Fréttir Ökumaður vöruflutningabíls sofnaði undir stýri Mildi þykir að stór vöruflutningabíll skuli hafa sveigt til hægri, en ekki til vinstri, á móti bíl úr þeirri átt, þegar hann hafnaði utan þjóðvegarins á milli Blönduóss og Skagastrandar undir kvöld í gær, eftir að ökumaður hans sofnaði undir stýri. Innlent 19.9.2006 07:08 Fjórir létust þegar hús hrundu til grunna Að minnsta kosti fjórir létust og fimm slösuðust þegar níu,- fjögra hæða byggingar, hrundu í Kína í fyrrinótt. Byggingarnar tengjast allar og var verið að ljúka við byggingu þeirra. Erlent 19.9.2006 07:04 Þyrlan sótti danska ferðakonu Ung dönsk ferðakona veiktist hastarlega í Þórsmörk í gærkvöldi og eftir samráð við lækna var ákeðið að óska eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún sótti konuna og lenti með hana við Borgarspítalann um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ekki liggur fyrir hvað gekk að konunni, en hún mun ekki vera í lifshættu. Innlent 19.9.2006 07:00 Brotist inn í félagsheimilið Árnes Brotist var inn í félagsheimilið Árnes í uppsveitum Árnesssýslu í nótt og þaðan meðal annars stolið tölvum, skjávörpum, áfengi og lausafé. Ljóst er að þýfið nemur háum upphæðum og eru lögreglumenn frá Selfossi á vettvangi, en þjófarnir komust undan og munu engar beinar vísbendigar vera um það, hverjir þarna voru á ferð. Innlent 19.9.2006 06:55 Réðust inn höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvarpsins Mikil átök brutust út milli mótmælenda og lögreglu í Ungverjalandi í nótt þegar hópur mótmælenda réðst inn í höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvapsins. Þúsundir mótmælenda fjölmenntu á götum úti í borginn í gærkvöldi til að krefjast þess að forsætisráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany, segði af sér, eftir að í ljós kom að forsætisráðherrann laug um efnahagsástandið í landinu stuttu fyrir kosningar í apríl. Erlent 19.9.2006 06:51 Hákarl sem gengur á uggunum Vísindamenn sem hafa grandskoðað dýralíf neðansjávar undan strönd Papua-héraðs á Indónesíu segjast hafa fundir nokkra tugi nýrra dýrategunda á svæðinu. Þar á meðal er hákarl sem getur gengið á uggunum. Erlent 18.9.2006 23:03 Of mjóar til að sýna föt Tískuvikan í Madríd á Spáni hófst í dag en deilur kviknuðu um framkvæmd hennar um helgina. Þá höfnuðu aðstandendur 5 sýningarstúlkum með þeim rökum að þær væru of grannar til að taka þátt. Nokkru áður hafði verið ákveðið að banna þvengmjóum stúlkum að taka þátt í tískusýningum þessa vikuna. Erlent 18.9.2006 22:58 Google bannað að birta fréttir úr belgískum blöðum Héraðsdómur í Belgíu hefur gert leitarvefnum Google að hætta að birta fréttir úr belgískum blöðum án leyfis og án þess að borga fyrir það. Samtök blaðaútgefenda í frönsku- og þýskumælandi hluta Belgíu fóru í mál við Google vegna þessa, en samtökin eiga rétt á öllu því sem birtist í blöðum þar. Verði Google ekki við þessu verður fyrirtækið sektað um jafnvirði tæplega 90 milljóna íslenskra króna á dag. Erlent 18.9.2006 22:54 Mikil hætta á borgarastyrjöld í Írak Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir mikla hættu á að borgarastyrjöld brjótist út í Írak ef fram haldi sem horfi. Þetta kom fram í ræðu hans hjá Sameinuðu þjóðunum í kvöld. Erlent 18.9.2006 22:51 Kviknað í ríkissjónvarpi Ungverjalands Mótmælendur reyndu í kvöld að ráðast til inngöngu í höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í Ungverjalandi eftir að Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra landsins, viðurkenndi að hafa logið um fjárhag landsins til að tryggja flokki sínum sigur í þingkosningum aprí. Afsagnar Gyurcsanys er krafist en hann neitar að víkja. Eldur var lagður að byggingu ríkissjónvarpsins. Erlent 18.9.2006 22:46 2 létust í gassprengingu í Mílanó Að minnsta kosti 2 týndu lífi og 50 slösuðust, þar af mörg börn, þegar sprenging varð í íbúðarhúsi í Mílanóborg á Ítalíu í kvöld. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni. Erlent 18.9.2006 22:34 Forstjóri Revlon segir af sér Viðskipti erlent 18.9.2006 18:49 Segir ekki við Símann að sakast Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir ekki við Símann að sakast þó fjarskiptakerfi Landhelgisgæslunnar á Norðurlandi hafi rofnað á laugardag. Þingmaður vinstri grænna kennir einkavæðingu Símans um sambandsleysið og segir ótækt að öryggi landsmanna hafi verið einkavætt. Innlent 18.9.2006 18:45 Kampusch fær skammarbréf Hótunar- og skammarbréf streyma nú bæði til austurrísku stúlkunnar Natösju Kampusch og austurrískra fjölmiðla. Natasja slapp nýlega úr tíu ára prísund manns sem rændi henni þegar hún var átta ára gömul. Erlent 18.9.2006 17:14 Utanríkisráðherra á allsherjarþing SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heldur í dag á 61. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Í tengslum við allsherjarþingið mun utanríkisráðherra meðal annars sitja fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja og utanríkisráðherra Norðurlanda. Ráðherra mun einnig sitja hádegisverðarfund ráðherra Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Innlent 18.9.2006 17:09 Olíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar orðróms um að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, muni gera breytingar á framleiðslukvótum sínum með það fyrir augum að hækka olíuverð áður en eftirspurn eftir eldsneytis minnkar. Viðskipti erlent 18.9.2006 17:08 Spá lægri verðbólgu Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósent í október og muni 12 mánaða verðbólga því lækka úr 7,6 prósentum í 7,3 prósent. Á móti hækkunum á matvöru, fatnaði og þjónustu skiptir miklu lækkun eldsneytisverð. Viðskipti innlent 18.9.2006 17:00 Banna fartölvur vegna eldhættu Mörg flugfélög hafa bannað farþegum að hafa Apple- og Dell-fartölvur með sér um borð í flugvélar sínar. Ástæðan er sú að rafhlöðurnar í þessum tölvum eru taldar skapa of mikla eldhættu. Bæði Apple og Dell innkölluðu milljónir af rafhlöðum í sumar eftir að upplýst var um mörg tilfelli þess að þær ofhitnuðu og kveiktu í. Erlent 18.9.2006 16:59 Gæsluvarðhald vegna meintrar nauðgunar fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem sakaður er um að hafa nauðgað konu á heimili hans þann 10. september síðastliðinn. Innlent 18.9.2006 16:55 Össur nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar Össur Skarphéðinsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fundi þingflokksins á Hótel Glym í Hvalfirði fyrr í dag. Á fundinum voru Kristján L. Möller endurkjörinn varaformaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir endurkjörin ritari þingflokksins. Innlent 18.9.2006 16:39 Átta mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára stúlku. Innlent 18.9.2006 16:03 Refsingu fyrir líkamsárás frestað í tvö ár Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur frestað ákvörðun refsingar yfir 25 ára gamalli stúlku í tvö ár, en hún var sakfelld fyrir að hafa ráðist á aðra stúlku í félagsheimili Blönduóss í fyrra. Þau skilyrði eru sett að stúlkan haldi skilorð árin tvö. Innlent 18.9.2006 15:44 Viðbrögð við ummælum páfa megi ekki ógna málfrelsi Framkvæmdastjórn Evrópudsambandsins segir að ekki eigi að taka ummæli Benedikts páfa um múlsima úr samhengi og viðbrögð við þeim megi ekki ógna málfrelsinu. Johannes Laitenberger, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, sagði að ofsafengin viðbrögð við hvers konar ummælum jafngildi því að málfrelsinu sé hafnað og það sé ekki ásættanlegt. Erlent 18.9.2006 15:23 Gripinn nakinn á almannafæri Lögreglan í Reykjavík sinnti margvíslegum verkefnum um helgina eftir því sem fram kemur á vef hennar. Í einu þeirra var hún kölluð til þegar erlendir ferðamenn höfðu reist tjald sitt á sólpalli við fjölbýlishús í borginni. Fólkinu var gert að taka tjald sitt og leita sér gistingar annars staðar. Þá kom lögreglan ölvuðum manni til aðstoðar en sá var nakinn á almannafæri. Innlent 18.9.2006 15:18 Yngra fólk mannar búðir og veitingastaði Stærstur hluti starfsmanna í matvöruverslunum og á veitingastöðum og krám er yngri en 25 ára. Þetta leiða nýjar tölur frá Hagstofu Íslands í ljós en þeirra er getið í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 18.9.2006 14:54 Forsetahjónin á ráðstefnu í New York Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur boðið Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Dorrit Moussaeff forsetafrú að taka þátt í ráðstefnunni Clinton Global Initiative í New York í vikunni. Ráðstefnuna sækja fjölmargir þjóðarleiðtogar og forystumenn í alþjóðamálum. Innlent 18.9.2006 14:28 Arnarvarp gekk illa vegna slæms tíðarfars Varp arnarins gekk óvenju illa í ár en stofninn hefur engu að síður þrefaldast frá því að bannað var að bera út eitur fyrir tófu árið 1964. Þetta kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Innlent 18.9.2006 13:55 Verðbólga á Íslandi sú mesta innan EES Verðbólga á Íslandi var sú mesta innan Evrópska efnhagssvæðisins frá ágúst 2005 til ágústmánaðar í ár. Þetta leiða nýjar tölur Hagstofunnar í ljós. Verðbólgan hér á landi, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, reyndist 7,1 prósent á tímabilinu en var 2,3 prósent að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu. Innlent 18.9.2006 12:41 Sex látnir eftir tilræði í Sómalíu Sex létust og nokkrir særðust þegar bíll sprakk fyrir utan sómalska þinghúsið í Baidoa í morgun. Haft er eftir utanríkisráðherra landsins að reynt hafi verið að ráða Abdullahi Yusuf, forseta Sómalíu af dögum. Þrír hinna látnu voru lífverðir og þrír óbreyttir borgarar. Erlent 18.9.2006 13:32 Grunaður um að hafa rænt og nauðgað 14 ára stúlku Lögreglan í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa rænt fjórtán ára stúlku, haldið henni nauðugri og nauðgað. Erlent 18.9.2006 12:12 « ‹ ›
Ökumaður vöruflutningabíls sofnaði undir stýri Mildi þykir að stór vöruflutningabíll skuli hafa sveigt til hægri, en ekki til vinstri, á móti bíl úr þeirri átt, þegar hann hafnaði utan þjóðvegarins á milli Blönduóss og Skagastrandar undir kvöld í gær, eftir að ökumaður hans sofnaði undir stýri. Innlent 19.9.2006 07:08
Fjórir létust þegar hús hrundu til grunna Að minnsta kosti fjórir létust og fimm slösuðust þegar níu,- fjögra hæða byggingar, hrundu í Kína í fyrrinótt. Byggingarnar tengjast allar og var verið að ljúka við byggingu þeirra. Erlent 19.9.2006 07:04
Þyrlan sótti danska ferðakonu Ung dönsk ferðakona veiktist hastarlega í Þórsmörk í gærkvöldi og eftir samráð við lækna var ákeðið að óska eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún sótti konuna og lenti með hana við Borgarspítalann um klukkan ellefu í gærkvöldi. Ekki liggur fyrir hvað gekk að konunni, en hún mun ekki vera í lifshættu. Innlent 19.9.2006 07:00
Brotist inn í félagsheimilið Árnes Brotist var inn í félagsheimilið Árnes í uppsveitum Árnesssýslu í nótt og þaðan meðal annars stolið tölvum, skjávörpum, áfengi og lausafé. Ljóst er að þýfið nemur háum upphæðum og eru lögreglumenn frá Selfossi á vettvangi, en þjófarnir komust undan og munu engar beinar vísbendigar vera um það, hverjir þarna voru á ferð. Innlent 19.9.2006 06:55
Réðust inn höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvarpsins Mikil átök brutust út milli mótmælenda og lögreglu í Ungverjalandi í nótt þegar hópur mótmælenda réðst inn í höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvapsins. Þúsundir mótmælenda fjölmenntu á götum úti í borginn í gærkvöldi til að krefjast þess að forsætisráðherra landsins, Ferenc Gyurcsany, segði af sér, eftir að í ljós kom að forsætisráðherrann laug um efnahagsástandið í landinu stuttu fyrir kosningar í apríl. Erlent 19.9.2006 06:51
Hákarl sem gengur á uggunum Vísindamenn sem hafa grandskoðað dýralíf neðansjávar undan strönd Papua-héraðs á Indónesíu segjast hafa fundir nokkra tugi nýrra dýrategunda á svæðinu. Þar á meðal er hákarl sem getur gengið á uggunum. Erlent 18.9.2006 23:03
Of mjóar til að sýna föt Tískuvikan í Madríd á Spáni hófst í dag en deilur kviknuðu um framkvæmd hennar um helgina. Þá höfnuðu aðstandendur 5 sýningarstúlkum með þeim rökum að þær væru of grannar til að taka þátt. Nokkru áður hafði verið ákveðið að banna þvengmjóum stúlkum að taka þátt í tískusýningum þessa vikuna. Erlent 18.9.2006 22:58
Google bannað að birta fréttir úr belgískum blöðum Héraðsdómur í Belgíu hefur gert leitarvefnum Google að hætta að birta fréttir úr belgískum blöðum án leyfis og án þess að borga fyrir það. Samtök blaðaútgefenda í frönsku- og þýskumælandi hluta Belgíu fóru í mál við Google vegna þessa, en samtökin eiga rétt á öllu því sem birtist í blöðum þar. Verði Google ekki við þessu verður fyrirtækið sektað um jafnvirði tæplega 90 milljóna íslenskra króna á dag. Erlent 18.9.2006 22:54
Mikil hætta á borgarastyrjöld í Írak Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir mikla hættu á að borgarastyrjöld brjótist út í Írak ef fram haldi sem horfi. Þetta kom fram í ræðu hans hjá Sameinuðu þjóðunum í kvöld. Erlent 18.9.2006 22:51
Kviknað í ríkissjónvarpi Ungverjalands Mótmælendur reyndu í kvöld að ráðast til inngöngu í höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í Ungverjalandi eftir að Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra landsins, viðurkenndi að hafa logið um fjárhag landsins til að tryggja flokki sínum sigur í þingkosningum aprí. Afsagnar Gyurcsanys er krafist en hann neitar að víkja. Eldur var lagður að byggingu ríkissjónvarpsins. Erlent 18.9.2006 22:46
2 létust í gassprengingu í Mílanó Að minnsta kosti 2 týndu lífi og 50 slösuðust, þar af mörg börn, þegar sprenging varð í íbúðarhúsi í Mílanóborg á Ítalíu í kvöld. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni. Erlent 18.9.2006 22:34
Segir ekki við Símann að sakast Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir ekki við Símann að sakast þó fjarskiptakerfi Landhelgisgæslunnar á Norðurlandi hafi rofnað á laugardag. Þingmaður vinstri grænna kennir einkavæðingu Símans um sambandsleysið og segir ótækt að öryggi landsmanna hafi verið einkavætt. Innlent 18.9.2006 18:45
Kampusch fær skammarbréf Hótunar- og skammarbréf streyma nú bæði til austurrísku stúlkunnar Natösju Kampusch og austurrískra fjölmiðla. Natasja slapp nýlega úr tíu ára prísund manns sem rændi henni þegar hún var átta ára gömul. Erlent 18.9.2006 17:14
Utanríkisráðherra á allsherjarþing SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heldur í dag á 61. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Í tengslum við allsherjarþingið mun utanríkisráðherra meðal annars sitja fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja og utanríkisráðherra Norðurlanda. Ráðherra mun einnig sitja hádegisverðarfund ráðherra Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Innlent 18.9.2006 17:09
Olíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar orðróms um að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, muni gera breytingar á framleiðslukvótum sínum með það fyrir augum að hækka olíuverð áður en eftirspurn eftir eldsneytis minnkar. Viðskipti erlent 18.9.2006 17:08
Spá lægri verðbólgu Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósent í október og muni 12 mánaða verðbólga því lækka úr 7,6 prósentum í 7,3 prósent. Á móti hækkunum á matvöru, fatnaði og þjónustu skiptir miklu lækkun eldsneytisverð. Viðskipti innlent 18.9.2006 17:00
Banna fartölvur vegna eldhættu Mörg flugfélög hafa bannað farþegum að hafa Apple- og Dell-fartölvur með sér um borð í flugvélar sínar. Ástæðan er sú að rafhlöðurnar í þessum tölvum eru taldar skapa of mikla eldhættu. Bæði Apple og Dell innkölluðu milljónir af rafhlöðum í sumar eftir að upplýst var um mörg tilfelli þess að þær ofhitnuðu og kveiktu í. Erlent 18.9.2006 16:59
Gæsluvarðhald vegna meintrar nauðgunar fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem sakaður er um að hafa nauðgað konu á heimili hans þann 10. september síðastliðinn. Innlent 18.9.2006 16:55
Össur nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar Össur Skarphéðinsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fundi þingflokksins á Hótel Glym í Hvalfirði fyrr í dag. Á fundinum voru Kristján L. Möller endurkjörinn varaformaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir endurkjörin ritari þingflokksins. Innlent 18.9.2006 16:39
Átta mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára stúlku. Innlent 18.9.2006 16:03
Refsingu fyrir líkamsárás frestað í tvö ár Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur frestað ákvörðun refsingar yfir 25 ára gamalli stúlku í tvö ár, en hún var sakfelld fyrir að hafa ráðist á aðra stúlku í félagsheimili Blönduóss í fyrra. Þau skilyrði eru sett að stúlkan haldi skilorð árin tvö. Innlent 18.9.2006 15:44
Viðbrögð við ummælum páfa megi ekki ógna málfrelsi Framkvæmdastjórn Evrópudsambandsins segir að ekki eigi að taka ummæli Benedikts páfa um múlsima úr samhengi og viðbrögð við þeim megi ekki ógna málfrelsinu. Johannes Laitenberger, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, sagði að ofsafengin viðbrögð við hvers konar ummælum jafngildi því að málfrelsinu sé hafnað og það sé ekki ásættanlegt. Erlent 18.9.2006 15:23
Gripinn nakinn á almannafæri Lögreglan í Reykjavík sinnti margvíslegum verkefnum um helgina eftir því sem fram kemur á vef hennar. Í einu þeirra var hún kölluð til þegar erlendir ferðamenn höfðu reist tjald sitt á sólpalli við fjölbýlishús í borginni. Fólkinu var gert að taka tjald sitt og leita sér gistingar annars staðar. Þá kom lögreglan ölvuðum manni til aðstoðar en sá var nakinn á almannafæri. Innlent 18.9.2006 15:18
Yngra fólk mannar búðir og veitingastaði Stærstur hluti starfsmanna í matvöruverslunum og á veitingastöðum og krám er yngri en 25 ára. Þetta leiða nýjar tölur frá Hagstofu Íslands í ljós en þeirra er getið í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 18.9.2006 14:54
Forsetahjónin á ráðstefnu í New York Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur boðið Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Dorrit Moussaeff forsetafrú að taka þátt í ráðstefnunni Clinton Global Initiative í New York í vikunni. Ráðstefnuna sækja fjölmargir þjóðarleiðtogar og forystumenn í alþjóðamálum. Innlent 18.9.2006 14:28
Arnarvarp gekk illa vegna slæms tíðarfars Varp arnarins gekk óvenju illa í ár en stofninn hefur engu að síður þrefaldast frá því að bannað var að bera út eitur fyrir tófu árið 1964. Þetta kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Innlent 18.9.2006 13:55
Verðbólga á Íslandi sú mesta innan EES Verðbólga á Íslandi var sú mesta innan Evrópska efnhagssvæðisins frá ágúst 2005 til ágústmánaðar í ár. Þetta leiða nýjar tölur Hagstofunnar í ljós. Verðbólgan hér á landi, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, reyndist 7,1 prósent á tímabilinu en var 2,3 prósent að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu. Innlent 18.9.2006 12:41
Sex látnir eftir tilræði í Sómalíu Sex létust og nokkrir særðust þegar bíll sprakk fyrir utan sómalska þinghúsið í Baidoa í morgun. Haft er eftir utanríkisráðherra landsins að reynt hafi verið að ráða Abdullahi Yusuf, forseta Sómalíu af dögum. Þrír hinna látnu voru lífverðir og þrír óbreyttir borgarar. Erlent 18.9.2006 13:32
Grunaður um að hafa rænt og nauðgað 14 ára stúlku Lögreglan í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa rænt fjórtán ára stúlku, haldið henni nauðugri og nauðgað. Erlent 18.9.2006 12:12