Íþróttafréttamaður

Óskar Ófeigur Jónsson

Óskar Ófeigur er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM

Norðmenn hafa aldrei tapað fyrir Brasilíumönnum inni á fótboltavellinum og það breyttist ekki í kvöld. Noregur sendi Brassana heim af HM með 2-1 sigri í leik þjóðanna í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.

Gagn­rýnir á­kvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“

Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum.

Trump þakkar FIFA fyrir

Hafi einhver efast um að togað hafi verið í spotta svo að stjörnuframherji bandaríska liðsins Folarin Balogun fengi að spila leikinn við Belgíu í sextán liða úrslitum HM annað kvöld fengu þeir sterka vísbendingu um annað þegar Bandaríkjaforseti tjáði sig um málið á samfélagsmiðlum.

Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum

Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic.

Sjá meira