Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Grunaðir um að tál­draga táningsstúlkur

Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir í Reykjavík um helgina þar sem þeir voru grunaðir um að draga tvær fjórtán ára stúlkur á tálar. 

Þór­dís Kol­brún skipuð sendi­herra í London

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi.

Kennarasambandið mis­munaði konu

Kennarasamband Íslands mismunaði starfsmanni á grundvelli kyns þegar stjórn sambandsins neitaði að leiðrétta laun konu í samræmi við laun karls sem vann við svipað starf hjá aðildarfélagi Kennarasambandsins.

Milljónir í að efla tónleikastaði í mið­bænum

Reykjavíkurborg hyggst leggja tíu milljónir króna í að efla tónleikastaði í miðbænum og byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir á tólf til átján hljómsveitir. Er þetta hluti af endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða, sem var fyrst settur á laggirnar í kórónuveirufaraldrinum.

„Fokk ðe queers og fullt af at­kvæðum?“

Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“.

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á ein­kunna­gjöf

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá.

Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp

Nokkur góðgerðarfélög og fyrirtæki í Reykjanesbæ fengu í vikunni póst frá aðstoðarskólastjóra Stapaskóla þar sem óskað var eftir aðstoð við að efla aðbúnað í skólanum. Í skeytinu er dregin upp fremur dökk mynd af aðbúnaði í skólanum en tafir hafa orðið á uppbyggingu hans og nemendur enn margir í bráðabirgðahúsnæði.

Sjá meira