Segja refsiaðgerðir Bandaríkjanna geta skaðað dómsmál og rannsóknir Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna harmar ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að refsa starfsmönnum Alþjóðasakamáladómstólsins sem rannsaka mögulega stríðsglæpi bandarískra hermanna í Afganistan. Aðgerðirnar gætu skaðað dómsmál og rannsóknir dómstólsins. 12.6.2020 20:26
Bolton: Framferði Trump gegn Úkraínu dæmigert fyrir utanríkisstefnu hans Endurkjör sem var eini grundvöllur flestra ákvarðana Donalds Trump Bandaríkjaforseta, jafnvel þegar þær stefndu þjóðinni í hættu eða veiktu hana, að mati Johns Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump. 12.6.2020 19:43
Hrun á Wall Steet eftir svartar kórónuveirutölur Verð á hlutabréfum á Wall Street hrundi meira en það hefur gert frá upphafsdögum kórónuveirufaraldursins um miðjan mars eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik vestanhafs í dag. Seðlabanki Bandaríkjanna varaði við því í gær að efnahagsbati eftir dýpstu niðursveiflu í áratugi yrði hægur. 11.6.2020 22:45
Stöðvuðu losun frá votlendi á við 720 bíla Endurheimt votlendis á fjórðum jörðum á vegum Votlendissjóðs í fyrra stöðvaði losun gróðurhúsalofttegunda sem jafnaðist á við að fjarlægja 720 bíla úr umferð í heilt ár. Ný stjórn tók við hjá sjóðnum á ársfundi hans í dag. 11.6.2020 20:34
Lýsa áhyggjum af refsiaðgerðum gegn Alþjóðasakamáladómstólnum Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að heimila refsiaðgerðir gegn starfsmönnum Alþjóðsakamáladómstólsins „alvarlegt áhyggjuefni“. Dómstóllinn hefur rannsakað hvort að bandarískir hermenn hafi framið stríðsglæpi í Afganistan. 11.6.2020 19:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Örlög lífskjarasamninganna, ný könnun um stuðning við forsetaframbjóðendurna og opnun landamæra Evrópu er á meðal efnis kvöldfrétta Stöðvar 2. 11.6.2020 18:10
Æðsti herforingi Bandaríkjanna iðrast kirkjugöngunnar með Trump Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna segist hafa gert mistök með því að fylgja Donald Trump forseta að St. John‘s-kirkjunni í Washington-borg þar sem Trump lét taka af sér myndir með Biblíu. Með því hafi herinn blandast inn í innanlandsstjórnmál. 11.6.2020 18:09
Bók þjóðaröryggisráðgjafa Trump væntanleg í júní Lögmaður Johns Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir að bók um tíma hans í Hvíta húsinu komi út 23. júní þrátt fyrir tilraunir lögmanna þess til að koma í veg fyrir útgáfuna. 10.6.2020 23:57
Formaður Fjölmiðlanefndar hefur fengið rúmar 15 milljónir frá ráðuneyti Lilju Einar Hugi Bjarnason sem Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, skipaði formann Fjölmiðlanefndar þvert á tillögu sérfræðinga ráðuneytisins er sagður hafa fengið fimmtán og hálfa milljón króna fyrir nefndarsetu og lögfræðiráðgjöf fyrir ráðuneytið. Hann hefur seti í að minnsta kosti átta nefndum á vegum Framsóknarflokksins. 10.6.2020 23:20
Eyðing Amasonfrumskógarins jókst um þriðjung í fyrra Um tíu þúsund ferkílómetrar Amasonfrumskógarins voru ruddir í Brasilíu í fyrra, um 34% meira en árið áður. Umhverfissamtök og vísindamenn segja að stefnu Jairs Bolsonaro, forseta Brasilíu, sé um að kenna en hann hafi gefið ólöglegu skógarhöggi, búgarðseigendum og bröskurum lausan tauminn. 10.6.2020 22:33