Fréttir
Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. Innlent 10.8.2006 19:17
Ber við vanþekkingu og fákunnáttu Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun. Innlent 10.8.2006 18:54
Actavis þrefaldar tekjurnar Heildartekjur Actavis á öðrum ársfjórðungi þrefölduðust miðað við sama tíma í fyrra og námu 364,1 milljón evra. Árshlutauppgjör félagsins var birt eftir lokun markaða í dag. Á sama tímabili í fyrra námu tekjurnar 121,9 milljónum evra. Aukningin nemur 198,4 prósentum. Viðskipti innlent 10.8.2006 18:37
Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað Erlent 10.8.2006 17:55
Siv ætlar í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að taka slaginn við Jón Sigurðsson um formannsembættið í Framsóknarflokknum. Innlent 10.8.2006 17:31
Vörubíll valt í Kömbunum Vörubíll frá Vegagerðinni valt í Kömbunum ofan við Hveragerði um klukkan þrjú í dag. Vörubíllinn var við vinnu í vegkanti sem gaf sig svo að bíllinn valt. Engan sakaði. Innlent 10.8.2006 16:14
Barnabætur hækkuðu um 19% Við álagningu ríkisskattstjóra á einstaklinga kom fram að barnabætur vegna ársins 2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Í ár á að úthluta tæpum 6 milljörðum króna til 55.500 framteljenda Innlent 10.8.2006 15:31
Flugvél Icelandair komin í loftið Flugvélum Icelandair hefur verið veitt leyfi til flugs til Bretlands. Fyrsta vélin fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú. Næsta flug er svo áætlað klukkan 16:10. Búist er við að flugumferð komist fljótlega í rétt form. Innlent 10.8.2006 15:09
Og vodafone eflir GSM þjónustu á svæðinu Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í Dalvík fyrir fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla sem fer fram um næstu helgi. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta á svæðinu yfir helgina. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína á hátíðina í fyrra. Innlent 10.8.2006 13:23
Glóandi skúlptúr í byggingu Jörgen Hansen, danskur leirlistamaður stendur nú í stórræðum nærri Norrænahúsinu en hann er að byggja glóandi leirskúlptúr. Skúlptúrinn, sem á að byggjast á fjórtán dögum, á að verða þriggja metra hár og mun vega fjögur tonn. Innlent 10.8.2006 13:00
Ekki næst enn samkomulag um breytt orðalag svo hægt verði að stilla til friðar í Líbanon Ísraelsher náði í nótt og í morgun þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. Erlent 10.8.2006 12:48
James Bond aðdáendur stoppaðir fyrir hraðakstur Radarbyssur sunnlenskra sveitalögreglumanna stöðva eins og ekkert sé, hvern erlenda James Bond aðdáandann á fætur öðrum, sem geysast í pílagrímaferðir austur að Bond Lagoon, eins og þeir kalla Jökulsárlón. Innlent 10.8.2006 12:43
Dregur úr íbúðalánum banka Verulega dró úr íbúðalánum bankanna í júlí og námu þau aðeins rúmum þremur og hálfum milljarði króna. Það er lægsta lánsupphæð síðan bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn fyrir rétt um tveimur árum. Innlent 10.8.2006 12:36
Öngþveiti á flugvöllum á Englandi Bresk og bandarísk yfirvöld upplýstu í morgun að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu í loft upp farþegavélar á leið milli landanna. Ekki er flogið til Bretlands sem stendur og óvíst hvenær það verður hægt á ný. Algjört öngþveiti ríkir á flugvöllum þar í landi. Erlent 10.8.2006 12:17
Hert eftirlit á Keflavíkurflugvelli Eftir fund lögreglu- og flugmálayfirvalda á Keflavíkurflugvelli í morgun var ákveðið að herða eftirlit á vellinum. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, felur það meðal annars í sér að leit á farþegum og í farangri verður ítarlegri en ella en ætti þó ekki að valda miklum töfum. Innlent 10.8.2006 11:52
Upplýsingabæklingur fyrir erlenda foreldra Menntasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út upplýsingabækling á átta tungumálum fyrir erlenda foreldra. Í bæklingnum er fjallað um Íslenska leikskóla og eins tvítyngi barna á leikskólastigi. Innlent 10.8.2006 11:34
Hlutabréfavísitölur lækka vegna hryðjuverkaógnar Hryðjuverkaógnin í Bretlandi hefur áhrif á markaði víðsvegar um heiminn. Fram kemur á vef Glitnis að allar helstu hlutabréfavísitölur hafi lækkað og þá hlutabréf í evrópskum flugfélögum einna mest. Erlent 10.8.2006 11:28
Nýr forstjóri hjá Alfesca Xavier Govare hefur verið ráðinn nýr forstjóri Alfesca og Jakob Óskar Sigurðsson látið af störfum eftir tveggja ára starf. Í tilkynningu félagsins kemur fram að sameiginleg ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjórnar þess hafi verið að færa stjórn félagsins nær mörkuðum þess. Viðskipti innlent 10.8.2006 11:10
Komið í veg fyrir sprengjutilræði í bandarískum flugvélum Bandarísk stjórnvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjutilræði í þremur flugvélum bandarískra flugfélaga, United, American og Continental airlines. Erlent 10.8.2006 10:29
Kertafleyting á Tjörninni Kertum var fleytt á Tjörninni í Reykjavík í gærkvöldi til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki í Japan. Innlent 10.8.2006 09:57
Flugferðum frestað til Bretlands Vegna hryðjuverkarógnar í Bretlandi sem greint var frá fyrr í morgun hafa nokkur flugfélög frestað ferðum til Bretlands, þar á meðal Icelandair. Að sögn Guðjóns Argrímssonar, upplýsingafulltrúi Icelandair, er athugun með flug seinna í dag. Innlent 10.8.2006 09:50
Heimili rýmd vegna fellibyls Rúmlega fjögur hundruð þúsund íbúar á suðausturströnd Kína hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna fellibylsins Saomai sem talið er að skelli á meginlandinu í dag. Erlent 10.8.2006 08:58
Lögregla stjórnar ekki fréttafluttningi Stjórn Félags fréttamanna vill minna yfirstjórn löggæslumála á að lögreglan stjórnar ekki fréttaflutningi fjölmiðla með aðgerðum sínum. Innlent 10.8.2006 08:56
Fimm handteknir vegna fíkniefna Lögreglan í Kópavogi handtók fimm unga menn í tengslum við þrjú fíkniefnamál, sem komu upp við umferðareftirlit í bænum í gærkvöldi og í nótt. Innlent 10.8.2006 08:52
Erlendu göngumennirnir fundir Björgunarsveitarmaður ók óvænt fram á fjóra erlenda göngumenn á þjóðveginum i Landssveit seint í gærkvöldi, þegar hann var að halda til leiltar að þessum sömu mönnum við Heklu rætur. Innlent 10.8.2006 08:33
Þrjú þorp í Líbanon á valdi Ísraelshers Ísraelsher hefur náði í nótt þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. Erlent 10.8.2006 08:43
Ekkert heitt vatn Tugir þúsunda Reykvíkinga hafa ekki haft heitt vatn í húsum sínum síðan klukkan sjö í gærkvöldi , en því verður væntanlega hleypt aftur á kerfið klukkan átta. Innlent 10.8.2006 08:39
Líkamsárás við verslun 10-11 Lögreglan í Reykjavík handtók í gærkvöldi þrjá menn vegna líkamsárásar við verslun 10-11 á horni Barónstígs og Hverfisgötu. Átökin eru talin tengjast vélhjólaklúbbnum Fáfni og uppgjöri í undirheimunum. Innlent 10.8.2006 08:31
Ráðist á konu í nótt Ung kona er til aðhlynnningar á Slysadeild Landsspítalans eftir að ráðist var á hana í austurborginni um klukkan fjögur í nótt. Hún hlaut einhverja áverka. Innlent 10.8.2006 08:28
Yfirvofandi hryðjuverkaárás í Bretlandi Hættuástandi hefur verið lýst yfir í Bretlandi vegna njósna um að hryðjuverkaárás sé yfirvofandi þar í landi. Erlent 10.8.2006 08:21