Fréttir

Fréttamynd

Skemmdu jólaskreytingu við Akureyrarkirkju

Tveir unglingsstrákar, 15 og 16 ára, réðust á jólaskreytingu á tröppunum fyrir framan Akureyrarkirkju um þrjúleytið í nótt og brutu þar og skemmdu allt sem hönd á festi. Lögreglu var tilkynnt um athæfið og kom á vettvang, en piltarnir reyndu þá að komast undan.

Innlent
Fréttamynd

Felldu níu talibana í Afganistan

Afganskar lögreglusveitir felldu níu talibana í þriggja klukkustunda skotbardaga í suðurhluta landsins í gær. Þá voru sex uppreisnarmenn handteknir. Í nærliggjandi héraði keyrðu vígamenn upp að hópi lögreglumanna og vegfarenda og skutu á þá. Tveir vegfarendur féllu og einn lögregluþjónn. Þá særðust tveir í árásunum.

Erlent
Fréttamynd

Enn óljóst hvað olli brunanum á Ísafirði

Ekki liggur enn fyrir hvað olli eldsvoða í íbúðarhúsi við Aðalstræti á Ísafirði í fyradag, þar sem einn íbúi hússins fórst. Lögreglumenn frá Ísafirði ásamt tæknimönnum frá lögreglunni í Reykjavík unnu að rannsókn málsins fram á kvöld í gærkvöldi, en niðurstaða liggur ekki fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Rúmensk stjórnvöld hafa ekkert að fela

Forseti Rúmeníu, Traian Basescu, segir engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, hafa verið í landinu. Sagði forsetinn að hann myndi leyfa utanaðkomandi rannsókn til að sanna að þarlens stjórnvöld hefðu ekkert að fela.

Erlent
Fréttamynd

185 milljónum veitt í erfðafræðirannsóknir og örtækni

Hundrað áttatíu og fimm milljónum var veitt til erfðafræðirannsókna og örtækni í dag. Þau verkefni sem fengu styrk snúa meðal annars að stofnfrumrannsóknum, arfgengu heilablóðfalli, sem er séríslenskur sjúkdómur, og lyfjagjöf í bakhluta auga.

Innlent
Fréttamynd

Ástæða til að kanna fákeppni á matvælamarkaði

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur ástæðu til að kanna hvort ráðandi staða eins aðila á matvælamarkaði sé misnotuð í ljósi þess að þar ríki fákeppni. Eigandi Fjarðarkaups segir styrk Baugs yfirþyrmandi, svo mjög að smáu fyrirtækin séu undir hælnum á heildsölum sem aftur eru undir hælnum á Baugi.

Innlent
Fréttamynd

Rottugangur við leikskóla á Seltjarnarnesi

Rottugangur er við leikskólann Mánabrekku á Seltjarnarnesi og vinna meindýraeyðar og starfsmenn bæjarins að úrbótum. Rotturnar virðast hafa sótt í sandkassa við leikskólann sem nú hafa verið fjarlægðir.

Innlent
Fréttamynd

Sagði dómurunum að fara til fjandans

Gríðarlegur viðbúnaður er vegna réttarhalda yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Réttahöldin héldu áfram í dag en í gær strunsuðu lögfræðingar hans út úr réttarsalnum eftir að hafa verið meinað að tjá sig um réttmæti réttarhaldanna.

Erlent
Fréttamynd

Menntamálaráðherra harðlega gagnrýndur

Þriðja umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag. Fjárlagafrumvarpið hefur ekki tekið breytingum frá annarri umræðu en minnihlutinn hefur þó lagt til fjölmargar breytingatillögur. Menntamálaráðherra var harðlega gagnrýndur við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa tjáð sig í fjölmiðlum um nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið, áður en því var dreift í þinginu.

Innlent
Fréttamynd

130 látnir eftir flugslysið í Íran

Að minnsta kosti eitt hundrað og þrjátíu manns fórust í flugslysinu í Íran í dag þegar herflugvél skall á íbúðabyggingu í Teheran, höfuðborg landsins. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar en fjölmargir eru slasaðir.

Erlent
Fréttamynd

Jafnt hjá Chelsea og Liverpool

Chelsea og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í tíðindalausum og hörðum leik á Stamford Bridge í kvöld og því hélt Liverpool toppsætinu í riðlinum. Rangers náðu að tryggja sér áframhaldandi þáttöku með jafntefli við Inter, en það nægði Skotunum eftir að Artmedia og Porto skyldu jöfn í leik sem hefði aldrei átt að fara fram, svo skelfilegar voru vallaraðstæður.

Sport
Fréttamynd

Haukar lögðu HK

Haukar báru sigurorð af HK í Digranesi í kvöld 28-23 og eru komnir í undanúrslitin í SS bikarnum. Renuguhys Cepulis skoraði 7 mörk fyrir HK og Valdimar Þórsson 6, en hjá Haukum var Guðmundur Pedersen með 11 mörk, þar af 4 úr vítum og Samúel Ívar Árnason var með 6 mörk.

Sport
Fréttamynd

Dramatískur sigur Fram

Fram er komið í undanúrslit SS bikarsins í handbolta eftir dramatískan sigur á Fylki 36-35 eftir tvíframlengdan háspennuleik í Safamýrinni í kvöld. Sigfús Sigfússon skoraði sigurmark Framara þegar ein og hálf mínúta var eftir af framlengingunni.

Sport
Fréttamynd

Liðsskipan liggur fyrir

Nú hafa öll liðin í formúlu 1 kynnt hvaða ökumenn verða í bílstjórasætunum á næsta keppnistímabili, því í dag tilkynnti lið Red Bull að Christian Klien yrði ökumaður þeirra og nýja liðið, Scuderia Toro Rosso verður með ökumennina Vitantonio Liuzzi og Scott Speed.

Sport
Fréttamynd

Kelly Holmes leggur skóna á hilluna

Breska frjálsíþróttakonan Kelly Holmes, sem vann til gullverðlauna í 800 og 1500 metra hlaupi á síðustu Ólympíuleikum, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna með skyndilegum hætti. Holmes sagðist ekki hafa nauðsynlegan vilja til að halda áfram og ákvað því að hætta, auk þess sem hún varð fyrir áfalli í einkalífinu á dögunum þegar maður sem hún hafði nýlega kynnst lést skyndilega.

Sport
Fréttamynd

Chelsea - Liverpool í beinni á Sýn

Lokaumferðin í fjórum riðlum Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld, þar sem leikur Chelsea og Liverpool er stóra viðureign kvöldsins. Leikur Schalke og AC Milan verður í beinni á Sýn Extra, en auk þess eru á dagskrá leikir PSV-Fenerbahce, Lyon-Rosenborg, Olimpiakos-Real Madrid, Betis-Anderlecht, Rangers-Inter og Artmedia-Porto. Bein útsending hefst kl. 19:30 á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi

FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, afhentu forseta Alþingis áskorun í dag þar sem skorað er á þingið að breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki.

Innlent
Fréttamynd

Rafmagnslaust í hluta Garðabæjar

Rafmagnslaust er í hluta Garðabæjar vegna háspennubilunar og eru Flatir og Móar nú myrkvuð, sem og verslunarmiðstöðin Garðatorg og íþróttamiðstöðin. Viðgerð stendur yfir, samkvæmt upplýsingum Orkuveitunnar.

Innlent
Fréttamynd

Spilar með varaliði Reading í kvöld

Íslenski landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson spilar með varaliði Reading í kvöld, en hann spilaði ekki leik í nóvember vegna nárameiðsla. Brynjar lék 45 mínútur með varaliðinu í síðustu viku og mun væntanleika spila eitthvað meira í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Vatnsskortur í austurhluta Mosfellsbæjar

Aðalvatnslögn fyrir austurhluta Mosfellsbæjar fór í sundur fyrir skömmu vegna jarðvinnuframkvæmda. Íbúar á svæðinu gætu því orðið vatnslausir eitthvað fram á kvöld en viðgerð stendur yfir. Vonast er til að vatnslögnin verði komin í samt lag síðar í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Óska eftir stuðningi stjórnvalda

Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja vilja að stjórnvöld leggist á árárnar með íslenskum hátækniiðnaði og sprotafyrirtækjum til að tryggja áhugaverð störf og arðbæran rekstur hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem SÍL sendi frá sér í dag vegna uppsagnanna hjá Hjartavernd og líftæknifyrirtækinu Urður, Verðandi, Skuld á dögunum en fyrirtækin eru meðal stærstu félaga SÍL.

Innlent
Fréttamynd

England í hópi átta efstu

Í dag varð ljóst hvaða átta þjóðir yrðu í efsta sæti styrkleikalistans fyrir dráttinn í riðla á HM í Þýskalandi næsta sumar. Dregið verður í riðla á föstudaginn, en sá viðburður verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. England náði að hreppa sæti í efsta styrkleikaflokki og er forráðamönnum enska knattspyrnusambandsins létt fyrir vikið.

Sport
Fréttamynd

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum ÖSE

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum sem ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, byggist á og þá einkum sjálfstæði hennar á sviði mannréttindamála. Þetta sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra í ræðu sinni á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja ÖSE í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, í dag.

Innlent
Fréttamynd

Enn óljóst um eldsupptök á Ísafirði

Enn er óljóst hvað olli brunanum í tvíbýlishúsi á Ísafirði í gær þar sem karlmaður á sextugsaldri fórst. Tveir lögreglumenn frá Ríkislögreglustjóra komu til Ísafjarðar fyrir hádegi til að aðstoða lögregluna þar við að rannsaka eldsupptök. Að sögn varðstjóra á vakt er ómögulegt að segja til um hvenær rannsókn lýkur.

Innlent
Fréttamynd

Auðveldur sigur San Antonio

Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio burstuðu Orlando á útivelli og unnu þar með fjórða leikinn í röð, en tap Orlando var hið fjórða í röð. Liðið var sem fyrr án Steve Francis, leikstjórnanda síns, og munar um minna.

Sport
Fréttamynd

Fimm sprengjur í vegköntum nærri Madríd

Að minnsta kosti fimm sprengjur sprungu í vegköntum í nágrenni Madrídar á Spáni fyrir stundu. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni en fyrstu fregnir herma að sprengingarnar hafi verið minniháttar.

Erlent
Fréttamynd

Leikskólagjöld lækka um áramót

Leikskólagjöld fyrir áttastunda dag lækka um fimm þúsund krónur á mánuði í Reykjavík frá næstu áramótum og niðurgreiðsla á þjónustu dagforeldra verður aukin.

Innlent
Fréttamynd

Þarf hugsanlega að loka deildum aftur í Kópavogi

Hugsanlegt er að loka þurfi deildum á ný í leikskólum Kópavogsbæjar eftir að ástandið hafði batnað allnokkuð frá því sem það var snemma í haust. Enn vantar í starfsfólk í nokkur stöðugildi og þá hafa nokkrir starfsmenn sagt upp frá og með áramótum.

Innlent
Fréttamynd

Jacob Zuma ákærður fyrir nauðgun

Jacob Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku, hefur verið ákærður fyrir nauðgun. Zuma mætti fyrir rétt vegna málsins í dag en ekki var greint frá ákærunni fyrr en þá.

Erlent