Fréttir

Fréttamynd

Veittist að Árna Johnsen

Þjóðhátíðargestur veittist að Árna Johnsen í brekkusöngnum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og hrifsaði af honum hljóðnemann. Litlu mátti muna að illa færi þegar flugeldur fór í tjald þar sem inni voru þrjú börn auk annarra.

Innlent
Fréttamynd

Íkveikja í Vogum

Kveikt var í fiskikari við iðnaðarhúsnæði í Vogum á síðdegis í gær. Talsverður hiti myndaðist en eldurinn náði ekki að læsa sig í húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn á ofsahraða með nýtt skírteini

Ungur ökumaður, sem hefur haft ökuskírteini í ellefu daga, var stöðvaður á Reykjanesbraut í gærkvöldi eftir að bifreið hans hafði mælst á 141 kílómetra hraða, tvöfalt meira en leyfilegum 70 kílómetra hámarkshraða.

Innlent
Fréttamynd

Lopez Obrador vill endurtelja atkvæði að fullu

Frambjóðandi vinstrimanna í nýafstöðnum forsetakosningum í Mexíkó hafnar niðurstöðu hæstaréttar landsins um að fyrirskipa endurtalningu atkvæða einungis að hluta. Andres Manuel Lopez Obrador hvatti stuðningsmenn sína í gær til þess að halda áfram mótmælaaðgerðum sínum í miðborg Mexíkóborgar, þar sem tugþúsundir manna hafa stöðvað bæjarlíf undanfarna daga. Kosningarnar fóru fram 2. júlí og samkvæmt opinberum niðurstöðum hlaut hægrimaðurinn Felipe Calderon nauman meirihluta.

Erlent
Fréttamynd

Kviknaði í tjaldi í Eyjum

Hátíðarhöldum á all flestum útihátíðum lauk formlega í gærkvöldi. Á Akureyri voru níu teknir með fíkniefni sem þýðir að alls hafa sextíu og fjögur fíkniefnamál komið upp þar um helgina. Í Vestmannaeyjum skall hurð nærri hælum þegar flugeldur lenti á einu tjaldanna í dalnum.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu manns létust í Suður-Líbanon

Friðarviðræðrur vegna átakanna Líbanon falla í skuggann af stanslausum árásum Hizbollah-liða og Ísraelshers. Ellefu óbreyttir borgarar létust í árásum Ísraelshers á Suður-Líbanon í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á konu og hún rænd

Ráðist var á konu í Reykjavík í morgun, hún barin og rænd. Árásarmennirnir létu sig hverfa með veskið sem í voru peningar og kort.

Innlent
Fréttamynd

Kona lést í bílslysi

Kona á fertugsaldri lést í árekstri á Suðurlandsvegi austan við Selfoss um klukkan hálf eitt í nótt. Konan var undir stýri fólksbíls sem lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt.

Innlent
Fréttamynd

Castro á batavegi

Varaforseti Kúbu segir að Fídel Castro forseti sé á batavegi. Carlos Lage sagði í viðtali við fréttamenn í Bólivíu að Castro hefði gengist undir flókna skurðaðgerð vegna innvortist blæðinga.

Erlent
Fréttamynd

Skoða hvort aðgerðir lífeyrissjóðanna sé löglegar

Öryrkjabandalag Íslands fundar í næstu viku með lögfræðingi til að fá úr því skorið hvort boðaðar aðgerðir lífeyrissjóðanna um niðurfellingu örorkulífeyris standist lög. Eins og fram hefur komið í fréttum fengu um 2500 öryrkjar bréf í síðustu viku þar sem þeim var tilkynnt að greiðslu örorkulífeyris til þeirra yrði hætt eða veruleg skerðing frá og með 1. nóvember næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Vill útrýma kjarnorkuvopnum

Borgarstjórinn í Hiroshima hvatti til þess í dag að öllum kjarnorkuvopnum yrði útrýmt. 61 ár er í dag liðið síðan kjarnorkusprengju var varpað á borgina.

Erlent
Fréttamynd

Segir aðgerðir lögreglu á Kárahnjúkum ólöglegar

Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður, segir aðgerðir lögreglu á Kárahnjúkasvæðinu stangast á við ákvæði stjórnarskrárinnar. Mótmælendur fullyrða að lögregla komi í veg fyrir að þeim séu færðar vistir, beiti þá harðræði og hindri ferðir fólks til mótmælabúðanna.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert lát á átökum Hizbollah og Ísraelshers

Ekkert lát virðist vera á átökum Hizbollah-liða og Ísraelshers. Hizbollah-skæruliðar skutu fjölda eldflauga á norðurhluta Ísreals í morgun með þeim afleyðingum að tíu manns létu lífið og níu særðust. Seinni partinn í dag lést einn maður og 30 særðust í eldflaugaárás á borgina Haifa.

Erlent
Fréttamynd

Drasl í Raufarhólshelli

Það er draslaralegt um að litast í Raufarhólshelli í Ölfushreppi sem er fullur af rusli og drasli eftir tökur á kvikmyndinni Astrópíu. Tiltekt stóð yfir í hellinum á sjötta tímanum í dag. Ekki er hægt að segja að fyrsti spölurinn um Raufarhólshelli hafi verið mjög grýttur í dag, líkt og varað er við á skilti fyrir utan hann. Innar í hellinum tók við spýtnabrak, stálull og trégrindur, plastpokar og gosflöskur. Yfir einu opi hellisins hafði einnig verið komið fyrir trégrind. Ferðamenn hafa ekki verið par ánægðir með þessa nýju ásýnd Raufarhólshellis. Lögreglan í Árborg kannaðist ekki við að hafa fengið neinar tilkynningar um þennan slælega frágang seinni partinn í dag og vísaði á landeigendur. Hellirinn er í eigu sveitarfélagsins Ölfus. Að sögn skipulags- og byggingarfulltrúa Ölfuss fengu kvikmyndatökumennirnir leyfi til að nota hellinn svo fremi sem þeir gengju frá eftir sig. Ástæðan fyrir draslinu var að tekið var upp atriði fyrir kvikmyndina Astrópíu í hellinum fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Nú stuttu fyrir fréttir náðist í annan framleiðanda myndarinnar, Júlíus Kemp, þar sem hann var í Raufarhólshelli við tiltektir. Myndin er ævintýragrínmynd sem tekin var upp á ýmsum fallegum stöðum, þar á meðal í Heiðmörkinni og við Kleifarvatn. Búið var að ganga frá á öllum öðrum stöðum en farið var í Raufarhólshellinn í dag. Það er því hægt að róa göngumenn með því að hellirinn verður bráðum sjálfum sér líkur á ný. Myndin Astrópía verður frumsýnd á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Rigning og ein nauðgunartilraun

Veðrið setti strik í reikninginn í Vestmannaeyjum þar sem hluti flugeldasýningarinnar hvarf í þoku og skýjaþykkni. Stúlka var send á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis í Reykjavík eftir að hafa orðið fyrir nauðgunartilraun á Þjóðhátíð í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Þrjár leitað hjálpar eftir nauðgun

Þrjár stúlkur hafa leitað til Afls, systursamtaka Stígamóta, eftir að hafa verið nauðgað á Akureyri um helgina. Þá leituðu tugir manna á bráðamóttöku Fjórðungssjúkrahússins og segist vakthafandi læknir ekki muna aðra eins nótt og þá síðustu.

Innlent
Fréttamynd

Mikið hvassviðri á Tjörnesi

Fellihýsi tókst á loft í miklu hvassviðri á Tjörnesi í dag. Hvort tveggja bíllinn og fellihýsið ultu og urðu minniháttar meiðsl á fólki. Lögreglan á Húsavík varar vegfarendur við hvassviðrinu og ræður fólki frá því að vera þar á ferð með hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagna.

Innlent
Fréttamynd

Náðu aftur stjórn yfir Muttur

Stjórnarherinn í Sri Lanka segist vera búinn að ná stjórn yfir bænum Muttur í norðausturhluta landsins en harðir bardagar hafa geysað þar á milli stjórnarhersins og Tamíl-Tígranna undanfarna daga. Rún Ingvarsdóttir.

Erlent
Fréttamynd

Óásættanlegt að hætta að auðga úran

Stjórnvöld í Íran segja nýjustu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi kjarnorkuáætlun landsins vera óásættanlega. Í ályktuninni er þess krafist að Íranar hætti að auðga úran. Stjórnvöldum er gefinn frestur til ágústloka til að hætta við kjarnorkuáætlun sína, ella verði landið beitt efnahagslegum og pólitískum þvingunum. Asefi, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði ályktunina ólöglega og ganga gegn réttindum Írans. Hann sagði þó að Íranar myndu taka þátt í samningaviðræðum til að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Hins vegar sagði Ali Larijani, yfirmaður samninganefndar Írana, í dag að stjórnvöld myndu frekar víkka út kjarnorkuáætlun sína en hætta við hana, í mótmælaskyni við ályktunina.

Erlent
Fréttamynd

Hátíðahöld ganga víðast vel fyrir sig

Hátíðahöld hafa víðast hvar gengið vel fyrir sig um helgina. Nokkur erill hefur þó verið í sjúkratjöldum og á heilsugæslustöðinni í Vestmannaeyjum þar sem væta hefur sett nokkuð strik í reikninginn.

Innlent
Fréttamynd

Flóð í Eþíópíu

Sjötíu manns létust í morgun í Eþíópíu þegar áin Dire Dawa flæddi yfir bakka sína. Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust alvarlega og yfir hundrað hús eyðilöggðust. Unnið er að björgun íbúa í þorpum í nágrenni árinnar.

Erlent
Fréttamynd

Tvöfalt fleiri á sjúkrahús á Akureyri en í fyrra

Mikill erill var á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í nótt og komur á bráðamóttöku tvöfalt fleiri á miðað við sama dag í fyrra. Þá kom lögreglan upp um 27 fíkniefnamál í gær og í nótt. Annars staðar á landinu fór skemmtanahald vel fram.

Innlent
Fréttamynd

Átök í rénum í bænum Muttur

Stjórnarherinn í Sri Lanka segist vera búinn að ná stjórn yfir bænum Muttur í norðausturhluta landsins. Þúsundir hafa flúið bæinn eftir harða bardaga þar síðustu daga. Í síðustu viku lokuðu Tamíl tígrarnir fyrir vatn til bæja sem stjórnarherinn ræður yfir í norðausturhlutanum. Seinni partinn í gær dró úr átökunum en enn er ekki búið að leysa vandamál varðandi vatnsskort. Stjórnarherinn og Tamíl tígrarnir undirrituðu samning um vopnahlé árið 2002 eftir tæplega tveggja áratuga borgarastríð þar í landi. Bardagar hafa þó verið tíðir, sérstaklega í kringum bæinn Muttur sem er undir stjórn hersins en á svæði Tamíl tígranna.

Erlent
Fréttamynd

Brúnni yfir Jökulsá á Dal lokað

Loka þurfti brúnni yfir Jökulsá á Dal vegna vatnavaxta síðdegis í gær. Þetta hefur þó ekki mikil áhrif á framkvæmdir á Kárahnjúkasvæðinu. Hvort tveggja er að vatnshæðin er ekki meiri en svo að vaða má yfir ána og svo eru menn viðbúnir vatnavöxtunum.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmenni á unglingalandsmóti

Milli átta og tíu þúsund manns eru samankomnir á ungmennamóti UMFÍ á Laugum í Þingeyjarsveit. Mótshaldið hefur gengið mjög vel að sögn Björns Jónssonar, forseta UMFÍ, hann segir að það eina sem hafi komið upp á hafi verið að þrír piltar sáust drekka áfengi og voru þeir þá sendir heim.

Innlent
Fréttamynd

Tveir teknir eftir líkamsárás

Tveir menn voru handteknir eftir að þeir réðust á þann þriðja í Austurstræti í Reykjavík í nótt. Sá sem ráðist var á slasaðist nokkuð á höfði og var sendur á sjúkrahús en árásarmennirnir í fangaklefa lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag sem miðar að friði

Sendiherrar Frakka og Bandaríkjanna náðu samkomulagi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag um ályktanartillögu sem miðar að því að binda endi á átökin í Líbanon.

Erlent