsleit bresku lögreglunnar er af íslensku bergi brotinn. Hann er þó ekki íslenskur ríkisborgari lengur. Fjársvikin sem um ræðir nema um þremur milljónum punda, eða 324 milljónir íslenskra króna. Innlent 23.10.2005 15:02
Neitar lögum um meðferð fanga George Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að lög sem fjalla um meðferð stríðsfanga taki gildi. Í brýnu gæti slegið með honum og Bandaríkjaþingi í kjölfar þess að þingið samþykkti lögin í gær. Innlent 23.10.2005 15:02
Íslendingar stela mestu Alþjóðleg könnun meðal evrópskra smásöluverslunareiganda sýnir að íslenskt verslunarstarfsfólk stelur meiru frá atvinnurekendum sínum en starfsfólk annarra landa vestur og mið-Evrópu. Íslenskir eigendur telja að starfsfólk sitt valdi um 40 prósentum af rýrnun vegna þjófnaðs. Innlent 23.10.2005 15:02
Tillögu um uppsögn frestað Tillögu um að segja Ársæli Guðmundssyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, upp störfum sem bera átti upp á sveitarstjórnarfundi í dag var frestað til næsta fundar. Að sögn Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar, sem hugðist bera fram tillöguna, náðist sátt um þetta eftir að Ársæll Guðmundsson, sem er fulltrúi vinstri - grænna, baðst afsökunar á orðum sínum í garð Gísla og annarra sveitarstjórnarmanna í tengslum við deilur um það að Ársæli var synjað um ferðastyrk til þess að sækja sveitarstjórnarráðstefnu í Brussel. Innlent 23.10.2005 15:02
Ráðherra til fundar um bensínstyrk Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að funda með forystumönnum Öryrkjabandalagsins um afnám bensínstyrks til hreyfihamlaðra öryrkja og ellilífeyrisþega eftir helgi. > Innlent 23.10.2005 17:31
Fjárnám gert í eignum Hannesar Fjárnám var gert í dag í eignum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem breskir dómstólar dæmdu fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns. Innlent 23.10.2005 15:02
Mikil óvissa um úrslit Um 23.000 íbúar í níu sveitarfélögum í Eyjafirði munu kjósa um sameiningu sveitarfélaga á laugardag. Flestir fulltrúar sameiningarnefndar þessara sveitarfélaga búast við almennri þátttöku. Það er einna helst að óttast sé að hún verði dræm á Akureyri. Innlent 23.10.2005 15:02
Hvíta húsið gæti stöðvað lögin Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að herða reglur um meðferð fanga sem stjórnin hefur í varðhaldi. Talsmaður Hvíta hússins segir að forsetinn muni beita neitunarvaldi til að stöðva frumvarpið. Erlent 23.10.2005 15:02
Kyrkislanga réðst á krókódíl Í Everglades þjóðgarðinum á Flórída mættust tvær skepnur sem fæstir vildu mætast: risavaxin kyrkislanga og krókódíll. Svo virðist sem fjögurra metra löng slangan hafi ráðist á nærri tveggja metra langan kródódílinn og reynt að éta hann. Hún gleypti hann hálfan en sprakk þá með þeim afleiðingum að bæði dýrin drápust. Erlent 23.10.2005 15:02
Verkfall vofir yfir á Akranesi Starfsemi leikskóla og fleiri stofnana á Akranesi raskast verulega ef verkfall um 150 félagsmanna í Starfsmannafélagi Akraness skellur á, á miðnætti á sunnudaginn, eins og útlit er fyrir. Starfsmenn Akranesbæjar kolfelldu kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu í gær, með 75 prósentum atkvæða, aðallega vegna óánægju með starfsnám. Innlent 23.10.2005 15:02
Tekur fyrir uppsagnartillöguna Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í dag taka afstöðu til tillögu sem Gísli Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar, hyggst leggja fram um uppsögn Ársæls Guðmundssonar, sveitarstjóra Skagafjarðar. Innlent 23.10.2005 15:02
Áreiðanleikakönnun fylgi fjárlögum Óskað var eftir því að fjármálaráðherra pantaði áreiðanleikakönnun til að framvísa með fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í dag og bent var á að forsendur fjárlagafrumvarpa stæðust iðulega ekki skoðun. Þá var ráðherra sakaður um auglýsingamennsku við kynningu frumvarpsins. Innlent 23.10.2005 15:02
Keppst um 1. sætið hjá Framsókn Enn bætist á lista þeirra sem stefna á 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Linda Bentsdóttir, forstöðumaður hjá Frjálsa fjárfestingabankanum, hefur nú ákveðið að gefa kost á sér í sætið en hún hefur undanfarin ár starfað inna flokksins. Innlent 23.10.2005 15:02
Hannes selur hús sitt á Hringbraut Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor hefur selt hús sitt við Hringbraut fyrirtæki í eigu Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Enskur dómur hefur úrskurðað að Hannes skuli greiða Jóni Ólafssyni tólf milljónir í bætur fyrir meiðyrði. Innlent 23.10.2005 15:02
Ársæli verður líklega sagt upp Allt útlit er fyrir að Ársæli Guðmundssyni, vinstri - grænum, verði sagt upp störfum sem sveitarstjóra Skagafjarðar á fundi sveitarstjórnar sem hófst upp úr klukkan fjögur. Innlent 23.10.2005 15:02
15 mánuðir fyrir nauðgunartilraun Maður á þrítugsaldri var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir tilraun til nauðgunar. Hann réðst á jafnöldru sína á réttarballi í Biskupstungum haustið 2004 og beitti hana talsverðu ofbeldi og hafði í hótunum við hana. Tilviljun réð því að hann kom ekki fram vilja sínum og fullframdi brotið, en maður kom aðvífandi og við það flúði hann af vettvangi. Innlent 23.10.2005 15:02
110 uppreisnarmenn handsamaðir Bandarískar hersveitir hafa handsamað hundrað og tíu uppreisnarmenn í borginni Haklanía í Írak undanfarna tvo daga. Vel á þriðja þúsund hermanna hafa gengið í hvert hús í borginni sem er eitt helsta vígi uppreisnarmanna við landamæri Sýrlands. Erlent 23.10.2005 15:02
Helmingur studdi stjórnarskrá ESB Samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem birtar voru í vikunni studdi rétt innan við helmingur íbúa Evrópusambandsins stjórnarskrársáttmála þess, skömmu áður en Frakkar og Hollendingar felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslum snemmsumars. Erlent 23.10.2005 15:02
Húsleitin gerð hjá Skúlason ehf. Fyrirtækið sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá í gær að beiðni bresku lögreglunnar heitir Skúlason ehf. og er til húsa að Laugavegi 26. Fyrirtækið er að miklum meirihluta í eigu UK Ltd. í Bretlandi og svo Vestmannaeyjabæjar. Innlent 23.10.2005 15:02
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti