Fyrrverandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar látinn Belginn Jacques Rogge, sem gegndi embætti forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar í tólf ár, er látinn, 79 ára að aldri. Sport 30. ágúst 2021 08:44
Thelma Björg og Patrekur Andrés fánaberar Íslands Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir og hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson verða fánaberar Íslands á setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra sem fram fer í Tókýó. Sport 21. ágúst 2021 18:01
„Afreksíþróttamiðstöð ein og sér er ekki bara lausnin“ Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, segir íþróttahreyfinguna þurfa að gera upp við sig hvernig áherslur eigi að vera í afreksíþróttastarfinu, svo sem hvort það sé forgangsverkefni að koma á fót miðlægri afreksíþróttamiðstöð og hversu umfangsmikil hún eigi að vera. Sport 20. ágúst 2021 14:31
Gullkona frá ÓL í Tókýó segir kynlíf fyrir keppni gefa henni aukinn sprengikraft Það er gömul mýta í íþróttaheiminum að íþróttafólk eigi alls ekki að stunda kynlíf stuttu fyrir leiki eða keppni heldur spara frekar þá orku. Rússneskur gullverðlaunahafi frá því í Tókýó er ekki alveg sammála því. Sport 20. ágúst 2021 09:01
Sha'Carri ekki í vinaleit þegar hún keppir við Ólympíumeistarann um helgina Bandaríska frjálsíþróttakonan Sha’Carri Richardson er farin að kynda vel upp fyrir athyglisvert spretthlaup sem fer fram um helgina. Sport 19. ágúst 2021 12:30
Skýtur á ÍSÍ og segir boltann rúlla hægt „Er ekki kominn tíminn á að láta verkin tala? Ég vil sjá aðgerðir svo það náist loksins að styðja og styrkja afreksíþróttafólkið okkar eins og það á skilið.“ Þetta segir Kjartan Ásmundsson, markaðs- og þróunarstjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem er orðinn langeygður eftir íslenskri afreksíþróttamiðstöð. Sport 19. ágúst 2021 09:31
Safnaði fyrir aðgerð lítils barns með því að bjóða upp Ólympíusilfrið sitt Pólski spjótkastarinn Maria Andrejczyk vann silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum en hún var tilbúin að láta frá sér silfrið sitt aðeins nokkrum vikum síðar. Sport 18. ágúst 2021 12:00
Popovich sendi gagnrýnendum tóninn: Hvernig í fjandanum líst ykkur á okkur núna? Eftir óvænt töp í aðdraganda Ólympíuleikanna sem og fyrsta leik á leikunum sjálfum var umræðan í kringum bandaríska landsliðið í körfubolta ekki jákvæð. Gregg Popovich, þjálfari liðsins, sendi spekingum tóninn í ræðu sem hann hélt inn í klefa eftir að Bandaríkin höfðu tryggt sér gullið. Körfubolti 17. ágúst 2021 17:01
Er ekki kominn tími á Afreksíþróttamiðstöð Íslands? Nú er frábærum Ólympíuleikum nýlokið þar sem Japanir þreyttu algjört kraftaverk í framkvæmd íþróttaviðburðar. Allt í beinni útsendingu úr Efstaleitinu þar sem viðmælendur í sjónvarpssal skiptust einnig á skoðunum um sjálfa leikana og eins var afreksíþróttaumhverfið hér á landi tekið fyrir. Skoðun 17. ágúst 2021 13:31
Útilokuð frá Ólympíuleikunum en fær nú að keppa við Ólympíumeistarann Heimurinn fékk ekki að sjá fljótustu bandarísku konuna hlaupa á Ólympíuleikunum í Tókýó en það verður bætt úr því á Prefontaine Classic mótinu. Sport 16. ágúst 2021 15:01
Missti ömmu sína í apríl en fékk ekki að vita það fyrr en hún hafði unnið gull á ÓL Gleðileg heimkoma gullverðlaunahafans Sun Yingsha af Ólympíuleikunum í Tókýó breyttist snögglega í mikla sorg. Sun fékk nefnilega ekki góðar fréttir þegar hún kom heim til sín í Kína. Sport 16. ágúst 2021 11:01
Kaley Cuoco býðst til að kaupa hestinn sem var laminn á Ólympíuleikunum Leikkonan Kaley Cuoco, sem flestir þekkja eflaust úr þáttunum The Big Bang Theory, hefur sagst munu borga hvaða verð sem er til að bjarga hestinum sem laminn var af þýskum þjálfara á Ólympíuleikunum. Lífið 14. ágúst 2021 20:32
Fann konuna sem borgaði leigubílinn og sá til þess að hann gat unnið ÓL-gullið Ólympíumeistarinn Hansle Parchment frá Jamaíku lenti í miklum hrakförum á leið sinni á keppnisstaðinn á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum og hann var mjög þakklátur konunni sem bjargaði honum fyrir horn. Sport 13. ágúst 2021 10:31
Rannsaka lyfjamisnotkun bresks spretthlaupara og Ólympíusilfrið í hættu Breski spretthlauparinn CJ Ujah hefur verið dæmdur í keppnisbann fyrir meinta lyfjamisnotkun. Ujah var hluti af breska liðinu sem vann til silfurverðlauna í 4x100 metra spretthlaupi á Ólympíuleikunum, en verðlaunin gætu nú verið í hættu. Sport 13. ágúst 2021 09:31
Gunnhildur Yrsa fékk Ólympíugullið um hálsinn Það voru fagnaðarfundir þegar Erin McLeod kom heim af Ólympíuleikunum í Tókýó með gullverðlaun í farteskinu. Fótbolti 12. ágúst 2021 11:30
„Þetta snýst svolítið um að pína sig áfram“ Arna Sigríður Albertsdóttir er á meðal þeirra íslensku íþróttamanna sem halda til Tókýó að keppa á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics. Hún mun keppa í handahjólreiðum á leikunum. Sport 11. ágúst 2021 19:31
24 ára Ólympíufari fannst látin Nýsjálenska hjólreiðakonan Olivia Podmore er látin en hún fannst á heimili sínu í gær. Örlög hennar eru mikið áfall fyrir alla í íþróttaheiminum á Nýja Sjálandi og víðar. Sport 11. ágúst 2021 09:01
Valin best á Ólympíuleikunum en hefur lagt skóna á hilluna Anna Vyakhireva, ein skærasta stjarna rússneska landsliðsins í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Það kemur á óvart þar sem Anna er aðeins 26 ára gömul og var valin besti leikmaðurinn á Ólympíuleikunum þar sem Rússland tapaði fyrir Frakklandi í úrslitum. Handbolti 10. ágúst 2021 16:30
Þrjár fengu Ólympíugull í afmælisgjöf á þessum leikum Þrjár íþróttakonur náðu því að vinna Ólympíugull á afmælisdeginum í sínum á Ólympíuleikunum í Tókýó sem lauk um helgina. Enginn íþróttakarl náði því aftur á móti. Sport 10. ágúst 2021 15:00
Segir Tímanovskaju hafa flúið vegna erlendra áhrifa Forseti Hvíta-Rússlands heldur því fram að hvítrússneskur spretthlaupari og Ólympíufari hafi flúið til Póllands eftir að hafa orðið fyrir áhrifum erlendra afla. Að hans sögn hefði hann aldrei flúið annars. Erlent 9. ágúst 2021 14:41
Yfir fjögur hundruð smituðust í tengslum við Ólympíuleikana í Tókyó Alls komu upp 430 kórónuveirusmit í tengslum við Ólympíuleikana í Tókýó en þeim lauk nú um liðna helgi. Sóttvarnir í Ólympíuþorpinu virðast þó hafa skilað tilætluðum árangri þar sem aðeins 26 keppendur greindust með veiruna. Sport 9. ágúst 2021 12:01
Sakaður um óíþróttamannslega framkomu á Ólympíuleikunum Henti öllum vatnsflöskunum í jörðina og tók síðustu flöskuna sjálfur. Óheppni? Ekki að mati netverja sem hafa látið einn Ólympíufara heyra það. Sport 9. ágúst 2021 10:00
Bandaríkin hlutu flest verðlaun á Ólympíuleikunum Ólympíuleikunum í Tókýó lauk í dag. Bandaríkin hlutu flest gullverðlaun á leikunum auk þess að fá flest verðlaun í heild. Sport 8. ágúst 2021 13:30
Hlaut gull aðra leikana í röð Kenýumaðurinn Eliud Kipchoge fagnaði sigri í maraþoni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Hann hlaut gull í greininni aðra leikana í röð. Sport 8. ágúst 2021 12:30
Sjöundi titill Bandaríkjanna í röð Bandaríkin urðu Ólympíumeistari kvenna í körfubolta í nótt eftir 90-75 sigur á heimakonum frá Japan í úrslitum. Bandaríkin hafa unnið keppni í körfubolta kvenna sjö leika í röð. Körfubolti 8. ágúst 2021 11:01
Frakkland Ólympíumeistari í fyrsta sinn Kvennalandslið Frakklands í handbolta varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Rússlandi í úrslitum í Tókýó í Japan. Frakkland vann tvöfalt í handboltanum á leikunum. Handbolti 8. ágúst 2021 10:01
Þórir hlaut tólftu verðlaunin sem þjálfari Noregs Kvennalandslið Noregs vann öruggan 36-19 sigur á Svíþjóð í leik liðanna um bronsið á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Noregur hlýtur því bronsið aðra leikana í röð. Handbolti 8. ágúst 2021 09:30
Ólympíukúlan virðist hafa haldið Svo virðist sem að sóttvarnarkúlan sem sett var upp í kringum ólympíuleikana í Tókýó í Japan hafi haldið. Fyrir leikana voru uppi miklar áhyggjur um Covid-19 myndi leika ólympíuleikana grátt. Erlent 7. ágúst 2021 23:08
Fyrsti Indverjinn til að vinna til verðlauna í frjálsum í 121 ár Indverjinn Neeraj Chopra varð í dag fyrsti Indverjinn í sögunni til að vinna til gullverðlauna í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikum. Hann fagnaði sigri í spjótkasti karla eftir kast upp á 87,58 metra. Sport 7. ágúst 2021 17:01
Ótrúlegur endasprettur skilaði Hassan öðru gulli hennar á leikunum Hollenska hlaupakonan Sifan Hassan fagnaði sigri í 10 þúsund metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Tókýó í hádeginu. Hún vann þar með til sinna þriðju verðlauna á leikunum. Sport 7. ágúst 2021 14:31