Fannst látin í bíl Kona sem braust inn á heimili bítilsins George Harrison á Hawaii árið 1999, fannst látin í blóði drifnum bíl í Kaliforníu, rétt fyrir jólin. Innbrotið var einni viku áður en ráðist var á Harrison á heimili hans í Lundúnum, og hann stunginn í brjóstið. Lífið 3. janúar 2007 09:56
Oprah opnar stúlknaskóla í Afríku Sjónvarpskonan Oprah Winfrey opnaði í gær stúlknaskóla í Suður-Afríku og uppfyllti þarmeð loforð sem hún gaf Nelson Mandela fyrir sex árum. Fjölmargar Hollywood stjörnur voru viðstaddar opnunina, ásamt Mandela og eiginkonu hans. Lífið 3. janúar 2007 09:43
Fólk syngur með í hjartanu Frumraun Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu með Sinfóníuhljómsveit Íslands var á Vínartónleikum þeirra fyrir tólf árum. Hún endurtekur nú leikinn og stígur á svið á fernum tónleikum því ekki má minna vera - svo vinsæll er þessi menningarviðburður. Tónlist 3. janúar 2007 09:30
Óljós framtíð System of a Down Það hefur lítið heyrst frá bandarísku rokksveitinni System of a Down síðustu mánuði. Sveitin sendi frá sér tvær vinsælar plötur árið 2005 en frá því um mitt síðasta ár hefur bandið verið í pásu. Liðsmenn sveitarinnar segjast ekki hafa tekið ákvörðun um að hætta, en tónlistarleg framtíð þeirra sé óljós. Tónlist 2. janúar 2007 13:00
Neitaði að læra leiklist Justin Timberlake neitaði að fara í leiklistartíma til að undirbúa sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Alpha Dog. Þess í stað ákvað hann að notast alfarið við þá þjálfun sem hann fékk sem krakki. Söngvarinn kunni leikur mann sem ásakaður er um að myrða táninga. Bíó og sjónvarp 2. janúar 2007 12:30
Hlotnast heiður Njörður P. Njarðvík prófessor hlaut á dögunum menningarverðlaun Sænsk-íslenska menningarsjóðsins. Sjóður þessi var stofnaður árið 1995 í kjölfar gjafar sænsku ríkisstjórnarinnar til Íslendinga á fimmtíu ára lýðveldisári. Menning 2. janúar 2007 11:45
Gera stuttmynd um miðaldra mann sem fær sér kúrekastígvél Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, nemi í kvikmyndaleikstjórn og handritsgerð við Columbia University í New York, er að vinna að spennandi verkefni um þessar mundir. Nú í janúar hefjast tökur á stuttmynd í leikstjórn Hafsteins en höfundur handrits er Huldar Breiðfjörð sem einnig er við kvikmyndanám í New York. Bíó og sjónvarp 2. janúar 2007 11:30
Átthagafræði samkvæmt bók KK Önnur sýning Söguloftsins í Landnámssetrinu í Borgarnesi leit dagsins ljós á föstudag. Önnur sýning var á laugardagskvöld: Einar Kárason og KK flytja þar Menn eru svona sem byggir að miklu leyti á minningum KK sem Einar skráði eftir honum sjálfum og fleirum og gaf út á bók 2002 og svo söngvum KK, bæði frumsömdum og sóttum í sjóði söngvaskáldsins. Þetta er dagskrá sem teygir sig í tvo klukkutíma, þægileg áheyrnar og skemmtileg kvöldstund sem líður hratt. Menning 2. janúar 2007 10:00
Slátur í Fríkirkjunni Miðvikudaginn 3. janúar mun tónsmíðafélagið S.L.Á.T.U.R. halda lúðratónleika í Fríkirkjunni klukkan 20. Saman er kominn hópur frumkvöðla í ný-sensjúalískum tónsmíðum. Tónlist 2. janúar 2007 08:00
Jóhann í 6. sæti árslista Plata tónskáldsins Jóhanns Jóhannssonar, IBM 1401 - A User’s Manual, er í 6. sæti á lista heimasíðunnar Almost Cool yfir bestu plötur ársins 2006. Í dómi um plötuna á síðunni segir að tónlist Jóhanns sé „gullfalleg nýklassík og enn eitt stórkostlegt afrek þessa unga tónskálds.“ Tónlist 31. desember 2006 16:00
Frábærir tónleikar Landslið tónlistarmanna kom fram á tónleikunum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna sem fram fóru í Háskólabíói á fimmtudagskvöld. Þetta var í áttunda skiptið sem tónleikarnir eru haldnir og söfnuðust heilar 2,4 milljónir króna. Tónlist 31. desember 2006 15:00
The Sweet Escape - ein stjarna Ég er kannski full kröfuharður, en þegar kemur að poppplötum eru viss lykilatriði sem plata þarf að uppfylla til þess að ég geti mælt með henni. Framar öllu þarf hún að innihalda grípandi lög. Útsetningar þurfa að vera upplífgandi og helst leita inn á ókunnugar slóðir. Tónlist 31. desember 2006 14:00
Peter, Bjorn og John á Nasa í lok janúar Sænska tríóið Peter, Bjorn og John kemur til landsins og heldur tónleika á skemmtistaðnum Nasa laugardagskvöldið 27. janúar. Plata hljómsveitarinnar Writer‘s Block hefur vakið mikla athygli undanfarið og lagið Young Folks náð á vinsældarlista víða um Evrópu. Tímaritið NME valdi lagið næstbesta lag ársins 2006. Tónlist 31. desember 2006 12:30
Craig sigurvegari ársins Þrátt fyrir hrakspár aðdáanda leyniþjónustmannsins James Bond er það Daniel Craig sem stendur uppi með pálmann í höndunum. Bíó og sjónvarp 31. desember 2006 10:00
Árituð plata seld Áritað umslag Bítlaplötunnar Meet The Beatles seldist á dögunum á uppboði fyrir 60.000 pund, eða tæplega 8,4 milljónir íslenskra króna. Umslagið var áritað af öllum fjórum Bítlunum og hafði verið gefið Louise, systur gítarleikarans George Harrison. Tónlist 31. desember 2006 09:00
Sólsetur á gamlársdag Síðasta dag ársins efnir Listvinafélag Hallgrímskirkju að venju til tónleika skömmu eftir sólarlag þar sem árið er kvatt með söng og lúðrahljómi af Trompeteria-hópnum, Ásgeiri H. Steingrímssyni og Eiríki Erni Pálssyni trompetleikurum ásamt Herði Áskelssyni orgelleikara, en áralöng hefð er fyrir þessum áramótatónleikum fyrir fullu húsi. Tónlist 30. desember 2006 15:45
Sagan af Ágirnd frá 1952 Í dag kl. 14.40 verður Viðar Eggertsson leikstjóri með fléttuþátt á Gufunni um stuttmyndina Ágirnd frá 1952 og höfunda hennar, Óskar Gíslason kvikmyndagerðarmann og Svölu Hannesdóttur leikkonu. Bíó og sjónvarp 30. desember 2006 15:30
Leitin að Maríu og öðrum stjörnum Breska leikhúsbransablaðið Stage sem kemur út vikulega og heldur uppi öflugri vefsíður tekur árlega saman lista yfir áhrifamestu menn í breskum leikhúsiðnaði: Þar situr í efstu sætum listans í ár kempan Andrew Lloyd Webber og félagi hans David Ian, í þriðja sætinu er framleiðandinn Cameron McIntosh. Bíó og sjónvarp 30. desember 2006 13:30
Á leið til Bandaríkjanna með Rockstar: Supernova Ég fer út um miðjan janúar og ferðast um með hljómsveitinni Rock Star: Supernova í sex til sjö vikur, segir söngvarinn Magni Ásgeirsson. Tónlist 30. desember 2006 11:00
Köld slóð - Tvær stjörnur Í Kaldri slóð segir frá blaðamanninum Baldri sem vinnur á hinu refjalausa Síðdegisblaði. Þegar fréttir berast af dauða öryggisvarðar í virkjun úti á landi trúir móðir Baldurs honum fyrir því að hinn látni er faðir hans. Þrátt fyrir sviplegan dauðdaga öryggisvarðarins sér lögreglan ekki ástæðu til að aðhafast frekar og Baldur ákveður því að rannsaka málið upp á eigin spýtur og ræður sig í vinnu í virkjuninni. Gagnrýni 30. desember 2006 00:01
Víða sýningarlok Í dag og á morgun er víða komið að sýningarlokum í mörgum sýningarsala landsins. Það er því enn tækifæri til að sjá ýmislegt af því sem kom upp á fyrstu vikum vetrarins og nú þegar dauður tími er í lífi margra er fínt að líta til þess sem er að gerast í myndlistinni. Menning 29. desember 2006 16:30
Settu vitlaust lag á iTunes Kanadíska hljómsveitin The Arcade Fire hlóð vitlausu lagi inn á iTunes á annan í jólum. Áætlað hafði verið að lagið Intervention yrði sett í sölu á síðunni 28. desember og átti ágóðinn að renna til góðgerðamála. Í staðinn gátu aðdáendur sveitarinnar nælt sér í lagið Black Wave/Bad Vibrations. Bæði lögin verða á annarri breiðskífu Arcade Fire sem gefin verður út í lok mars eða byrjun apríl. Tónlist 29. desember 2006 16:00
Úthlutað úr sjóði Karls Úthlutun úr Minningarsjóði Karls J. Sighvatssonar tónlistarmanns var á miðvikudag og féll styrkur sjóðsins í ár til ungs organista eins og í þau fjórtán skipti sem styrkurinn hefur verið veittur. Að þessu sinni var það Sigrún Magna Þórsteinsdóttir sem hlaut styrkinn. Tónlist 29. desember 2006 16:00
Myndlistin fer á vefinn Breski safnarinn og auðkýfingurinn Charles Saatchi rekur vef fyrir unga myndlistarmenn í tengslum við safn sitt í London: www.saatchi-gallery.co.uk/stuart. Þangað koma nú þrjár milljónir innlita á degi hverjum. Á vef safnsins er slóð fyrir listamenn, Your Gallery, og eru ríflega 25 þúsund listamenn með verk sín skráð þar og til sölu. Menning 29. desember 2006 15:00
Menn eru svona og svona Í kvöld verður fyrsti flutningur á Landnámssetrinu í Borgarnesi á dagskrá – söngatriði með spjalli eða eintali með innskotum og tónlist – þar sem KK og Einar Kárason rifja upp feril þess fyrrnefnda. Þar byggja þeir á samstarfi sínu fyrir nokkrum misserum þegar Einar skráði sögu KK, Þangað sem vindurinn blæs. Menning 29. desember 2006 14:00
Lítil sál týnd í tveim heimum Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir í kvöld leikinn Ófagra veröld eftir skoska leikskáldið Antony Neilson en hann hefur á undanförnum misserum átt nokkrum vinsældum að fagna meðal leikhúsfólks. Bíó og sjónvarp 29. desember 2006 13:30
Árið 2007 lofar góðu Árið er liðið í aldanna skaut eins og gömul klisja segir. Nýtt tónlistarár fer því brátt að hefjast og þess vegna fór Steinþór Helgi Arnsteinsson á stúfana og athugaði komandi útgáfur. Tónlist 29. desember 2006 12:00
So Divided - þrjár stjörnur Sveitin með eitt lengsta nafn rokksögunnar, ...And You Will Know Us By the Trail of Dead (hér eftir eingöngu kölluð Trail of Dead), hefur undanfarin ár sent frá nokkrar af ferskustu plötum sem bandarískt rokk hefur boðið upp á. Tónlist 29. desember 2006 11:30
Gyllenhaal til hjálpar Leikarinn Jake Gyllenhaal er góður maður að hafa við hendina þegar kviknar í hótelinu þínu. Hann var ásamt fjölskyldu sinni á litlu lúxushóteli við San Francisco flóann, um jólin. Hótelið var tveggja hæða timburhús og þegar kviknaði í því var ekki við neitt ráðið. Lífið 29. desember 2006 11:04
Harry Potter feigur Líkurnar á að skáldsagnapersónan Harry Potter lifi af í nýjustu bókinni eru hverfandi að mati veð-mangara. Talið er nær öruggt að Potter láti lífið í Dauðaköllunum og er illmennið Voldemort talinn líklegasti morðinginn. Margir hafa einnig veðjað á að Harry verði sjálfum sér að bana í því skyni að tortíma Voldemort. Menning 29. desember 2006 11:00