Fréttir
Óttast að tvöfalt fleiri látist Hermannaveikin, sem blossað hefur upp í Noregi á síðustu sólarhringum, er alvarlegasta tilfelli veikinnar á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast er að fjöldi látinna og veikra tvöfaldist á næstu dögum. Erlent 13.10.2005 19:15
Reyndu að bera klæði á vopnin Leiðtogar rétttrúnaðarkirkjunnar settust í gær á rökstóla í Istanbúl, hinni fornu höfuðborg aust-rómverska keisaradæmisins, og reyndu að leysa þann djúpstæða ágreining sem ríkir í orþódoxu kirkjunni í Ísrael. Erlent 13.10.2005 19:15
Unnið að leiðréttingum á umfjöllun Bláa lónið er meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims, segir blaðamaður breska stórblaðsins <em>Sunday Times</em> eftir heimsókn í lónið. Honum fannst það skítugt, alltof troðið af fólki og óaðlaðandi á allan hátt. Framkvæmdastjóri lónsins er mjög ósáttur við umfjöllunina og segir unnið að leiðréttingum. Innlent 13.10.2005 19:15
Bláa lóninu úthúðað í The Times Bláa lónið fær harkalega útreið í breska stórblaðinu <em>The Times</em>. Þar segir að í ótal auglýsingum sé því lýst sem sælustað fyrir líkama og sál en veruleikinn sé allur annar. Blaðamaður blaðsins byrjar á því að lýsa búningsklefunum. Þar hafi verið mikil þrengsli og táfýla og álíka viðkunnalegt og í líkamsræktarstöð. Innlent 13.10.2005 19:15
Fisi lent við Litlu kaffistofuna Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, vélknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt.Virtist sem flugmaðurinn hefði lent til að taka bensín. Innlent 13.10.2005 19:15
Sjö hermenn falla í Írak Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. Erlent 13.10.2005 19:15
VG vill ekki álver í Helguvík Vinstri-grænir í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ætla ekki að fallast á að fyrirtækið selji raforku til fyrirhugaðs álvers í Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Fulltrúi sjálfstæðismanna segir málið dæmi um vandræðagang R-listans. Innlent 13.10.2005 19:15
Tugir segja sig úr Samfylkingunni Allt að þrjátíu félagsmenn hafa sagt sig úr Samfylkingunni að loknum landsfundi flokksins um síðustu helgi. Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir töluna ekki nákvæma og ómögulegt sé að ráða í ástæður fólks fyrir úrsögn. Innlent 13.10.2005 19:15
Davíð ásamt nefnd til Japans Davíð Oddsson utanríkisráðherra mun fara fyrir viðskiptasendinefnd til Japans í september næstkomandi. Á vef Útflutningsráðs segir að ferðin sé sniðin bæði að þeim fyrirtækjum sem séu þegar í viðskiptum á svæðinu og þeim sem vilji hefja samstarf eða markaðssókn inn á þennan markað. Innlent 13.10.2005 19:15
Annir vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt. Innlent 13.10.2005 19:15
Ormagöngin óhentug Breskir og bandarískir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að svonefnd ormagöng séu ekki hentug til tímaferðalaga. Erlent 13.10.2005 19:15
Hugsanlega engin niðursveifla Niðursveiflan sem spáð hafði verið í efnahagslífinu kemur alls ekki eða seinkar að minnsta kosti um nokkur ár. Þetta telur fjármálaráðherra að gæti gerst í ljósi mikils áhuga á frekari stóriðjuframkvæmdum. Innlent 13.10.2005 19:15
Borgin fær engan frest Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi frest sem samkeppnisráð hafði veitt Reykjavíkurborg til að skipta upp starfsemi Upplýsingamiðstöðvar ferðamála og bjóða hluta af starfseminni út. Að öðru leyti staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppnisráðs. Innlent 13.10.2005 19:15
Ráðist gegn ópíumbændum Eftir að hafa sætt ámæli fyrir að draga lappirnar í baráttunni við ópíumræktendur hafa afgönsk yfirvöld blásið til stórsóknar síðustu daga. Erlent 13.10.2005 19:15
Afstaða VG skiptir engu máli Ég geri ráð fyrir því að sjálfstæðismenn muni vilja vera með í meirihluta í stjórninni um mál af þessu tagi því það þætti nýmælisvert ef þeir leggðust gegn stóriðju og ekki síst þar sem um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir Reykjanesbæ, segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:15
Hátt í 100 á spítala vegna veiki Þeir nálgast hundraðið, sem lagðir hafa verið inn á sjúkrahús í Noregi vegna gruns um hermannaveiki. Veikin sem blossaði upp í Fredrikstad er alvarlegasta tilfelli hennar á Norðurlöndum í mörg ár. Erlent 13.10.2005 19:15
Segja al-Zarqawi sáran Hópur á vegum al-Qaida samtakanna í Írak greindi frá því í dag að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi samtakanna í landinu, væri særður. Í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á heimsíðu íslamskra öfgamanna kemur þetta fram en þar eru múslímar hvattir til að biðja fyrir leiðtoganum. Ekki hefur fengist staðfest hvort yfirlýsingin er ófölsuð. Erlent 13.10.2005 19:15
Handtóku mannréttindafrömuð Stjórnvöld í Úsbekistan hafa handtekið mannréttindafrömuð sem greindi fréttamönnum frá því þegar úsbekskar hersveitir skutu á og drápu mótmælendur í borginni Andijan um miðjan mánuðinn. Frá þessu greina mannréttindasamtökin Huma Rights Watch og krefjast þess að manninum verði sleppt tafarlaust. Samtökin segja að yfirvöld í Úsbekistan reyni með þessu hindra að umheimurinn fái nákvæmar lýsingar á því sem gerðist 13. maí í Andijan. Erlent 13.10.2005 19:15
Nýrrar Grímseyjarferju að vænta Ný Grímseyjarferja er væntanleg. Ríkiskaup hafa óskað eftir ferju sem leysa á Sæfara, núverandi ferju, af hólmi. Tilboð eiga að berast fyrir 20. júní. Meðal skilyrða sem settu eru er að ný ferja verði ekki eldri en fimmtán ára, hún geti flutt bíla, gáma og vinnuvélar og að veitingasalur verði um borð. Þá eru gerðar strangar kröfur um öryggisatriði. Innlent 13.10.2005 19:15
Yfir hundrað þúsund fyrir rauðvín Karlmaður á fertugsaldri, sem pantaði sér rauðvínsflösku á Kaffi Reykjavík í janúar á þessu ári, hefur verið dæmdur fyrir að borga ekki flöskuna. Innlent 13.10.2005 19:15
Ekki þörf á frekari aðgerðum Samkvæmt nýju snjóflóðahættumati sem unnið hefur verið vegna byggðar í Súðavík er ekki þörf á frekari aðgerðum til að tryggja öryggi íbúa á hættusvæðum. Þetta kemur fram á vef <em>Bæjarins besta</em>. Samkvæmt matinu eru öll hús í nýju byggðinni nema tvö utan hættusvæða. Innlent 13.10.2005 19:15
Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á. Innlent 13.10.2005 19:15
Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka. Innlent 13.10.2005 19:15
Yfirdráttarlán aftur í sama horf Frá lokum febrúar hafa heimilin aukið yfirdráttarlán sín um rúma tvo milljarða króna. Aukningin kom að mestu leyti fram í mars enda jukust yfirdráttarlán heimilanna aðeins lítillega í apríl eða um rúmar 350 milljónir króna. Í lok apríl skulduðu heimilin 60,5 milljarða króna í yfirdráttarlán og eru yfirdráttarlánin því orðin jafn há og þau voru fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Segir rangfærslur í grein um lónið Framkvæmdastjóri Bláa lónsins er afar ósáttur við umfjöllun blaðakonunnar Susan d'Arcy í The Sunday Times um helgina, sem segir lónið meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims. Hann segir hana vera með hreinar rangfærslur í greininni. Innlent 13.10.2005 19:15
Létust í umferðarslysi á Írlandi Fimm skólastúlkur létu lífið í árekstri skólabíls og tveggja fólksbíla á Írlandi í gær. Alls voru 50 börn í rútunni og eru sex þeirra talin lífshættulega slösuð en einungis eitt barn slapp óslasað úr skólabílnum sem valt á hliðina. Lögreglan segir að stúlkurnar sem létust hafi verið á aldrinum þrettán til sextán ára en orsök slyssins eru ekki kunn þó mikil rigning hafi eflaust átt sinn þátt í að slysið hafi orðið. Erlent 13.10.2005 19:15
Guðmundur elstur íslenskra karla Íslenskir karlmenn verða karla elstir í heiminum. Meðalaldur þeirra er nú kominn upp í 79 ár. Aldursforsetinn er Guðmundur Daðason en hann verður 105 ára síðar á árinu. Innlent 13.10.2005 19:15
Frestur borgar felldur úr gildi Reykjavíkurborg fær ekki lengri frest til að ákveða hvernig rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamála verður háttað. Samkeppnisráð hafði veitt borginni frest fram í október, en áfrýjunarnefnd hefur fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 13.10.2005 19:15
Vildi borga vínflösku með kveri Rúmlega þrítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í janúar pantað sér vínflösku sem kostaði 5.300 krónur á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík án þess að geta greitt fyrir hana. Maðurinn taldi sig hafa samið við þjóninn um að greiða fyrir vínið með ljóðakveri en við það vildi þjónninn ekki kannast. Innlent 13.10.2005 19:15
Fleiri Norðmenn fá hermannaveiki Íslensk heilbrigðisyfirvöld segja enga ástæðu til aðgerða hér á landi enda smitast veikin ekki milli manna. Einstök tilfelli koma upp árlega á Íslandi en hópsýking hefur ekki komið upp í meira en áratug. Innlent 13.10.2005 19:15