Fréttir
Fjölmenn mótmæli eldri borgara og öryrkja við Alþingishúsið Innlent 9.12.2005 22:29 Sólveig Pétursdóttir segir stjórnvöld geta dregið lærdóm af Falun Gong málinu Umboðsmaður Alþingis telur að annmarkar hafi verið á þeirri ákvörðun stjórnvalda að synja meintum iðkendum Falun Gong landgöngu á sínum tíma. Sá lagagrundvöllur sem íslensk stjórnvöld hafi vísað til hafi ekki veitt þeim fullnægjandi heimildir. Innlent 9.12.2005 22:28 Nýjustu launahækkanir Reykjavíkurborgar eru atlaga að íslensku samfélagi, segir bæjarstjóri Kópavogs Innlent 9.12.2005 22:25 Desembermánuður annamesti tími ársins fyrir starfsfólk kirkjugarða Innlent 9.12.2005 17:40 Félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar Árni Magnússon félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna gagnrýndi ráðherran harðlega á Alþingi í dag. Innlent 9.12.2005 21:51 Van Persie og Benitez bestir í nóvember Framherjinn Robin Van Persie hjá Arsenal var nú í kvöld kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag samþykkti hann svo að framlengja samning sinn við Arsenal til ársins 2011. Persie skoraði þrisvar í úrvalsdeildinni í nóvember, en var einnig iðinn við kolann í bikarkeppninni og í Meistaradeildinni. Sport 9.12.2005 18:49 Eldsupptök í tauklæddum stól í stofu Rannsókn á eldsupptökum í eldsvoðanum á Ísafirði á mánudaginn var er nú lokið. Ljóst er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Einn maður lést í eldsvoðanum en maðurinn fannst í stofunni skammt frá staðnum þar sem eldurinn kom upp. Réttarkrufning hefur farið fram og í ljóst kom að maðurinn lést af völdum reyks sem myndaðist í eldsvoðanum. Innlent 9.12.2005 17:36 Mjólkurverð breytist um áramótin Samkomulag hefur náðst um breytingar á verði mjólkur og mjólkurvara um næstu áramót. Verð til bænda hækkar um 2,9%, eða um 1,28 krónur lítrinn, og því samhliða mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða einnig breytast. Innlent 9.12.2005 17:34 « ‹ ›
Unnur Birna varla búin að átta sig á sigrinum Unnur Birna, ný krýnd Ungfrú heimur, sagði í samtali við NFS fréttastofuna rétt í þessu, að hún sé varla enn búin að átta sig á sigrinum. Unnur sagðist hafa gapað þegar úrslitin voru tilkynnt Innlent 10.12.2005 16:04
Hálka og hálkublettir víða um land Vegagerðin varar við flughálku á Eyrarfjalli, á Ströndum úr Bjarnafirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir eru víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. Þá er einnig hálka og hálkublettir á fáeinum leiðum á Suður- og Vesturlandi en einkum í uppsveitum og á heiðum. Innlent 10.12.2005 16:01
Haukastúlkur bikarmeistarar Haukastúlkur unnu í dag Powerade bikar kvenna í körfubolta þegar þær unnu 14 stiga sigur á Keflavík 77-63 en leikið var í Digranesi. Þrátt fyrir jafnan leik voru Haukastúlkur sterkari aðilinn lengst af. Kesha Tardy var stigahæst Hauka með 28 stig og Helena Sverrisdóttir kom næst með 20 stig. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir stigahæst með 20 stig. Sport 10.12.2005 15:56
Brynjar á bekknum hjá Reading Ívar Ingimarsson er að vanda í byrjunarliði Reading sem er 1-0 yfir gegn Brighton í ensku 1. deildinni í fótbolta. Brynjar Björn Gunnarsson hefur jafnað sig af meiðslum og er á varamannabekk Reading eftir að hafa skorað fyrir varalið félagsins í vikunni. Sport 10.12.2005 15:45
Eiður á bekknum hjá Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea sem leikur nú etur kappi við Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en 8 leikir eru á dagskrá deildarinnar í dag. Athygli vekur að ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini er í byrjunarliði Chelsea í fyrsta sinn í deildinni í vetur en Petr Cech vermir varamannabekkinn. Sport 10.12.2005 15:22
Unnur Birna í skýjunum yfir sigrinum Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var valin Ungfrú heimur í Sanya í Kína í dag. Alls kepptu 102 stelpur frá jafnmörgum þjóðlöndum í keppninni en aðeins 15 þeirra komust í úrslit. Innlent 10.12.2005 15:08
Alþjóða kjarnorkustofnunin og framkvæmdarstjóri hennar fá friðarverðlaun Nóbels í ár Alþjóða kjarnorkumálastofnunin og framkvæmdarstjóri hennar, Mohamed ElBaradei, fá friðarverðlaun Nóbels í ár. EIBaradei og Alþjóða kjarnorkumálastofnunin fá friðarverðlaunin fyrir að hafa beitt sér gegn útbreiðslu kjarnaorkuvopna og fyrir að stuðla öruggri notkun kjarnorku. EIBaradei og Yukiya Amano, stjórnarformaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, tóku á móti verðlaununum við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Osló fyrr í dag. Erlent 10.12.2005 14:53
Liverpool í 2. sætið Liverpool náði í dag 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið sigraði Middlesbrough 2-0. Fernando Morientes skoraði bæði mörk Liverpool með 5 mínútna millibili, á 72. og 77. mínútu leiksins. Liverpool er með 31 stig í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn, níu stigum á eftir toppliði Chelsea. Sport 10.12.2005 14:51
Jakob bætti eigið Íslandsmet Jakob Jóhann Sveinsson bætti eigið Íslandsmet í 50 metra bringusundi um 11 sekúndubrot á Evrópumeistaramótinu í sundi í Trieste á Ítalíu í morgun. Hann synti á 28.22 sek. og varð í 28. sæti af 40 keppendum í undanrásum. Sport 10.12.2005 14:19
Iverson með 43 stig Allen Iverson skoraði 43 stig og Kyle Korver jafnaði presónulegt stigamet með 26 stigum fyrir Philadelphia 76ers í NBA körfuboltanum í nótt þegar liðið batt enda á fjögurra leikja samfellda ósigurgöngu sína með 119-115 sigri á Charlotte Bobcats. 10 leikir fóru fram í deildinni í nótt. Sport 10.12.2005 14:01
Hlíðarfjall opið í dag Skíðafólk norðan heiða ættu að geta gert sér glaðan dag í Hlíðarfjalli í dag. Skíðafæri er ágætt, flestar lyftur verða í gangi og göngubrautin er troðin. Opið er í Hlíðarfjalli til kukkan fimm í dag en skíðadegi Skíðafélags Akureyrar og Útilífs er frestað um viku ásamt vígslu snjóframleiðslukerfis. Innlent 10.12.2005 13:39
Til greina kemur að endurskoða þátttöku Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri segir koma til greina að endurskoða þátttöku í launanefnd sveitarfélaga, í kjölfar samninga sem Reykjavíkurborg gerði við starfsmenn sína. Innlent 10.12.2005 12:19
Fjárlagafrumvarpið í uppnámi Hvorki gengur né rekur að berja saman nýtt fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið. Forsætisráðherra Bretlands segir að náist ekki samkomulag í næstu viku, varpi það stórum skugga á Evrópusambandið. Erlent 10.12.2005 12:09
Sjö handteknir á Spáni Spænska lögreglan handtók í gær sjö menn sem talið er að hafi fjármagnað aðgerðir hryðjuverkasamtaka sem tengjast al-Kæda. Málið teygir sig víðar og búist er við fleiri handtökum í Evrópu á næstunni. Innlent 10.12.2005 12:08
Hálka víða um land Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víða um land en á Suður- og Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á fáeinum leiðum, aðallega í uppsveitum og á heiðum. Á Vestfjörðum er flughált á Dynjandisheiði, á Eirarfjalli og á Ströndum úr Bjarnarfirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og eins á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. Innlent 10.12.2005 09:16
40% stjórnarmanna norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum Fjórir af hverjum tíu stjórnarmönnum norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum. Gangi það ekki eftir mega fyrirtæki búast við sektum eða að vera hreinlega lokað. Erlent 9.12.2005 22:53
Rauðu strætisvagnarnir teknir af götum London Hann er stór, rauður og jafn breskur og te og drottningin. En nú er hann horfinn, heyrir hann sögunni til og fæst fyrir slikk. Hver kannast ekki við þessi vinalegu hljóð, þetta mal sem heyrst hefur í hundruðum kvikmynda og á tepptum götum Lundúnaborgar í áratugi? Routemaster heitir hann, frægasti strætisvagn sögunnar og en vél getur verið þjóðsagnapersóna þá er hann það. Erlent 9.12.2005 22:48
25 ár eru liðin frá því að John Lennon var myrtur Það eru tuttugu og fimm ár frá því að John Lennon var myrtur og aðdáendur hans komu saman í skammt frá heimili Lennons í New York í gærkvöldi til að minnast hans. Fólkið safnaðist saman í hluta Central Park sem kallast Strawberry Fields, og þangað kom einnig ekkjan Yoko Ono og skildi eftir hvít blóm. Erlent 9.12.2005 22:41
Myndir birtar af nýja norska prinsinum Í Noregi voru birtar myndir í dag sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Það eru þessar myndir af prinsinu Sverri Magnúsi, syni þeirra Hákons krónprins og eiginkonu hans, Mette-Marit. Sverrir fæddist á laugardaginn var og er annað barn þeirra hjóna, en fyrir á Mette-Marit soninn Maríus. Erlent 9.12.2005 22:37
Vetrarveður í Chicago olli töluverðum vandræðum Vitlaust veður á bandarískan mælikvarða olli töluverðum vandræðum víða vestan hafs í gær. Frost og allt að 25 sentimetra jafnfallinn snjór voru til vandræða en alvarlegasta atvikið var án efa þegar Boeing 737 farþegaþota með 90 manns innanborðs brunaði út af flugbraut í lendingu í Chicago. Erlent 9.12.2005 22:35
Íslendingar á förum frá Afganistan Íslendingar eru á förum frá Afganistan er Norðmenn ætla að fjölga í liði sínu. Tilgangurinn er að veita friðargæsluliðum aukna vörn, en Stoltenberg sagði ekki hversu margar þotur yrðu sendar. Erlent 9.12.2005 22:33
Tekjur af stimpilgjöldum fasteignaviðskipta rjúka upp Tekjur ríkissjóðs af stimpilgjöldum vegna fasteignaviðskipta hafa rokið upp. Árið 2003 voru þær rúmir 3,7 milljarðar en í fyrra rúmir 6,4 milljarðar. Fyrstu tíu mánuði þessa árs námu þær 7,6 milljörðum króna. Innlent 9.12.2005 22:30
Sólveig Pétursdóttir segir stjórnvöld geta dregið lærdóm af Falun Gong málinu Umboðsmaður Alþingis telur að annmarkar hafi verið á þeirri ákvörðun stjórnvalda að synja meintum iðkendum Falun Gong landgöngu á sínum tíma. Sá lagagrundvöllur sem íslensk stjórnvöld hafi vísað til hafi ekki veitt þeim fullnægjandi heimildir. Innlent 9.12.2005 22:28
Nýjustu launahækkanir Reykjavíkurborgar eru atlaga að íslensku samfélagi, segir bæjarstjóri Kópavogs Innlent 9.12.2005 22:25
Félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar Árni Magnússon félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna gagnrýndi ráðherran harðlega á Alþingi í dag. Innlent 9.12.2005 21:51
Van Persie og Benitez bestir í nóvember Framherjinn Robin Van Persie hjá Arsenal var nú í kvöld kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag samþykkti hann svo að framlengja samning sinn við Arsenal til ársins 2011. Persie skoraði þrisvar í úrvalsdeildinni í nóvember, en var einnig iðinn við kolann í bikarkeppninni og í Meistaradeildinni. Sport 9.12.2005 18:49
Eldsupptök í tauklæddum stól í stofu Rannsókn á eldsupptökum í eldsvoðanum á Ísafirði á mánudaginn var er nú lokið. Ljóst er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Einn maður lést í eldsvoðanum en maðurinn fannst í stofunni skammt frá staðnum þar sem eldurinn kom upp. Réttarkrufning hefur farið fram og í ljóst kom að maðurinn lést af völdum reyks sem myndaðist í eldsvoðanum. Innlent 9.12.2005 17:36
Mjólkurverð breytist um áramótin Samkomulag hefur náðst um breytingar á verði mjólkur og mjólkurvara um næstu áramót. Verð til bænda hækkar um 2,9%, eða um 1,28 krónur lítrinn, og því samhliða mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða einnig breytast. Innlent 9.12.2005 17:34