Meintur mannræningi var búsettur á Íslandi Pólskur karlmaður sem var handtekinn á Íslandi vegna mannrána- og líkamsárása í Björgvin í Noregi var búsettur hér á landi. Bróðir hans og annar maður hlutu fangelsisdóma vegna brotanna. 9.4.2021 20:00
Meintur mannræningi handtekinn á Íslandi Pólskur karlmaður sem var handtekinn á Íslandi um páskana hefur samþykkt að vera framseldur til Noregs. Maðurinn er grunaður um aðild að alræmdu mannráns- og líkamsárásmáli í Noregi fyrir sex árum. 9.4.2021 15:38
Frávísunarkröfu Zuism-bræðra hafnað Kröfu forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að ákæru á hendur þeim og félaginu yrði vísað frá var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. 9.4.2021 14:01
Grófu glataða gullaldarborg upp úr sandinum í Egyptalandi Fornleifafræðingar í Egyptalandi tilkynntu í dag að þeir hefðu fundið þrjú þúsunda ára gamla borg sem hefur legið grafið undir sandi. Fundurinn er sagður einn sá stærsti frá því að gröf Tútankamons faraós fannst á fyrri hluta 20. aldar. 9.4.2021 14:00
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. 9.4.2021 12:42
Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana. 9.4.2021 10:43
Heimilt að gera bólusetningu að skilyrði fyrir leikskólavist Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að skilyrða inngöngu barna á leikskóla við að þau hafi verið bólusett. Þrátt fyrir að það rjúfi friðhelgi einkalífs fólks sé það nauðsynlegt til að vernda lýðheilsu. 8.4.2021 12:15
Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB. 8.4.2021 11:21
Sakar Trump um að hafa æst til „blóðugrar uppreisnar“ Einn af fyrrverandi leiðtogum Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi segir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafi æst til blóðugrar uppreisnar þegar æstur múgur réðst á þinghúsið 6. janúar. Hann segir að uppreisnin hefði átt að vekja repúblikana aftur til heilbrigðrar skynsemi. 8.4.2021 08:54
Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar. 8.4.2021 08:14