James brást á ögurstundu og Lakers töpuðu þriðja leiknum í röð Meistarar LA Lakers töpuðu þriðja leiknum í röð í nótt þegar þeir urðu að sætta sig við tap í framlengdum leik gegn Washington Wizards, 127-124, á heimavelli sínum í Los Angeles. 23.2.2021 07:31
NBA dagsins: Svona hvarf forskot Celtics og Nets eru á miklu flugi Taugatrekkjandi lokakaflinn í framlengdum leik Boston Celtics og New Orleans Pelicans, og góður sigur Brooklyn Nets á LA Clippers eru meðal þess sem sjá má í NBA dagsins. 22.2.2021 15:02
Fékk eiginhandaráritun á óléttubumbuna Novak Djokovic fékk nokkuð óvenjulega beiðni þegar hann hitti fjölmiðla og aðdáendur á Brighton-ströndinni í Melbourne eftir sigurinn á Opna ástralska mótinu í tennis. 22.2.2021 12:31
Opnar á að áhorfendur mæti á leiki hér á landi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að áhorfendur verði innan tíðar leyfðir á íþróttaleikjum hér á landi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 22.2.2021 11:35
Djokovic vann átjánda titilinn kvalinn af meiðslum „Ég sætti mig bara við það að ég yrði að spila þrátt fyrir sársaukann,“ sagði Novak Djokovic. Serbinn viðurkenndi eftir átjánda risamótssigur sinn í tennis að hann hefði spilað meiddur í síðustu leikjunum á mótinu sem lauk í Ástralíu um helgina. 22.2.2021 10:00
Fékk hjartaáfall og lést á rauðu ljósi eftir sigur á erkifjendunum Króatíska handboltahetjan Zlatko Saracevic lést í nótt, rétt eftir að hafa rætt við fjölmiðla að loknum sigri síns liðs. 22.2.2021 08:01
Rekinn eftir tap í New York Minnesota Timberwolves eru með versta árangurinn í NBA-deildinni á þessari leiktíð og hafa nú rekið þjálfara sinn. Liðið tapaði 103-99 gegn New York Knicks í gær og hefur aðeins unnið sjö leiki en tapað 24 í vetur. 22.2.2021 07:30
Sandra ólétt en Leverkusen bíður með dyrnar opnar Sandra María Jessen, landsliðskona í fótbolta, er ólétt og á von á sínu fyrsta barni í ágúst. Hún hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir Leverkusen, að minnsta kosti í bili. 19.2.2021 16:31
Þróttur rýmir fyrir þjóðarleikvangi en fær stórt fótboltasvæði og íþróttahús Knattspyrnufélagið Þróttur og Reykjavíkurborg hafa komist að samkomulagi um það hvernig uppbyggingu aðstöðu fyrir félagið í Laugardal verður háttað. Þróttarar fá samkvæmt því meðal annars tvo nýja gervigrasvelli og nýtt íþróttahús en gefa eftir svæði sem hugmyndir hafa verið uppi um að nýta fyrir þjóðarhöll- og leikvang. 19.2.2021 14:01
„Ertu að vinna sem pítsubakari eða spilar þú fótbolta?“ Norðmaðurinn uni Jens Petter Hauge nýtur þess í botn að vera með AC Milan í baráttunni um ítalska meistaratitilinn í fótbolta. Hann fer ekki leynt með aðdáun sína á sænsku ofurstjörnunni og liðsfélaga sínum, Zlatan Ibrahimovic. 19.2.2021 13:30