Fréttir
Methækkun hlutabréfa á Indlandi Gengi hlutabréfa hækkaði um 6,9 prósent á mörkuðum á Indlandi í dag og er það methækkun hlutabréfa á einum degi. Gengi bréfanna hafði lækkað mikið síðastliðna þrjá daga og því var hækkuninni tekið fagnandi, að sögn sérfræðinga. Viðskipti erlent 15.6.2006 11:23
Taylor verður fangelsaður í Bretlandi Bretar hafa lofað því að fangelsa Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, verði hann sakfelldur fyrir stríðsglæpi. Þar með verður hægt að hefja réttarhöld yfir Taylor fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Taylor er nú í haldi í Sierra Leone, nágrannaríki Líberu. Erlent 15.6.2006 10:02
Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar funda Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í gær á aðalfundi stofnunarinnar. Nokkur stærstu lönd í mið- og Austur-Asíu eiga aðild að stofnuninni, Kína, Rússland, Tajikistan, Kasakstan, Kyrgistan og Úsbekistan. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. Erlent 15.6.2006 09:33
Skotárás í Karachi Þrír féllu og tveir særðust þegar byssumenn réðust á bifreið á vegum pakistönsku lögreglunnar í hafnarborginni Karachi í morgun. Meðal þeirra sem féllu var einn yfirmanna fangelsismála í borginni. Erlent 15.6.2006 09:31
Smásöluverslun jókst um 0,5 prósent Velta í smásöluverslun í Bretlandi jókst um 0,5 prósent í maí, samkvæmt útreikningum hagstofu Bretlands. Helsta ástæða hækkunarinnar er aukin viðskipti með fatnað og raftæki. Verslunareigendur í Bretlandi segjast hafa tekið eftir aukinni sölu plasma-sjónvarpa og fótboltabola með merki enska landsliðsins. Viðskipti erlent 15.6.2006 10:42
Heimsmeistarakeppni vélmenna Það er um fátt annað talað en heimsmeistarakeppnina í fótbolta, og því fer ekki hátt að það er önnur heimsmeistarakeppni sem fer fram þessa dagana, einnig í Þýskalandi. Í óformlegri heimsmeistarakeppni sem nefnist Robocup eru keppendurnir ekki mennskir og ekki einu sinni lifandi, heldur vélmenni með gervigreind. Erlent 15.6.2006 09:18
Áhyggjur af fríblaði Dagsbrúnar Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að byrja að gefa út í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til að endurskoða stuðning sinn við hin hefðbundnu dagblöð. Innlent 15.6.2006 09:17
2,5 prósenta verðbólga á evrusvæðinu Verðbólgan mældist 2,5 prósent á evrusvæðinu í maí, samkvæmt útreikningum Evrópusambandsins (ESB). Þetta er 0,1 prósenti meiri verðbólga en mældist á svæðinu í apríl. Viðskipti erlent 15.6.2006 10:03
Hugmyndin andvana fædd Framkvæmdarstjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. Innlent 15.6.2006 09:12
Framlegð í sjávarútvegi aukist Framlegð í sjávarútvegi hefur aukist áberandi meira en í öðrum greinum síðastliðna sex mánuði og horfur til næstu sex mánaða eru einnig bestar í sjávarútvegi, samkvæmt ársfjórðungslegri könnun, sem Gallup gerir í samvinnu við Samtök atvinnulífsins. Innlent 15.6.2006 09:03
Forsætisráðherraskipti í dag Í dag lætur Halldór Ásgrímsson af störfum sem forsætisráðherra og ríkisstjórn Geirs H. Haarde tekur við. Ríkisráðsfundur hófst kl. 12 á hádegi og eftir það verður gengið til hádegisverðar í boði forseta Íslands. Þá sest ný ríkisstjórn á ríkisráðsfund þar sem Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. Innlent 15.6.2006 09:22
Sprenging í Istanbúl Sprengja sprakk í miðbæ Istanbúl í morgun. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í ruslatunnu fyrir utan stoppistöð strætisvagna. Þrír eru taldir slasaðir en ekki er vitað hversu illa. Erlent 15.6.2006 09:01
Hamas-samtökin sökuð um glæpi gegn Palestínumönnum Mohammed Dahlan, einn af áhrifamönnum Fatha-hreyfingarinnar, sakaði í gær Hamas-samtökin um glæpi gegn Palestínumönnum og sagði þeim hafa mistekist að stýra sjálfsstjórnarsvæðunum. Dahlan hefur mikil áhrif innan Fatha-hreyfingarinnar en er óbreyttur þingmaður eftir að Hamas vann þingkosningarnar í janúar á þessu ári. Erlent 15.6.2006 08:56
Síamstvíburar aðskildir Tæplega sólarhringslangri aðgerð sem gerð var til að aðskilja síamstvíbura lauk í nótt. Aðgerðin þykir hafa heppnast vel en hún var gerð á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum. Systurnar voru fastar saman frá neðra brjóstholi niður að mjaðmagrind. Aðgerðin þótti einstaklega flókin þar sem endurskapa þurfti mörg mikilvæg líffæri en önnur stúlknanna var aðeins með eitt nýra. Erlent 15.6.2006 07:37
Kjaraviðræður í hnút blasa við nýrri ríkisstjórn Kjaraviðræður í hnút blasa við nýrri ríkisstjórn, sem formlega tekur til starfa eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í hádeginu. Verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á sérstakt skattþrep fyrir hina lægst launuðu, en því hefur ríkisstjórnin hafnað. Það kom svo verkalýðshreyfingunni í opna skjöldu í gær þegar Samtök atvinnulífsins sögðust ekki styðja lægra skattþrep, þannig að endurskoðun kjarasamninga er komin í hnút að mati þeirra sem að henni standa. Innlent 15.6.2006 07:46
Fíkniefni fundust við leit í bílum á Akureyri Lögreglan á Akureyri fann fíkniefni við leit í tveimur bílum sem stöðvaðir voru við eftirlit í nótt. Í hvorugu tilvikinu var þó um verulegt magn að ræða, en ökumenn beggja bílanna voru handteknir en sleppt að loknum yfirheyrslum. Innlent 15.6.2006 07:33
Samningar Icelandair og sænska ríkisins Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. Unnið hafi verið að honum í töluverðan tíma en hann verður undirritaður í Stokkhólmi á morgun. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um verðmæti samningsins en að sögn Sigmundar ræðst það fyrst og fremst af því hve mikið starfsmenn sænska ríkisins muni fljúga á áðurnefndum flugleiðum. Samningurinn er til eins árs en að sögn Sigmundar er það venja hjá sænska ríkinu hvað varðar flugsamninga að gera ekki lengri samninga en það. Innlent 15.6.2006 07:30
Krían ekki orpin Krían er ekki enn farin að verpa, en væri orpin fyrir hálfum mánuði í venjulegu árferði. Svipaða sögu er að segja af sílamávi og ritu. Fuglaáhugamenn telja þetta stafa af skorti á sandsíli í sjónum, sem er aðalfæða þessara fuglategunda. Mikill ungadauði var hjá kríunni í fyrrasumar vegna fæðuskorts en nú gæti farið svo að hún verpti alls ekki, en um 300 þúsund kríupör komu hingað til lands í vor til að verpa. Innlent 15.6.2006 07:27
Allt að 69% verðmunur á frumlyfjum og samheitalyfjum Verðmunur á frumlyfjum og samheitalyfjum með sömu verkun var allt að 69 prósent í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í ellefu lyfjaverslunum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Könnunin var gerð í samráði við Landlæknisembættið. Verðið var oftast lægst í Garðsapóteki en oftast hæst í Skipholtsapóteki og Lyfjum og heilsu í Hamraborg. Fólk sem fer með lyfseðla frá læknum í apótek getur spurt hvort samheitalyf með sömu verkun sé í boði og á þá rétt á að fá það í stað frumlyfsins þótt læknirinn hafi vísað á frumlyf. Innlent 15.6.2006 07:19
Átök milli fótboltaáhugamanna í Dortmund Þýska lögreglan handtók í gær nokkur hundruð knattspyrnuáhugamenn eftir að til átaka kom milli þeirra. Fyrstu fimm dagar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu höfðu farið friðsamlega fram. Í gær sauð hins vegar upp úr hjá stuðningsmönnum Þjóðverja og Pólverja fyrir leik liðanna sem fram fór í Dortmund. Upptök slagsmálanna virðist mega rekja til aðgerða lögreglu sem skyggði á sjónvörp sem knattspyrnuáhugamenn voru að reyna að fylgjast með. Alls handtók lögreglan um þrjúhundruð manns. Erlent 15.6.2006 07:22
Fatah sakar Hamas um glæpi gegn almenningi í Palestínu Mohammed Dahlan, einn af áhrifamönnum Fatah-hreyfingarinnar, sakaði í gær Hamas-samtökin um glæpi gegn Palestínumönnum og sagði þeim hafa mistekist að stjórna Palestínu. Dahlan þykir hafa mikil áhrif innan Fatah-hreyfingarinnar en er óbreyttur þingmaður eftir að Hamas vann þingkosningarnar í janúar á þessu ári. Í gær ruddust tugir Palestínumanna inn í palestínska þingið og réðust á þingmenn Hamas-hreyfingarinnar til að mótmæla því að hafa ekki fengið laun sín greidd í rúma þrjá mánuði. Erlent 15.6.2006 07:11
Icelandair semur við sænska ríkið Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. Innlent 14.6.2006 22:19
Segir það ekki hlutverk sjóðanna að byggja og reka hjúkrunarheimili Framkvæmdarstjóri Landsamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. Innlent 14.6.2006 20:55
Vill að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara 70,8% þjóðarinnar er hlynt því að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara, samkvæmt nýlegri Gallup könnun. Helgi Vilhjálmsson, stjórnarmaður í Aðstandendafélagi aldraðra, vill lífeyrissjóðirnir skili hluta tekna sinna aftur til sjóðsþega með þessum hætt Innlent 14.6.2006 20:50
Miklar breytingar á sendiherraskipan Miklar breytingar verða gerðar á sendiherraskipan íslensku utanríkisþjónustunnar á næstunni. Ráðuneytið sendi frá tilkynningu síðdegis þar sem greint er frá þeim sem nú þegar hafa verið ákveðnar. Innlent 14.6.2006 20:39
Karlmaður sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni Karlmaður á fimmtugsaldri var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af ákæru um kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni. Maðurinn átti að hafa lagst ofan á dóttur sína, sem þá var tíu ára gömul, girt niður um hana og sett getnaðarlim sinn í leggöng hennar. Maðurinn hefur alla tíð neitað sök í málinu. Í dómnum kemur fram að orð standi gegn orði hjá stúlkunni og föður hennar. Innlent 14.6.2006 19:43
Sullenberger býst við afsökunarbeiðni Einar Þór Sverrisson, lögmaður Jóhannesar Jónssonar Í Bónus, segir að þrátt fyrir að Ríkissaksóknari telji ekki grundvöll fyrir frekari rannsókn á kæru Jóhannesar, á hendur Jóni Gerald Sullenberger, fyrir rangar sakagiftir, sé það enn mat Jóhannesar að Sullenberger hafi borið hann röngum sökum. Jóhannes hefur ákveðið að óska eftir frekari rökstuðningi frá Ríkissaksóknara vegna þessarar niðurstöðu. Innlent 14.6.2006 19:12
Íslensk börn of feit Eitt af hverjum tíu íslenskum börnum á aldrinum þriggja til sex ára er of feitt. Þróunin versnar eftir því sem börnin verða eldri. Á grunnskólaaldri er allt að fjórðungur barna of þungur. Fleiri þjást af offitu í heiminum en vannæringu. Innlent 14.6.2006 17:59
Mótmæla fyrirhuguðum hrefnuveiðum Hvalaskoðunarsamtök Íslands mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa veiðar á 50 hrefnum hér við land á þessu ári. Greint var frá þessari ákvörðun sjávarútvegsráðherra í gær og eiga veiðarnar að hefjast á næstu dögum. Innlent 14.6.2006 17:01
Föroyabanki PF skráður í Kauphöll Íslands Föroyabanki PF er frá og með deginum í dag skráður í Kauphöll Íslands. Er þess vænst að í kjölfarið muni viðskipti með færeysk bréf aukast. Kauphallaraðilar eru með þessu orðnir 25, en fimm af þeim eru erlendir. Føroya Banki P/F verður aðili að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. Innlent 14.6.2006 16:21